Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 1
f 4 4 4 4 A 3. ARG. -MANUDAGUR 15. AGtlST 1977 — 175. TBL,- RITSTJÓRN -SÍÐUIVlCLA 12. AUGLÝSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — [AÐALSÍMI 27022 Hótelverkfall á sólarströndum Spánar: „Engin áhrif áokkur” —segja íslendingar þarsyðra „Þetta verkfall hefur ekki haft nein óþægindi í för meö sér fyrir okkur, í það minnsta ekki ennþá,“ sagði Sveinn Gúst- afsson einn islenzku ferða- mannanna á sólarströndum Spánar í símtali við DB í morg- un. Þar stendur yfir verkfall um það bil 16000 starfsmanna á veitingastöðum, hótelum og vínstúkum. Krefjast þeir 8.000 peseta launahækkunar á mán- uði en hefur verið boðin 4.000 peseta bein kauphækkun og 2000 peseta hækkun í formi einhvers konar almannatrygg- ingabóta, samkvæmt upplýsing- um örnólfs Árnasonar aðalfar- arstjóra Ferðaskrifstofunnar Ctsýnar. Á hóteli því sem Sveinn Gústafsson dvelur á, Playa Mar, búa um 3600 manns og þar hlupu eigendur í skarðið og reyndu að halda uppi lágmarks- þjónustu. Gestir búa allir f íbúðum með eldhúsi, svo þó veitingasölum hafi verið lokað eiga þeir auðvelt með að bjarga sér með fæði. „Ég rölti niður í borgina í' gærdag og þar vo.ru allir úti- veitingastaðir harðlokaðir," sagði Sveinn Gústafsson. Sagði hann að tilkynning hefði verið hengd upp í lyftur þar sem hóteleigendur báðu fólk afsökunar á óþægindunum vegna verkfallsins, sem þeir töldu ólöglegt. Fólk var beðið að fara með rusl út í tunnur fyrir utan hótelið og bent'á að ná sjálft í gaskúta og sængurföt á afgreiðslu hótelsins ef þörf væri á. „Þeir eru óvanir verkfallsað- gerðum hér á Spáni og virðist ekki alveg ljóst hvernig málin þróast," sagði örnólfur Árna- son í gær. „Samninganefnd verkfalls- manna var búin að samþykkja tilboð um 6000 peseta hækkun en það var síðan fellt á allsherj- arfundi. Annars hefur þetta ekki mik- il áhrif á okkar fólk því af um 500 manns, sem dveljast hér á okkar vegum eru aðeins fimm sem ekki búa í íbúðum með eldhúsi," sagði örnólfur. Erlendir ferðamenn á sólar- ströndum Spánar munu vera um hálf milljón og núna stend- ur yfir háannatíminn. Allt gisti- rými mun vera upptekið og annríki mikið. Ferðamannaiðnaður Spán- verja hefur rétt við aftur í sum- ar eftir tveggja ára öldudal, að sögn örnólfs Árnasonar. Sagði hann að í dag væri almennur frídagur í Malaga og því meiri mannfjöldi á baðströndum en ella. Er dagurinn helgaður verndardýrlingi borgarinnar. Lægstu laun starfsfólks í ferðamannaiðnaði á Spáni eru 15.000 pesetar og er krafizt 8000 peseta hækkunar fyrir það fólk en nokkru minna fyrir hærra launaða. Hjá mörgu starfsfólki í grein- inni er þjórfé stór hluti tekn- anna. Ekki virtust horfur á samn- ingum í dag samkvæmt erlend- um fréttaskeytum I morgun þó ekki beri mikið á milli. Ekkert benti til að stjórnvöld ætluðu að skipta sér af málum, þó hóteleigendur hafi lýst verk- fallið ólöglegt. -ÓG. Dýrin höfðu ámóta aðdráttarafl og landsliðsmennimir Brjóstið út og magann inn, — alveg sjálfsagt segir Dolly níu mánaða gömul tík, sem er púðla að hálfu og chihuahua að hálfu. Doliý var meðal margra dýra sem sýndu sig og sáu trpðfullt hús á dýrasýningu í Laugardalshöll í gær. Sjá myndir og frásögn á bls. 8 og 9. DB-mynd K.Th. Sig. Húnfylgistmeð ökumönnunum ímiðborginni — baksíða Norski njósnarinn Gunvor Haavik lézt í fangelsi —sjá erl.fréttir ábls.6-7 ENGIR K0MMAR Á ÍTALÍU —eftir 10 ár, segir Willy Brandt —sjá eri. f réttir á bls. 6-7 1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.