Dagblaðið - 02.07.1977, Síða 13
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. JULl 1977.
STRANDKJOLL
SEM ER SÓLBAÐS-
LAK í LEIÐINNI
Hér kemur smellin hugmynd
fyrir sólarlandafara, strand-
kjóll sem er eins konar sólbaðs-
lak í leiðinni.
Frotté-efnin eru 90 cm breið
og hægt að hafa „kjólinn" eins
síðan og hver kýs með því að
kaupa meira af efninu.
Eins er hægt að nota
venjuleg baðhandklæði.
Ef efnið er notað verður að
falda kantana. Klippt er úr
miðju efninu fyrir höfuðið og
hálsmálið faldað.
Kjóliinn er ekki saumaður
saman í hliðunum en haldið
saman um mittið með snúru eða
belti. Þegar nota á flíkina sem
lak til þess að liggja á í
sólbaðinu er hún tilbúin, aðeins
lögð eftir endilöngu á heitan
sandinn!
-A.Bj.
18
Það er til líf eftir
— segir þýzkur læknir eftir að hafa
verið vitni að endurlífgun margra
sjúklinga er írauninni voru látnir
Þekktur þýzkur læknir, Paul
Becker við St. Vincent sjúkra-
húsið í Limberg í Vestur-
Þýzkalandi, hefur rannsakað
sjúklinga sem fengu ,,klíniskt“
andlát, en voru vaktir til lífsins
á nýjan leik. Þegar sagt er að
sjúklingur sé ,,klínískt“ látinn
er átt við að hann sé látinn frá
læknisfræðilegu sjónarmiði. Þá
er enginn hjartsláttur, enginn
púls, enginn blóðþrýstingur og
engin öndun allt upp í fimm
mínútur.
Þessir sjúklingar eru allir á
sama máli um að þeim hafi liðið
alveg dásamlega vel — Þeir
halda því fram að þeir hafi
„svifið" í lofti sjúkrastofunnar
eða skurðstofunnar og horft á
sjálfa sjg, hjúkrunarfólk og
lækna í kringum sig. Þetta mun
vera kallað „sálfarir" á
islenzku og flutti Ævar Kvaran
leikari fjölmörg erindi um
þetta efni f útvarpinu f vetur.
Eftir að þessir sjúklingar
höfðu verið „lífgaðir við“ með
hjartahnoði og öndunarvélum
eru þeir allir á sama máli um að
þeir hefðu heldur kosið að fá að
vera áfram í dauðaástandinu.
Flestir segja nákvæmlega sömu
setninguna segir dr. Becker:
„Hvers vegna léztu mig ekki
vera í friði? Mér leið svo dæma-
laust vel. Þetta var svo fagurt
og allur sársauki var horfinn."
Allir þessir sjúklingar
staðhæfðu einnig að enginn ótti
hefði gert vart við sig, heldur
einhvers konar sælutilfinning.
Þegar líkaminn var um það bil
að lifna við aftur vissu sjúkling-
arnir að nú áttu þeir að „snúa
aftur" í þennan líkama, sem
var kvalarstaður og þeir kviðu
þvf.
„Sumir voru reiðir yfir því að
vera vaktir til lffsins á nýjan
leik,“ sagði dr. Becker.
Þessir sjúklingar hans eru á
aldrinum frá 24 ára til 67, bæði
konur og karlar. Þeir voru
haldnir ýmsum sjúkdómum,
krabbameini, innri blæðingum,
hjartaáfalli og nokkrir voru
meðvitundarlausir.
Bæði dr. Becker og aðstoðar-
fólk hans hafa sagt að' það sé
mikil trúarleg reynsla að vera
viðstaddur slfka „endur-
vakningu til lífsins“.
„Allir þessir sjúklingar voru
á einu máli um að sálin hefði
farið úr lfkamanum,“ sagði dr.
Becker. „Nokkrir þeirra trúðu
alls ekki á guð áður en þetta
gerðist. En það gera þeir allir
eftir þessa reynslu.
Eftir að hata fýlgzt með þess-
um sjúklingum og rætt við þá:
eftir „endurlffgunina“ er ég'
sannfærður um að það er ein-
mitt það sem gerist við
„dauðann" — að sálin fari úr
líkamanum,“ segir dr. Becker.
Hann hefur einnig viður-
kennt að honum þótti frásagnir
af svona atburðum næsta ótrú-
legar áður en hann varð vitni
að þeim sjálfur.
„En nú trúi ég þessu," segir
hann. „ Sannanirnar eru of
miklar til þess að mótmæla
þeim, — það er til líf eftir
dauðann“.Þýtt og endursagt A.Bj
Fluavélarnar gtra órós ó risaapann •fftir röð.
SprangjuhriA rignir yfir oponn
V Strókar, þið vtrðið að
gaita að því að lóta
hann ekki nó ykkur.
Tœknimaðurinn tr við
^Tcnknimaður
kallar Logan:
Mtr líkar
ekki hvtrnig
hann lœtur.,
Þetta er ekki
alveg eftir
^ Hvað trt þú Það er erffitt |[
eiginltga aö ^að -------------
tiga við ^
hann, hann }
virðist vera S