Dagblaðið - 20.01.1978, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JANUAR 1978.
r
í tilefni af
smjörlækkun
Guðmundur A. Finnbugason, Innri Njarðvík, sendi DB þessa vísu í
tilefni af lækkuninni á smjiirverðinu.
Minnkar fjallið feita
fáum smjurs að neyta
Ijúfir lýðnum veita
lækkun mun það heita.
12 tonn af frakt
bída flugs
til Egilsstaða
Gunnar Skarphéðinsson á Fá-
skrúðsfirði hringdi:
Mig langar til að biðja blaðið
að komast að því hvort Flug-
leiðir hafi flogið eitthvað til
Egilsstaða síðan 28. desember.
Eg veit að þetta finnst ein-
hverjum skrýtin spurning en
hún kemur til af því að ég hef
kvittun upp á það að á Reykja-
víkurflugvelli er búinn að
liggja pakki til mín síðan þenn-
an dag sem ég nefndi sem fara
átti til Egilsstaða.
Eg hringdi einu sinni og
spurðist fyrir um pakkann og
var mér þá sagt að hann væri
ekki sá eini sem biði flugs því
12 tonn af farangri lægju úti á
flugafgreiðslu.
Nú er ekki það að völlurinn á
Egilsstöðum hafi ekki verið
ruddur því ég veit að þangað
hefur verið farþegaflug. En af
hverju skilja þeir fraktina
eftir?
Mér finnst líka að því mætti
koma á framfæri hvort þetta er
sú góða þjónusta sem Flugleiðir*
eru alltaf að státa af. Gátu þeir
ekki að minnsta kosti látið
mann vita fyrirfram að maður
fengi ekki pakkann sinn fyrr
en eftir mánuð?
Hjá vöruafgreiðslu Flugleiða
fengust þær upplýsingar að rétt
væri hjá Gunnari að 12 tonn af
vörum biðu flugs til Egilsstaða.
Það er hins vegar veðrið sem
hamlað hefur flugi mjög. Ekki
hefurveriðhægt að fljúga nema
einn og einn dag og þá vinnst
ekki upp nema farþegaflugið.
Vöruafgreiðslan telur það ekki
skyldu sína að láta menn vita
um þessi mál enda taldi við-
mælandi DB að það væri alls-
endis ómögulegt því þá þyrfti
að hringja á svo marga staði.
Fyrir nokkru var frá því
skýrt í DB að af Keflavíkurflug-
velli mætti síma til Reykja-
víkur fyrir litlar 10 krónur. Hið
rétta í málinu mun vera, að
þessara frlðinda munu aðeins
yfirmenn hjá varnarliðinu
njóta og þá jafnvel aðeins ef
þeir síma úr sérstökum tækjum
á Keflavíkurflugvelli.
Venjulegur hermaður eða
aðrir starfsmenn hersins þurfa
að greiða 0,69 dollara fyrir
viðtalsbilið, þegar til Reykja-
víkur er hringt.
MEGA BÆNDAKONUR EKKI
VINNA ÚTIEINS 0G
KONUR í KAUPSTÖDUM?
— svartilbangsa
Góðir lesendur.
Ég ætla hér með að leiðrétta
dálítið sem birtist í DB 27.
desember sl.
Bréfritari kallar sig
,bangsa“ og gæti það verið rétt-
nefni því bangsar stíga víst
ekki í vitið. Hann talar um að
nú séu bændur búnir að búa til
svikamyllu og búnir að koma
því inn hjá verðlagningu land-
búnaðarvara, að reiknað sé með
heimilisvinnu bændakvenna.
Gerir bréfritari sér ekki grein
fyrir því að bændakonur vinna
bæði úti og_inni yfirleitt allan
ársins hring. Það kýs hver
manneskja sinn lifnaðarhátt og
ef ,,heimavinnandi“ konur, eins
og hann orðar það, eru alger-
lega peningalausar, af hverju
fara þær ekki og fá sér vinnu?
Eg get ekki séð að það sé neitt
athugavert við það að húsmóðir
vinni úti og þá fær hún borgað
kaup, en ef bóndakonan gerir
það sama og fær borguð laun þá
verður allt brjálað. Hver er
munurinn? Ég segi fyrir mig að
þessi maður sem skrifar bréfið
sé ferlega eigingjarn og án efa
heldur hann að það sé verið að
troða á honum að einhverju
leyti.
Eg vil nú biðja bréfritara að
endurhugsa mál sitt án þess að
hugsunin á bak við það sé að
níða niður bændur og búa til
lygasögur um þá. Það fer nú að
/erða nóg komið af þessum
fáránlegu, heimsku kjaftasög-
um og eiginhagsmunasjálfs-
nísku.
Með þökk fyrir birtingu.
Lára.
Bændakonur vinna yfirleitt bæði úti og inni allan ársins hring og
telur bréfritari það algjörlega sambærilegt við störf giftra kvenna í
þéttbýli. Rétt er að taka fram að myndiner ekki tengd bréfinu að
öðru leyti en hún sýnir. konu við heyskap.
Æskilegt að tala við skatt-
leiðbeinendur í einrúmi
Skattgreiðandi í Kópavogi
hringdi og vildi spyrjast fyrir
hvort ekki væri fært að bæta þá
aðstöðu sem starfsmönnum
væri búin, þegar þeir aðstoðuðu
skattgreiðendur við framtal
sitt.
Þessi aðstoð, sem væri til
fyrirmyndar og kæmi sér mjög
vel fyrir marga, væri nú veitt í
einu herbergi þar sem tveir
menn störfuðu.
Sagði skattgreiðandi að
mörgum þætti óþægilegt að
ræða sín persónulegu fjármál
nema undir fjögur augu. Væri
því æskilegt að einn skatt-
aðstoðarmaður væri í hverju
herbergi.
DB ræddi við Svein
Þórðarson skatt-
stjóra í Reykjanes-
umdæmi.
„Þessu er þannig háttað
vegna lítils húsnæðis sem em-
bættið hefur yfir að'ráða. Er
það bæði um að ræða húsnæði í
Hafnarfirði og Kópavogi. Og á
ég ekki von á að úr þessu verði
bætt á næstunni,“ sagði Sveinn
Þórðarson.
Hann taldieinnig að þar sem
skattstarfsmennirnir, sem
væru í Félagsheimili Kópavogs
til að aðstoða við gerð framtala,
væru í nokkuð stóru herbergi
þyrfti þetta ekki að koma að
sök. Ekki væri nauðsynlegt að
tala svo hátt að aðrir en þeir
sem málið varðaði heyrðu.
Raddir
lesenda
Hringiðísíma
27022milli
kl. 13ogl5
f
y