Dagblaðið - 15.08.1977, Qupperneq 18
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 15. AGUST 1977
..
18
Mariene Dietrich „nostalgía”
^ ^
Marlene Dietrich er eitt þeirra
nafna sem hvað hæst hefur risið í
kvikmyndaheiminum. Enda er
það svo að jafnvel gamlir smiðir
uppi á Islandi vikna ef þeir sjá
mynd af henni eða heyra um
hana talað. Hún var ókrýnd
drottning kvikmyndanna, ekki
sem kyntákn, heldur sem stór-
kostlegur persónuleiki sem skein
alls staðar í gegn. Persónuleiki
sem ekki var skapaður með sund-
urgerð í klæðaburði eða þess hátt-
ar aðferðum, heldur með töfrum
þeim sem sameinuðust í þessari
e'inu könu, röddinni, útlitinu og
framkomunni. Allt þetta virtist
sameinast á hinn fullkomnasta
hátt i Marlene Dietrich.
Blái engillinn, einhver fræg-
asta kvikmynd allra tíma, stendur
líka enn fyrir sínu, rúmum fjöru-
tíu árum eftir að myndin var
gerð. Sú mynd á alltaf jafnmikl-
um vindælsum að fagna. Söngur
Marlene Dietrich heillar líka
margan, þvkir e.t.v. ekki beinlínis
fagur, en þokkafullur.
Lili Marlene, eins og hún var
nefnd síðar, flúði nasismann og
hélt til Bandaríkjanna. Þar starf-
aði hún lengi að kvikmynda-
framleiðslu sem jók enn á hróður
hennar. Fræg varð hún fyrir að
skemmta herjum bandamanna í
seinni heimsstyrjöldinni og varð
þá einkum eitt lag með henni
vinsælt, lagið Lili Marlene.
I kringum Marlene Dietrich,
eins og svo margt annað frá
fjórða áratugnum, hefur skapazt
einhvers konar „nostalgía". Enda
er það ekki að ósekju, hæfileikar
hennar eiga sér hvorki stað í tíma
né rúmi. Marlene býr nú í Banda-
ríkjunum í hárri elli og reynir að
halda sér ungri með alls kyns
aðgerðum og tilkostnaði. Var hún
á sínum tíma nefnd fegursta
amma í heimi eftir að barn
hennar hafði getið af sér annað
barn.
„Hin guðdómlega" var
sagt um Gretu Garbo, það
á víst ekki síður við um
hina kvikmyndadisína
frá fiórða áratugnum,
Marlene Dietrieh.
r ... 1 Sími 40299
O&B INNRÉTTINGAR ;
^^—JTTuðbrekíu^^Kðpavogi
3 nýjar gerðir af eldhúsinnréttingum, fura, hnota og eik.
Uppstilltar á staðnum. — 1-2 mán. afgreiðslufrestur.
Landspítalalóð
Tilboð óskast í að steypa upp
byggingu við sjúkrainnkeyrslu, jarð-
vinnu við gatnagerð og malbikun.
Verkinu skal skila 31. des. 1977.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, gegn
10.000.- kr. skilatryggingu, frá
þriðjudeginum 16. ágúst 1977. Tilboð
verða opnuð á sama stað föstudaginn
26. ágúst 1977 kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
Bókvitið ekki alltaf látið íaskana:
Þessir luku aldrei svo mikið
sem barnaskólaprófi
Því hefur löngum verið hald-
ið fram að ef fólk lýkur ekki
tilskildum prófum á meðan það
er enn á unga aldri komist það
ekki áfram í heiminum. For-
eldrar brýna gjarnan börnin
sín á því til þess að fá þau til
þess að halda áfram skólagöngu
og ljúka prófi. í dag er þó orðið
algengt að fólk fari í fram-
haldsskóla eftir að það er kom-
ið á ,,efri“ ár og ljúki stúdents-
prófi frá öldungadeildum. Þá
eru líka til þeir sem halda því
fram að skóli lífsins sé bezti
skólinn, þótt lengi megi e.t.v.
deila um það.
Hér á eftir fer listi með nöfn-
um tólf heimsþekktra manna
sem aldrei luku neinu prófi, —
ekki einu sinni barnaskóla-
prófi. Þeim hefur engu að síður
gengið vel að „koma sér áfram“
í heiminum. — Þeir sem á
listanum eru eiga líklega það
sameiginlegt að vera afburða-
vel gefnir eða gæddir
frábærum listamannshæfi-
leikum
1. ANDREW CARNEGIE, bandariskur jftju-
höldurog mannvinur.
2. CHARLES CHAPLIN, brezkur leikarí og
leikstjóri.
3. WILLIAM „BUFFALO BILL" COTY.
bandarísk sýningarstjama.
4. NOEL COWARD, brezkur leikarí, leikrite
höfundur og tónskáld.
5. CHARLES DICKENS, brezkur ríthöfund-
ur.
6. ISADORA DUNCAN, bandarískui
dansarí.
7. THOMAS EDISON, bandarískur
uppfinningamaöur.
8. MAKSIM GORKY, lússneskur rit
höfundur.
9. CLAUDE MONET, franskur listmálarí.
10. SEAN O'CASEY, írskur leikrita-
höfundur.
11. JOHN PHILIP SOUSA, bandarískur
hljómsveitarstjóri og tónskáld.
12. MARK TWAIN, bandarískur háöfugl og
rithöfundur.
-A.Bj.
c
Vérzlun
. 4
Verzlun
Verzlun
Bílasalan
Chester Field
Vandað, sigili
sófasett, framleitt í
leðri og plussi.
Verð frá kr. 320.00.0.-
Bólstrunin Laugarnesvegi 52, s. 32023.