Dagblaðið - 20.01.1978, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 20.01.1978, Blaðsíða 24
Ef st á baugi í athugunum ríkisstjómar og sérfræðinga „Hratt gengissig” sem þýddi veruleg gengis- felling a stuttum tima „Hratt gengissig", þannig aö veruleg gengisfelling yrði á skömmum tíma, ber nú hæst í athugunum ríkisstjórnarinnar og sérfræðinga hennar á því, hvað sé til ráða í efnahagsmál-- um, samkvæmt áreiðanlegum heimildum DB. Gengið mundi þá látið „síga“ með miklu meiri hraða en vérið hefur. Á nokkrum vikum mætti þá fá fram töluverða gengisfell- ingu. Gengisfellingunni yrði ætlað að rétta hlut frystihús- anna. Með því að kalla hana sig og dreifa yfir nokkurt tímabil, telja stjörnarliðar auðveldara að fá verkalýðshreyfinguna tii að sætta sig við hana án þess að segja upp samningum. Þá þarf heldur ekki samþykki Alþingis og ekki þarf að mynda gengis- jöfnunarsjóð. Rétt er að undirstrika, að þessar aðgerðir hafa enn ekki verið samþykktar, heldur er það þetta, sem hæst ber í „spekúlasjónum" stjórnarinnar nú. Enn gætu aðrar aðgerðir komið til. En sérfræðingar stjórnarinnar telja mikla erfið- leika samfara öðrum leiðum, sem þeim finnast koma tii greina. Alþýðusambandið mundi tæplega samþykkja niðurfærsluleið, lækkun kaup- gjalds og verðlags, og skatta- hækkanir eru þegar orðnar svo miklar, að erfitt er að höggva meira í þann knérunn. Við gengisfall mundi fé safn- ast í verðjöfnunarsjóð fisk- iðnaðarins. Eitthvað fengist fljótt á móti fyrirsjáanlegum halla frystiiðnaðarins og í sjóði saltfisks og loðnu mundi safn- ast mikið fé. Kæmi þá enn til greina að „færa á milli sjóða“, þannig að loðnudeildin og salt- fiskdeildin „lánuðu" frystiiðn- aðinum af sínu, en til þess þarf lagabreytingu. - HH Ljósastaur féll f valinn við Melavöll _tuttuguárekstrar íReykjavík ígær Ljósastaur við Melavöllinn tafði umferð af Melatorgi inn á Suðurgötu um dálítinn tíma í ljósaskiptunum í gær. Ekki tók staurinn upp á þessum óskunda' upp á eigið eindæmi heldur mun bóma af krana hafa rekizt í hann. Ökumaður kranans lét sem ekk- ert væri og hvarf af staðnum en sjónarvottar sögðu til hans er lög- reglan kom á staðinn. Engin slys urðu vegna staursins. Alls urðu um tuttugu árekstrar í Reykjavík i gær. Enginn þeirra var tiltakanlega alvarlegur. Einn maður ók út af í Ártúns- brekkunni en kann enga skýringu á því atviki. DB-myndir: R.TH. -ÁT- Jarðfræðingarnirfamir frá Mývatni: Það versta er liðið hjá „Að áliti jarðfræðinganna er nú það mesta afstaðið við Mý- vatn og ■'í&ir eru allir farnir þaðan,“ sagði Hafþór Jónsson hjá Almannavörnum í samtali við DB í morgun. „Það er svona eitthvert millibilsástand en gert er ráð fyrir að litið verði eftir hlutunum reglulega. Það hafa verið minni háttar hreyfingar í gangi en eftir stóru hrinurra í fyrrakvöld var eins og allt róaðist verulega," sagði Hafþór. Enginn var á' skjálftavakt- inni í morgun en á simstöðinni í Reynihlíð fengust þær upp- lýsingar að allt væri með kyrr- um kjörum og enginn órói hefði komið fram á mælunum. - A.Bj. Nýbyggingum í miðbænum ákaf t mótmælt: „Olöglegar að tvennu leyti vn — „ verðmæti húsa sem á að rffa um 200 milljónir” — Rætt við Magnús Skúlason arkitekt „Það er óneitanlega skrýtið að á þessu svæði á að rífa niður um 5 þúsund fermetra atvinnu- húsnæði til þess að byggja upp aftur sömu 5 þúsund fermetr- ana, plús íbúðir og bílastæði," sagði Magnús Skúlason arki- tekt aðspurður um nýjar bygg- ingar sem reisa á við Austur- stræti, Aðalstræti og Hafnar- stræti. Magnús er i stjórn Ibúa- samtaka vesturbæjar sem sent hafa frá sér mjög harðorða mót- mælaáætlun vegna hinna fyrir- huguðu byggingarframkvæmda á svæðinu. „Varar stjórn íbúasamtak- anna við því virðingarleysi er lýsir sér í þeirri stefnu að gömul mannvirki er segja þróunarsögu borgarinnar með minningum sínum og svipmóti og hafa enn fullt notagildi, víki án miskunnar fyrir nýsmíði", segir meðal annars í ályktun samtakanna. Þar er einnig bent á að í samþykktum Evrópuráðsins og ráðherrafunda þess sé skýrt kveðið á um það að vernd og viðhald gamalla húsa skuli verða að minnsta kosti jafn mikilvæg 1 fjárlögum og ný- smíði. það allt of mikil verðmæti til að kasta á glæ fyrir utan siðferði- legu hliðina af því að skemma gömul menningarverðmæti og eyðileggja það umhverfi sem við hefðum haft fyrir augunum í mjög langan tíma. Magnús sagði að þeim 1 íbúa- samtökunum þætti einnig skjóta nokkuð skökku við að ekkert hefði verið kannað hvernig þau hús sem þarna á að rífa væru á sig komin. Sig minnti að samkvæmt bruna- bótamati væru þau metin á um 200 milljónir króna og væru Auk þessa sagði Magnús að sér skildist að þessar fram- kvæmdir væru ólöglegar að tvennu leyti. í fyrsta lagi hefur aðalskipulagið sem þetta er byggt á ekki ennþá verið stað- fest. I öðru lagi eru margar ibúðirnar, sem gert er ráð fyrir í tillögunum, ólöglegar þar sem allir gluggar þeirra snúa í norður. Kveðið er á um í bygg- ingarsamþykkt að svo megi ekki vera í Reykjavík þar sem þá njóti ekki nægrar sólar til að heilsu íbúanna sé borgið. Magnús sagði að íbúasamtök vesturbæjar væru einnig mjög hneyksluð á þeim byggingum sem hafnar voru við Lækjar- torgið á dögunum í stað Smjör- hússins gamla. Þar hefði verið nákvæmlega eins að farið og ætti að gera núna og það væri algert hneyksli að bjóða fólki upp á svona afgreiðslu. Eigend- ur svæðisins sem nú á að byggja á hefðu líklega þrátt fyrir mótmæli sín á dögunum svo mikilla hagsmuna að gæta vegna aukinna verðmæta lóða sinna að þeir létu líklega undan um síðir. Þvi væri það eingöngu á færi almennings að koma 1 veg fyrir þessa hneisu, sagði Magnús. - DS frjálst, áháð dagblað FÖSTUDAGUR 20. JAN. 1978. Kvenréttinda- félagið mótmælir „BR0TÁ LÖGUM” „Stjórn Kvenréttindafélags' íslands átelur harðlega þá ákvörðun yfirnefndar í verðlags- málum landbúnaðarins að meta landbúnaðarstörf til mismunandi launa eftir því hvort þau eru unnin af karli eða konu,“ segir 1 fréttatilkynningu sem blaðinu hefur borizt. Kvenréttindafélagið telur að ákvörðun yfirnefndar í verðlags- málum brjóti lögin sem kveða á um að körlum og konum beri sömu laun fyrir sömu vinnu. En i verðlagsgrundvellinum er konum skammtað all miklu minna en körlum án þess það sé rökstutt með því að þær vinni minna eða verr. Kvenréttindafélagið hefur einnig lýst fullum stuðningi við þá fyrirætlun fulltrúa bænda í sexmannanefndinni að láta þetta mál fara fyrir dómstóla til úr- skurðar. -DS Landsbankamálid: Frumrann- sókn á f yrsta þætti málsins á lokastigi — nöfn viðskiptaaðila væntanleg Rannsókn á þeim þætti Lands- bankamálsins, sem lýtur að við- skiptum Sindrastáls hf. við ábyrgðadeild Landsbankans er nú langt komin, samkvæmt heimild- um, sem Dagblaðið telur áreiðan- Iegar. Þá hefur einnig miðað vel rannsókn á viðskiptum Hauks Heiðar við nokkur fyrirtæki og lánveitingum hans til þeirra. Þegar þessum þætti lýkur verður hafin rannsókn á gögnum bankans með tilliti til hugsanlegs misferlis fyrrum forstöðumanns deildarinnar I tengslum við við- skipti annarra fyrirtækja. Ennþá hafa engar umtals- verðar upplýsingar fengizt er- lendis frá. Með hliðsjón af þeirri vitneskju, sem fæst við rannsókn á gögnum bankans hér, verður knúið á um að fá þær eftir því sem tilefni kann að gefast. Þess er fastlega vænzt að rann- sóknarlögregla ríkisins gefi út til- kynningu um gang rannsóknar- innar og þá um leið nöfn þeirra fyrirtækja sem tengzt hafa rann- sókninni á þessu stigi. * OV/BS íbúarnir voru vel á verði og upp komst um bílþ jófnaði í tíma íbúar við Goðheima veittu lög- reglunni og nábúum sínum góða aðstoð í nótt. Tilkynnt var klukk- an rétt fyrir þrjú að grunsamlegir menn væru að fást við bíl í göt- unni. Brá lögreglan skjótt við en þeir grunsamlegu flúðu er að var komið. Náðist þó annar mann- anna. I morgun kom í ljós að Bronco- bíl hafði verið stolið úr Sólheim- um. Fannst sá bíll litlu síðar í Goðheimunum þar sem fyrst varð vart við að hinir grunsamlegu menn voru að kanna annan bíl. Er það helzt álit lögreglunnar að þessir grunsamlegu menn hafi stolið Bronco-bílnum og fært hann milli gatna og hafi jafnvel ætlað að stela öðrum bíl þar. Málið er allt í rannsókn. - ASt. * í i i i i i i i i \ \

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.