Dagblaðið - 15.08.1977, Blaðsíða 15
15
DACBLAÐIÐ. MAN.UDACUK 15. AUUST 11177
Iþróttir
íþróttir
róttir
: fleiri skraut-
á Rvk-leikana
‘ír bættust við um helgina
ö.54. Þá koraa þeir Mike Solomon
frá Trinidad, frábær hlaupari, og
Kenyabúinn Joysi Kimeto, sem
mun taka þátt í 5000 metra hlaup-
inu, en Mike Solomon hleypur í
1500 og 3000 metra hlaupunum.
Þór fallinn
KR lifir ennþá
Þór frá Akureyri féll í 2. deild
islandsmótsins í knattspyrnu á
laugardag er Þór tapaði fyrir
öðrum fallkandídat, KR, 2-3. KR
lifir jþví enn — heldur enn í von
um að forðast fall, von sem
nánast er aðeins til á pappírnum,
von sem nánast er hið ómögulega.
Leikur Þórs og KR var ákaflega
slakur — bar öll merki liða sem
eru á leið í 2. deild — knattspyrna
eins og hún gerist í 2. deild. KR
byrjaði vel — Vilhelm Fredriksen
skoraði fyrir KR á 10. mínútu og
Wilhelm var aftur á ferðinni á 23.
mínútu — 2-0.
En leikmenn Þórs vöknuðu af
dvala á 36. mínútu er Arni Gunn-
arsson skoraði óvænt beint úr
aukáspyrnu, 1-2. Við markið efld-
ust Þórsarar og Sigþór Ólafsson
jafnaði á 14. mínútu síðari hálf-
leiks eftir mikil mistök Magnúsar
Guðmundssonar markvarðar KR.
En KR hafði ekki sagt sitt síð:
asta orð — Sverrir Herbertsson
skoraði sigurmark KR á 26.
mínútu.
Þór er því fallið í 2. deild — og
KR lifir enn. - St.A.
1 veggja metra vöðvafjall, Terry Aibritton, skekur hönd formanns
FRÍ, Arnar Eiðssonar. Svei mér þá ef örn grettir sig ekki, sagði
fréttamaður okkar, emm, er hann tók myndina af Albritton og Erni á
Keflavíkurflugvelli.
Magnús Bergs kom Val til
bjargar á elleftu stundu
—og Valur tók stig í Krikanum, 1-1. Magnús skoraði á 89. mínútu
Valsmenn misstu eilitinn spón
úr aski sínum í gærkvöld þegar
þeir heimsóttu Kaplakrika í
Hafnarfirði og léku við heimalið-
ið FH. Að sönnu sóttu Valsmenn
mun betur og meira í fyrri hálf-
leik þegar þeir nutu meðbyrsins.
En það var sama hvað skotið
var, hvaðan skotið var eða hvern-
ig. Boltinn vildi ekki í markið hjá
Þorvaldi, hinum unga og efnilega
markverði FH.
I seinni háifleik snerist dæmið
við að nokkru leyti. FH sótti nú
talsvert meira en fyrr enda þótt
Valsmenn sýndu í sér tennurnar
öðru hvoru.
Hins vegar verður það að
segjast um þennan leik að
Hafnarfjarðarliðið sýndi mun já-
kvæðari leik en Valur í mörgu
tilliti. Til dæmis hélt það oft bolt-
anum betur niðri meðan Vals-
menn voru í stórbrotnum kýling-
um sem vindurinn gleypti jafnóð-
um.
Bæði liðin áttu tækifæri í fyrrr
hálfleik en þó voru tækifæri Vals-
manna mun betri. En það var eins
og þeir ætluðu sér um of, ekkert
tókst. Og til búningsherbergja
héldu liðin án þess að skora, FH-
ingar þó ánægðir með að hafa
varizt bezta knattspyrnuliði
landsins sem hafði að auki svo
hentugan vind í bakið.
Seinni hálfleikurinn leið og var
komið fram yfir miðjan hálfleik
þegar örlagaríkt atvik gerðist við
mark Vals. Hinn öruggi
Jafntefli á Park Head
hjá Celtic
Celtic náði ekki að knýja fram
sigur í 1. umferð skozku úrvais-
deiidarinnar á iaugardag, gerði
jafntefli við Dundee United, 0-0,
á Park Head í Glasgow. í þeim
fimm leikjum er fóru fram tókst
aðeins Aberdeen að knýja fram
sigur og það var gegn Glasgow-
risanum, Rangers, 3-1 í Aber-
deen. Öðrum leikjum iyktaði með
jafntefli.
,,Við sóttum mjög gegn Dundee
United," sagði Jóhannes Eðvalds-
son eftir leikinn gegn Dundee
United. „Við sóttum þegar frá
upphafi stíft og sköpuðum okkur í
byrjun góð marktækifæri en þeg-
ar knötturinn skilaði sér ekki í
netið var rétt eins og panik gripi
um sig.
Þá var gæfan okkur ekki hlið-
holl, knötturinn small í stöng og
síðan í slá, en inn viidi hann ekki.
Þá meiddist Alfie Conn illa og
verður sennilega að gangast undir
uppskurð. Pat Stanton varð
einnig að yfirgefa völlinn vegna
meiðsla. Ég hóf leikinn sem
fremri tengiliður en við meiðsli
þeirra Stantons og Conns, fór ég í
öftustu vörn.
Við fengum nokkur kjörin
tækifæri, þannig misnotuðu þeir
Glavin og Craig góð færi og bjarg-
að var á línu eftir skot frá mér.
En þrátt fyrir þetta er engin
ástæða til að örvænta, við fengum
stig og Rangers tapaði í Aber-
deen. Þá hjálpaði það okkur að
allir leikir nema Aberdeen —
Rangers enduðu með jafntefli,"
sagði Jóhannes Eðvaldsson uih
leik Celtic og Dundee United.
Én lítum á úrslitin í úrvals-
deildinni skozku:
Aberdeen — Rangers 3-1
Celtic — Dundee United 0-0
Hibernian — Motherwell 0-0
Partick — Ayr 2-2
St. Mirren — Clydebank 1-1
Leikur Aberdeen og Rangers á
Pittodrie í Aberdeen var jafn,
staðan eftir rúmlega 60 mínútna
leik var 1-1.
Hugh Jarvie hafði skorað fyrir
Aberdeen og Robertson fyrir
Ranger þegar tvö mörk Aberdeen
komu á sömu mínútunni, Jarvie
og Joe Harper skoruðu, og sigur-
inn var liðsins frá olíuborginni á
austurströnd Skotlands.
t 1. deild vann Dundee öruggan
sigur heima gegn Airdrie, 3-0, og
Hearts, sem Willie Ozmond stýrir
nú, gerði jafntefli við Dumbarton
úti, 2-2.
markvörður Vals, Sigurður Dags-
son, ætlaði að spyrna frá marki og
var kominn út undir vítateigslínu.
Hann stakk niður boltanum, en
sjá! Boltinn skoppaði frá honum
og hinn eldingarsnari framherji
Hafnfirðinganna, Ólafur Dani-
valsson, var ekki lengi að nota sér
slíkt tækifæri. Hann átti bókstaf-
lega opna leið að tómu markinu
til að tryggja FH-ingum mark.
Valsmenn voru að því er virtist
ekki líklegir til að skora. Þeir
þreifuðu fyrir sér en rákust marg-
faldlega á varnarvegg FH, harðan
sem stein.
En Valsmenn voru þó ekki á
því að gefa eftir bæði stigin, enda
súrt í broti að fara suður eftir til
að tapa báðum og gefa Akurnes-
ingum þannig auknar vonir um
íslandsmeistaratitilinn í ár.
Geysihröð og góð sókn upp
vinstri vænginn varð til þess að
boltinn kom fljúgandi út fyrir
vítateiginn til Magnúsar Bergs
sem var ekkert að tvinóna en
skaut hörkuskoti af um 25 metra
færi efst í markhornið. Við það
gat markvörður FH naumast
ráðið, 1-1, og aðeins örfáar sek-
úndur til leiksloka.
Þannig fór leikurinn, að mörgu
leyti góður leikur miðað við að-
stæður. Liðin virtust oft ná
góðum samleiksköflum og enginn
vafi er á því að ísienzk knatt-
spyrna hefur batnað mjög undan-
farin ár. Verst að í þeirri íþrótt
verður inælistiku ekki brugðió á
getu leikmanna, né hún mæld á
skeiðklukku. Valsliðið var greini-
lega sterkari aðilinn en það nægði
þó ekki til að klekkja á heima-
mönnunum, eitilhörðum, ungum
mönnum, sem hafa vaxið mjög í
sumar og eiga örugglega framtíð-
ina fyrir sér. - JBP-
Fjögur mörk
Mullersog
Bayern
er efst
Bayern Múnchen tók forustu í
Bundesiigunni — þýzku 1. deild-
inni — eftir 4-2 sigur gegn nvlið-
unum fráHamborg, St. Pauli. Gerd
Mulier var þá heidur betur á skot-
skónum, þessi mesti markaskor-
ari, er kembt hefur velli Evrópu,
skoraði fjögur mörk og hefur þá
skorað 6 mörk í tveimur fyrstu
umferðunum í Þýzkalandi, sex
mörk af 7 mörkum Bayern.
En sigur Bayern var ekki sann-
færandi gegn nýliðunum. Bayern
komst í 3-0 — að sjálfsögðu með
þremur mörkum Mullers — á
fyrstu 37 mínútum leiksins. St.
Pauli skoraði tvívegis fyrir leik-
hlé og í síðari hálfleik var sem lið
Bayern væri í rúst en klaufaskap-
ur nýliðanna kom í veg fyrir fleiri
mörk St. Pauli. En Muller kom til
bjargar og skoraði fjórða mark
Bayern á 80. minútu.
En lítum á úrslitin í Þýzkalandi
um helgina, 2. umferð í Bundes-
ligunni.
Borussia Mönchengladbach —
Hertha 2-1
Bayern Miinchen — St. Pauli 4-2
Saarbrucken — Kaiserslautern 3-
3
Hamburger — Múnchen 1860 3-0
Eintracht Brunswich — Stuttgart
3-1
FC Köln — Bochum 2-0
Mikil rigning var i norðanverðu
Þýzkalandi á laugardag og fresta
varð leik Duisburg og Dortmund.
Þrjú lið eru nú efst í 1. deild —
Bayern Múnchen, Kaisersiautern,
Schalke 04 og Borussia Mönchen-
gladbach.
Guðgeir heldur í kvöld til
Schalke þar sem hann mun æfa
með liðinu með hugsanlegan
samning fyrir augum. Nýliðarnir
í Bundesligunni, 1860 Múnchen
og St. Pauli, eru um miðja deild
— St. Pauli, sem er frá Hamborg,
hefur hlotið 2 stig en 1860 Múnch-
en, sem að sjálfsögðu er frá
Múnchen og var 1965 í úrslitum
við West Ham í Evrópukeppni
bikarhafa, er með 1 stig að lokn-
um tveimur leikjum.
'ólafur Danivalsson hefur átt mjög góða leiki undanfarið og þarna býr
hann sig undir að leika á fyrrum félaga sinn í FH, Dýra Guðmundsson.
DB-mynd Bjarnleifur.
Wadkins
sigraði
ÍPGA
Lanny Wadkins sigraði í PGA-
mótinu i Bandaríkjunum —
bandaríska meistaramótinu fyrir
atvinnumenn. Lanny sigraði
Gene Littier í bráðabana — en
þeir léku holurnar 72 á 282 högg-
um, sex undir pari. En Littler
getur engum nema sjálfum sér
kennt um ósigur sinn — hann
hafði 5 högg yfir næsta mann
þegar kom að síðustu umferðinni.
En varðræði Littlers, sem fyrir
fimm árum varð næstum að hætta
keppni vegna krabba, byrjuðu á
10. holu og Littler virtist missa
einbeitni sína og sjálfstraust.
Þegar þrjár holur voru eftir
voru þeir jafnir Littier. Wadkins
og Nicklaus — en „Gullbirnin-,
um“ mistókst illa á 17. holu og
þeir Littler og Wadkins fóru i
bráðabana.
En þegar á 1. holu virtist sem
Littler ætlaði að vinna sína fyrstu
stóru keppni frá 1961 — en
Wadkins púttaði af 20 feta færi
— og á þriðju holu missti Littler
12 feta pútt — en Wadkins pútt-
aði af 5 feta færi og stökk í loft
upp — hann hafði sigrað. En eftir
á sagði Wadkins: „Ég vorkenni
Littler, hann er stórkostlegur fé-
lagi og ég sagði við hann að ég
vonaði að hann ynni þegar við
fórum síðustu umferðina."