Dagblaðið - 20.01.1978, Blaðsíða 9

Dagblaðið - 20.01.1978, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JANUAR 1978. r 9 RANNSÓKNARNEFNDIR ALÞINGIS Stjórnkerfi okkar er veikt og nýtur lítillar almennrar virðingar. Öðaverðbólga, slælegt dómskerfi, fjársvik og skattsvik eru ekki hvað sízt af- leiðingar af veiku stjórnkerfi. Óendanlegar skuldir erlendis eru afleiðingar af veiku stjórn- kerfi. Og úr því að stjórnkerfið hefur brugðizt þá þarf að bæta það. Sennilega er Alþingi veikasti hlekkurinn í stjórnkerfinu. Það stafar af því, að Alþingi hefur orðið afgreiðslustofnun fyrir ríkisstjórnir, án verulegs frum- kvæðis. Völd þingsins, bein þátttaka í gerð laga, hefur hér sem annars staðar farið minnk- andi, vegna aukinnar sérþekk- ingar. Við því er í sjálfu sér' ekkert að segja. En raunveru- leg starfshæfni hefur einnig farið minnkandi. Kemur þar fyrst og fremst til, að þorri þingmanna er svo upptekinn við að veita fyrirgreiðslur til einstaklinga og smærri hópa, að sjálf höfuðmarkmiðið, það að setja samfélaginu aimennar leikreglur, gleymist og týnist. Flokksræði og fyrirgreiðslur eru höfuðeinkenni og höfuð- meinsemdir Alþingis. FYRIRGREIÐSLULÝÐRÆÐIÐ Fyrirgreiðslulýðræðið, lýðræði, sem byggir fyrst og síðast á fyrirgreiðslum til ein- staklinga eða smærri hópa, er séríslenzkt fyrirbrigði sem á sér séríslenzka sögu. Þegar lýðræði þróaðist hér á fyrstu áratugum þessarar aldar voru kjördæmi smá og fámenn. Þeir 'sem sátu á valdastólum og vildu sitja sem fastast lærðu brátt, að auðveldasti leikurinn var að leita á mið hinnar persónulegu fyrirgreiðslu. Ihaldssöm kjör- dæmaskipan hlóð undir þetta kerfi. Og sennilega hefur eng- inn stjórnmálamaður skilið þetta jafn bókstaflega, og hegðað sér jafn kirfilega f sam- ræmi við það, og Jónas heitinn frá Hriflu. Hann hugsaði upp og byggði upp heilan stjórn- málaflokk í kringum fyrir- greiðslurnar. Afsprengi fyrir- greiðslunnar er meðal annars vitlausasta landbúnaðarpólitík gjörvallrar heimsbyggðarinnar. Það er einnig ljóst að völd stjórnmálaflokka eru og hafa verið I merkilega nákvæmu hlutfalli við tök þeirra á bönk- um og öðru lánakerfi. Kjör- dæmabreytingin 1959 var spor í rétta átt, fráhvarf frá heimi fyrirgreiðslunnar. Hún kóm hins vegar of seint, það var búið að laga valdakerfið að hinni persónulegu fyrir- greiðslu. Og óðaverðbólga slðustu ára, neikvæðir vextir og þess vegna óheilbrigð sókn í lánsfjármagn hefur aftur magnað þetta ástand.Lykill vaidanna er í lána kerfinu. Stjórnkerfið hagar sér eftir því og árangurinn blasir hvarvetna við. Bæði siðferðileg- ur og efnahagslegur árangur. STARFSHÆTTIR ALÞINGIS ÚRELTIR 0G GANGSLITLIR Stjórnarskráin er að stofni til meira en hundrað ára gömul, slðan 1874. Það segir sig sjálft að um margt er hún orðin úrelt. Deildaskipting Alþingis, sem upphafiega var til þess að tryggja konungi stöðvunarvald, á engan rétt á sér lengur. Hún aðeins þvælist fyrir. Langir málfundir Alþingis eru einnig úreltir. Nefndaskipan er állt of flókin og þvæluleg. Raunar hefur Benedikt Gröndal flutt Itl i M ! I P - ±J I frumvörp um það, að í fyrsta lagi starfi Alþingi í einni deild, og í öðru lagi verði nefnda- skipan Alþingis gerð einfaldari. Hvort tveggja eru sjálfsögð framfaramál. En f þessum efnum krefjast breyttir og flóknari þjóðfélags- hættir þess samt, að gengið verði miklum mun lengra. Vandinn er sá, að Alþingi hefur sett lög, en síðan ekki haft minnsta áhuga á eða eftirlit með, hvort þessum lögum hefur verið hlýtt. Alþingi á að hafa lofandi eftirlit með því, að landslögum sé hlýtt, og að stjórnarstofnanir starfi í samræmi við lög og leikreglur. Þetta eftirlit og aðhald hefur gersamlega skort. Nefndaskipan Alþingis á að vera einföld og á að sníðast nokkurn veginn eftir ráðuneyt- um. Þessar nefndir eiga að vera helzti starfsvettvangur þings og þær eiga að starfa fyrir opnum tjöldum. Þær eiga að hafa leyfi til þess að kalla til embættis- menn og aðra. Það ætti að vera skylda embættismanna að mæta, en öðrum þyrft'i að greiða einhverja þóknun. Hlut- verk slíkra nefnda ætti að vera tvíþætt. I fyrsta lagi að afla upplýsinga sérfróðra aðila, sem er augljóslega grundvallarat- riði varðandi alla löggjöf. Slík upplýsingaskipti ættu auðvitað að fara fram fyrir opnum tjöldum, svo þeir borgarar sem á þvi hefðu áhuga gætu fyigzt með. 1 öðru lagi ættu slíkar þingnefndir að hafa rannsóknar- og eftirlitsvald. Síðan ætti þing að geta sett upp sérstakar nefndir, þegar sérstaklega stendur á. Þingið Kjallari á föstudegi Vilmundur Gylfason ber beina ábyrgð á ríkis- bönkunum. Það hefur ekki spurt neins. Það er orðið hverju barni ljóst að bankakerfið er sundurrotið, og þess vegna ætti það að vera verk þingsins að afla sér allra fáanlegra upplýsinga um baksvið óstjórn- arinnar til þess að geta sett nýjar reglur og lög um bankana. Dæmi um málaflokka þar sem þingnefnd þyrfti að leita upplýsinga sérfróðra aðila áður en til löggjafar kæmi er fóstur- eyðingar eða neytendavernd. Aður en til sllkrar löggjafar kæmi ættu að fara fram skoðanaskipti þar sem sér- fræðingar væru kallaðir til. Slíkt stuðlaði aftur að upplýstri umræðu út um allt samfélagið. Dæmi um málaflokka þar sem þingnefnd þyrfti að nota eftirlits- eða rannsóknarvald er til dæmis Krafla. Það er ljóst að Kröfluævintýrið hófst þannig, að Kröflunefnd sagðist hefja framkvæmdir vegna upp- lýsinga, sem Orkustofnun hefði gefið. Orkustofnun sagðist hins vegar aldrei hafa gefið þessar upplýsingar. Síðan hefur verið framkvæmt fyrir tíu milljarða. Það væri hlutverk þingnefndar að komast að því hvor laug og hvor sagði satt. Slík upplýsinga- öflun væri stjórnkerfinu nauðsynleg. Fyrir dómstólum hefur mánuðum saman verið að þvælast mál vegna læknis sem hafði svikið stórfé út úr tryggingum. Það væri hlutverk þingnefndar að grafast fyrir um hversu útbreidd svik úr tryggingum eru, til þess að geta þá breytt lögum í samræmi við nýjar aðstæður. Það væri hlut- verk þingnefndar að gera út- tekt á þvi, sem raunar enginn virðist vita, hvernig ágóða íslenzkra aðalverktaka er háttað. Hvort þeir græði ekki óeðlilega í skjóli einokunar og flokkaverndar og hvort ekki sé kominn tími til að gerbreyta þeim viðskiptum öllum. Það væri verkefni fyrir slíka þing- nefnd að athuga hvort Eimskip er ekki raunverulega einokunaraðili og samkeppni í millilandasiglingum þess vegna óeðlileg. Svo mikið er víst að verkefni fyrir slíkar þing- nefndir eru óendanleg. EKKI DÝRT 0G EKKIFLÓKIÐ Þessar breytingar kosta ekki mikla peninga og þær eru ekki flóknar. En þær gætu borið verulegan árangur. Ljónin i veginum eru annars vegar íhaldssamt valdabákn og hins vegar sú hætta að störf slíkra nefnda færu um of niður á flokkspólitíska planið, planið, þar sem allt réttlæti er lagt undir mælistiku flokksins. Subbulegur fréttaflutningur Þjóðviljans undanfarna daga af Landsbankamálinu lofar vissu- lega ekki góðu. Þar er svo að segja á hverri síðu að finna hina táknrænu afstöðu flokks- þræla til réttlætis. Og það er nákvæmlega umfjöllun af þessu tagi sem á undanförnum árum hefur gert fjölda fólks ónæman fyrir spillingu og umræðu um hana. Þetta er vissulega hætta, en þó þarf það ekki að vera neitt náttúrulögmál að þingnefndir fari í þetta far. Það er svo fyrst og fremst vegna þess að öll þróun virðist vera í þá átt að kosningar verði persónulegri. Það þýðir aftur, að þó að þing- menn skipi sér eftir sem áður i flokka eftir hugsjónum og hug- myndafræði, þá ættu þingmenn að verða óháðari flokksmaskín- um í almennum velsæmis- málum. I íslenzku stjórnarskránni er ákvæði um að setja upp rannsóknarnefndir. Þvi ákvæði hefur ekki verið beitt árum saman. Sighvatur Björgvins- son, alþingismaður, lagði til fyr ir tveimur árum, að slik nefnd yrði sett upp vegna svokaliaðra Klúbbmála, enda full ástæða til. Það strandaði sem kunnugt er á dómsmálaráðherra og flokki hans. Hann sagði efnis- lega, að slíkar nefndir væru einungis fyrir lýðskrumara (sem er orðið kunnuglegt orð) til þess að láta á sér bera og minnti í þeim efnum á banda- ríska öldungadeildarþing- manninn Jósef McCarthey, sem hefði orðið afl i bandarískum stjórnmálum i gegnum störl sín í slíkri þingnefnd. Þetta var auðvitað byggt á annaðl vort misskilningi eða vanþekkingu hjá ráðherranum. Þvi þó það sé rétt að McCarthey hafi starfað í þingnefnd og þó það sé einnig rétt að McCarthey og allt hans hyski sé eitthvert viðurstyggi- legasta fyrirbrigði bandarískr- ar sögu þá er slíkt hvorki rök með eða móti þingnefndum. Adolf Hitler þurfti enga þing- nefnd. Hins vegar hafa glæsileg ustu og árangursrfkustu störf Bandaríkjaþings iðulega verið unnin í slíkum nefndum. Kjarninn er sá að slíkar þing- nefndir ættu að verða uppistaðan i störfum þingsins. Þingið á ekki einungis að setja lög. heldur einnig að hafa lif- andi áhuga á því að lögum sé framfvlgt. Eina eftirlitskerfið er nú dómskerfið. Dómskerfið fjallar hins vegar um meint sakamál. Fjölmörg mál sem upp koma í stjórnsýslunni eru þannig vaxin, að þau þarf að athuga án þess verið sé að gefa í skyn að framið hafi verið sak- næmt athæfi. Þess vegna eru þessar nefndir nauðsynlegar. En fyrst og síðast gerði þetta að verkum. að fólkið sjálft fylgdist með op tæki þátt I mótun laganna meðan þau eru að verða til. Þaó yrði nýtt sam- band milli þings og þjóðar. Ekki samband þar sem menn ýja vfxli að vinum sínum. Heldur samband, sem tekur til sjálfrar löggjafarinnar.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.