Dagblaðið - 02.02.1978, Qupperneq 9
I)A<;BI.Af>ÍÐ. FIMMTri)A(U B 2. FKBHFAH 1978.
í skugga gengisfellingarinnar:
Mikil sala á dýrari heimilis-
tækjum og litsjónvörpum
Miklir peningar í umferð og f ólk greiðir út f hönd
Töluvert áberandi sala hefur
verið í stærri heimilistækjum
eins og ísskápum. frystikistum,
þvottavélum og öðrum ámóta
tækjum. Þá hefur sala litsjón-
varpstækjanna verið mjög
fjörug. Þetta er heldur ekkert
undarlegt, — þvi nú telja
flestir að gengisfelling sé á
næsta leiti. DB ræddi við
nokkra kaupmenn i gær.
„Þetta er samt ekki sama
æðið og var í gamla daga. '67 og
'68 þegar stóru gengisfelling-
arnar voru," sagði einn
kaupmaðurinn. ,,Þá var engu
líkara en að eitthvert æði gripi
fólkið og það keypti og keypti.
Þá kom oft fvrir að fólk kevpti
stór og dýr heimilistæki sem
það hafði ekki einu sinni pláss
f.vrir og bað okkur um að ge.vma
tækin fyrir sig. Ég minnist
einnar konu sem keypti ísskáp
sem hún bað okkur að gevma.
Skápurinn var hjá okkur í tvö
ár!
Fólk áttar sig alls ekki á því
hvað er raunverulega að gerast
dagsdaglega með hinu sífellda
gengissigi. Það gerir að verkum
að hver ný vörusending er
raunverulega á nýju verði. En
ef stór gengisfelling, sem
skellur á í einu lagi er
væntanleg, þá hleypur fólk upp
til handa og fóta. Ég minnist
þess einu sinni að í vændum
var 2% hækkun á söluskatti
sem hafði sáralítil áhrif í verð-
laginu. Þá greip eitt kaupæðið
um sig! Sumar verð-
hækkanirnar fara alveg fram-
hjá fólki.
Ein sjónvarpstækjaverzlunin
þurfti að bæta við sig fólki til
þess að ke.vra litatækin til
viðskiptavinanna. Sjónvarps-
tækjasalarnir sögðu að miklir
peningar væru í umferð og
meira um að fólk keypti gegn
staðgreiðslu en vanalega.
„Fólkið vill bara koma
peningunum sínum í verðmæti
áður en þeir missa meira af
verðgildinu," sagði einn kaup-
maðurinn. „Það er ekki nema
skiljanlegt að fólk vilji heldur
drifa sig í að endurnýja gömlu
svart/hvítu tækin sín áður en
litatækin hækka enn í verði.
sagði kaupmaðurinn.
-A.Bj.
ÞAU FUNDU ALLA
JÓLA-BOGGANA
— ogfengu síðbúna en kærkomna brúðargjöf, Grundig-
tækið f rá Dagblaðinu og Nesco
„Verðlaunin í jólagetraun Dag-
blaðsins komu eins og nokkurs
konar brúðargjöf þvi það er ekki
nema rúmur mánuður síðan við
giftum okkur," sagði vinnings-
hafinn í Boggagetraun Dag-
blaðsins. Svan Aðalsteinsson.
Snæfellsási 1. Hellissandi í sam-
tali við DB.
Svan og kona hans Kristjana
Halldórsdóttir sendu inn allar
fimrn Boggamyndirnar. sem þau
áttu ekki í miklum erfiðleikum
með að finna og var nafn þeirra
dregið úr nokkur þúsund lausn-
um sem bárust. Verðlaunin voru
Grundig Supereolor litasjón-
varpstæki frá Nesco, sem kostar
hátt á f.jórða hundrað þúsund
krónur!
„Það eru nú samt ekki miklar
likur til þess að ég liggi vfir nýja
litatækínu okkar vegna þess að ég
er verkstjóri í fiskverkunar-
stöðinni Jökli og það er rosalega
mikið að gera, vaðandi fiskur hér
hjá okkur á Snæfellsnesinu."
sagði Svan.
Kristjana sagðist aftur á móti
hugsa sér gott til glóðarinnar að
stytta sér stundir á kvöldin. á
meðan eiginmaðurinn er við
vinnu. fvrir framan nýja lita-
tækið sitt. — Að sjálfsögðu eru
ungu hjónin áskrifendur að Dag-
blaðinu rétt eins og flestir aðrir
íbúar Hellissands. en þar er Dag-
blaðið útbreiddara en nokkurt
annað biað.
Hafsteinn/abj.
»
Ungu hjónin Kristjana Halldórs-
dóttir og Svan Aðalsteinsson hjá
nýja litasjónvarpinu. sem er hinn
mesti kjörgripur.
DB-mynd Hafsteinn.
\
SKRÍDDU...ÞAÐ ER
ÖRUGGASTA LEIÐIN
Margþættur
fróðleikurum
eldvarnirkynnturaf
félagsmönnum
JuniorChambers
Þnríárekstriá
Vesturlandsvegi
Þrír fólksbílar lentu í hörðum
árekstri á móts við veitinga-
staðinn Aningu við Vesturlands-
veg á þriðjudag. Tilkynnt var um
áreksturinn til lögreglunnar
skömmu f.vrir kl. sjö í gærkvöldi,
en hann mun hafa orðið með þeim
hætti, að Fíat-bifreið, sem ekið
var í átt frá Re.vkjavík tók að
renna ti! á veginum.
Skipti engum togum, að
Volkswagen, sem ekið var á leið
til Reykjavíkur lenti á Fíatbíln-
um og hentist síðan aftur á bak á
jeppabifreið, sem bar að í þessu
augnabliki.
Tveir ökumanna voru fluttir á
slysavarðstofu. en að sögn lög-
reglunnar voru meiðsli þeirra
lítil.
Bilarnir voru hins vegar allir
mikið skemmdir og varð að fá
kranabifreiðir til þess að fjar-
lægja þá alla. -HP.
Ungir menn í Reykjavík. sem
sameinast hafa í félagsskap er
nefnist Junior Chambers, hefja
mikla Jierferð í eldvarnamálum á
sunnudaginn og stendur her-
ferðin til laugardagsins 11.
febrúar. Tilgangurinn er að vekja
almenning til sem mestrar um-
hugsunar um eldvarnir og vinna á
„Nei, ég þori ekkert að segja
um hvort dregið hefur úr
smygli — okkar tölur eru
aðeins vfir það sém gert var
upptækt," svaraði Kristinn
Olafsson tollgæzlustjóri
spurningu DB unt hvort skilja
mætti fréttatilkynningu hans á
þann veg að minni upptekt '77
en '76 þýddi minna smygl til
landsins.
A nýliðnu ári lagði tollgæzlan
þann hátt að færri eldsvoðum og
fræða fólk um hvernig bregðast
skuli við eldum, sem verða.
Stórum plakötum verður dreift
um borgina. A þvi er táknmvnd af
skríðandi ntanni og undir stendur
eldrauðu stóru letri: „Skríddu....
það er undankomuleiðin þegar
hald á 1451 flösku af áfengi.
Þær voru 2225 árið áður. Lagt
var hald á 6923 karton af
sígarettum á móti 9141 kartoni
árið áður. Þá var lagt hald á
, 7158 dósir af áfengum bjór,
sem er rúmlega 4000 dósum
minna en árið áður.
í fréttatilk.vnningu tollgæzlu-
stjóra kemur einnig fram að
lagt hafi verið hald á ýmsan
annan varning sem reynt var að
herbergi er fullt af reyk. Loftið er
hreinna nálægt gólfi."
Junior-Chamber félagarnir
hafa svo eitthvað á dagskrá alla
daga eldvarnavikunnar. þeir aug-
lýsa í dagblöðum og útvarpi,
fræðsluefni urn eldvarnir verður í
sjónvarpi á föstudaginn.
smygla inn í landið.
Rannsókn á röngum
aðflutningsskjölum vöru-
innflytjenda leiddu - til
hækkunar á tollum og
aðflutningsgjöldum, eða um
44.7 milljónir. (Árið áður voru
þetta tæp 31 milljón). Mest-
megnis var þetta fyrir ranga
vöruflokkun, eða 43,5 milljónir
í 328 málum.
-ÓV.
Slökkvilið Reykjavíkur heim-
sækir nokkra barnaskóla kveikir
þar elda og sýnir hvernig slökkva
á. Loks hefur verið efnt til rit-
gerðasamkeppni i 6. bekk
grunnskóla í Reykjavík. Fólk ætti
vel að huga að þessu áhugastarfi
um eldvarnir.
-ASt.
Athugasemd
vegna
Akraborgar
Varðandi frétt um að sam-
göngumálaráðuneytið hefði
skorið úr um ráðningu stýri-
manns á Akraborginni hafði
Leif Halldörsson, stýri-
maður samhand við DB og
taldi ekki réttilega fjallað
um réttindamál hans.
Leif er ekki réttindalaus
eins og skilja má af frétt-
inni, heldur hefur hann hið
meira skiþstjórnarpróf á
fiskiskip. Það eitt nægir þö
ekki til þess að stjórna með
fullum réttindum skipi eins
og Akraborginni, til þess
þarf farmannapróf. sem Leif
hefur ekki. Hann var því
ráðinn á undanþágu, enda
sótti enginn farmaður um
starfið, er það var auglýst
Minna smygl — eða minni
árangur tollgæzlunnar?
Tollgæzlan lagði hald á 4 flöskur á dagað
meðaltali móti 6 á dag 1976