Dagblaðið - 20.01.1978, Side 13
12
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JANUAR 1978.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JANUAR 1978.
íþróttir
iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sundmót Ægis
Hið árlega sundmót Sundfélagsins Ægis
verður haldið þriðjudaginn 31. janúar og
miðvikudaginn 1. febrúar 1978. Dagskrá
mótsins:
Þriðjudagur 31 janúar kl. 19.30.
1500 m skriðsund kvenna (bikarsund). Tíma-
lágmark 23:30.
1500 m skriðsund karla (bikarsund). Tíma-
lágmark 22:30.
Miðvikudagur 1. febrúar kl. 20.00
Keppt verður í eftirtöldum greinum og í
þeirri röð er hér að neðan greinir:
1. 100 m flugsund kvenna.
2. 400 m skriðsund karla.
3. 200 m bringusund kvenna.
4. 50 m bringusund telpna f. 1966 og síðar.
5. 100 m bringusund karla.
6. 200 m fjórsund kvenna.
7. 400 m fjórsund karla.
8. 50 m skriðsund sveina f. 1966 og síðar.
9. 100 m baksund kvenna.
10. 200 m baksund karla (bikarsund).
11. 4x100 m skriðsund karla.
12. 4x100 m skriðsund kvenna.
Einnig verður veittur bikar fyrir bezta
afrek mótsins miðað við heimsmet í viðkom-
andi grein. Bikar þessi var gefinn Ægi á sl.
ári i tilefni af 50 ára afmæli félagsins, af SSl.
1 1500 m skriðsundi karla er keppt um bikar
sem Jón Baldursson fyrrverandi formaður
Ægis gaf. í 1500 m skriðsundi kvenna er
keppt um silfurskál er SPEEDO umboðið gaf
og í 200 m baksundi karla-er keppt um bikar
sem Jón Ingimarsson fyrrverandi formaður
Ægis gaf til minningar um Jón D. Jónsson.
Upphitun hefst 60 mínútum fyrir auglýst-
an tíma mótsins miðvikudaginn 1. fehrúar en
kl. 18.50 þriðjudaginn 31. janúar.
Ef undanrásir eru nauðsynlegar í þeim
greinum sem mikil þátttaka verður í munu
þær fara fram föstudaginn 27. janúar kl.
18.50. Þátttökutilkynningar eiga að berast til
Guðmundar Harðarsonar Hörðalandi 20, R.
sími 30022 í síðasta lagi laugardaginn 21. jan.
íslandsmót
unglinga
íbadminton
Unglingameistaramót tslands i hadminton
verður haldið í iþróttahúsi TBR, Reykjavík,
dagna 4.-5. febrúarnk.og hefst kl. 14.00 báða
dagana.
Keppt verður í einliðaleik, tviliðaleik og
tvenndarleik í eftirtöldum flokkum:
16-18 ára piltar, slúlkur
14-16 ára drengir, telpur
12-14 ára sveinar, meyjar
12 ára og yngri hnokkar, tátur
Aldur þátttakenda miðast við áramót.
Þátttökutilkynningar þurfa að berast til
BSl Pósthólf 864. Re.vkjavík, fyrir 25. jan. nk.
ásamt greiðslum fyrir þátttökugjaldi.
Dregið íEvrópu-
mótin í dag
1 dag verður dregið í Kvrópumótunum í
knattsp.vrnu í Zúrieh í Sviss. Evrópubikar
meistaraliða, Evrópukeppni bikarhafa og
UEFÁ-keppninni.
í meistarakeppninni verða þessi lið í hatt-
inum: Liverpool, England (Evrópumeistar-
ar), FC Brugge, Belgíu, Ajax Amsterdam,
Hollandi, Borussia Mönchengladbaeh,
Vestur-Þýzkalandi, sem í fyrra tapaði i úr-
slitum f.vrir Liverpool, Benfiea Lissabon,
Portúgal, Juventus Torino, Italíu, Innsbruek,
Austurríki, og Atletieo Madrid, Spáni.
I keppni hikarhafa eru þessi lið eftir:
Austria Vinarborg, Aústurríki, Anderleeht
Brussel, Belgiu, Oporto, Portúgal, Dinamo
Moskvu, Sovétrikjunum, Hadjuk Split, Júgó-
slavíu, Real Betis Seville, Spáni, Vejle, I)an-
mörku, og Twente Ensehede, Hollandi.
Meðal liða, sem eftir eru í UEFA-
keppninni, má nefna Eintraeht Frankfurt,
V-Þýzkalandi, PSV Eindhoven, Hollandi,
Aston Villa, Englandi, Grasshoppers, Sviss,
Barcelona, Spáni og Bastia, Frakklandi, sem
sigraði Torino, handhafa UEFA-bikarsins, í
slðustu umferð. F.vrri leikirnir í mótunum
verða leiknir 1. marz en þeir síðari 15. marz.
Alvik tapaði
í Júgóslavíu
Júgóslavneska meistaraliðið í körfuknatt-
leiknum Joguplastika sigraði sænska liðið
Alvik 105-94 i undanúrslitum Evrópukeppn-
innar i Split í gærkvöld. Það var rétt undir
lokin, sem júgóslavneska liðinu tókst að
tryggja sér sigur. Framan af hafði Alvik
örugga forustu og staðan í hálfleik var 53-46
fyrir sænska liðið. Vilfan skoraði 30 stig
fyrir Slavana og Zeljko Jerkov 28 stig en hjá
Alvik voru Aström, 32 stig, og MacDonald, 30
stig, stigahæstir.
Sex dagar í HM íDanmörku
Hægt að koma Spánverjum
í uppnám en þeir sovézku
missa aldrei jafnvægið
Island er i riðli með Dan-
mörku, Sovétríkjunum og Spáni í
heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik, sem hefst í Danmörku
fimmtudaginn 26. janúar. Fyrsti
leikur íslands verður við Sovét-
ríkin. Þessi lönd og handknatt-
leiksmenn þeirra verða því mjög
i sviðsljósinu hjá íslendingum,
þegar að HM kemur. Hefur ísland
einhverja möguleika gegn Sovét-
ríkjunum? — eða getum við
sigrað Dani og Spánverja?
Lesendur minnast kannski
draums, sem birtur var hér á opn-
unni ekki alls fyrir löngu.
Draumspakur maður, sem sára-
lítið þekkir til sovézka liðsins, sá
leik islands og Sovétríkjanna í
draumi. Hann v'araði íslenzku leik-
mennina við miklum risa í
sovézka liðinu — risa, sem við
höfum ekki séð og haft litlar
fréttir af. Samkvæmt fréttum frá
móti, sem nýlega var háð á Spáni,
er slíkur risi í sovézka liðinu,
Chernidnev, 2.03 metrar á hæð —
leikmaður, sem erfitt er að hemja
að minnsta kosti með þeim að-
ferðum, sem Spánverjar reyndu á
mótinu á Spáni að sögn Ebbe
Traberg, blaðamanns hjá Infor-
mation í Danmörku, sem fylgdist
með leikjum á mótinu.
Við skulum nú aðeins renna
yfir það, sem Traberg hafði að
segja um leiki þar — það er mót-
herja íslands á HM, Sovétríkj-
anna og Spánar.
Traberg skrifar: — Leið Spán-
verja í efsta flokk handknattleiks-
þjóða heims hefur verið löng og
erfið. Nokkur ár hafa farið í að
byggja upp Iandslið af góðum
styrkleika — en ennþá er hand-
knattleikur þó ekki leikur áhorf-
enda á Spáni. En forráðamenn-
irnir láta ekkert tækifæri ónotað
— og það var mikill áróður fyrir
móti í Galicien í norðvesturhluta
landsins, sem nýlega var háð. Þar
gafst tækifæri til að líta á heims-
meistara Rúmeníu — sovézku
olympíumeistarana, og mótið
hafði mikið gildi þar sem hinn
íþróttir
HALLUR
SÍMONARSON
þýðingarmikli úrslitaleikur móts-
ins stóð milli Sovétríkjanna og
Spánar.
Spánverjum hefur farið mikið
fram en eftir heldur litla sigra
gegn lélegum liðum Frakka og
Japana, var þó ekki búizt við
miklu af þeim gegn risum Austur-
Evrópu. Að vísu höfðu Spánverj-
ar sigrað Rúmena í landsleik fyrir
mótið — og þeir höfðu einnig
sigrað Sovétríkin 24-22 á
Karpater-mótinu í nóvember. En
síðan hafa Rúmenía og Sovétríkin
unnið að þvi, að leikmenn land-
anna verði í toppformi á réttum
tíma — á HM. Það þarf meiri
hæfni en Spánverjar hafa yfir að
ráða til að sigra þau nú.
Sovétríkin sigruðu Spán 18-15 á
mótinu i Galicien. Sigur þeirra
var aldrei í hættu, þó svo langa
leikkafla virtist leikurinn mjög í
jafnvægi. Spánska liðið b.vggir
fyrst og fremst á miklum keppnis-
vilja — hraðhlaupum á varnar-
vegg mótherjanna, sem gætu
komið örvæntingu í leik Dana (og
tslendingar eru undir sama hatt
seldir, innskot), og tapaður knött-
ur í sókn gegn Spáni þýðir nær
undantekningarlaus mark hinum
megin. En þeir sovézku áttu svar
við þessu eins og þrjú mörk
Kidjaev i lok fyrri hálfleiks báru
með sér.
Staðan í hálfleik var 12-7 fyrir
Sovétríkin en tvívegis tókst Spán-
verjum að minnka muninn í eitt
mark, 14-15 og 15-16. Það var
einkum vegna leiks Goyos, sem
Hanni Wenzel komst
upp fyrír ðnnu-Maríu
— í stigakeppni heimsbikarsins en Lísa-María
vann sinn f yrsta sigur í svigkeppni
,,Eg hugsa ekki enn mikið um
að mér takist að sigra í keppninni
um heimsbikarinn. Það eru svo
margar aðrar hættulegar stúlkur
í keppninni," sagðT Hanni
Wenzel, hin 21 árs frábæra skíða-
kona frá Liehtenstein eftir að
hún náði forustu í stigakeppni
heimsbikarsins í gær í Badga-
stein í Vestur-Þýzkalandi. Hanni
Wenzel varð þá í öðru sæti í svig-
keppninni og komst við það upp
fvrir Önnu Maríu Moser-Pröll,
Austurríki.
Lísa María Morerod, Sviss, var
sigurvegari og sigraði þar með í
sinni fyrstu svigkeppni á þessu
keppnistímabili. Hún er nú hand-
hafi heimsbikars kvenna. Hún er
alls ekki örugg um, að henni
takist að verja titil sinn og sagði
eftir sigurinn i gær. ,.Það eru svo
margar stúlkur sem geta sigrað
mig i svigi og stórsvigi — og þar á
ég einkum við þær Wenzel og
Moser“.
Keppnin í gær varð mikil
vonbrigði fvrir austurrisku skíða-
konurnar, aðeins tveim þeirra,
Birgitte Habersatter og systur
hennar, Sigrid Totshenig, tókst að
ljúka við fvrri umferðina.
Totsehni g varð í áttunda sæti.
Tími þeirra beztu.
1. Moereord, Sviss 115.92
2. Wenzel, Lichtenst. 116.06
3. Pelen, Frakklandi, 116.38
4. Epple, V-Þýzkalandi, 117.23
5. Cooper, USA, 117.33
Franska stúlkan Pelen náði
forustu í svigkeppni heims-
bikarsins i gær. Hún hefur nú 40
stig. Hanni Wenzel er í öðru sæti
með 35 stig. Lisa-María Morerod
25 stig. Fabienne Serrat,
Frakklandi, er fjórða með 20 stig,
Maria Epple hefur 12 stig og Lea
Spelkner, Austurríki, 11 strig.
Síðan koma Anna-Maria óg
Christine Cooper með átta stig. I
stigakeppni heimsbikarsins er
Wenzel nú efst með 100 stig.
Anna-María hefur 98 stig, Monika
Kaserer, Austurríki, 64 stig og
María-Theresa Nadig, Sviss, 63
stig.
lítur út eins og villimaður, á lín-
unni meðal risanna sovézku, og
langskyttunnar Cecilio Alonso.
En þeir sovézku, sem daginn áður
höfðu sigrað heimsmeistara
Rúmeniu 24-19, misstu þó aldrei
tök á leiknum — yfirsýnina. Gassi
stjórnaði spilinu — og með örum
innáskiptingum, þar sem engan
mun var hægt að greina á leik-
mönnum, seig sovézka liðið
framúr á ný. Leikurinn sýndi
fram á, að ekki er hægt að stöðva
hinn 2.03 metra háa, skapmikla
Chernidnev með því að setja
mann honum til höfuðs — eða
stórskyttuna Illin. Að minnsta
kosti ekki eins og Spánverjar
reyndu. Hver leikmaður gullhaf-
anna frá Montreal var hættulegri,
leiknari og með betra úthald en
mótherjar þeirra — og það verður
einnig reyndin gegn Dönum.
Greinilegt var þó, að sigurveg-
ararnir notfærðu sér leikinn til
tilrauna — til að fullkomna leik
sinn. Klimov, sem þarna lék sinn
,170. landsleik, var aðeins með
stutta kafla leiksins, og skot-
maðurinn Maksimov kom aldrei
inn á. Þá varði Tomin markið —
og hann er snjall — í stað Ist-
chenko, sem varið hafði sniildar-
lega í leikjunum þremur á undan.
Danir mega ekki telja sig allt of
örugga með Spánverja, því þeir
geta leikið hratt, nokkuð vel, og á
árangursríkan hátt. Bakvið sig
hafa þeir öruggan markvörð,
Perramon. Langskyttur þeirra,
hinir hávöxnu Cecelio Alonos og
Fernando de Andres, eru hættu-
legir hvaða vörn sem er — og oft
kemur i Ijós mikil reynsla hjá
þeim eldri í liðinu, Caseallana,
Lopez Balcells og vinstri handar
skotmannsins Uria. Spánverjar
leika harða vörn en eiga til að
gefa eftir, þegar mótherjarnir
svara á sama hátt. Og þeir þjást af
dómara-komplexum. Það kom vel
fram í leiknum. Svisslendingur-
inn Rikart, sem hafði átt í útistöð-
um við þá sovézku í Lúbeck að því
er sagt er, vildi gjarnan laga sam-
komulagið. Hann dæmdi af tvö
spönsk mörk — og dæmdi ekki
upplögð vítaköst á sovézka liðið.
Slíkir hlu'ir hefðu einnig sett
leikreyndara lið en Spánverja úr
jafnvægi.
Úrslitaleikurinn var harður en
alls ekki grófur. Oft vel leikínn.
Sjö vítaköst voru dæmd — Spán-
verjar fengu fjögur — og skorað
úr öllum af miklu öryggi.
Á eftir léku Rúmenar, sem
urðu í öðru sæti í keppninni, við
Spán. Það var mikill skemmti-
leikur fyrir áhorfendur og ekki
skoruð færri en 67 mörk. Japanir
26 þeirra. Markhæsti leikmaður-
inn á mótinu varð Rúmeninn
Birtalen með 39 — en næstur var>
Japaninn Gamo með 37. Bezti
leikmaður keppninnar var kjör-
inn Japaninn Sato.
Þar með lýkur grein Ebbe Tra-
berg um mótið á Spáni.
HALDIÐ TIL
HMÍ
DANMÖRKU
íslenzka landsliðið i handknatt-
leik hélt í morgun utan á heims-
meistarakeppnina í Danmörku
með viðkomu í Noregi. Lands-
leikur verður við Norðmenn í
Osló á sunnudag og leikið gegn
úrvalsliði Oslóborgar á mánudag.
A þriðjudag verður haldið til
Arósa, þar sem fyrsti leikur
fslands í HM verður við Sovét-
ríkin á fimmtudag, 26. janúar.
A DB-m.vnd Bjarnleifs, sem
tekin var í gær, er landsliðs-
hópurinn i fötunum fallegu, sem
Karnabær saumaði. Fremsta röð
frá vinstri: Skúli Stefánsson,
nuddari, Björgvin Björgvinsson,
Birgir Björnsson, formaður
landsliðsnefndar, Janus Guð-
laugsson og Bjarni Guðmunds-
son. I 2. röð eru Júlíus Hafstein,
gjaldkeri HSÍ, Þorlákur Kjartans-
son, Gunnar Einarsson, Haukum,
Þorbergur Aðalsteinsson,
Kristján Sigmundsson, Arni
Indriðason. 3. röð. Gunnar
Einarsson, Göppingen, Karl
Benediktsson, landsliðsnefnd.
Gunnlaugur Hjálmarsson lands-
liðsnefnd, Jón H. Karisson, fvrir-
liði. Viggó Sigurðsson og Olafur
Jónsson, stjórnarmaður HSÍ. í
öftustu röðinni eru Geir
Hallsteinsson, Kjartan Steinbach,
framkvæmdastjóri HSÍ, Einar
Magnússon, Olafur Einarsson,
Þorbjörn Guðmundsson og Axel
Axelsson.
Hollenzka HM-liðið í upplausn
Hollendingar verða fyrir
hverju áfallinu á fætur öðru í
sambandi við leikmenn sína, sem
skráðir hafa verið til þátttöku í
heimsmeistarakeppnina í knatt-
sp.vrnu. Johan Crijuff, mesti
knattspyrnusnillingur heimsins,
tilkynnti fyrir mörgum
mánuðum, að hann mundi ekki
keppa í Argentínu í sumar — og
ekki hefur tekizt að fá hann til að
breyta um skoðun.
I gær tilkynntu tveir kunnir,
hollenzkir landsliðsmenn að þeir
myndu heldur ekki keppa í
McQueen efstur
á blaði hjá United
— Dave Sexton neitar því að hafa keypt Gerry Francis
ð er aleiörleea ranet að het?ar hann var stinri npn „or , ■■ •. . . . .
„Það er algjörlega rangt að
Manehester United hafi keypt
Gerry Francis, fyrrum fyrirliða
enska landsliðsins, frá QPR,“
sagði framkvæmdastjóri United,
Dave Sexton, i opinberri tilk.vnn-
ingu frá félaginu vegna þeirra
skrifa, að Francis hafi gert samn-
ing við United.
„Gordon McQueen, skozki
landsliðsmiðvörðurinn hjá Leeds,
er efstur á blaði hjá okkur,“ sagði
Sexton ennfremur, „og ef okkur
tekst að fá hann getur komið til
mála, að við ræðum einnig við
Gerry Francis."
Sexton varð mjög reiður, þegar
Frank Sibley, framkvæmdastjóri
QPR, tilkynnti eftir leik QPR og
Norwich síðastliðinn laugardag,
að Gerry Francis hefði leikið sinn
síðasta leik fyrir QPR. Hann væri
á förum til Manchester.
Vitað er, að Sexton hefur alltaf
haft mikinn áhuga á Francis og
þegar hann var stjóri QPR var
Francis aðalmaður hans og fyrir-
liði enska landsliðsins. Hins vegar
:er áreiðanlegt, að Sexton hefur
orðið að beygja sig fyrir stjórn
Manch. Utd. — þar sem Sir Matt
Busby er í broddi fylkingar — því
stjórnarmennirnir höfðu miklu
meiri áhuga á að ná í Gordon
McQueen. Vörnin hefur verið
vandamál hjá Man! Utd. Þar
hefur vantað hávaxinn varnar-
mann með Martin Buchan og það
hefur aðeins verið út af neyð, að
félagið hefur- látið Brian Green-
hoff leika stöðu miðvarðar. Þó
hann hafi unnið sér sæti í enska
landsliðinu sem slíkur er bezta
staða hans framvörður. Þar hefur
hann einnig leikið í enska lands-
liðinu. Ef McQueen kemur í vörn
United verður Brian Greenhoff
færður fram og þá fer að verða
lítið pláss fyrir Gerry Francis í
liðinu.
Gordon McQueen hefur ekki
leikið með Leeds i siðustu leikj-
um. Hann var dæmdur í sekt af
félagsstjórninni fyrir að slá mark-
vörð Leeds, David Harway, í
bikarleiknum við Manc. City og
fór þá fram á sölu. Leeds vill fá
500 þúsund sterlingspund fyrir
McQueen — eða mun hærri upp-
hæð en áður hefur verið greidd
fyrir leikmann á Bretlandi.
McQueen kostaði Leeds 30 þús-
und sterlingspund, þegar hann
var keyptur frá skozka liðinu St.
Mirreniyrir fimm árum. Manch.
Utd. og Leeds standa nú í samn-
ingum — og þessi mikla upphæð
ætti ekki að hræða þá í Man-
chester. Félagið er mjög ríkt.
í sambandi við Gerry Francis
má geta þess, að kaupverð hans er
talið 445 þúsund sterlingspund —
eða fímm þúsund pundum meira
en metverðið, sem Liverpool
greiddi fyrir Kenny Dalglish til
Celtic síðastliðið sumar.
heimsmeistarakeppninni. Það eru
tveir leikmenn PSV Eindhoven,
efsta liðinu í 1. deild i Hollandi —
markvörðurinn Jan van Beveren
og Willy van der Ku.vlen. fram-
vörður.
Van Beveren, sem er 29 ára og
hefur leikið 32 landsleiki fyrir
Holland og van der Kuylen, 30 ára
með 22 landsleiki, hafa tilkynnt
hollenzka knattspyrnusam-
bandinu ákvörðun sína. „Það er
vegna persónulegra ástæðna,"
sögðu báðir í Eindhoven í gær en
neituðu síðan algjörlega að ræða
málið frekar.
Fyrir nokkrum diigunt
tilkynnti Rudy Geels, einn
kunnasti leikmaður Hollands,
hollenzka knattspyrnusam-
bandinu að hann mundi ekki
leika á HM. Þar verður HoIIand
án fjögurra frábærra leikmanna á
HM og hevrzt hefur að sá fimmti
bætist fljótlega í hópinn. Það mun
vera einn fremsti markvörður
landsins — en nafn hans hefur
enn ekki verið gefið upp.
Leeds leikur við
Nottingham Forest
Það verða stórleikir í undanúr-
slitum enska deildahikarsins —
fjögur af toppliðum ensku knatt-
spyrnunnar munu keppa þar um
sætin tvö í úrslitaleikinn á
Wemble.v hver svo sem niðurstað-
an verður úr leik Maneh. Cit.v og
Arsenal í næstu viku.
I gær var dregið í undanúrslitin
og var niðurstaðan sú, að Leeds
leikur við Everton, og Liverpool
annað hvort við Manch. City eða
Arsenal. Leikið er bæði heima og
að heiman. Fyrri leíkirnir í und-
anúrslitum verða í Leeds og
Liverpool.
í undanúrslitum í fyrra léku
Bolton-Everton, QPR — Aston
Villa, og Aston Villa sigraði svo í
keppninni. Eftir jafntefli 0-0 á
Wembley 16. marz 1-1 sigraði
Villa Everton 3-2 eftir fram-
lengingu á Old Trafford i
Manchester. Það var þriðji sigur
Aston Villa í deildahikarnum en
fimm sinnum hefur félagið leikið
þar til úrslita. Urslitaleikurinn í
ár verður laugardaginn 18. marz á
Wembley-leikvanginum í Lund-
únum.
Stefánsmót
íSkálafelli
Stefánsmót í svigi unglinga
verður haldið í Skálafelli laugar-
daginn 21. janúar og hefst kl.
12.00. Nafnakall verður kl. 11.00
Þetta er fyrsta skíðamót hér
sunnanlands í velur.