Dagblaðið - 21.03.1978, Side 6

Dagblaðið - 21.03.1978, Side 6
6 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 LEIKFÖNG í ÚRVAU Hin vinsælu PLAY MOBIL leikföng fást hjá okkur. Einnig búsáhöld og falleg- ar enskar leirvörur o.fl. o.fl. Við höfum innanhússbílastæði. Sendum í póstkröfu hvert á land sem er. LEIKBORG Hamraborg 14, Kópav. 'Sími 44935. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur Aðalfundur Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verður haldinn að Hótel Sögu, Súlnasal, þriðjudaginn 21. marz 1978 kl. 20.30. Dagskrá: Samkvæmt félagslögum. Lagabreytingar. Verzlunarmannafólag Raykjavikur Hárgreiðslustofan Pirola Njálsgötu 49. Sími 14787. Höfum opið alla sunnudagaá meðan fermingar - standayfir 0piö2.dag páska EIGNAÞJÓNUSTAN FASTEIGNA OG SKIPASALA NJÁLSGÚTU 23 SÍMI: 2 66 50 Háteigsvegur 5 herbergja 140 fm hæð ásamt bíl- skúr. Skipti á minni íbúð koma til greina. Hverfisgata 3ja herbergja hæð ásamt risi, geta verið 2 íbúðir. Hraunbær — skipti 2ja herbergja íbúð í Hraunbæ í skipt- um fyrir 4—5 herb. í sama hverfi. Veruleg peningamilligjöf. Upplýs- ingar aðeins á skrifstofunni. Kópavogur 4ra herbergja hæð i þribýlishúisi við Hlaðbrekku. 5 herbergja sérhæð (jarðhæð) í tví- býlishúsi við Kastalagerði. Skipti koma til greina. 3ja herb. lítil risibúð. Verðaðeins 3.7 millj. Þorlákshöfn Einbýlishús með bílskýli. Sandgerði Fokhelt einbýlishús. Verð aðeins 5,5 millj. Grindavík 6 herb. hæð með iðnaðarbílskúr. Hitaveita. 4ra herb. sérhæð. Hitaveita. Höfum kaupendur að 2ja og 3ja herbergja íbúðum og einbýlishúsi á Reykjavíkursvæði. Höfum kaupanda að 2ja herbergja ibúð í gamla bæn- um eða Háleitishverfi. Höfum kaupendur að 3ja herb. íbúðum í gamla bænum ogHlíöahverfi. Höfum kaupanda að 4ra herb. íbúð með bílskúr, má vera í blokk. Höfum kaupanda að góðri sérhæð eða einbýlishúsi með bílskúr. Höfum kaupanda að tveim íbúðum i sama húsi. Sölustj.: örn Scheving. Lögm.: Ólafur Þorláksson. Ítalía: Aukin völd lögreglunnar — vegna leitar aö mannræningjum Moros Hin vikugamla rikisstjórn á Italiu mun í dag kunngera ný og strangari lög gegn hryðjuverkum. Gert er ráð fyrir að í þeim felist aukin völd lög- reglu, sem getur haldið grunuðum og yfírheyrt þá án þess að lögfræðingur sé viðstaddur og einnig að sima- hleranir verði leyfðar. Sex dögum eftir að mannræningjar Rauðu herdeildanna í ítaliu rændu Aldo Moro, leiðtoga Kristilega demókrataflokksins i blóðugri árás hefur enn engin krafa borizt frá þeim. 1 Turin, þar sem leiðtogar Rauðu herdeilanna eru fyrir rétti er gert ráð fyrir að reynt verði að tefja réttar- höldin með því að sakborningar krefj- ast þess að verja sig sjálfir. Leiðtogi hópsins, Renato C'urcio, lenti í háværum deilum við dómarann og ákærandann í gær, þar sem Curcio sagði að Aldo Moro yrði færður fyrir „alþýðudómstól”, af félögum hans, sem rændu honum fyrr í vikunni. Curcio hrópaði upp yfir sig „Moro er í höndum vopnaðra öreiga og hann mun fá réttlátan dóm. Dómarinn neitaði skæruliðunum um að gefa yfirlýsingar en heimildir í Turin greindu að þeir hefðu lýst italska þjóðfélaginu á svipaðan hátt og mannræningjamir gerðu i sinni einu tilkynningu, sem yfirvöldum hefur borizt, um síðustu helgi. Sérfræðingar í málefnum hryðjuverkahópa hafa komið til Italiu að undanfömu til þess að aðstoða þar- lenda félaga sína i leitinni að Aldo Moro og ræningjum hans. Meðal þeirra eru tveir brezkir sérfræðingar og nokkrir v-þýzkir, sem tóku þátt I leitinni að skæruliðum Rauða hersins. Enn sem komið er hafa mannræningjarnir ekki farið fram á að félögum þeirra úr Rauðu herdeildun- um verði sleppt i stað Aldo Moros. Verjandi leiðtoga herdeildanna fór í gær fram á að þeir fengju að verja sig sjálfir. Slíkt hefur þó ekki verið leyft i ítölskum réttarsölum og dómarinn hefur hafnað fyrri kröfum um slikt. Nú er kviðdómurinn skipaður nýjum mönnum, þannig að krafa leiðtoganna verður borinundir REUTER stjómarskrárrétt i Róm til á- kvörðunar. Þrátt fyrir umferðartálmanir í Róm, sérstaklega I nágrenni þess staðar þar sem Moro var rænt og verðir hans drepnir, þá tókst ræningjunum að skilja eftir þriðja bilinn, sem þeir flýðu í, í sömu götu og þeir höfðu skilið eftir tvo aðra bila sína áður. Taska Aldo Moros sést hér, þar sem hún varð eftir á götunni eftir að mannránið var framið. Frændur vorir i Noregi búa sig óðum undir vorkomuna og norskar yngismeyjar hafa tekið fram saumadót sitt til þess að gera sér nýja kjóla fyrir sumarið. Þessir eru saumaðir samkvæmt gamalli norskri hefð og munu vera úr bómullarefni. VERDUR KONA FORSÆTIS- RÁÐHERRA í FRAKKLANDI? — Líkur taldar á þvf að Simone Veil heilbrigðisráðherra verði útnefnd Valery Giscard d’Estaing Frakklands- forseti og Raymond Barre forsætisráð- herra hittast í dag þar sem þeir munu fjalla um sigur hægri- og miðflokk- anna i síðari umferð frönsku þing- kosninganna á sunnudag. Þá munu þeir ræða um nýja stjórnarmyndun og hver myndi nýja stjórn. Forsetinn mun fljótlega útnefna for- sætisráðherra og Ijóst er að stjómin verður að vera fersk og njóta almennrar hylli landsmanna. Það eru því taldar töluverðar líkur á að d’Estaing útnefni núverandi heilbrigðisráðherra Simone Veil sem forsætisráðherra nýrrar stjórn- ar. Frú Veil sem er 49 ára gömul nýtur mikilla vinsælda og í mörgum skoðana- könnunum hefur komið í Ijós að hún er vinsælasti maður í Frakklandi. Ef til þess kæmi að hún yrði útnefnd, yrði hún fyrsta konan til þess að gegna forsætisráðherraembætti i Frakklandi. Sumir stjórnmálaskýrendur telja þó líklegra að fv. forsætisráðherra Gaul- lista, Jacques Chaban-Delmas verði fyrir valinu. Barre forsætisráðherra er hagfræð- ingur að mennt. Auk forsætisráðherra- embættisins gegnir hann stöðu fjármála- ráðherra. Hann tók við embætti af Jacques Chirac, leiðtoga Gaullista, sem sagði af sér vegna þess að honum fannst Frakklandsforseti ekki taka nægilega harða afstöðu gegn vinstri flokkunum, sem eru i stjórnarandstöðu. Búizt er við að stjórn Barre verði við völd a.m.k. til mánaðamóta, Með því sýnir forsetinn Barre þakklæti sitt en honum þykir hafa farnazt vel stjórnin. Hinn mikli sigur Gaullista og mið- flokkanna í þingkosningum hefur leitt til mikilla deilna innan bandalags vinstriflokkanna sem unnu saman í kosningunum.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.