Dagblaðið - 02.07.1977, Side 24
VIUA BANNA EINANGRUNAR-
PLASTÍ
Brunamalastofnun rikisins
hefur lagt til að notkun
einangrunarplasts verði tak-
mörkuð mjög verulega og jafn-
vel bönnuð í byggingariðnaði.
Ástæðan er sú að við eldsvoða
myndast baneitraðar loft-
tegundir af völdum plastsins og
eldhætta þykir talsvert meiri
þar sem plast liggur að timbri
og öðrum eldmat.
Þessi tillaga — og margar
fleiri — eru í reglugerðar
drögum, sem nú eru til
athugunar í félagsmálaráðu-
neytinu. Reglugerðin er
aðallega tekin saman af Bárði
Daníelssyni brunamálastjóra.
Hann. vildi í gær ekki ræða efni
hennar við fréttamann
blaðsins; sagði að enn væri
óvíst hvort ráðuneytið sam-
þykkti þessar tillögur og á
meðan væri ástæðulaust að
ræða efni þeirra í blöðum.
Hallgrímur Dalberg,
ráðuneytisstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu, færðist einnig
undan að ræða efni
reglugerðardraganna. „Þetta
eru tillögur Brunamálastofnun-
ar rikisins um reglugerð um
brunavarnir og brunamál,"
sagði Hallgrímur. „Við fengum
þetta upp úr miðjum maí og
erum langt komnir með að
athuga málið. Stjórn Bruna-
málastofnunar ríkisins hefur
þessar tillögur einnig til
athugunar.“
Lög um brunavarnir voru
sett 1969 og er nú orðið geysi-
lega aðkallapdi að reglugerð
verði sett um nánari fram-
kvæmd þeirra, að sögn
Hallgríms Dalbergs.
Tillögur brunamálastjóra eru
mjög ítarlegar, greinargerðin
upp á 48 síður, sagði
ráðuneytisstjórinn.
Þróunin víða erlendis hefur
verið í þá átt undanfarin ár
og misseri að notkun iðnaði hefur verið mjög tak-
einangrunarplasts í byggingar- mörkuð og jafnvel bönnud. -ÓV.
Krakkarnir notfæra sér staflann af einangrunarplastinu. Kannskl
verður sú raunin á að það efni verði ekki eins áberandi i byggingar-
iðnaði og verið hefur undanfarin ár.
fijáJst, áháð riagblað
ÞEIR UNNU
BRASSANA!
Þetta eru strákarnir af Brúar-
fossi sem stóðu sig svo glæsilega í
alhliða iþróttakeppni sem efnt
var til milli áhafna allra skipa
sem lágu í höfninni í Norfolk í lok
maí. Verðlaunin hlutu þeir fyrir
að verða efstir i knattspyrnu og
skotfimi. Sigruðu þeir m.a.
Brasilíu, tvö eitt. Þeir hlutu önn-
ur verðlaun í frjálsum íþróttum
og þriðju verðlaun í boðhlaupi.
Þeir heita, talið frá vinstri:
Eggert Eggertsson bryti og „þjálf-
ari“, Björgvin Arngrímsson, Vil-
bergur Prebensson, Ingólfur
Jóhannsson, Ólafur Prebensson
og ívar Guðmundsson.
(DB-mynd Bjarnleifur)
Valinkunnir sérfræðingar
kanna hér fiskiræktarmál
Fulltrúar ríkisins höfnuðu samstarfi við Reykjavíkurborg um komu þeirra
Innan fárra vikna er von á
tveimur erlendum sérfræðing-
um í fisksjúkdómum hingað lil
lands og munu þeir reyna að
kynna sér og komast að raun
um ástæður fyrir fisksjúkdóm-
um í fiskeldisstöðvum á
Reykjavíkursvæðinu. Borgar-
ráð samþykkti ályktun veiði- og
íiskiræklarráðs um komu þess-
ara sérfræðinga og mun borgin
ein sianda undir koslnaði við
tslandsfiir þeirra.
Veiði- og fiskiræktarráð
hafði áður haft forgiingu um að
samtök yrðu um hingaðkomu
slíkra sérfræðinga. Leitaði
ráðið hófanna hjá Veiðimála-
stofnun rikisins og fisksjúk-
dómanefnd um slíkt. Þessir
aðilar kváðust ekki hafa áhuga
á slíkri samvinnu og fisksjúk-
dómanefndin taldi að lítill ár-
anguryrði af slikri skyndiheim-
sókn. Þóttu fiskiræktarráðs-
mönnum Reykjavikur það kald-
ar kveðjur og stinga í stúf við
þá skyndidóma sem sama nefnd
kvað upp yfir fiskir;ekt Skúlaá
Laxalóni.
Davið Oddsson, varaform.
fiskiræktarráðs, sagði DB að
sérfræðingarnir 'myndu koma
innan fárra vikna og væri koma
þeirra skipulögð og undirbúin
af Jakobi Hafstein fram-
kvæmdastjóra ráðsins.
í vor kom upp einhver veiki í
eldisstöðinni við Elliðaár.
Rannsókn leiddi i Ijós að ekki
var um nýrnaveiki að ræða
heldur veiki setn áður hefur
t.d. einnig komið upp í eldisstöð
Skúla. Ráðinu finnsl þvi full
ástæða til að fá valinkunna sér-
fræðinga til að kanna ástæður
fyrir sjúkdómum í eldisfiski á
borgarsvæðinu. Einnig er það
skoðun ráðsins að stuðla beri
að því að sérfræðingur á þessu
sviði fáist til rannsókna hér og
haldi uppi viðurkenndu eftirliti
með fiskirækt.
En þar sem veiðimálastjórn
og fisksjúkdómanefnd hafnaði
samstarfi er ólíklegt að t.d.
Kollafjarðarstöðin muni vera
skoðuð af sérfræðingum en hún
mun heldur ekki hafa sloppið
við sjúkdóma. -ASt.
LAUGARDAGUR 2. JÚLl 1977,
Löggæzlumálin
á Seyðisfirði:
Ráðuneytis-
stjdrinn til
Seyðis-
fjarðar
Baldur Möller, ráðuneytis-
stjóri dómsmálaráðuneytis,
brá sér í ferð til Seyðisfjarð-
ar á miðvikudag. Eins og
fram hefur komið í frétta-
greinum Dagblaðsins í byrj-
un vikunnar ríkir leiðinda-
ástand á staðnum hvað varð-
ar almenna löggæzlu. í við-
tölum við nokkra málsmet-
andi borgara Seyðisfjarðar
var ástandinu lýst, — fjöl-
margar kærur á misyndis-
menn en lítið að gert hjá
löggæzlumönnum og dóm-
ara.
Koma ráðuneytisstjórans
til Seyðisfjarðar vakti mikla
athygli og vonir bæjarbúa að
nú verði breyting á bæjar-
bragnum til batnaðar.
Baldur Möller ræddi við
bæjarráð og bæjarstjórn og
fleiri aðila á miðvikudag og
fimmtudag og starfaði fram
á kvöld. Nú er að vita hvaða
ráðstafanir verða gerðar til
að tryggja bæjarbúum þann
frið og þá ró sem þeir óska
eindregið eftir. -JBP-
Falskt
neyðarkall
Laust fyrir hádegi í gær
heyrðist ógreinilégt neyðar-
kall á neyðarbylgju Far-
stöðvaklúbbsins og heyrðu
margir það samtimis. Hins,
vegar var það mjög óskýrt og
náði enginn hvaðan það kom
nema hvað það mun hafa
verið einhvers staðar á
Suðurnesjum.
Þar sem einhver gat hugs-
anlega verið í nauðum stadd-
ur leituðu lögreglumenn og
FR-menn meðfram fjölda
vega og Slysavarnafélag ís-
lands var við öllu búið. Síð-
degis í gær var það að frétta
þaðan að menn hölluðust æ
meir að því að um gabb væri
að ræða og ekki stæði til að
kalla út leitarflokka.
Svipað atvik kom fyrir
nýlega en endurtaki slíkt sig
má búast við að á köllum
sem þessum verði ekki tekið
mark þótt neyð sé á ferðum.
-G.S.
Þrennt
slasast í
umferðar-
slysi
Mjög harður árekstur
varð á Reykjanesbraut við
gatnamót Þúfubarðs kl.
13.30 í gær. Þar skullu
saman vörubíll og Cortina
fólksbifreið. Vörubíllinn
hafnaði utan vegar en fólks-
bíllinn e.vðilagðist gjörsam-
lega. Hjón með smábarn
slösuðust mikið í fólksbíln-
um og bílstjórinn mest.
Fólkið var allt í aðgerð á
Slysadeild er blaðið fór i
prentun. Bilstjóri
vörubílsins slapp ómeiddur.
-JH.