Dagblaðið - 21.03.1978, Síða 1

Dagblaðið - 21.03.1978, Síða 1
frjálst, úháð dagblað RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11. — AÐALSÍMI27022. I I I f f f f I f I I f f f f f f f f I f f f f f f 4. ÁRG. — ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 - 61. TBL. Slíkt er gert á bæklunardeild Land- spítalans.Óskaði maðurinn eftir plássi þar og vænti þess að fá viðkomandi varahlut í mjaðmarliðinn þar. Þá skildist honum að hluturinn væri ekki til og einhver fyrirstaða væri á að fá hann, fyrirstaða utan deildarinnar. Fór maðurinn þá á fund þáverandi heilbrigðisráðherra, Magnúsar Kjartanssonar, sem tjáði manninum • að deildin hefði frjálsar hendur með innkaup og ætti engin fyrirstaða að vera á því máli. Leið nú og beið og maðurinn reyndi stöðugt að komast á deildina og versnaði jafnframt í mjöðminni. Er hann' hafði beðið rúmt ár gat hann ekki unnið lengur vegna kvala og var hann atvinnulaus i átta mánuði áður en hann loks komst inn á deildina og var tekinn til meðferðar. Hafði biðin þá staðið i um tvö ár. Hluturinn var þá kominn og tókst aðgerðin með miklum ágætum. Hóf maðurinn þá aftur vinnu og leið vel. En brátt tók að bera á sams konar kvilla i mjaðmarliðnum hinum megin og hafa læknar tjáð honum að sömu aðgerð þurfi að gera þar en nú virðist sama sagan ætla að endurtaka sig. Nú er liðið nokkuð á annað ár síðan hann fór að sækjast eftir plássi á deildinni en án árangurs og án þess að hann hafi enn fengið vilyrði um hvenær hugsan- lega kemur að honum. Versnar manninum stöðugt þótt hann geti ehn stundað vinnu. Að sögn mannsins er greinilegt að þessi deild er mikil brotalöm á íslenzka heilbrigðiskerfinu hvað smæð og af- kastagetu snertir. Hins vegar vildi maðurinn taka fram að hann væri síður en svo að frnna að störfum læknanna þar, þeir hefðu framkvæmt aðgerðina á sér með mestu ágætum, deildin réði bara ekki nema við brot af því sem hún þyrfti og ekki væri hægt að leita annað hérlendis. G.S. „Ég kemst ekkert nema i bíl og gæti ekkert unnið ef ég væri ekki svo lánsamur að geta setið við vinnu mína,” sagði maður sem ekki vildi láta nafns síns getið, í viðtali við DB i gær. Sjúkrasaga þessa manns er orðin löng og ströng og að því er virðist. erfiðari en eðlilegt getur talizt. Það var fyrir fjórum árum að maðurinn var orðinn svo slæmur i öðrum mjaðmar- liðnum að ekki var annað til bragðs en að skipta um hluta liðsins. Raunasaga sjúklings semþarf gerviliði: Bíður árum saman eftir varahlutum Varfrá vinnu Í8mánuði vegnaþessa Útvarpsráð samþykkir. STEREÓÚTVARP— OGRÁSTVÖ Komu þeir gjald eyrínum undan? talið að einhverjir hafi fluttfé sittfrá Finansbanken til annarra landa Staða og viðhorf hinna mörgu reikningshafa við Finansbanken er afar mismunandi eftir því sem DB kemst næst. Eins og DB skýrði frá i gær eru reikningsfjárhæðir mjög ólíkar eða víðs vegar á milli 450 þús. kr. og 18 milljóna króna miðað við ísl. kr. Eftir heimildum sem DB telur áreiðanlegar hafa einhverjir reiknings- hafa flutt peninga sina frá Finans- banken á erlenda bankareikinga i öðrum löndum en Danmörku. Er óvíst að til þeirra peninga hafi enn náðst, hvað sem verður. Enn eru þeir reikningshafar, sem höfðu gert fullnægjandi grein fyrir sinum innstæðum í Finansbanken áður en til afskipta íslenzkra gjaldeyris- og skattayfirvalda kom. örfáum þessara manna mun síðan hafa verið boðið að flytja peninga sina úr Finansbanken á gjaldeyrisreikninga hér- lendis eftir að þeir urðu til. Þess má geta að nú hafa verið lagðir inn á reikninga i íslenzkum gjaldeyrisbönkum á fjórða hundrað milljóna króna. DB hefur það eftir háttsettum banka- starfsmanni að einhverjir, sem ætlað hafa að nota gjaldeyrisreikninga i islenzkum bönkum, hafi spurzt fyrir um hvort því megi treysta að nöfn þeirra verði ekki birt í fjölmiðlum. Vandséð er hvaða ástæður gætu orðið til slíkrar nafnbirtingar. I því tilviki er um full- komlega lögmætt atferli að ræða. Um inneignir á erlendum bankareikningum gegnir a. m. k. oftast öðru máli, þótt heiðarlegar undantekningar kunni að vera frá þvi, eins og að ofan greinir. ÓV/BS „Útvarpsráð samþykkti á fundi sínum sl. föstudag að fela útvarpsstjóra að kanna kostnaðinn við tillögur Ellerts og við verðum sennilega að fá leyfi ríkis- stjórnarinnar eða Alþingis áður en við getum farið í gang,” sagði Þórarinn Þórarinsson formaður útvarpsráðs í viötali við DB í morgun, en útvarpsráð hefur nú loks tekið afstöðu varðandi tillögu Ellerts Schram um að komið verði á stereö-útvarpi, staðbundnum útvarpsstöðvum og nýrri bylgju með léttri tónlist auk annars. Auk þess er gert ráð fyrir að skip geti fengið myndsegulbönd með sjónvarps- efni og í greinargerð fyrir tillögunni sagði Ellert, að hann vonaðist til að útvarpsráð gerði tillöguna að sinni og staðfesti þannig að þetta yrðu næstu verkefni á dagskrá. Allt eru þetta mál sem rædd hafa verið utan útvarpsins sem innan um langa hríð. —HP Israelsmenn reiðubúnir Verður kona næsti forsætisráðherra Frakka? — sjá eriendar fréttir bls. 6-7 MNGMENN OG STERKA ÖUÐ GLEÐÞ LEGT NÝÁR 135! llél Gleðilegt nýár, gleðilegt nýár hljóm- aði á samkomu Bahái-trúarmanna i Kópavogi i gærkvöldi en þar voru þeir samankomnir til þess að fagna nýju ári. árinu 135! Bahái-menn miða timatal sitt við fæðingu spámannsins Baháulláh sem fæddist í Persiu. 1 söfnuði Baháía á tslandi eru nú um 140 fullorðnir en til þess að geta verið í trúfélaginu þurfa menn að segja sig úr íslenzku þjóðkirkj- unni. DB-mynd Hörður. A.Bj.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.