Dagblaðið - 20.01.1978, Blaðsíða 1
t
t
‘ 4. ARG. — FÖSTUDAGUR 20. JANUAR 1978 — 17. TBL. RITSTJÖRN SÍÐUMULA 12. AUGLYSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11. — AÐALSÍMI 27022.
Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú). Egill Olafsson og Valgeir Gudjónsson, Spilverksfólk. Þarna er allt á útopnuðu i laginu um sirkusinn hans Geira Smart.
Sigurður Bjóla, fjórði maðurinn i Spilverkinu var ófáanlegur til að taka þátt i stjörnuhátíðinni ásamt féiögum sínum. DB-mynd Ragnar Th. Sig.
Spilverk þjóðanna á glæsilegri Stjörnumessu Dagblaðsins og Vikunnar:
KOMU, SÁU 0G SIGRUÐU
—áttu bezta lag ársins, beztu hljómplötuna og beztu söngkonuna
Spilverk þjóðanna var hljóm-
sveitin og Spilverk þjóðanna var
stjarna kvöldsins.
Stjörnumessa Dagblaðsins og
Vikunnar í gærkvöldi varð
aðstandendum sínum til sóma. I
tvo klukkutíma sátu gestir á
Hótel Sögu og hlustuðu á
blómann úr þeirri tónlist sem
kölluð er létt tónlist.
Líka má nefna hana þá tónlist
sem er lifandi í dag. En Spilverk-
ið átti kvöldið, þrenn verðlaun
komu í þeirra hlut.
Lag ársins, plata ársins, og
hljómsveit ársins, allt kom í
þeirra hlut. Auk þess var Diddú
Sprengisands-
leiðin í
borgarmálum
— Sjá kjallaragrein
Jónasar Guðmunds-
sonarábls. 10
■
Fyrirgreiðslu-
lýðræðið
— Sjá föstudags-
kjallara Vilmundar
Gylfasonará bls. 9
kosin söngkona ársins. Enginn
viðstaddra var í vafa um að
gestirnir í gærkvöldi fögnuðu
Diddú og þeir fögnuðu Spilverk-
inu.
Gunnar Þórðarson lagasmiður,
útsetjari, tónskáld og svo fram-
vegis kom fast á hæla Spilverkinu
í kosningunni og var enda kjörinn
lagasmiður árins 1977, hljóðfæra-
leikari ársins, auk þess sem hann
fékk aukaverðlaun sem útgefandi
söluhæstu hljómplötu ársins 1977.
Troðfullur Súlnasalur hyllti
verðlaunahafana í vinsældavali
Dagblaðsins og Vikunnar. Að
lokinni matarveizlu hófust verð-
launaveitingar og tónleikar og að
því loknu var stiginn dans.
Nákvæmar fréttir af úrslitum í
fyrsta vinsældavali Dagblaðsins
og Vikunnar eru á blaðsíðu
þrettán til sextán.
Undirleikur var í höndum
Stjörnuhljómsveitar DB og
Vikunnar. Þar voru að verki fær-
ustu rokktónlistarmenn
þjóðarinnar.
Ragnar Bjarnason og
hljómsveit lék síðan undir dansi
til klukkan eitt.
Fyrsta Stjörnumessa Dag-
blaðsins og Vikunnar varð þeim
sem að henni stóðu til ánægju.
Þeir sem í gærkvöldi voru í Súlna-
sal Hótel Sögu voru einnig
ánægðir og létu margir i ljós óskir
um að á næsta ári verði slík hátíð
afturhaldin. -OG.
Myndsjá og úrslit f rá
STJÖRNUMESSUNNI
eru í miðju blaðsins
m
Wn ■ 1
Þarna er flest .verðlaunafólk ársins 1977 allt samankomið á sviðinu í Súlnasal í gærkvöldi.