Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIU. MÁNUDAÍJUK 15. ÁGÚST 1977. Sprengingar vísindamanna íFnjóská: ÍSLENDINGAR SPRENGJA - SEIÐIN DRÁPUST ÚR KULDA „Bændur h£r í Ljósavatns- hreppi töldu þetta gagnlegt og leyfðu því sprengingarnar og ég veit ekki til þess að nokkur urgur sé í mönnum hér vegna þeirra," sagði Bjarni Péturs- son, oddviti, í samtali við Dag- blaðið. „Þeir eða talsmaður þeirra, Stefán Sigmundsson frá Orkustofnun, leituðu alltaf til bændanna um leyfi til sprenginganna og fóru því ekki hér um í leyfisleysi." Allmikil umræða hefur orðið um sprengingar hóps svissneskra, rússneskra og þýzkra vísindamanna í vísinda- tilgangi í Skjálfandafljóti, Djúpá og Fnjóská nú að undan- förnu. Eru vísindamennirnir taldir hafa orðið valdir að mikl- um seiðadauða með sprenging- um sinum í Fnjóská og einnig mun rúða hafa brotnað í verzl- uninni á Fosshóli. „Við gáfum samþykki okkar fyrir því að þeir sprengdu í Skjálfandafljóti en þegar þeir höfðu gert það í eitt skipti þótti okkur nóg um, enda varð sprengingin öflugri en við höfð- um átt von á,“ sagði Bjarni enn- fremur. „Kvörtuðum við yfir því við Stefán og fluttu þeir sig umsvifalaust yfir í Djúpá með okkar samþykki." „Þetta er allt um garð gengið," sagði Olgeir Lúthers- son, hjá veiðifélaginu við Fnjóská. „Veiðifélagið sem slíkt var ekki látið vita af þess- um sprengingum og það er það sem okkur svíður mest. Stefán kom. hins vegar hingað og viðurkenndi að þeim kynnu að hafa orðið á einhver mistök enda ekki talið að neinn fiskur væri í ánni. Þeir höfðu fengið leyfi eins aðila, er á land að ánni, til þessara sprenginga, en við hjá veiðifélaginu höfum hins vegar allt yfir ánni sjálfri að segja.“ Sagði Olgeir að þeir hjá félaginu hefðu sennilega ekki neitað vísindamönnunum um aðstöðu til þessara vísinda- iðkana, „en okkur þykir verst, að ekki var rætt við okkur fyrr en eftir á. Satt að segja reikna ég ekki með því að tjón hafi orðið við sprengingarnar hér í ánni,“ sagði Olgeir. „Þeir sprengdu alltaf á sama staðnum nokkrum sinnum og hefur því myndazt þar hylur. Varðandi seiðin, sem drápust, var ég rétt búinn að sleppa seiðum í ána áður en til tilraunanna kom og stuttu síðar kólnaði í veðri, auk þess sem töluvert óx i ánni. Það er því allt eins líklegt að seiðin hafi drepizt vegna þess.“ Forstöðumenn Veiðifélagsins Flúða á Akureyri hafa látið hafa eftir sér í blöðum að þeir muni krefjast skaðabóta vegna sprenginganna í Fnjóská. „Ætli það sé þá ekki einna helzt Orkustofnun sem yrði gerð skaðabótaskyld," sagði Gunnar Björn Jónsson hjá Rannsóknaráði ríkisins í viðtali við Dagblaðið. „Ég veit ekki betur en íslenzkur sprengisér- fræðingur framkvæmi þessar sprengingar fyrir Orkustofnun i samráði við vísindamennina. Þær eru liðtir í heildarkönnun sovézkra vísindamanna á jarð- fræði Islands með tilliti til könnunar þeirra á gliðnun jarðskorpunnar í Atlantshafs- hryggnum og hafa þeir unnið að þeim rannsóknum nokkur undanfarin ár. Við Islendingar njótum svo góðs af þvi þetta eru gífurlega kostnaðarsamar vísinda- tilraunir," sagði Gunnar Björn að lokum. Ekki reyndist unnt að hafa samband við Stefán Sigmunds- son frá Orkustofnun varðandi þetta mál, þar eð hann er inni í óbyggðum með vísinda- mönnunum. -HP. Dagblað án ríkisstyrks — loðnuleit hefst aftur íbyrjun september „Þörfin fyrir skipulega loðnuleit í sem mestum mæli hefur verið ljós nú um langa hríð. Vegna þess var gerð áætlun í vor um hvernig henni yrði hagað í sumar og fram í desember næst- komandi," sagði Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur í viðtali við Dagblaðið í gær. Hjálmar var um borð í rannsóknaskipinu Arna Friðriks- syni út af Vestfjörðum. Skipstjórar á loðnuskipum sem nú eru við veiðar norður af land- inu, kvarta yfir að þar sé ekki leitarskip og geri það veiðarnar erfiðari og árangurs- minni en ella. Sigla með vináttuboðskap og lífbát til íslands: Tólf óreynd brezk ungmenni veltast yfir hafið í seglbát Samkvæmt áætlun Haf- rannsóknastofnunar áttu rannsóknaskipin Arni Friðriks- son eða Bjarni Sæmundsson að. vera stöðugt við loðnuleit frá því í júlí fram í desember. Agúst- mánuður var þó undanskilinn. Var það vegna kerfisbundinna seiðarannsókna sem bæði skipin stunda núna og lýkur því verk- efni um næstu mánaðamót. Verður Bjarni Sæmundsson þá sendur til loðnuleitar. „Annars er þetta líka spurning um nægilegt fjármagn,“ sagði Hjálmar Vilhjálmsson. „Til greina kemur að taka á leigu skip til loðnuleitarinnar. Ef gagn ætti að vera að pví þyrfti það að vera með fullan útbúnað til loðnuveiða og mundi verða nokk- uð dýrt,“ sagði Hjálmar ennfrem- ur. Einnig sagðist hann ekki vera viss um að auðvelt væri að fá heppilegt skip til leitarinnar. ! Seiðarannsóknirnar, sem rannsóknaskipin eru upptekin við núna, munu meðal annars gefa til kynna hvernig til hefur tekizt með klak helztu fisktegunda okkar. Að sögn Hjálmars verður farið í kringum landið og einnig til Austur-Grænlands. Ekki sagði hann að neinar ályktarnir væri hægt að draga af þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið að þessu sinni. Væntanlega munu þær liggja fyrir í byrjun næsta mánaðar. -öG. stefnan er sett á Jsland. Er áætlað að báturinn komi hingað um næstu helgi. Mun áhöfnin hafa hér viðdvöl til 3. september. Hér afhendir hópurinn boðskap til íslenzkra ungmenna og af- hendir ósökkvandi gúmmibát til björgunarstarfsemi við tsland. Brezku ungmennin 12 hafa aldrei í langa sjóferð farið og þetta er þvi mesta sjóferð óreynds fólks sem farin hefur verið frá Skotlandi til Islands að því er segir í tilkynningu um förina. Það er British Ocean Youth Club sem að förinni stendur. Unglingarnir, sem nteð bátnun koma, völdu þessa för fram yfir margar stvttri og auðveldári sem þeir áttu völ á. Skipstjóri á Sir Francis Drake er Jack Sharples, vanur maður og reyndur og með honum er þaul- vanur signlingamaður. Sennilega mun hópurinn bjóða íslenzkum ungmennum til dvalar hjá sér á Englandi. -ASt. Tólf brezk ungmenni áttu í gær að leysa landfestar 22 metra segl- skútu sem ber heitir Sir Francis Drake. Landfestarnar átti að leysa í Oban í Skotlandi en Til sölu Mercedes Itenz 200 '70. búinn ymsiiin auka þa'ginduni, ekinn aðeins 19.000 km crlcndis. Verður til sýnis við Leifsstyttuna næstu daga. l'ppl. í sinia 12970 milli kl. 1 og (>. Óskum að ráða starfsfólk í eftirfarandi stöður við þjónustu Alfa Romeo og Skoda bifreiða 1. Bifreiðasmið. 2. 4—5 bifvélavirkja. 3. Aðstoðarmann við standsetningu nýrra bifreiða. 4. Verkstjóra í ryðvörn. 5. Starfsmann í ryðvarnarstöð. 6. Starfsmann ó skrifstofu þjónustudeildar. Vélritunar- og enskukunnótta nauðsynleg, tœkniþekking œskileg. Góðir tekjumöguleikar, góð vinnuað- staða. Umsækjendur hafi samband við þjón- ustustjóra, Sigurjón Harðarson. Uppl. ekki veittar í síma. JÖFUR HF. Tékkneska bifreióaumboóió á Islandi AUÐBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI - SÍMI 42600 Seiðarannsóknir: RANNSÓKNASKIPIN í SEIÐARANNSÓKNUM

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.