Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 5
DAC.BLAÐIÐ. MANUI)A(’.UH 15. ACUST 1977. Lögreglan um helgina — Lögreglan um helgina — Lögreglan um helgina Ölóður skríll í miðbænum — rúðubrot og slagsmál Sex rúður voru brotnar i húsi einu við Langholtsveg á laugar- dag Barst lögreglunni kæra um atburðinn kl. 13.30 og var þegar farið á vettvang. Ekki munu þeir enn fundnir sem ódæðið unnu. I húsi þessu er hverfisskrif- stofa Sjálfstæðisflokksins. Liggur beinast við að ætla að eitthvert samband sé milli þeirrar staðreyndar og hugarfars afbrota- mannsins, þó ekkert liggi fyrir um það. -ASt. Mikil ölvun var í Reykjavík á föstudagskvöldið og ágerðist er á nóttina leið. Bárust um 70 útköll til lögreglunnar á laugardags- nóttina að sögn Gylfa Jónssonar varðstjóra og flest þeirra voru tengd ölvun. Kvöldið fór rólega af stað en ærslin ágerðust er líða tók á nótt og stóðu næstum látlaust til um klukkan sex á laugardags- morgun. Mikil ærsl urðu í miðbænum og gerðust menn þar allherskáir í ölvímu sinni. Rúður voru brotnar á þremur stöðum í miðbænum með því að í þær var kastað flöskum eða öðru lauslegu. Var á þann hátt brotin rúða hjá.Karna- bæ í Austurstræti, hjá Leður- verzlun Jóns Brynjólfssonar og í Hverfitónum í Miðbæjar- markaðinum. Náðust nokkrir peyjar er að þessum skrílslátum stóðu. A laugardag var minni móður í mönnum eða kannski aðeins búið að teyga vinbirgðir helgarinnar og átti lögreglan því rólegra kvöld en nóttina áður. -ASt. Reyndi lyfjasölu viðÓðal Seint á laugardagskvöld höfðu lögreglumenn í miðborginni hendur í hári manns sem gert hafði tilraun til lyfjasölu við veitingahúsið Óðal. Maðurinn var tekinn úr umferð og er mál hans I rannsókn. -ASt. Slegizt af hörku við veitingahúsin fil siagsmála kom á mörgum stöðum í Reykjavík nú um helg- ina og voru það þó einkum veit- ingahúsin og grennd þeirra sem var orrustuvöllurinn. Til slagsmála kom við Glæsi- bæ þar sem tveir 16 og 17 ára unglingar lentu í útistöðum við fullorðinn mann og reyndar einhverja fleiri. Manninn hörðu piltarnir með flösku í höfuðið’. Var hann fluttur í slysadeild en fékk að fara heim er gert hafði verið að sárum hans. Piltunum var stungið í svartholið. Þá kom til slagsmála á Sögu á laugardagskvöldið. Áttust þar við dyravörður og gestkomandi. Dyravörðurinn hlaut skurð á enni áður en leiknum lyktaði. Ekki kom til fangageymslu í sambandi við þessi átök. Síðar á laugardagsnótt var slegizt við Óðal. Þau ólæti voru stöðvuð en enginn tekinn. -ASt. Rúður brotnar h já Sjálfstæðisflokknum Dekkið tók ráðin af strákunum Vanhugsaður leikur nokkurra stráka í gær leiddi til skemmda á kyrrstæðum bíl. Voru strákarnir á ráfi er þeir komu að traktorsdekki á opnu svæði við Hallarmúla. Reistu þeir dekkið við og tóku að láta það skoppa. Er dekkið var kom- ið af stað tók það ráðin af strákunum. Sem betur fer lenti dekkið ekki út i umferðina á Suðurlandsbraut en hafnaði á kyrrstæðum bil við Suðurlands- braut 4. Dældaðist bretti hans. Lögreglan var nærstödd og er hún frétti af málinu hóf hún leit og fann drengina á flótta. Fengu þeir tiltal og akstur heim til foreldra sinna. -ASt. Onýtur bíll eftirveltu Bílvelta varð á Stranda- heiði á Reykjanesbraut á sunnudagsmorgun. Þar var einn maður á ferð í þriggja ára gömlum Fiat-bíl. Bíllinn er talinn ónýtur eftir en maðurinn slapp með minni- háttar meiðsli en var þó fluttur í sjúkrahúsið í Kefla- vík. Talið er að bíllinn hafi farið tvær eða þrjár veltur. Grunur leikur á að öku- maður hafi verið undir áhrifum áfengis. -ASt. Hesturinn Skjóni týndurá hálendinu Víðtæk leit fer nú fram að fjögurra vetra hesti sem týndist inn á öræfi suður af Eyjafjarðar- dal fyrir hálfum mánuði. Hafa spor hans verið rakin suður Sprengisand, allt suður fyrir Klakk í rótum Hofsjökuls, en sfðan aftur í norðurátt. Hesturinn hefur verið kallaður Skjóni, að sögn húsfreyju á Halldórsstöðum í Saurbæjar- hreppi í Eyjafirði en þaðan er hesturinn. Fóru menn þaðan I gærmorgun á tveimur bílum og ætluðu í Laugarfell til að leita þaðan að slóðum í austur og suður. Hvarf Skjóna bar þannig að, að tveir hestar hurfu úr hrossahópi sem verið var að reka upp úr Eyjafjarðardal, um 6 km innan við brúnir. Sex sólarhringar liðu áður en uppvíst varð um hvarf hestanna og var þegar hafin leit. Annar hesturinn sneri aftur og náðist á brúnum Eyjafjarðardals. Skjóni hefur hins vegar ekki sézt. Hann er bleikskjóttur, ójárnaður, meira hvítur á hægri hlið, sokkóttur með reglulegan hvítan þríhyrning á vinstri hlið, fjögurra vetra, eins og áður segir. Slóð eftir Skjóna var rakin frá fyrrgreindum stað til suðausturs og síðan suðvesturs um Þjórsár- kvíslir allt suður fyrir Klakk. Þaðan var slóð rakin til norðurs um Háöldur að Laugarfellskvisl. Þar hvarf slóðin inn á bílslóðina um 2 km austan við sæluhúsið Laugarfell. Eigendur Skjóna hafa óskað eftir því að ferðamenn gæfu Skjóna gætur og létu vita ef þeir sæju til hans eða slóð eftir ójárnaðan hest. Símstöðin í Saurbæ í Eyjafirði hefur tekið að sór að taka við upplýsingum um strokuhestinn. -f)V.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.