Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 27
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 15. AGUST 1977. 27 Það fer vel á með þeim Tómasi og manninum sem ætlaði raunveruiega að fá sér lærling á hæiinu. Sjónvarp íkvöld kl. 21.15: Leikrit kvöldsins Drengurinn fékk ósk sína uppfyllta Honum var boðið í heimsókn Sjónvarpsleikrit kvöldsins heitir Tómas spjarar sig og er á dagskránni kl. 21.15 í kvöld. Er þetta þýzkt sjónvarpsleikrit sem byggt er á bókinni í for- eldraleit eftir dr. Hilla Peetz. Þýðandi er Sonja Diego. Leikritið er um lítinn strák sem er á heimili sem gefið er í skyn að sé upptökuheimilil þótt það sé aldrei sagt með berum orðum. Honum líður ekki vel og óskar innilega eftir því að kom- ast í burtu. Hjón koma í heim- sókn á heimilið og er maðurinn á höttunum eftir að fá lærling, en unglingarnir fara af hælinu um sextán ára aldur. Ein fóstranna sem hefur látið sig litla drenginn talsvert varða hugsar sem svo að bezt sé að láta hann hitta þetta fólk. Það væri aldrei að vita hvað myndi gerast. Konunni leizt svo vel á Tómas litla að hún býður hon- um I heimsókn. Myndin er síðan um eftirleikinn að heim- sókninni. „Þetta er dálítið skemmtileg mynd,“ sagði Sonja. „Stráknum er lýst vel og sömuleiðis fólkinu á hælinu. Allir eru af vilja gerðir til þess að gera hlutina vel þótt það líti kannske ekki þannig út.“ Leikstjóri er Carlheinz Angela og með aðalhlutverkin fara Martin Fechtner, Angela Pschigode og Peter Kirchberg- er. Myndin er frá árinu 1975. -A.Bj. Útvarp ífyrramáliö kl. 8.00: Morgunstund barnanna NILFISK sterka rvksuean... V Styrkur og dæmalaus ending hins þýðgenga, stillanlega og sparneytna mótors, staðsetning hans oghámarks orkunýting, vegna lágmarks loft- mótstöðu í stóru ryksíunni, stóra. ódýra pappírspokanum og nýju kónísku siöngunni, afbragðs sog- stykki og varan- legt efni, ál og stál. Svona er NILFISK: Vönduð og tækniiega ósvik- in, gerð til að vinna sitt verk fljótt og vel, ár eftir ár, með lág- marks truflunum og tilkostnaði Varanleg: til lengdar ódvrust. Nýr hljóð- deyfir: Hljóðlótasta ryksugan. Traust þjonusta Afborgunarskilmólar rOMIY HÁTÚN6A lUlllA SÍMI 24420 Raftækjaúrval — Næg bflastæði Byggingarvöruverzlun Óskum ad ráða sem fyrst röskan starfskraft til starfa í byggingar- vöruverzlun. Ný saga með flesta kosti barnabóka JL hósið Jón Loftsson h/f Hringbraut 121. Frumleg, skemmti- leg, spennandi og vel skrif uð Komdu aftur, Jenný litla eftir Margaretu Strömstedt nefnist saga sem Sigrún Sigurðardóttir byrjar að lesa í Morgunstund barnanna kl. 8.00 í fyrramálið. Sigrún þýddi. Samkvæmt upplýsingum Gunn- varar Brögu dagskrárfulltrúa hefur þessi saga flesta kosti sem prýða má góða barnabók: Hún er frumleg, skemmtileg, spennandi og vel skrifuð. Höfundur sögunnar er sænsk- ur, fæddur árið 1930. Hún var ritstjóri og gagnrýnandi við Dagens Nyheter með barnabæk- ur að sérsviði um árabil. Arið 1969 réðst hún til sænska ríkisút- varpsins sem þáttastjórnandi á barnaefni hjá sjónvarpinu. Margareta Strömstedt stundaði kennaranám í skapandi leiklist hjá Elsu Olenius við Barna- og unglingaleikhús Stokkhólmsborg- ar og hefur unnið mikið með börnum og unglingum að leik- listarstörfum. 1969 fékk hún Gulliver- verðlaunin fyrir frábært starf sem gagnrýnandi og greinarhöf- undur um barna- og unglingabók- menntir. Fyrsta bók höfundar kom út árið 1961. Var það Fiðrildið i skólastofunni. Fékk sú bók fá- dæma góðar viðtökur bæði les- enda og gagnrýnenda. Komdu aftur Jenný litla er önnur bók höfundar. Margareta Strömstedt var bæði höfundur og stjórnandi tveggja stuttra mynda sem sænska sjón- varpið lét gera árið 1976 og sýndar voru í ísl. sjónvarpinu í vor. Voru það myndirnar „Jag blir sá arg att jag spricker" og „Dct iir val intet farligt att bli

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.