Dagblaðið - 10.03.1978, Blaðsíða 15
14
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1978.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1978.
15
X Aðeins á| æfingum.
■/ Styrkir spyrnur þeirra^
* og gerir þá ósigrandi.)
Enginn^markvörður verst
'þeim )
Af hveriu eru
menn þfnir með.
„• keðjur um
ökklana,——
Sá ljóshærði spyrnir í markið.
Sigfinnur
^spyrntu.
LucHO
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Sþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Pálmi og Amar með Fram á ný
átti aldrei möguleika!
Fram sigraði FH 26-21 í 1. deild íslandsmótsins í handknattleik í gærkvöld í Laugardalshöll
Fram kom mjög á óvart í gær-
kvöld í Laugardalshöll og vann
auðveldan sigur á FH í 1. deild
Islandsmótsins, 26-21. Fram hafði
alltaf frumkvæðið í leiknum —
FH-ingar komust aldrei yfir — en
tókst tvívegis að jafna. Það var
strax allt annar blær á leik Fram
en verið hefur áður í vetur —
Pálmi Pálmason, landsliðs-
maðurinn hjá Fram hér áður
fyrr, en vinnur nú á Húsavík, lék
með sinum gömlu félögum og
nærvera hans hafði mjög örvandi
áhrif á aðra leikmenn Fram, og
Pálmi stóð vel fyrir sínu. Þá var
Arnar Guðlaugsson með á ný eftir
nefbrotið slæma — og vissulega
hafði það sitt að segja. En þó
þessir garpar lékju vel voru þó
tveir aðrir leikmenn Fram, sem
mestan þátt áttu í hinum örugga
og góða sigri. Guðjón Erlendsson
varði snilldarlega í marki Fram
allan tímann og Gústaf Björns-
son gerði Geir Hallsteinsson að
mestu óvirkan með nákvæmri
gæzlu. Ekki nóg með það því þessi
litli, lipri leikmaður gerði séri
lítið fyrir og varð markhæsti leik-|
Gústaf Björnsson var FH-ingum erfiður í gærkvöld. Var markhæstur
leikmanna Fram og á DB-mvnd Harðar Vilhjálmssonar er Gústaf frír á
línu með knöttinn. FH-ingarnir Árni Guðjónsson og Júlíus Pálsson of
seinir til varnar.
Siðari leikur Dankersen og
Honved frá Búdapest í Evrópu-
keppni meistaraliða var háður í
Hannover 5. marz. Fyrri leikn-
um lauk með fjögurra marka
sigri Honved (24-20). Leikur-
inn í Hannover, þar sem áhorf-
endur voru um 3500, var gífur-
lega spennandi og í hálfleik
Ieit út fyrir, að GWD mundi
komast áfram í keppninni þvi
staðan var 10-6 fyrir liðið.
Dankersen lék vel í fyrri
hálfleik. Bezti maður Honved
— risinn Kovacs — var tekinn
úr umferð og það heppnaðist
vel. Eftir að Dankersen hafði
skorað tvö fyrstu mörkin í
síðari hálfleik hrundi allt niður
hjá liðinu. Leikmenn gerðu sig
seka um fljótfærni og ótímabær
skot. Eftir 13 mín. í s.h. mátti
sjá á markatöflunni 13-12 fyrir
Honved! Sjö mörk ungverska
liðsins í röð án þess Dankersen
skoraði. Eftir mikil hvatningar-
hróp áhorfenda í fyrri hálfleik
höfðu þeir nú hljótt um sig.
Á þessum tíma höfðu leik-
menn Dankersen reynt of
mikið að brjótast gegnuin vörn)
Honved á miðjunni, sem ekki
tókst. Auk þess varði mark-
vörður Honved — Bakos að
nafni — mjög vel og var bezti
maður liðsins. Síðustu mínútur
leiksins tók Dankersen það til
bragðs að leika maður á mann
en leikmenn Honved reyndu að
tefja eins og þeim frekast var
unnt. I lokin tókst Busch hjá
GWD að skora fimm mörk úr
sex tilraunum — þar af tvö úr
vítum — og lokastaðan varð 18-
15 fyrir GWD. En það nægði
ekki. GWD hafði ekki tekizt að
komast í undanúrslit meistara-
keppninnar.
Bezti maður Honved auk
markvarðarins var Peter
Kovacs, sem skoraði sjö mörk,
þrátt fyrir að hann var tekinn
úr umferð. Eftir leikinn voru
leíkmenn Dankersen mjög von-
sviknir og fátt um skýringar
hvernig þeim hafði tekizt að
tapa niður sex marka forskoti.
Öskiljanlegt fyrir þetta reynt
lið. Mörk Dankersen skoruðu
Busch 5/2, Waltke 4, Axel 3/2,
Becker 3, Kramer 2 og Ólafur 1.
Mörk Honved skoruðu Kovacs
7, Szabo 4/2, M. Kovacs 1
Makai 1, Ursuly 1 og Kocsis 1.
EVRÓPUKEPPNI
BIKARHAFA
Gummersbach hafði tapað
sínum fyrri leik í keppninni
gegn Frankfurt Oder með 17-13
i Austur-Þýzkalandi. Föstudag-
inn 3. marz var síðari leikur
liðanna háður í Dortmund og
þar var húsfyllir. 13 þúsund
áhorfendur!! — 1 hálfleik var
staðan orðin 10-6 fyrir Gumm-
ersbach og í síðari hálfleik —
með hjálp danskra dómra og
áhorfenda — gerðu leikmenn
Gummersbach út um leikinn. 1
lokin var mikil spenna þvf,
maður Fram í leiknum.
Leikmenn FH náðu sér aldrei
veruiega á strik í leiknum —
þrátt fyrlr mikinn hraða — og það
vantaði illilega Magnús Ölafsson f
markið. Ekki bætti heldur úr
skák fyrir FH, að ýmsir leikmenn
liðsins létu skapið hlaupa með sig
f gönur, þegar halla fór verulega
undan fæti. Það er aðeins til að
gera illt verra — eins og kom á
daginn.
Fram náði fljótt tveggja marka
forustu, 3-1, en FH tókst að jafna í
3-3. Næstu þrjú mörk voru
Framara, 6-3, og þó Þórarni
Ragnarssyni, bezta manni FH f
leiknum, tækist að minnka
muninn niður í eitt mark, 6-5,
tóku leikmenn Fram fljótt við sér
aftur. Munurinn jókst i 9-5 fyrir
Fram, síðan 12-7 og staðan f hálf-
leik var 13-8 fyrir Fram. Fimm
marka munur.
I sfðari hálfleiknum hélzt þessi
munur lengi vel — Fram fimm til
sex mörkum yfir. Um miðjan hálf-
leikinn fóru FH-ingar á saxa á.
muninn og áhorfendur héldu að,]
einn af hinum frægu lokasprett-
um liðsins væri nú að koma.
Staðan 18-15 fyrir Fram eftir 13
mín. En það var eitthvað annað.
Fram jók muninn aftur í fimm
mörk og 12 mfn. til leiksloka. FH
reyndi þá að leika maður á mann
og mikill darraðardans hófst á
fjölum Laugardalshallarinnar.
Allt í einni hringiðu. En það voru
Framarar, sem högnuðust á
þessu. Þeir skoruðu og skoruðu.
Náðu átta marka forustu. Skapið
logaði hjá ýmsum leikmönnum
FH. Tveimur vikið af leikvelli
fyrir kjánalega tilburði f mót-l
mælum við dómara — og FH-
ingar fjórir inn á um tíma.
Knettinum spyrnt og þegarl
Þórarinn tók vfti og skaut
himinhátt yfir var greinilegt að
þetta var ekki dagur H,afnar-
fjarðarliðsins. Lokakafli leilteins
var algjör leikleysa og þegar leik-
menn Fram höfðu náð að komast í
25-18 leyfðu þeir sér að taka þátt í
dansinum. Örfáar sfðustu loka-
mínúturnar skoruðu FH-ingar
fjögur mörk gegn einu marki.
Fram. Lokatölur því 26-21
x!
Holmenkollen-
keppnin hafin
Holmenkollen-skíðamótið
fræga hófst í Noregi f gær með
keppni í 15 km skíðágöngu karla
— og 5 km skíðagöngu kvenna. I
karlakeppninni hafði Finninn
Juha Mieto umtalsverða yfir-
burði. Sigraði á 44.45 mín. Annar
varð Svíinn Sven-Ake Lundback á
45.26 mín. I þriðja sæti varð
Maurilion de Zolt, ftalíu, á 45.22
mín. Thomas Magnússon, Sví-
þjóð, varð fjórði á 45.44 mín. Ivar
Formo, Noregi, fimmti á 45.52 og
Finninn Matti Pithanenen fékk
sama tíma. 1 næstu sætum voru
Norðmennirnir Lars Erik
Eriksen og Magne Myrmo.
I kvennakeppninni sigraði Dag-
mar Palechova, Tekkóslóvakiu, á
17.07 mín. Vigdis Rönning,
Noregi, varð önnur á 17.20 min.
og Berit Kvello, Noregi, þriðja á
17.21 mín.
Gummersbach þurfti að halda
þessum fjögurra marka mun til
að komast áfram. Það, sem
maður sá f sjónvarpinu frá
leiknum — um tuttugu mínút-
ur — var augljóst, áð dómar-
arnir voru Gummersbach mjög
hliðhollir og höfðu mikil áhrif á
úrslit leiksins. Honum lauk
með.sigri Gummersbach 15-10.
Beztu menn liðsins voru
Deckarm, Wunderlicht og
Bandt, eða þrfr af heimsmeist-
urum Vestur-Þýzkalands. Hjá
Frankfurt voru Engel og
Grilner beztu menn. Gummers-
bach á nú mikla möguleika að
sigra f Evrópukeppni bikar-
hafa. Áberandi er hve. áhugi
hér í Vestur-Þýzkalandi hefur
aukizt á handknattleik eftir
heimsmeistat-akeppnina. Sjón-
varpið sýndi úr báðum Evrópu-
leikjunum — eða um 20 mínút-
ur frá hvorum og það er mikil
breyting frá því, sem áður var.
BUNDESLÍGAN
önnur lið í deildinni léku f
17. umferðinni um helgina og
urðu úrslit þessi:
Rheinhausen — Hofweier 20-15
Neuhausen-r-Dietzenb. 13-14
Grosswallst. — Kiel 25-18
HUttenberg — Nettelst. 17-14
Milbertsh. — Derschlag 24-17
Fyrr í vikunni hafði
Hannover sigrað Dankersen 9-
8. Eftir eru níu umferðir hjá
flestum liðum svo margt getur
breytzt. Þau lið, sem eru í sæt-
unum 10.-14. berjast harðri bar-
áttu við fallið. Jafnvel liðin í
7.-9. sæti eru ekki örugg.
Þau úrslit, sem mest komu á
óvart, var sigur .Hannover á
Dankersen miðvikudaginn 1.
marz. Þar tapaði Dankersen
fyrir botnliði og var þvf
síðasta vika mjög erfið fyrir
liðið. Þá vann Dietzenbach
Neuhausen og má nú segja, að
Neuhausen sé endanlega fallið
í 2. deild. Grosswallstadt gerði
út um leikinn við Kiel í síðari
hálfleik — eftir 11-10 i hálfleik
— og liðið er nú hið eina, sem
getur ógnað sigri Gummers-
bách í keppninni um meistara-
titilinn. Rheinhausen sigraði
Hofweier á heimavelli og hefur
þar hlotið 15 stig af 16 möguleg-
um en aðeins hlotið fjögur sig á
útivöllum!! ■
Staðan f
þannig:
Gummersbach
Grosswallstadt
Dankersen
Nettelstodt
Huttenberg
Rhoinhausen
Kiel
Göppingen
Hofwoior
Dietzenbach
Milbertshofen
Dorschlag
Hannovor
Neuhausen
bundeslfgunni er nú
16 13
15 11
16 9
17 8
17 9
2 309-237 27
3 262-216 23
5 253-224 20
6 301-273 19
7 264-256 19
7 312-331 19
7 274-274 18
8 276-264 17
7 281-265 16
9 273-307 14
10 276-288 13
11 283-303 11
11 219-270 10
14 244-319 6
Með kveðju
Ól. H. Jónsson
Axel Axelsson
Dómarar leiksins, Haukur Þor-
valdsson og Öli Olsen, höfðu sýnt
einhverja beztu — ef ekki þá
beztu — dómgæzlu, sem sést
hefur f íslandsmótinu fram að
þeim darraðardansi, sem átti sér
stað síðustu 15. mín. leiksins.
Eftir það höfðu þeir ekki sömu
völd á gangi leiksins. Kannski
skiljanlegt f þeirri hringavitleysu,
sem þar átti sér oft stað. En það
var leiðinlegt, að sá ofsi sem þá
greip um sig, setti lýti á
dómgæzlu þeirra, sem hafði verið
til svo mikillar fyrirmyndar.
Vissulega féllu lætin vel f
kramið hjá áhorfendum — og
leikurinn var oft spennandi.
Haldi leikmenn Fram áfram á
þessari lfnu — og fái Páliha af og
til í leiki — þurfa þeir ekki svo
mjög að óttast fallið. Fyrir’
þennan leik höfðu margir af-
skrifað möguleika Fram á að
halda sæti sfnu í 1. deild — en nú
er annað uppi á teningnum. Auk
þeirra leikmanna liðsins, sem
áður eru nefndir, léku Sigur-
bergur og Pétur Jóhannesson
mjög vel í vörninni, og ýmsar
sóknarfléttur liðsins voru með af-
brigðum skemmtilegar, Jens
Jensson mjög snjall á köflum.
Greinilegt að leikni og auga
þjálfara liðsins, Jóhanns
Gunnars, fyrir samleik og fléttum
er farin að hafa veruleg áhrif.
Fram hefur ástæðu til að gleðjast
vegna þessa leiks.
Hins vegar geta FH-ingar
dregið af honum ýmsan lærdóm
— og það eru allt of miklar
sveiflur í leik liðsins. Geir
Hallsteinssyni tókst ekki að slfta
sig úr hinni ströngu gæzlu — og
það hafði mikil áhrif. Hraði og
aftur hraði er ekki nóg. Það
verður að vera eitthvað á bakvið
hraðann. Lfnuspil sést varla — og
leikmenn FH eru allt of greindir
strákar til að láta skapbresti ná
yfirtökunum, þó halli undan fæti.
Mörk Fram í leiknum skoruðu
Gústaf 6 —-, tvö vfti — Jens Jens-
son 5, Pálmi 4 (2) Sigurbergur 4
(2), Arnar 3, Birgir Jóhannsson,
Atli Hilmarsson, Árni Sverrisson
og Ragnar Hilmarsson eitt mark
hver. Mörk FH skoruðu Þórarinn
5 — þrjú vfti — Tómas Hansson 4,
Janus Guðlaugsson 3, Guðmundur
Árni Stefánsson 3, Júlíus Pálsson
2, Geir, Árni Guðjónsson,
Guðmundur Magnússon og Jónas
Sigurðsson eitt hver.
-hsím.
Pálmi Pálmason, landsliðsmaður Fram hér áður fyrr, lék með liði sínu á ný í gærkvöld og stóð sig
prýðilega. A DB-mynd Harðar að ofan hefur Pálmi brotizt framhjá Geir Hallsteinss.vni og Guðmundi
Arna Stefánssyni en þeim tókst að slá knöttinn frá honum.
Víkingur slapp fyrir horn
gegn neðsta liðinu, Ármanni
— Sigraði með 21-18 eftir að Ármenningar höfðu náð sjö marka forustu, 10-3
Víkingur náði efsta sæti á ný í
1. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik, þegar þeir sigruðu Ar-
mann í gærkvöld 21-18 í Laugar-
dalshöll. En Víkingar Ientu í hinu
mesta basli með Armenninga —
Iið. sem þeir hafa áður sigrað
þrivegis í vetur auðveldlega.
Raúnverulega sluppu Víkingar
fvrir horn í leiknum og um tíma
framan af virtist stefna í stór-
sigur Armanns. Liðið náði sjö
marka forustu, 10-3, og Víkingar,
með alla sína landsliðsmenn,
virkuðu nánast sem byrjendur í
íþróttinni. En Armenningum
tókst ekki að fylgja þessari góðu
byrjun eftir. Ótímabærar inná-
skiptingar áttu þar hlut að máli
— leikmönnum. sem átt höfðu
snjallan leik, kippt út af þegar
Ifða tök á hálfleikinn. Vikingar
gengu á lagið. Minnkuðu muninn
niður í tvö mörk fyrir hálfleik.
Jöfnuðustrax í byrjun þess sfðari
og eftir það var aidrei vafi á hvort
liðið mundi sigra í leiknum.
En hinn slaki leikur Víkings
framan af hlýtur að vera leik-
mönnum og þjálfara liðsins mikið
umhugsunarefni. Liðið er ekki
svipur þess stórliðs, sem það var
fyrir heimsmeistarakeppnina —
og getur ekki gert sér miklar
vonir um sigur á íslandsmótinu
eins og það hefur leikið að undan-
förnu. Verður slakara með hverj-
um leik og eins og liðið lék i gær
hefði það tapað f.vrir öllum liðum
1. deildarinnar — nema því
neðsta, Armanni. Og með betri
stjórn hefði Ármann sigrað í þess-
um leik. Víkingur hefur að vísu
orðið fyrir miklum áföllum.
Ólafur Einarsson handarbrotinn
— Kristján Sigmundsson, lasinn,
og litlar, sem engar likur, að þess-i
ir tveir landsliðsmenn leiki á
þessu leiktímabili. Þá hefur
Björgvin Björgvinsson verið
veikur — lék aðeins örfáar mín-
útur — en maður hélt, að Vík-
ingur hefði það mikið mannval,
að þessi áföll hefðu ekki alvar-
legar afleiðingar í för með sér
fyrir liðið. En nóg um það. Snúum
okkur að gangi leiksins.
Ármenningar byrjuðu mjög vel
og skoruðu fjögur fyrstu mörk
leiksins. Víkingar misnotuðu upp-
lögð færi og komust ekki á blað
fyrr en á níundu mín. og það fyrir
mikla óákvéðni dómara. Enginn
vissi hvað þeir voru að dæma —
og Jón Sigurðsson nýtti sér tæki-
færið sem gafst. Strax á eftir
varði Ragnar Gunnarsson, mark-
vörður Ármanns, víti frá Páli
Björgvinssyni og Ármenningar
juku muninn allt upp í 8-2, þegar
hálfleikurinn var hálfnaður. Og
þeir bættu enn um betur. Komust'
í 10-3 og það kom á óvart hjá
Viking að sterkustu leikmenn
liðsins, Páll, Viggó Sigurðsson,
Þorbergur — auk Björgvins —
höfðu meiraveriðáskiptibekknum
en þátttakendur í leiknum.
En eftir þessa góðu byrjun Ár-
manns fór þjálfari liðsins að
skipta um menn — en þjálfari
Víkings vaknaði og fór að nota
sína beztu menn, hvað hann gerði
næstum óbreytt til loka. Páll.
Viggó komu í sóknina, Skarphéð-
inn, Ólafur Jónsson og Magnús
Guðmundsson í vörnina, auk
Árna Indriðasonar, sem lék allan
leikinn, og Þorbergs. Vörnin þétt-
ist — Eggert Guðmundsson, (
markvörður Víkings, fór að verja
— og á örfáum mínútum skoraði
Víkingur fimm mörk. Ármann
aðeins eitt. Staðan breyttist í 11-8
og áfrarnJjéldu Víkingar að vinna i
upp muninn. Staðan 12-10 í hálf-
leik fyrir Ármann.
Eftir tæpar tvær mín. í síðari
hálfleik hafði Víkingur jafnað í
12-12. Ármann komst í 13-12 með
marki Björns Jóhannessonar úr
víti og það var í síðásta skipti, sem
Ármann hafði yfir i leiknum. Vík-
ingur skoraði næstu fjögur mörk
og úrslit voru ráðin. Þessi þriggja
marka munur hélzt til loka — og
síðasta mark leiksins skoraði
markvörður Víkings, þegar
Ragnar Gunnarsson hafði hætt
sér langt fram á völlinn í sókn
Armanns, sem rann út í sandinn.
í heild var leikurinn slakur —
og fáum leikmönnum Víkings
verður hælt fyrir þann leik, sem
þeir sýndu. Ungu strákarnir í Ár-
manni áttu skínandi kafla — og
Björn Jóhannesson stjórnaði leik
liðsins. Með meiri yfirvegun —
einkum á skiptibekknum — hefði
Ármann vissulega getað komið
mjög á óvart f þessum leik —
unnið. Sorglegasti þátturinn ’ í
leiknum var frammistaða dómar-
anna, Guómundar og Magnúsar
Óskarssonar. Þeir voru ákaflega
óákveðnir í dómum sínum — og
iðulega vissu leikmenn og áhorf-
endur ekkert hvað þeir voru að
dæma. Þeir verða að taka sig
verulega á ef um áframhaldandi
dómgæzlu hjá þeim i 1. deild á að
vera að ræða.
Mörk Víkings í leiknum
skoruðu Páll 7(1 víti), Viggó 5,
Árni 3 (2), Jón Sigurðsson 2, Þor-
bergur, Magnús, Ólafur og Eggert
eitt hver. Mörk Ármanns skoruðu
Björn 7 — fimm víti — Jón Viðar
5, Þráinn Ásmundsson 3, Friðrik
Jóhannsson 2, Smári Jósafatsson
og Öskar Ásmundsson eitt hvor.
Ragnar Gunnarsson varði tvö víti
Páls í leiknum en Ármann nýtti
öll sín viti.
- hsím
PELE-
peysurnarkomnar
Stærðir 28-34
Venftkr. 3470,-til 3660,-
Póstsendum
Dikcifinn /f.
Sportvöruverslun
Hafnarstræti 16 simi 24520
Staðan í 1. deild
Urslit í leikjum tslandsmótsins í hand-
knattleik — 1. deild karla — urðu þessi í
gærkvöld.
Ármann-Víkingur 18-21
Fram-FH 26-21
Staðan er nú þannig:
Víkingur 8 5 2
FH 9 5 1
ÍR 8 3 3
Valur 8 4 1
Haukar 7 3 3
Fram 8224
KR 8215
írmann 8 116 149-175
fcæstu leikir verða á sunnudag í Laugar-
dalshöll. Þá lelka Valur-FH kl. 20.00, og
síðan KR-Víkingur. Markahæstu leikmenn
mótsins eru nú:
Brynjólfur Markússon, tR 50/13
Jón H. Karlsson, Val 47/19
Þórarinn Ragnarsson, FH 43/16
Pjörn Jóhannesson, Árm. 41/18
Símon Unndórsson, KR, 40/9
Janus Guðlaugsson, FH 37/6
Páll Björgvinsson, Víking 36/9
Spinks dæmdur
íkeppnisbann
— ákveðinn í þvf að verja titil
sinn gegn Ali en heimssambandið
hótarað svipta hann titlinum
íþróttadómstóll í Nevada í Bandaríkjun-
um hefur dæmt nýja heimsmeistarann, Leon
Spinks, í 90 daga keppnisbann vegna lyfja,
sem hann tók fyrir leikinn við Muhammad
Ali, þegar hann vann heimsmeistaratitilinn.
Spinks átti við meiðsii að stríða — brákaður
á rifbeini — og lét læknisyfirvöld í Nevada
ekki vita af því. Tók Iyfin vegna meiðslanna
en þau voru ekki örvandi. Þessi úrskurður
skiptir Spinks engu máli, þar scm hann ætlar
sér ekki að keppa á ný fyrr en í september.
Leon Spinks skýrði fr-á því, að hann mundi
fyrst verja titil sinn gegn Muhammad Ali.
Það væri ákveðið og framkvæmdastjóri hans,
Bob Arum, skýrði frá því, að keppni þeirra
yrði háð í Mauritius en ekki í hinu nýstofn-
aða Bophuthatswana-riki í S-Afríku vegna
gífurlegrar mótmælaöldu. sem þar hefði,
brotizt fram, þegar sagt var að Spinks og Aii'
mundu keppa þar. Mauritius eru sjálfstæðar
eyjar í Indlandshafi — ekki langt frá
Magdagascar — og á aðild að Sameinuðu
þjóðunum.
Það er mikið um að vera í sambandi við
Spinks þessa dagana. 1 gær tilkynnti heims-
sambandið í hnefaleikum að það mundi
svifta Spinks titli sínum ef hann keppti ekki
fyrst við Ken' Norton — en Spinks ■ er
ákveðinn í að hafa þá hótun að engu.
Tíundi sigur
Rodninu í röð
Irena Rodnina og Alexander Zaitsev uröu í
gær heimsmeistarar í parakeppni í listhlaupi
á skautum á HM í Ottawa í Kanada. Þau
unnu mikinn yfirburðasigur og þetta er
sjötta árið i röð, sem þau sigra saman. Hins
vegar var þetta tíundi hermsmeistaralitill
Irenu í röð. Fjórum sinnum áður sigraði hún
með fyrri eiginmanni sinum. Hún er 28 ára
en Zaitsev, eiginmaður hennar nú. er 25 ára
og þau hlutu hæstu einkunn hjá öllum níu
dómurunum i keppninni. Þau munu halda
áfram keppni — að minnsta kosti fram yfir
Oiympíuleikana i Moskvu 1980.
AlanGowling
til Bolton
A miðnætti sl. var sölumarkaðinum á ensk-
um knattspyrn.umönnum á þessu leiktíma-
bili lokað — það er leikmaður, sem keyptur
er í dag getur ekki byrjað að leika með sínu
nýja félagi á leiktímabilinu.
Mikið var um sölur í gær en ekki voru þar
miklir peningar í spilinu nema í þremur
tilfellum. Leeds keypti miðvörð Blackpool,
Poul Hart, fyrir 300 þúsund sterlingspund.
Það er mesta upphæð, sem Leeds hefur greitt
fyrir leikmann. Bolton keypti háskólanem-
ann Alan Gowling frá Newcastle fyrir 120
.þúsund sterlingspund — en Gowling gat sér
fyrst nafn sem knattspyrnumaður hjá
Manch. Utd. Hann er því kominn á fornar
slóðir á ný því Bolton er útborg Manchester.
Þá keypti Lundúnaliðið Crystal Palace John
Burridge, markvörð frá Aston Villa, fyrir 6(
þúsund sterlingspund. Burridge, sem fyri/
fáum árum var keyptur frá Blackpool fyrir
miklu hærri upphæð, missti stöðu sína hjá
Aston Villa, þegar félagið keypti Jimmy
Rimmer frá Arsenal.
Aston Villa seldi einnig tvo leikmenn úr
varaliði sínu til Gillingham í 3. deild og fékk
fyrir þá báða 40 þúsund sterlingspund. Ekki
var getið um nöfn þeirra í fréttum BBC í
gærkvöld — eða annarra leikmanna, sem
skiptu um félög en þeir voru fjölmargir.