Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 6
tí
Nýkomið:
Kvenbuxur,
stórar stærðir,
margirlitir
Elízubúðin
Skipholti 5
Skrífstofufólk
óskast til almennra skrifstofustarfa.
Vélritunarkunnátta nauðsynleg.
Umsóknir sendist til afgreiðslu
Dagblaðsins fyrir 19. ágústnk. merkt
„l.sept."
Óska eftir
að taka á leigu
3ja herbergja íbúð miðsvæðis í borg-
inni. Fyrirframgreiðsla ef óskað er.
Tilboð sendist auglýsingadeild DB
merkt „Miðsvæðis 10“.
Síðast buðum við skrifborðslampa á
mjög hagstæðu verði.
Nú bjóðum við
HENGILAMPA
Raf
Kóp
Póstsendum
Raftækjaverslun Kópavogs h/f
HAMRABORG 11 — KÓPAVOGI — SlMI 43480
Sérverzlun meðhag yðaríhuga
DAGBLAÐII). MÁNUDAGUR 15. AGUST 1977
Willy Brandt segist viss um að kommúnistaflokkar á Vesturlöndum muni þróast hver í sína átt,
Engir kommar á
Italíu eftir 10 ár, segir Willy Brandt
Ef ítalski kommúnistaflokkur-
inn heldur áfram að þróast eins
og á horfist er hann ekki lengur
neinn kommúnistaflokkur, eins
og Vesturlönd skilja það orð, seg-
ir fyrrverandi kanslari Vestur-
Þýzkalands, Willy Brandt.í viðtali
við blaðið Stern.
Brandt sagði aó sér fyndist er-
fitt að nota eitt orð yfir alla
kommúnistaflokka í Evrópu,
Evrópukommúnisma, vegna þess
að þeir væru svo ólíkir. Hann
sagði einnig að hann væri viss um
að kommúnistaflokkar Evrópu
myndu þróast hver á sinn hátt og
hver í slna átt. Brandt tekur sem
dæmi að Santiago Carrillo, for-
maður spænskra kommúnista,
gangi lengst í sjálfstæðinu frá
Moskvu. Hann fær það einnig
margborgað frá Moskvu, segir
kanslarinn fyrrverandi.
Það er víst að kommúnista-
flokkarnir halda áfram að þróast,
sagði Brandt, en eftir svona tíu ár
munum við komast að því að þeir
eru langt frá því að vera þeir
kommúnistaflokkar sem við
þekkjum í dag.
Norski njósnarinn:
GUNVOR HAAVIK
LÉZT í FANGELSI
— hún njósnaði fyrir Sovétríkin frá árinu 1949
Norski njósnarinn Gunvor Galt-
ung Haavik, sem var tekin föst af
norskum yfirvöldum í janúar sl.,
fannst látin í fangaklefa sínum í
Osló nýlega.
Gunvor játaði á sig njósnir í
þágu Sovétríkjanna stuttu eftir
að hún var handtekin. Hún sagði
að hún hefði starfað fyrir Sovét-
ríkin síðan 1949.
Ekkert hefur fengizt gefið upp
um dauðsfall Gunvor en sagt er að
hún hafi látizt af hjartaslagi. Hún
mun hafa verið vakin klukkan sjö
um morguninn og var þá hress í
bragði en þegar kallað var á hana
til morgunverðar fannst hún látin
í klefa sínum.
Haavik s.tarfaði í sendiráði
Norðmanna í Moskvu frá árinu
1949, en áður en hún 'fór þangað
hafði hún starfað sem túlkur fyrir
sovézka stríðsfanga sem voru í
Noregi á árunum eftir seinna
stríð. Hún hætti störfum í norska
sendiráðinu í Moskvu árið 1965.
Þá fékk hún starf í verzlunar-
deild utanríkisráðuneytisins og
hefur veitt Sovétmönnum upplýs-
ingar sem voru m.a. um stefnu
landsins í sambandi við skiptingu
Barentshafs.
Við yfirheyrslur á undanförn-
um mánuðum hefur hún játað á
sig njósnir og sagt að hún hafi
þegié greiðslur fyrir frá Sovét-
rikjunúm. Vegna dauða hennar
nú verður málið látið niður falla.
Gunvor llaavik.