Dagblaðið - 10.03.1978, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 10.03.1978, Blaðsíða 28
 Yfirvinnubann neðarlega á lista en leynd hvflir yf ir ef ri sætunum „Yfirvinnubann er neðarlega á listanum yfir hugsanlegar að- gerðir í næsta mánuði, er samn- ingar losna, það er heil sería þar fyrir ofan sem of snemmt er að segja um fyrir fundinn, enda á hann að vera „brain- storming“ eða hugmyndabanki og umræðugrundvöllur fyrir hugmyndirnar," sagði Guð- ;mundur J. Guðmundsson fyrir • miðstjórnarfund ASÍ í gærdag. Þá náði blaðið stuttlega tali af Éðvarð Sigurðssyni, sem einnig sagði erfitt að tjá sig fyrir fundinn, en tók i sama streng hvað yfirvinnubannið áhrærði. Einnig sagði hann of snemmt að spá neitt fyrir um verkföll áður en samningavið- ræður væru komnar af stað. Mæting var svo góð að bæta þurfti við borði. Snorri Jonsson varaforseti ASÍ og Haukur Már Haraldsson blaðafulltrúi hjálpast að. DB-mynd: R.Th. Er hann var spurður hvort fleiri félög en VR hygðust gera kröfur umfram að samningarn-’ ir frá í fyrra yrðu áfram í gildi sagðist hann ekki búast við því enda hefði VR nokkra sérstöðu í sínu máli. - G.S. Guðmundur J. Guðmundsson skerpir hugsunina á neftóbaki fvrir fundinn, enda átti fundur- inn að verða „ hrai.nstorming“ eins og hann komst að orði. DB-mvnd: R.Th. Aðgerðir ASÍ eftirað samningar losna 1. aprfl: Hlý og gróf vor- rigning—ogsólríkt vorveðurídag Það er deginum ljósara að það er vor í lofti. Eflaust eiga landsmenn þó enn eftir að finna fyrir harðýðgi Vetrar konungs en þó verða það vart langvarandi hörkur. Það lifnar yfir borgarlífinu — og hér er bílstjóri á bílastöð í Re.vkjavík, sem kennir sig við borgina, á sprettinum út í bíl sinn til að sinna viðskiptavini sem bíður. í gærkvöldi gerði stórfellda vor- rigningu, hlýja og grófa, en í dag má búast við að létt verði yfir, a.m.k. suðvestanlands. DB-m.vnd Hörður. „Ætla mér að nýta eyjarnar eins og hver annar bóndi” - segirSímon Kjærnested, endurskoðandi „Eg verð að viðurkenna að ég hef aldrei í Skáleyjar komið ogi veit ekki hvernig þar er umhorfs nema af upplýsingum," sagði Símon Kjærnested endurskoð- andi í viðtali við DB í gær Tilboðið hljóðaði upp á um 15 milljónir og eignin sem um ræðir er hálfar Skáleyjar. A aðale.vnni eru tvö hús og er búið allt árið í öðru þeirra. Eyjarnar sem þessi tvö býli eiga eru samtals milli 130 og 140 og er æðarvarp í nær öllum auk þess sem mikill selur er við þær. Er DB spurði Slmon hvað hann h.vgðist gera við eignina sagði hann: „Eg ætla mér að nýta hana eins og hver annar bóndi.“ Ekki h.vggst hann þó hætta endurskoð- un heldur sitja eyjarnar á móti öðrum. Flateyjarhreppur á forkaups- rétt að eigninni en eftir því sem DB komst næst í gær mun ekki vera fyrirhugað að nota þann rétt. - G.S. Srfálst, óháð dagblað FÖSTUDAGUR 10. MARZ 1978 Tryggingabætur skertar Hver lifiraf 73.136 krónum? Hámarksbætur einstaklings eru nú 73.136 krónur á mánuði eftir hækkun á bótum almanna- trygginga 1. marz. Skerðing verðbóta, sem samþykkt var á Alþingi fyrir skömmu, nær einnig til bótanna. Þannig hækka allar bætur aðrar en tekjutrygging og heimilisuppbót um 5,5 prósent í stað 11 prósenta, en tekjutryggingin hækkar um 7,5 prósent í stað 11. Ríkissjóður mun spara sér nærri milljarð króna í ár vegna þess að hækkunin varð minni en til stóð. Sú hækkun, sem verður, eykur útgjöld lífeyristrygginga um milljarð á árinu. Grunnlífeyrir einstaklinga verður nú 38.609 krónur. og tekjutryggingin 34.527, svo að hámarksbætur verða 73.136 krónur. Hámarksbætur hjóna verða 127.863 krónur. Barnalíf- eyrir verður 19.756 krónur og heimilisuppbót 12.900 krónur.HH. Slysaútköllin yfirgnæfðu Þrjú slys urðu á fimm til sjö mínútna bili í Kópavogi í morgun. Öhappaaldan hófst með því að kona sem var ein á ferð í bíl lenti á staur á móts við húsið Hrauntungu 1. Bifreiðin var illa útleikin eftir áreksturinn og varð að fjarlægja hana með kranabíl. Konan hlaut meiðsli en ekki alvarleg. Á fáum mínútum eftir þetta slys urðu tveir árekstrar á Nýbýlavegi. Sá fyrri við Skelja- brekku og hinn við mót Birkigrundar. Þar varð ekki um slys að ræða á fólki. -ASt. Slysið í Kópavogi í morgun. Ökumaðurinn var að kasta sígarettu út um glugga og fipaðist aksturinn. DB-myndir Sv. Þorm. Nýr maður í hreppsnef nd Talningu í prófkjöri sjálf- stæðismanna á Höfn í Hornafirði er lokið, en 293 greiddu atkvæði. Aðeins 247 seðlar reyndust gildir, einhver ruglingur virðist hafa komið á vegna þess að fram- sóknarmenn eru einnig með próf- kjör í gangi á staðnum. Láta þeir merkja við fjóra, en sjálfstæðis- menn létu merkja við sjö. Hefur þetta riðlazt eitthvað. Niðurstaðan varð sú, að Vignir Þorbjörnsson varð efstur með 236 atkvæði, Albert Eymundsson varð annar með 197 atkvæði, Arni Stefánsson þriðji með 172, Unn- steinn Guðmundsson fjórði með 154 og Ingólfur Waage fimmti með 155. Sjálfstæðismenn hafa þrjá menn í hreppsnefnd og fram- sóknarmenn þrjá. Alþýðubanda- lagið er með einn mann. - HP

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.