Dagblaðið - 28.01.1978, Page 22
22.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 28. JANUAR 1978.
I
GAMIA BIO
D
Sími 11475
TOLVA HRIFSAR VOLDIN
(Demon Seed)
Ný. I);ind;irísk kvikmynd
hrollvekjandi að efni.
— íslen/kur lexli —
Aðalhlulyérk: Julie Ghristie.
Sýnd kl. 5. 7 ok 9.
Bönnuð innan 16 ára.
FLÓTTINN TIL
NORNAFELLS
Sýnd kl. 3.
I
NYJA BIO
D
Silfurþotan
Sími 1)544
Islenzkur texti.
Bráðskemmtileg og mjög spenn-
andi ný bandarísk kvikmynd um
allsögulega járnbrautariestarferð.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.15.
1
STJÖRNUBÍÓ
D
Sími 1893<v
ÉiP
Hækkað verð.
Bönnuðinnan 12 ára.
Sýnd kl.5, 7.30 og 10.
FERÐIN TIL
JÓLASTJÖRNUNNAR
Sýnd kl. 3.
HAFNARBIO
' Sími 16444
ÆVINTYRI
LEIGUBÍLSTJÓRANS
Bráðskemm'tileg og djörf ný ensk
gamanmynd í litum.
BARRYEVANS
JUDY GEESON
DIANA DORS
tslenzkur texti.
Sýnd kl. 5. 7. 9 og 11.
SIRKUS
Svnd kl. 3.
19 OOO
• salur>^^—
SJO NÆTUR IJAPAN
Svnd kl. 5.05. 7.05. 9 og 11.10.
ALLIR ELSKA BENJI
Svnd kl. 3.
-------salur
JÁRNKROSSINN
Sýnd kl. 5,15, 8 og 10.40.
'Salur
RADDIRNAR
Svnd kl. 7.10, 9.05 og 11.
DRAUGASAGA
Svnd kl. 3.20 og 5.10.
I
AUSTURBÆJARBÍÓ
D
Sfmi 11384
ÍSLENZKUR TEXTI
B0RG DAUÐANS
(The Ultimate Warrior?
Ilörkuspennandi bandarísk kvik-
m.vnd í litum.
Aðalhlutverk: Yul Brynner, Max
Von S.vdow.
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 9.
ABBA
Sýnd kl. 5 og 7.
Ilækkað verð.
Gaukshreiðrið s<n'i3,iai
(One flew over the Cuckoos’
nest)
Gaukshreiðrið hlaut eftirfarandi
Öskarsverðlaun:
Bezta mynd árins 1976.
Bezti leikari: Jack Nicholson.
Bezta leikkona: Louise Fletcher
Bezti leikstjóri: Miios Forman.
Bezta kvikmyndahandrit: Lawr-
ence Hauben og Bo Goldman.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Hækkað verð.
I
LAUGARÁSBIO
D
Sír.ii 32075.
AÐVORUN -
2 MÍNÚTUR
91,000 People.
33 Exit Gates. One Sniper...
TWSMINUTE
Hörkuspennandi og viðburðarík
ný mynd um leyniskyttu og fórn-
arlömb.
Leikstjóri: Larry Peerce.
Aðalhlutverk:
Charlton Heston, John Cassa-
vetes, Martin Balsam og Beau
Bridges.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
9
HÁSKÓIABÍO
Sími 22)40
HVAÐ?
(What)
Mánudagsmvndin
Mjög umdeild m.vnd eftir
Polanski. Mvndin er að öðrum
þræði gamanmvnd en ýmsum
finnst gamanið grátt á köflum.
Aðalhlutverk: Mareello
Mastroianni, Sydne Rome, Rom-
olo Valli, Hugh Griffith.
Sýnd kl. 3.
Bönnuð börnum.
B.T. Kbh. 5 stjörnur.
Extrabladet 6 stjörnur.
Svartur sunnudagur
(Black Sunday)
Hrikalega spennandi litmynd um
hryðjuverkamenn og starfsemi
þeirra. Panavision.
Leikstjóri: John Frankenheimer.
Aðalhlutverk: Robert Shaw,
Bruce Dern, Marthe Keller.
íslcnzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
Hækkað verð.
Þessi mynd hefur hvarvetna hlot-
ið rnikla aðsókn enda standa
áhorfendur á öndinni af eftir-
væntingu allan tímann.
I
BÆJARBÍÓ
D
Sfmi^SOI 84
ARENA
Æsispennandi amerísk litmynd.
Islenzkur texti.
sýndkl. 5og9.
Bönnuð börnum.
Sjónvarp
8
(§
Útvarp
Sjónvarp íkvöld kl. 21.10:
Barnasýning CfMM líi CVCI?
hjáBillySmart tlRIVMLtlM I
Barnasýning úr sirkus Billy
Smart er á dagskrá sjónvarpsins í
kvöld og er það ekki í fyrsta sinn
sem við fáum að sjá slíka sýningu.
Það er hreint með ólíkindum
hvað krakkarnir í þessum sirkus
koma snemma til og eru kattliðug-
ir. Ekki spillir fyrir að þau um-
gangast stærstu og hættulegustu
dýrin rétt eins og þau væru sauð-
meinlaus. Krakkarnir alast líka
upp við þetta alveg frá fæðingu
því í svona fjölleikahúsum ganga
störf í erfðir frá föðúr til sonar og
móður til dóttur.
Við sirkus Billv Smart eru þó
fleiri starfandi en fólk úr fjöl-
skyldu hans því ýmsir góðir
skemmtikraftar koma frá Ind-
landi jafnt sem Astralíu.
En meðal annarra.orða, er sjón-
varpið íslenzka með sérstakan
samning við þennan sirkus um að
sýna aðeins frá honum og engum
öðrum?
- DS
Sjónvarp f kvöld kl. 20.30: Gestaleikur
Laus við kvennafjas
Enn heldur Gestaleikur áfram í
kvöld í sjónvarpinu. í þetta sinn
er það fólk af Austurlandi sem
spyr og reynir aö finna út hver sé
rétti maðurinn og að þekkja leyni-
gesti. Fimm karlar fá að spreyta
sig ótruflaðir af kvennafjasi.
Ölafur Stephensen stjórnandi
sagði að það væri tilviljun að syo
hittist á og lofaði þvi að í næsta
þætti yrðu fleiri konur.
Fimmmenningarnir eru
Halldór Sigurðsson, sem löngu er
þekktur orðinn fyrir frábæran
tréskurð og annan listiðnað auk
þess sem hann er bóndi, kennari
og margt fleira, Þráinn Jónsson
framkvæmdastjóri, Þorsteinn
Sveinsson kaúpfélagsstjóri,
Bjarni Arthúrsson fulltrúi skatt-
stjóra og fréttaritari Dagblaðsins
á Egilsstöðum og að lokum Jón
Pétursson dýralæknir.
Gestaleikur hefst að vanda
strax að loknum fréttunum í
kvöld klukkan hálfníu. Hann er
auðvitað í litum. - DS
Sjónvarp í kvöld kl. 22.05: Ótrygg er ögurstundin
GLÆNÝ MYND EFTIR LEIKRITI
SEM SÝNT VAR HÉR Á LANDI
Sjónvarpið sýnir í kvöld mikið
drama eftir Edward Albee. Það er
Otrygg er ögurstundin (A Deli-
cate Balance) sem hér á landi
hefur verið sýnd sem leikrit. í
hlutverkum eru rnjög frægar leik-
konur en minna frægir karlar.
Hæst stendur Katharine Hepburn
og við hlið hennar Lee Remick.
Paul Scofield telst mestur af körl-
unum.
Greint er frá þeim átökum,
Ijósum og leyndum, sem verða á
heimili Agnesar og Tobíasar sem
eru miðaldra og í fremur góðum
efnum þegar gestir setjast upp
hjá þeim. Hjá Agnesi og Tobíasi
hefur búið dr.vkkfelld systir hús-
móðurinnar en nú bætist við vina-
fólk þeirra og dóttir.
Betsy Blair, Paul Scofield, Joseph Cotten og Kate Reid í hlutverkum
sínum i Otrvgg er ögurstundin í sjónvarpinu í kvöld.
Þýðingu sjónvarpsmyndarinn-
ar gerði Heba Júlíusdóttir en þá
sem sýnd var hér í leikhúsi sá
Thor Vilhjálmsson um. Þar léku
Sigríður Hagalín og Jón Sigur-
björnsson Agnesi og Tobías en
önnur hlutverk voru í höndum
Helgu Bachmann, Þórunnar
Magneu Magnúsdóttur, Mar-
grétar Ölafsdöttur og Steindórs
Hjörleifssonar. Helgi Skúlason sá
um leikstjórn og Ivar Török úm
leiktjöld. Alls var Ötrygg er ögur-
stundin sýnd hér 20 sinnum og
þykir það lítil aðsókn en þess ber
að geta aó drama eru alltaf minna
sótt en til dæmis gamanleikir. Það
var veturinn 1973 sem st.vkkið
gekk hjá Leikfélagi Re.vkjavíkur.
Bandaríska myndin sem við
sjáum í kvöld eftir sama leikriti
er glæný af nálinni eða frá árinu
1973. Leikstjóri er Tony Richards-
son.
Klappið truflar
Gestaleik
Okkur Eskfirðingum líkar
ágætlega við Gestaleikinn í
sjónvarpinu, sagði Regina
Thorarensen fréttaritari DB á
Eskifirði. Það er aðeins eitt
sem skyggir á og það er þegar
áhorfendurnir í sjónvarpssal
eru að klappa. Það hefur, ein-
hverra hluta vegna, truflandi
áhrif á sjónvarpsútsendingarn-
ar fyrir austan.
— - A.Bj.