Dagblaðið - 02.07.1977, Side 14
I
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1977.
„Anægöir meðan
við skrimtum”
Rætt við Jónatan Garðarsson
formann Jazzvakningar
„Þegar viö stofnuðum
Jazzkvakningu í október 1975
má segja að öll lifandi starf-
semi í kringum jazztónlistina
hafi legið niðri um tiu ára
skeið. Við settum okkur það
mark að blása í glæðurnar og
jafnvel kynda undir. Árangur-
inn hefur svo sannarlega farið
fram úr öllum vonum.“
Þetta hafði Jónatan Garðars-
son formaður Jazzvakningar að
segja um tildrögin að stofnun
klúbbsins. Frá upphafi hefur
Jazzvakning staðið fyrir sextán
tónleikum og jafnframt kynnt
jazztónlist i skólum, haldið tón-
listarkvöld í samráði við
Menningarstofnun Bandarikj-
anna og Klúbb 32. — I sumar
ætlar Jazzvakning að starfa
áfram af krafti. Klúbburinn
hefur fengið inni í kjallaranum
að Fríkirkjuvegi 11. Þessi
staður fær á hverju mánudags-
kvöldi nafnið Jazzkjallarinn og
þangað geta þeir sem áhuga
hafa komið og hlustað á betri
tónlist en þá sem tröllríður
öllum danshúsum um hverja
helgi, eins og Jónatan komst að
orði.
„1 Jazzkjallaranum ætlum
við að hafa sögu jazztónlistar-
innar sem fastan lið og fá auk
þess tónlistarmenn og hljóm-
sveitir til þess að koma fram,“
sagði Jónatan. ,,Ég vil benda á,
að ef einhverjir telja sig hafa
eitthvað tónlistarkyns fram
að færa, þá er þeim óhætt að
hafa samband við okkur. Það
skiptir ekki máli, þó að tónlist-
in flokkist ekki undir jazz.
Við vitum það að fjöldi fólks
fæst við að leika alls konar tón-
list heima hjá sér fyrir sjálft
sig og fáa útvalda,“ hélt
Jónatan áfram. „Eg get nefnt
sem gott dæmi að borgarstjór-
inn, Birgir ísleifur, leikur jazz
og blues heima hjá sér.“
Salur Æskulýðsráðs að Frí-
kirkjuvegi 11 er ekki stór. Þó
má með góðu móti koma þar
fyrir um eitt hundrað
áheyrendum. Jónatan var að
því spurður hvers vegna þessi
salur hafi einmitt orðið fyrir
valinu.
„Við leituðum til Æskulýðs-
ráðs um aðstoð og fengum
frjáls afnot af þessum sal,“
svaraði hann. „Ég hef trú á því
að hér sé hægt að ná upp góðri
stemmningu, þó að húsnæðið sé
ekki eins stórt og við höfðum í
vetur."
Húsnæði það, sem Jónatan
minntist á, er Veitingahúsið í
Glæsibæ. — „Veitingamaður-
inn þar, Halldór Júlíusson,
hefur sýnt okkur mikinn skiln-
ing og skotið yfir okkur skjóls-
húsi í vetur,“ sagði hann. „Þeir
DBHnynd Hörðuf
eru í raun og veru aðeins tveir,
veitingamennirnir, sem eitt-
hvað gera fyrir tónlist á hærra
plani en drykkju- og diskótek-
tónlistina. Það eru Halldór og
Sigursæll í Tjarnarbúð."
Svo sem sjá má af orðum
Jónatans er hann ánægður með
hvernig málin í kringum Jazz-
vakningu hafa þróazt. En hafa
þá ekki safnazt upp stórir
sjóðir? Hyggst Jazzvakning
ekki kaupa sinn eigin sal, eða
jafnvel byggja.
„Nei,“ svarar Jónatan og hlær
við. „Við berjumst í bokkunum.
Ef stjórnin ynni ekki alla
undirbúningsvinnu launalaust
þá gengi klúbburinn ekki.
Starfsemin hjá okkur er
svipuð og hjá íþróttafélögun-
um. Við vinnum allt i sjálfboða-
vinnu, — en við fáum. enga
opinbera styrki eins og Iþrótta-
félögin. Þá höldum við aðgangs-
eyrinum niðri eins og frekast er
unnt. Starfsemi Jazzvakningar
byggist þannig ekki upp é
gróða. Á meðan við skrimtum
erum við ánægðir“.
Þá var Jónatan Garðarsson
inntur eftir raunverulegum
árangri af starfsemi Jazzvakn-
ingar. Höfðu til dæmis ein-
hverjir nýir tónlistarmenn
verið uppgötvaðir.
„Já, það eru svona fimm til
tíu ungir tónlistarmenn sem við
höfum sérstaklega tekið eftir
og gefa góðar vonir,“ svaraði
formaðurinn. „Vegna þessara
manna er í rauninni nauðsyn-
legt að starfsemin haldi áfram.
Þá má benda á hljómsveitina
Pnin, sem við bindum miklar
vonir við.“
Þá bætti Jónatan því við, að
hugmyndir væru meðal stjórn-
armanna um að gangast fyrir
útihljómleikum I sumar ef
veður leyfði. Þá er væntanlegur
í haust Nordjazz kv^rtettinn, —
Islendingslaus, en með fulltrúa
frá hinum Norðurlöndunum.
Hann sagði ennfremur að
sænskir tónlistarmenn hefðu
sýnt áhuga á að koma til
Islands og leika og eins ein
hljómsveit frá Færeyjum.
„Til slíkrar starfsemi skortir
okkur hins vegar fé,“ sagði
Jónatan. ^jOg meðan stjórnvöíd
greiða ekki fyrir starfseminni
hjá okkur með fjárstyrk þá
getum við ekki staðið í slíku.‘-‘
AT.
f Verzlun Verzlun Verzlun J
Bílasalan u;+,
SPYRNAN$imH?Z9330ogÍ933Í
Skyndihjálp
efspríngur
Puncture Pilot
Sprautað í hjólið og
ekið strax áfram með
fullum loftþrýstingi.
Uppl. á íslenzku fáan-
legar með hverjum
brúsa.
Smyrill
Ármúla 7 —
Sími 84450.
Psoriasis og Exem
PHYRIS snyrtivörur fyrir viökvæma og
ofnnmishúA.
— Arulone sápa — A/uleno Cream
— A/ulene Lotion — Kollagen Cream
— Body Lotion
— Cream Bath (FurunálabaA 4- Shampoo)
PHYRIS er húAsnyrting og hörundsfegrun meA
hjálp blóma og jurtaseyAa.
PHYRIS fyrir allar húAgerAir.
Fnst í helrtu snyrtivöruverrlunum og apótekum.
BIABIÐ
Allar gerðir rafsuðuvéla frá
„HOBART“ í USA og Hollandi. Með
„HOBART“ hefst að vinna verkin.
HAUKUR & ÓLAFUR HF.
Armúla 32. Simi 37700.
ALTERNATORAR 6/ 12/
24 VOLT
VERÐ FRÁ KR. 10.800.-
Amerisk úrvalsvara, viðgerða-
þjónusta.
BÍLARAF HF.
BORGARTÚNI 19, SlMI
24700.
3 MAFIU sí'Mjur MAFIAN
BtióaHAH fiJTíHUvS MSAíVÍVUtíU
Svarta
kótiguió'm
Kókain í
Bcírut
Eíturiyt aft
auNtan
AiH spdnnMvti Irásagní*
*f sp<ta*>ny<;)i. c<iiuriyf.k;m
fnaniKjfápiím. icíniinum.
vnpfiasmygli. vamdi <ifi
KHisnum fcíifnmúiníiii
á V<í»liifiönfiiim.
S k c m im i 1 t-ga r
krossgáiur
og
bi a n (Ia r a i
M'J \»
KS.0SS«
MTDI8
FAST
r
I
ÖLLUM
BÓKA-
VERZLUNUM
0G
KVÖLD-
SÖLUSTÖÐUNI
UM
ALLT
LAND
STJÖRNUGRÓF 18 SlMI 84550
ViÓ bjóðum:
Dmandi Birki
skiautrunna
Og limgetóispjöntur
Kynnið ykkur skrif borðs-
stólana vinsælu f ra'
Stáliðjunni SSSZé
vinnustööum sem
heimHum.
11 mismunandi
tegundir.
1 ársábyrgö
Krómhúsgögn
Smiðjuvegi 5 Kóp.
Sími43211
tryggir gæóin
Ýmis efni frá Glasurit verk-
smiöjunum í V-Þýskalandi
voru hér á markaöinum fyrir
nokkrum árum og áttu þaö flest
sameiginlegt aö vera viöurkennd
fyrir frábær gæöi. Núna býöur
Glasurit nýtt og endingarbetra
bilalakk - GLASSODUR 21 sem er
t.d. notaö á V.W.. AUDI. B.M.W. o.fl:
bifreiöar. Viö getum blandaö flesta liti
nánast allar tegundir bifreiöa.
Remoco hf.
Skeljabrekku 4. Kópavogi, sími 44200.