Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 10
10 Útgvfandi Framkviamdaatjóri: Svoinn R. Eyjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Fréttastjórí: Jón Birgir Pótursson. Ritstjornarfulltrui: Haukur Helgason. Skrifstofustjori ritstjórnar: Jóhannea Reykdal. iþróttir: Hallur Simonarson. Aöstoöarfrettastjóri: Atli Steinarsson. Safn: Jón Ssavr Baidvinsson. Handrit: Ásgrímur Palsson. BlsAamenn: Anna Bjarnason. Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Gissur SigurAsson, Hallur Hallsson, Helgi Pótursson, Jakob F. Magnússon, Jónas Haraldsson, Katrín Pálsdóttfr, ólaf.ur Jónsson, ómar Vsldimarsson, Ragnar Lár. Liósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Hörður Vilhjálmsson, Sveinn Pormóösson. Skrífstofustjóri: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson. Dreifingarstjóri: Már E.M. HaBdórssoff. Ritstjóm Síöumúla 12. Afgreiösla Þverholti 2. Áskríftir, auglysingar og skrifstofur Þverholti 11. AAafsámi biaðsins 27022 (10 línur). Áskrift 1300 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 70 kr. SMttakið. Setning og umbrot: Dagblaöiö og Steindórsprent hf. Ármúla 5. Myndaog plötugerö: Hilmir hf. Síðumúla 12. Prentun: Árvakur hf. Skeifunni 19. Oagbiaöið hf. WBIAÐIB Irjálst, úháð dagblað Fjögurra fíokka kerfí? Stjórnmáiallokkarnir hafa þegar byrjað undirbúning næstu alþingiskosninga. Stjórnarflokk- arnir hafa farið rólegar af stað en stjórnarandstöðuflokkarnir, sem vilja vera við öllu búnir, ef ríkis- stjórnin ákveður að flýta kosning- unum. Meiri hræringar eru nú á fylgi flokkanna en verið hafa á undanförnum áratugum. Flokks- tryggð hefur rýrnað, einkum á stórborgarsvæði Reykjavíkur og Reykjaneskjördæmis. Ætla má því, að þátttakendur og áhorfendur kosninga- undirbúningsins verði nú spenntari en áður. Dagblaðið fjallaði um þessi mál í tveimur leiðurum í síðustu viku. I fyrri leiðaranum voru leidd rök að því, að framboð nýrra flokka mundu ekki ná árangri, allra sízt framboð yzt frá hægri og vinstri kanti stjórnmálanna. í hinum síðari var spáð fylgistapi stjórnarflokk- anna. Af þessu leiðir, að pólitísk von og bjartsýni ríkir nú fyrst og fremst í herbúðum stjórnar- andstöðuflokkanna þriggja. Jafnvel Samtök frjálslyndra og vinstri manna, sem eru í von- lausri aðstöðu að mati flestra kunnugra manna, eygja von um þingmann og framhaldslíf. Alþýðubandalagið er öflugt um þessar mundir. Þar virðist flokksstarf vera blómlegt og félagslíf meira en í flestum öðrum flokkum. Flokkurinn og Þjóðviljinn eru fullir sjálfs- trausts. Á þessu stigi er óhætt að spá því, að bandalagið fari vel yfir 20% markið í kosning- unum. Flokknum hefur tekizt furðu vel að þvo Kreml af sér. Sjálfstraustið er orðið svo mikið, að ritstjóri Þjóðviljans heldur því fram, að evrópukommúnismi Berlinguers á Ítalíu og nokkurra fleiri slíkra í Vestur-Evrópu sé í rauninni upprunninn í Alþýðubandalaginu! í síðustu kosningum var Alþýðuflokkurinn í dauðateygjunum. Hann náði þá aðeins einum kjördæmakosnum þingmanni og mátti ekki miklu muna, að flokkurinn þurrkaðist út á þingi. Óvinsældir ríkisstjórnarinnar hafa margeflt lífsvon Alþýðuflokksins. Eftir öllum sólar- merkjum að dæma, er flokkurinn nú sem óðast að undirbúa móttöku flóttamanna úr Sjálf- stæðisflokknum. Óhætt er að spá því, að Alþýðuflokkurinn fari vel yfir 10% markið. Miklar hræringar og flokkadrættir hafa ^ verið í Alþýðuflokknum að undanförnu. Flokkurinn hefur ákveðið að hagnast á þessu með svipuðum hætti og Sjálfstæðisflokkur- inn gerði fyrir síðustu kosningar. Prófkjör eiga að vera hjá flokknum í öllum kjördæmum. Þau geta framkailað nýja og efnilega stjórnmála- menn, er náði góðum árangri í kosningunum. Flest bendir því til, að hið sígTlda fjögurra flokka kerfi íslenzkra stjórnmála ríki eftir kosningar og að meira jafnvægi verði milli flokkanna en verið heíur að undanförnu. Það ætti að auka festu stjórnmálanna en um leið að minnka líkur á nauðsynlegri endurreisn þeirra. í þessum spám virðast helzt vera tvö óviss atriði. Annað er, hvort óháð framboð á borð við Karvel Pálmason og menn hans munu ná árangri. Hitt er, hvort Samtökunum tekst aftur að komast á blað. Á báðum stöðum virðist vera mjög á brattann að sækja. ! • I DACBLAÐIÐ. MÁNUDAOUR 15. AGtJST 1977. ÍTALÍA: Mannrán, mótmæli og óeirðir —en við eigum ekki einir við það vandamál að stríða, segja ítalir Diskur fullur af spaghetti með skammbyssu til skrauts var forsíðumyndin á vestur- þýzku blaði nýlega. I blaðinu var nákvæm frásögn af óeirðum á Ítalíu undanfarna mánuði. Þar voru tíunduð ails konar rán, óeirðir og óánægja stúdenta með allt og alla á Ítalíu. Ekki bara óeirðir ó Ítalíu Vegna þessarar greinar í þýzka blaðinu urðu margir ítalir til að mótmæla þessu og segja að það séu ekki bara óeirðir á Italíu. Þeir minna á að nýlega hafi bankastjóri verið skotinn til bana í Vestur- Þýzkalandi. Þar hafi hryðju- verkamenn verið að verki. Þeir segja að Þjóðverjar séu í stök- ustu vandræðum með róttækl- inga í landinu og þeir eigi fullt í fangi með að ráða 'við þetta vandamál i sínu eigin landi, en í stað þess að snúa sér að því, þá tali þeir aðeins um það hversu slæmt ástandið sé í öðrum löndum. Það er allt logandi í alls konar mótmælum, allir eru óánægðir. Glœpamennirnir komnir í sumarfrí Italir eru ekki að mótmæla því að þeir eigi í miklum vand- ræðum með alls konar óánægjuhópa. Þar er algengt að fólki sé rænt og þá er krafizt mikils lausnargjalds. Nýlega gerðu fangar uppreisn og stúdentar hafa mikið látið að sér kveða. Þeir hafa farið í miklar mótmælagöngur og ekki verið að spara kröfuspjöldin. En nú bregður svo við að allar mótmælagöngur og aðrir óánægðir hópar hafa haft hægt um sig að undanförnu. Að sögn lögreglunnar lítur út fyrir að glæpamenn séu almennt í sumarfríi. Þar hafa þeir litið látið til sin taka undanfarið. Stúdentarnir hafa einnig látið af mótmælum sínum. Það eru allir Italir í sumarfrii um þess- ar mundir og flestir sóla sig á skemmtilegum sandströndum. Lögreglan gengur um götur og hefur það rólegt þessa dagana. Hins vegar hafa rannsóknarlög- reglumenn nóg að starfa. Und- anfarna sjö mánuði hefur verið skotið á 35 manns og þeir særðir á þann hátt, að skotið hefur verið í fótleggi þeirÁ. Hér er álitið að skæruliðar séu að verki en ekki hefur hafzt upp á neinum í samtökum V Hagsmunamál ein- stæðra foreldra I vor hófust fyrir alvöru hvorri hæð og í áðurnefndri framkvæmdir við endurbætur og viðgerðir á húsi, sem Félag einstæðra foreldra keypti í Skerjafirði í fyrra. Þessar við- gerðir hafa gengið vonum framar, og má þakka það góðum smið og verkamönnuni' hans, svo og nokkrum vænum framámönnum, einkum af hálfu borgarinnar, sem hafa stutt af dyggð og prýði við bakið á félaginu í þessu brýna hagsmunamáli. Þar sem misskilnings eða kannski öliu heldur takmark- aðrar þekkingar gætir oft á þessu máli — sem og reyndar fleirum hagsmunamálum ein- stæðra foreldra — væri ekki úr vegi að nota þetta tækifæri til að kynna málið lítillega. Eins og margir vita rekur félagið skrifstofu og leita þangað einstæðir foreldrar í ýmsum erindum. Þau ár sem skrifstofan hefur starfað og allt frá því félagið var stofnað fyrir átta árum heíur einn vanda þó borið hæst og sá vandi hefur jafnframt verið óleysanlegast- ur allra, þ.e. húsnæðisleysi. Húsnæðismissir í kjölfar skiln- aðar eða makaláts,' skortur á húsnæði fyrir einstæða feður sem vilja hafa börn sín, en sjá öll tormerki á því vegna að- stöðuleysis bæði hvað snertir húsnæði og barnagæzlu. Ein- stæðir foreldrar í námi sem verða að búa hjá foreldrum sín- um oft við þröngar aðstæður. Og svo mætti lengi telja. Ilúsið í Skeljanesi leysir ekki allan vanda. Til þess þvrfti stærra hús en byggt hefur verið enn á íslandi. Húsinu er hins vegar ætlað að bæta úr alvar- legustu tilvikunum hverju sinni — en einvörðungu til- bráðabirgða. Á þessu heimili er því ekki sízt mikilvægt að í boði verði félagsleg aðstoð við íbúa. I sumar hefur verið unnið við ytra borð hússins. Hefur húsið verið klaút utan hinni göfug Jóhanna Kristjónsdóttir ústu álklæðningu, skipt um fjölmarga glugga og innan tíðar verður byrjað á aðgerðum i ris- hæð þar sem þaki verður lyft og það síðan klætt. Þetta mun gefa svigrúm til að rishæðin verði innréttuð með langtum meiri nýtingu en fæst þar nú. Við upphaf var að sjálfsögðu unnin teiknivinna við allar hæðir hússins, sem er samtals um 600 fm. Kjallarinn, sem var í heldur afbakalegu ástandi þegar Félag einstæðra foreldra keypti húsið, hefur verið gerður þannig úr garði að vonir standa til að þar verði góð aðstaða fyrir börn hússins við leiki sína. Það er æskilegt að okkar dómi að börnin, sem þarna munu búa, þurfi ekki að flengjast milli hinna ýmsu barnaheimila meðan foreldri stundar vinnu, heldur geti verið um kyrrt á heimilinu. Þarf ekki heldur að fara mörg- um orðum um, hversu dýrmætt pláss sem þannig sparast, er fyrir borgina. Á efri hæðunum tveimur sem hvor um sig er um 150 fm hefur húsnæðið verið stúkað niður i þrjár íbúðir á rishæð verða síðan 5—6 góð herbergi, bað, sameiginleg setustofa og eldhús. Þarna verður fært að taka á móti um tíu fjölskyldum samtímis og enda þótt þeir séu auðvitað miklu fleiri sem þyrftu að geta komizt inn, verður þarna stórt skref stigið til að bæta aðstöðu og hag einstæðra foreldra og barna þeirra, þegar húsið kemst í gagnið. Lagt verður kapp á eins og fyrr kemur fram að búa svo um hnútana að hver fjölskylda dvelji sem allra skemmst á heimilinu. Það er sem sé ekki meiningin að íbúar geti hlassað sér þarna niður sem einhverjar eilífðarkýr, heldur er ætlunin að vinna að því eins hratt og hægt er að þeir komi á eðlileg- an hátt undir sig fótunum á ný. Þó er ljóst að um einstæða for- eldra í námi munu gilda aðrar og rýmri reglur hvað búsetu- tíma snertir. Okkur hefur þótt skorta á að ríkið sýndi nokkurn sérstakan fúsleika á að létta okkur byrð- arnar. Það hefur verið sótt um fé til ríkisins hvert ár. Og lítið komið þaðan. En kannski augu þingmanna ljúkist nú upp og þeir sýni okkur í verki allan þann skilning og velvildarhug sem þeir hafa jafnan látið í Ijós í orði, en hefur láðst að sýna á borði, með nokkrum heiðarlegum undantekningum Þó. Verkið er allt mikils háttar og hefur kostað drjúgan skild- ing og er þó ekki nema hluti verksins unninn. Enda þótt okkur hafi þótt sem miklu hafi þurft til að kosta er þó verkið unnið í þeirri trú að sá kostn- aður skili sér rfflega aftur — ekki í beinhörðum peningum, heldur í ötulli og hamingjusam- ari þjóðfélagsþegnum. Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður. I

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.