Dagblaðið - 02.02.1978, Blaðsíða 13
DACBLAÐIÐ. FIMMTUDAGl'R2. FEBRUAR 1978.
13
Éþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
D
ifaatriði voru
I Dðnum í hag!
mpel eftir leik Póllands og Danmerkur.
m eftir sigurinn, 25-22, og stef na nú
aunin í heimsmeistarakeppninni.
verja. Þaö getur þó veriö tvíeggj-
aö, því með sigri gætu Pólverjar
náð efsta sæti í 2. riðli — ef Danir
gera jafntefli eða tapa fyrir Sví-
um. 1 tveimur síðustu leikjum
Póllands og Sovétríkjanna hafa
Pólverjar borið sigur úr býtum.
Danir eru í sjöunda himni með
sigurirín gegn Pólverjum — og
dönsku blöðin eiga vart nógu
sterk lýsingarorð til að lýsa leik
danska liðsins og einstökum leik-
mönnum þess. En Pólverjar eru
gramir — reiðir út í rúmensku
dómarana. Þá sömu dómara og
voru Dönum svo hagstæðir gegn
íslendingum — og dæmdu einnig
leik íslands og Spánar:
Kunnasti leikmaður Póllands,
Jerzy Klempel, sagði eftir
leikinn: ,,Þetta var hneyksli. Við
vorum sjö á móti níu — og það er
ekki réttlátt í íþróttakeppni. ÖU
vafaatriði voru dærnd Dönum í
hag. Þegar þeir áttu misheppnuð
skot hljómaði flautan — og Danir
fengu aukakast. Fengu nýtt tæki-
færi. Enginn vissi hvers vegna en
það er svo létt að blása bara í
flautuna og dæma aukakast."
unda Kvrópumeistaratitil í riið í
með núverandi eiginmanni sinum.
ííu sinnum orðið heimsmeistari og
og þau höfðu alg.jöra vfirhurði í
sagði Klempel og varð að taka á
öllu til að stilla sig.
Og hann var spurður hver úr-
slit hefðu orðið með öðrum dóm-
urum. „Um það er ekkert hægt að
segja. Leikurinn hefði vissulega
orðið mjög jafn. Ég þori þó ekki
að fullyrða, að Pólland hefði
sigrað.“
En gáfu dómararnir Dönum
sigur?
,,Já, það er öruggt. Danir eiga
það gott iið að þeir þurfa ekki á
slíkri hjálp að halda. Við höfum
sigrað Sovétríkin í tveimur
síðustu leikjum okkar við þá — og
enn höfum við möguleika á verð-
launasætum á HM. Við munum
því leggja okkur alla fram gegn
þeim sovézku," sagði Klempel
ennfremur.
Það kemur grernilega fram í
dönsku blöðunum, að rúmensku
dómararnir hafa verið Dönum
hagstæðir — hafa verið heima-
dómarar í keppninni. Dæmt ein-
kennilega marga leiki Dana. Á
einum stað skrifaði Poul Prip,
hinn kunni íþróttafréttamaður
hjá Berlingi, í frásögn sinni af
leik Danmerkur og Póllands.
„Aldrei þessu vant féll einn dóm-
ur Dönum í óhag í leiknum.“
En hvað um það. Danir hafa
góða möguleika í HM, þó svo
Svíar hafi oft verið þeim erfiðir
mótherjar — og gætu orðið það í
kvöld.
Úrslitiní
parakeppni
„Ég get auðvitað ekki spáð um
framtiðina en ég vona að ég geri
mitt bezta á næstu Olympíuleik-
um — í Moskvu 1980“, sagði
Irena Rodnina eftir að hún vann
sinn tiunda EM-titii i gær. Hún og
eiginmaður hennar, Alexander
Zaitsev, höfðu að venju algjöra
yfirburði. (Jrslit.
1. Rodnina-Zaitsev, Sovét, 148.54
2. Teherkasova-Shakrai, Sovét.
141.74
3. Mager-Bewersdorf, A-Þýzkal.
140.08
4. Baesz-Thierbaeh, A-Þýzkal.
138.04 ,
5. Spieglova-Spiegl, Tékk. 135.90
6. Stolfig-Kempe, A-Þýzkai.
134.52
Armenningar voru Valsmönnum ouðveld Itráð i leik liðanna á laugar-
daginn. A DB-invnd Harðar Vilhjálmssonar er knötturinn á leið fra
körfunni og tveir Valsmenn tilhúnir uppi að ná frákastinu. 1 kviild
verða tveir leikir á dagskrá íslandsmótsins. I 1. deild karla leika
stúdentar við íslandsmeistara ÍR og í meistaraflokki kvenna leika ÍS
og KR.
Sá forvstumaður íþrótta-
hreyfingarinnar á Akranesi, sem
bezt og lengst allra manna
starfaði á sviði íþróttamála var
Guðmundur Sveinbjörnsson (d.
9.1 ’71). íþróttafólk og allir sem
viðurkenna nauðs.vn íþróttaiðk-
ana standa í þakkarskuld fvrir
þessi störf hans. Þau verða bezt
þökkuð með því að standa vörð
um þau málefni, og halda uppi
því merki, sem hann vann svo
dvggilega að og láta það aldrei
falla.
Fvrir nokkru var stofnaður
MINNINGARSJÖÐUR UM HELZTA
IÞR0TTAFR0MUÐ AKURNESINGA
minningarsjóður um Guðmund
Sveinbjörnsson í virðingar- og
þakklætissk.vni fyrir hin veiga-
miklu störf hans í þágu íþrótta-
bandalags Akraness og íþrótta- og
menningarmála. Sjóðurinn er
stofnaður af íþróttabandalági
Akrane,ss og er í vörzlu þess.
Formaður ÍA skal vera sjálfkjör-
inn formaður sjóðsins en tveir
meðstjórnendur eru kosnir árlega
í þingi ÍA. Stjórn sjóðsins
ákveður styrkveitingu og ræður
því hvort auglýsa skulj eftir um-
söknum eða ekki.
St.yrki má veita efndegum
íþróttamönnum til náms. Einnig
má styrkja íþróttaþjálfara sem
sýnt hafa sérstakan áhuga í starfi
til náms í íþróttaþjálfun og aðra
þá sem vinna að æskulýðs- og
bindindisstörfum i bænum.
Á 33. ársþingi ÍA í nóv. sl. kom
fram tillaga sem var samþykkt,
þess efnis að gerð yrðu
minningarkort fyrir sjóðinn
honum til eflingar. Nú hefur
stjórnin látið gera þessi kort og
verður hægt að fá þau í verzlun-
inni Oðni, Kirkjubraut 5, Akra-
nesi.
Einnig hefur stjórn sjóðsins og
stjórn í A mikinn hug á að
meistaraflokkur ÍA leiki í sumar
leik til fjáröflunar fyrir
ntinningarsjóðinn þannig að hann
geti starfað undir því merki er til
hans var stofnað.
Stjórn sjóðsins skipa: Form.
Þröstur Stefánsson. Meðstj.
Arsæll Valdimarsson og Kristján
Sveinsson. Stjórnin var kosin á
33. ársþingi ÍA í nóvember sl.
(Fréttatilkvnning frá ÍA)
Það er ekki píáss í heiminum fvrir)
Hvað
kemur
það
kn
Eg hef bvggt upp lið mitt með
súpermönnum Ef Sparta tapar er
það vegna þess að leikmenn Iiðsins
HMíkvöld
Sex leikir verda háðir í kvöld í
heimsmeistarakeppninni í hand-
knattleik i Danmörku. í riðli 1
leika Rúmenía og Vestur-
Þýzkaland í Helsingör, og Júgó-
slavía og Austur-Þýzkaland i
Kalundborg. í milliriðli 2 leika
Pólland og Sovétríkin í Arósum,
og Danmörk og Svíþjóð í
Herning. Leikirnir hefjast kl.
18.30 að íslenzkum tíma.
í keppninni um sætin frá 9.-12.
leika Spánn og Tékkóslóvakía i
Hróarskeldu. Ungverjaland og
Japan í Nyköping. Þeir leikir
hefjast einnig kl. 18.30.
Jerzy Klempel
markhæstur
Markahæstu leikmenn á HM i
Danmörku eftir leikina á þriðju-
dag voru þessir:
Klempel, Póllandi, 34
Birtalan. Rúmeníu, 33
Kovaes, Ungverjalandi, 31
M. Berg, Danmörku, 2(i
Gamo, Japan, 24
Böhme, A-Þýzkalandi. 22
Kaluzinski, Póllandi, 18
Pavieevie, Júgóslavíu, 18
Novoa, Spáni, 17
Gassij, Sovétríkjunum. 1«
Meistaramót
í badminton
Meistaramót TBR í tvíliðaleik
og tvenndarleik verður haldið í
TBR-húsinu sunnudaginn 19.
febrúar nk. og hefst mótið kl.
14.00 síðdegis.
Keppt verður í tvíliða- og
tvenndarleik í eftirtöldum flokk-
um karla og kvenna:
Meistaraflokki
A-flokki
B-flokki.
Þátttökurétt hafa allir, fæddir
1902 eða fyrr.
Þátttökutilkvnningar þurfa að
hafa borizt tii félagsins fyrir 15.
fehrúar nk.
Dortmund vann
Tékkóslóvakíu
Borussia Dortmund, sem leikur
i 1. deild í knattspyrnunni í
Vestur-Þýzkalandi, sigraði tékk-
neska landsliðið — núverandi
Evrópumeistara — (i-2 í Dort-
mund á þriðjudag. Staðan í leik-
hléi var 3-0. Lippens, tvö, Burg-
miiller, tvö, Voege og Huber
skoruðu f.vrir Dortmund en
Panenka og Kroupe fyrir Tékkó-
sióvakíu.
Þrjú lyftinga-
met í ungl-
ingaflokki
Á innanfélágsmóti hjá l.vftinga-
deild KR sl. mánudag voru sett
þrjú ný unglingamet í Ivftingum.
Guðgeir Jónsson Armanni snar-
aði 123.5 kílóum í 90-kíIóa
þyngdarflokknum og fékk saman-
lagt 275 kg. Hvort tveggja met.
Ágúst Kárason KR jafnhattaði
145 kílóum í 100 kilóa-
þvngdarflokknum.
Afmælismót
Júdósam-
bandsins
Sunnudaginn 5. febrúar kl.
14.00 verður seinni hluti afmælis-
móts Júdósambands fslands í
íþróttahúsi Kennaraháskólans.
Verður þá keppt í opnum flokki
karla (án þvngdartakmarkana)
og einnig í unglingaflokkum og í
kvennaflokki.
Afmælismót JSf er haldið
árlega um mánaðamótin janúar-
febrúar. Afmælisdagur JSf er 28.
janúar, og varð Júdósambandið
5 ára á laugardaginn.