Dagblaðið - 21.03.1978, Side 5
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978
5
Vel lukkuð leiksýningá Bíldudal:
Hermanna-
búningar komu
f rá strætó!
Skjaldhamrar Jónasar Árnasonar
voru frumsýndir á Bíldudal 11. marz sl.
og þótti takast alveg sérstaklega vel. Var
sýningin i alla staði skínandi góð. Bæði
þau kunnu andlit sem maður á að
venjast á leiksýningum á Bíldudal og
eins stóðu nýliðarnir sig ekki siður. 1 lok
sýningarinnar var leikstjórinn Kristín
Anna Þórarinsdóttir hyllt með blóm-
vendi sem Jón Ingimarsson formaður
leikfélagsins færði henni. Einnig var
Helga Sveinbjörnsdóttir hyllt með blóm-
um en hún sá um búningana. Var það
mikið verk, því brezku einkennis-
búningana varð að sauma upp úr göml-
um strætisvagnstjórabúningum.
Með aðalhlutverkin í leiknum fara
Margrét Friðriksdóttir sem lék kap-
teininn og Hannes Friðriksson er lék
vitavörðinn. Aðrir leikendur voru Sævar
Guðjónsson er fór með hlutverk
njósnarans og er hann nýliði í leikara-
stétt á Bíldudal, óbreytta hermanninn lék
Eyjólfur H. Ellertsson, örn Gislason fór
með hlutverk majorsins og Ása Jóna
Garðarsdóttir fór með hlutverk
mállausu systur vitavarðarins. Hvíslari
var Ágústa Sigurðardóttir, sviðsstjórar
Hjálmar Einarsson og Ágúst Gíslason
og ljósameistari var Karl Þór Þórisson.
Fyrirhugað er að sýna Skjaldhamra á
fjörðunum í kringum Bildudal og verður
Patreksfjörður fyrsti viðkomustaðurinn.
Jón Kr. Ólafsson/abj.
Ferftaskrifstofa ríkisins á ITB-Berhn:
Sýndu íslandsmyndir þar til
sýningarvél bræddi úr sér!
Ferðaskrifstofa Ríkisins tók þátt í sýningunni i Berlín í byrjun þessa
International Tourismus Börse- mánaðar og að sögn forráðamanna
Island
Mikil örtröð var við sýningarbás íslands á ITB-Berlin.
ferðaskrifstofunnar gera þeir sér miklar
vonir um árangur af þátttökunni.
ITB-Berlin er stærsta sölusýning á
sviði ferðamála i Evrópu og viður-
kenndur alþjóðavettvangur aðila sem
fást við ferðamál. Kom fram á fundi
með forráðamónnum Ferðaskrif-
stofunnar að áhugi er mikill á lslandi
meðal þýzkumælandi þjóða og er ITB
því ákjósanlegur vettvangur til kynning-
ar á landi og þjóð og ferðamöguleikum
hingað.
Einnig kom fram, að áhugi ítala og
þjóða Benelux-landa hefur farið vaxandi
á Íslandi að undanförnu. Þó Norður-
'indabúar séu ákaflega fjölmennir
meðal ferðamanna hingað, eru þeir að
miklum meirihluta ráðstefnufólk, sem
ekki ferðast utan Reykjavíkur, svo telj-
andi sé.
Sýningarbás Ferðaskrifstofunnar
vakti mikla athygli og voru sýndar þar
kvikmyndir frá Íslandi þar til að kvik-
myndavélin bræddi úr sér.
HP.
NYTT FYRIR FERMINGARNAR
Teg. 602
Litun Beige rúsk.
Stærðir 36—41.
Verð 7.885.-
Teg. 606
Litur: Svart rúskinn.
Stærðir 36—41.
Verð 7.885.-
Teg. 601
Litur: Beige
rúskinn.
Stærðir 36-41
Verð 7.885.-
Teg. 610
Litur: Bleikt
rúskinn.
Stærðir 36—41
Verð 7.885.-
Teg. 703
Litur Hvítt leður.
Stærðir 36—41.
Verð 8.650.-
Litur: Dökkblátt rúsk.
Stærðir 36—41.
Verð 7.885.-
Teg. 706
Litur: Gráhvitt
leður.
Stærðir36—41
Verð 8.650.-
Teg. 705
Litur: Beige rúskinn.
|k Stærðir 36—41.
'.*V Verð 8.650.-
Teg. 763
Litun Svart rúskinn.
Stærðir 36—41.
Verð 8.650.-
Teg. 5
Litur Rautt eða
blátt leður.
Stærðir 36—41.
Verð 4.585.-
Teg. 354
Litur: Bleikt túskinn.
Stærðir 36—41.
Verð 8.650.-
Teg. 406
Litur Svart rúskinn.
Skinnfóðraðir.
Stærðir 36-41.
Verð 7.885.-
Skóverzlun Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll
Sími 14181 — Póstsendum