Dagblaðið - 02.07.1977, Page 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. JULÍ 1977.
^ " "" ....
7
Það þætti óstjóm
hjá ríkisstjóminni
—ef hún st jórnaði landinu eins og skapar-
inn veðurfarinu, segir Regína fréttarítari
DB á Eskifirði á ferð í höfuðborginni
„Eg er hrædd um að það
þætti óstjórn hjá þeirri ríkis-
stjórn sem stjórnaði landinu á
líkan hátt og skaparinn stjórn-
ar veðurfarinu, allt að skrælna
úr þurrki fyrir austan en alltof
mikil væta hér syðra,“ sagði
Regína Thorarensen, frétta-
ritari DB á Eskifirði, Regína
leit við hjá okkur á rit-
stjórninni, en hún er á leið til
sumardvalar á fornum slóðum
að Gjögri á Ströndum.
„Bændurnir fyrir austan eru
búnir að bera á túnin í þeirri
von að það komi væta, en þau
sviðna undan áburðinum. Þar
sem ekki er búið að bera á er
aðeins kominn grænn litur en
spretta er engin.
Útlitið er mjög ískyggilegt ef
ekki kemur rigning næstu
daga. Tilbúni áburðurinn gufar
upp í þurrkinum. . Og þó að
það sé aðeins smágola að degin-
um til er meiri gola á kvöldin
og þar af leiðir að ekkert nátt-
fall er, sem annars myndi
hjálpa mikið.“
— Hvernig er með drykkjar-
vatnið, er það á þrotum?
„Nei, það er nægilegt
drykkjarvatn bæði fyrir menn
og skepnur. Satt að segja undr-
ar það mig að bændurnir skuli
ekki hreinlega vökva túnin hjá
sér, með allan þennan vélakost
sem þeir eiga,“ sagði Regína.
— Hvernig eru vegirnir?
„Þeir eru góðir nema hvað
þeir eru mjög harðir. Það hefur
ekki verið hægt að hefla þá
vegna þurrkanna. Það er allt á
kafi í ryki enda eru allir Aust-
firðingar hásir.“
Eftirvinnubannið kom sér af-
ar illa hjá okkur, sérstaklega
fyrir hraðfrystihúsið, en það er
mikil vinna framundan. Við
eigum duglega og framsýna at-
vinnurekendur, enda eru þeir
ekki háskólagengnir og skilja
flest íslenzk orð. Það hefur
verið unnið af fullum krafti um
helgar og langt fram á kvöld.
Það eru mörg hús i byggingu,
vantar aðeins smiði,“ sagði
Regína.
Regína verður á Gjögri í
sumarbústað sínum næstu sex
vikurnar.
•A.Bj.
DANSKUR FIMLEIKA-
FLOKKUR Á ÍSLANDI
— heldur hér þrjár sýningar en f lokkurinn er á vegum
Gerplu úr Kópavogi
Nú um helgina heimsækir fim-
leikaflokkur frá Thisted í Dan-
mörku ísland og heldur flokk-
urinn hér 3 sýningar Fimleika-
fíokkurinn kemur hingað á
Það er eins og gott veður í
Reykjavík auki á árekstra-
fjöldann og verða þeir sjaldan
fleiri og stærri en þegar sólin
skin sem bjartast. I gær urðu 18
árekstrar á tímabilinu frá
klukkan eitt til sex.
vegum íþróttafélagsins Gerplu í
Kópavogi en stjórnandi flokksins
er Age Husum, heimsþekktur
danskur fimleikamaður.
Danska fimleikafólkið býr á
saman svo úr urðu ótal högg,
beyglur og brot.
Allt þetta skeði við prýðisgóð
akstursskilyrði en ökumenn virt-
ust með hugann við annað en
aksturinn.
-ASt.
heimilum félagsmanna Gerplu á
meðan íslandsdvölin stendur
en 9. júlí heldur flokkurinn utan
aftur. Fyrsta sýning flokksins
verður 4. júlí í Asgarði í Garðabæ
kl. 21. Síðan verður haldið til
Akureyrar og þar haldin sýning á
miðvikudag kl. 21. Þriðja og
síðasta sýning flokksins fer síðan
fram í íþróttahúsinu Ásgarði
föstudaginn 8. júlí og þá kl. 18.
-h. halls.
»
Danir hafa á að skipa ýmsum
ágætum fimleikamönnum. Hér
svifa þrjár úr danska fimleika-
fiokknum um loftin blá.
Fjöldi árekstra í sól og
góðúm akstursskilyrðum
— stórt jón á bflum og fólki
Á mótum Njarðargötu og
Sóleyjargötu eyðilagðist Fíat-bfll.
Var honum ekið niður Njarðar-
götuna og rakleitt út yfir
Sóleyjargötu og stöðvunar-
skyldu ekki sinnt. Þar bar að al-
menningsvagn og lenti hann á
hlið Fiatsins og kastaði honum á
stóran vöruflutningabíl. Stúlka í
Fiatbílnum skarst á andliti en
slapp vel miðað við skemmdir
bílsins.
Blazer bíl var ekið af Eyrar-
landi inn á Bústaðaveg í gærdag.
Lenti hann á Datsun-bifreið sem
ók í fullum rétti austur Bústaða-
veginn. Datsuninn valt og má
teljast ónýtur eftir og miklar
skemmdir urðu á Blazer-bílnum.
Ökumaður Datsun-bílsins skarst
og kvartaði um eymsli í
hálsi. Hann fór í slysadeild.
Á mótum Kringlumýrar-
brautar og Hamrahlíðar stór-
skemmdust þrír bílar en slys
urðu ekki. Þar óku tveir bílar
samsíða suður Kringlumýrar-
brautina er hinn þriðji kom
austur Hamrahliðina og var rak-
leitt ekið út á umferðaræðina.
Kastaði hann hinum tveimur
Hringflug
Flugfélag Islands hagar áætlunum sínum svo að
þú getur farið flugleiðis fjórðunga á milli.
Sparað þér þann tínia og fyrirhöfn, sem bílferð
útheimtir og geymt kraftana til að skoða þig vel
um á hverjum stað. Það má gista á hóteli, hjá
vinum eða styðjast við tjaldið og svefnpokann.
Lent er á ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Höfn
og í Reykjavík. Hringfluginu má ljúka á einni
viku, en frjálst er að dveljast lengur á hverjum
stað og-skemmta sér að vild.
Jæja, nútímamaður,
hringinn í sumar?
hvernig væri að fljúga
FLUCFÉLAG ÍSLANDS
INNANLANDSFLUG