Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 21.03.1978, Qupperneq 13

Dagblaðið - 21.03.1978, Qupperneq 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 Iþróttir íþróttsr r Jóhannsson — og Vilhjálmur Sigurgeirs- i-mynd Bjarnleifur. iður Hlíðarfjall Arnórsson, bæði tFR., dans en Elsa dansar i hjólastól. Á sunnudeginum var þegið matarboð bæjarstjórnar Akureyrar og kaffiboð ÍBA. Það sem er einna eftirminnilegast við þessa ferð er án efa ferð upp f Hliðar- fjall, en síðasta spölinn að skiðalyftunum var farið i snjóbil sem hjálparsveit skáta lagði til. öfugt við flesta aðra er fara upp fjallið með skiðalyftunni fóru albnargir úr hópnum niður fjallið með skiðalyftunni og var ekki laust við að færi um suma þegar „dólað” var framhjá rafmagnsstaurunum. t heild var ferðin mjög ánægjuleg og væri mjög æskilegt ef hægt værí að koma á árlegum heimsóknum milli félaganna f Reykjavik og á Akureyrí. ki Juniors rgentínu itaratitil félagsliða. — svooggegn lubikarsins mikilli eftirvæntingu þá fyrst og fremst vegna HM í Argentínu í sumar. 1 liði Borussia eru fjórir landsliðsmenn v- þýzkir, þeir Berti Vogts sem er fyrirliði landsliðsins — og Rainer Bonhof, Herbert Wimmer og Jupp Heynkes. „Við munum áreiðanlega tapa ef við förum út í hörku gegn Borussia,” sagði þjálfari Boca Juniors, Juan Carlos Lorenzo. Nú en Allan Simonsen leikur ekki i Buones Aires í kvöld — en annar ungur Dani getur sér nú gott orð með þýzku meisturunum og það er Carsten Nielsen. Hann skoraði eitt marka Borussia í 3-1 sigri Borussia gegn Eintracht Brunswick um helgina og hefur undanfarið verið að festa sig i sessi i liði Borussia. Hin mörk Borussia skoruðu þeir Bonhof og Karl del Haye. FC Köln er hins vegar efst i þýzku Budesligunni— hefur fjögurra stiga forustu — sigraði 3-1 í Munchen gegn 1860 Munchen. Þar skoraði Dieter Muller tvö marka Köln — en hann kemur einmitt sterklega til greina í þýzka landsliðið Argentínu. Fram þokaði sér af mesta hættusvæði 1. deildar! — meðsigrigegnÍR, 22-20 í 1. deild íslandsmótsins Fram forðaði sér af mesta hættusvæði 1. deildar íslandsmótsins i handknattleik með sigri gegn tR, 22-20 f Laugardals- höll i gærkvöld. Fram þokaði sér að hUð ÍR með 9 stig — en KR hefur hlotið 6 stig og Ármann 5 þannig að enn er of snemmt að afskrifa tvö neðstu liðin. t raun getur allt gerzt og bæði Fram og ÍR | eru enn ekki úr allri hættu. Leikur Fram og lR bauð upp á heldur lítil tilþrif — sér í lagi var sóknarleikur beggja liða máttlaus, þá sér í iagi ÍR. Guðjón Erlendsson, markvörður Fram, átti ekki í erfiðleikum með að fást við heldur máttlaus skot ÍR-inga — raunar sannaði leikurinn enn að ÍR skortir mjög afgerandi skyttu og þá væri liðið vissulega meðal þeirra fremstu í 1. deild. Mikið jafnræði var með Fram og ÍR i byrjun í gærkvöld, þannig mátti sjá allar jafnteflistölur upp í 6-6 — raunar hafði tR forustu 6-5 en þá komu þrjú mörk Fram i röð og staðan breyttist í 8-6 — en Brynjólfur Markússon minnkaði muninn í aðeins eitt mark, 8-7. Fjör- kippur Fram var hins vegar aðeins byrjunin að falli iR. Fram náði fjögurra marka forustu, 12-8 — með miklu harðfylgi og dugnaði leikmanna er ekki gáfu þumlung eftir. Staðan í leikhléi var 13-10. ÍR náði að minnka muninn þrivegis í eitt mark í síðari hálfleik, 12- 13, siðan 13-14 og 15-16 — en þá fylgdi enn í kjölfarið góður leikkafli Fram — og að sama skapi mistök iR. Fram náði afgerandi forustu, 19-15 og sigur í höfn, ÍR náði að visu að minnka muninn í tvö mörk er 4 mín. voru til leiksloka, 20-18. Arnar kom Fram yfir 21-18 úr víta- kasti — en í næstu sókn ÍR var Pálmi Pálmason rekinn af velli. ÍR minnk- aði muninn í 21-19 og síðan 21-20 Pálmi Pálmason — hann hefur veriö Fram mikill styrkur. þegar hálf önnur minúta var til leiks- loka. Fram með einum leikmann færra — ÍR-ingar komu mjög út á móti í von um að vinna knöttinn. En Jens Jensson átti siðasta orðið — fór inn úr horninu og innsiglaði sigur Fram, 22-20, dýrmæt stig i höfn. En öðru vísi hefði getað farið ef — já ef Sigurður Gíslason hefði ekki sýnt fádæma kæruleysi er hann aleinni brunaði upp í hraðaupphlaupi og staðan var 20-18 fyrir Fram — gafst tækifæri til að minnka muninn í aðeins eitt mark og fjórar mínútur til loka — en Sigurður stökk upp talsvert fyrir utan punktalínu og Guðjón varði slakt skot hans. — I staðinn jók Arnar muninni 21-18—já, ef, ef — hvað hefði skeð. iR-ingar geta aðeins velt slíku fyrir sér og liðið verður nú að fara að horfast I augu við baráttu um fall — en fyrir aðeins þremur leikj- um var ÍR farið' að blanda sér í baráttu um efstu sæti 1. deildar eftir góða sigra — en siðan hefur liðið tapað þremur síð- ustu leikjum sínum ! 1. deild. Það er skammt milli velgengni og laks gengis — það hafa ÍR-ingar reynt á síðustu vikum. Mörk Fram skoruðu — Gústaf Bjömsson 5, svo og Pálmi Pálmason er var liðinu mikill styrkur. Arnar Guðlaugsson skoraði 4 mörk, 2 viti, Sigurbergur Sigsteinsson skoraði 2 mörk og þeir Pétur Jóhannsson og Birgir Jóhannsson skoruðu eitt mark hvor. Hjá lR var Vilhjálmur Sigurgeirsson markhæstur með 5 mörk, 3 víti. Brynjólfur Markússon skoraði 3 mörk, Sigurður Svavarsson 3. Bjami Bessason, Ámi Stefánsson, Ásgeir Eliasson og Sigurður Gíslason skoruðu 2 mörk hver. Leikinn dæmdu þeir Kjartan Steinbach og Kristján örn. H. Halls. ANTIK rA/jv/\AAA / GLER $ SINIÍ 16820 yyy^xYxyy^ SÍGTÚNÍ 1 REYKJAVIK $crucröinn mcb iiiíjötcint jticr ojt iomtm DUROANTIK VIÐARLÍKISBITAR ÚR POLIURETAN GEFA ÓTRÚLEGUSTU MÖGULEIKA VIÐ INNRÉTTINGU IBUÐA EÐA VINNUSTAÐA. SVO AUÐVELDIR Í UPPSETNINGU AÐ ÓTRÚLEGT ER PANTANIR ÓSKAST SÓTTAR. GJÖRIÐ SVO VEL AÐ LÍTA INN Greiðsluskilmálar o 1 f > j ,r'.< 'SSiq ; ‘ . Iþróttir 13 íbridge tslandsmótíð I brídge fer fram nú um páskana — en keppt veróur í fjórum riðl- um og hefur þegar veríð skipað i þá. Riðlaskiptíngin verður sem hér segir — skipt I riðla A, B, C, D. A-riðill Dagbjartur Grímsson Rvik PáU Áskelsson Vestf. Ármann J. Lárusson Rnes Hjaltí EUasson Rtikilslm.) PáU Valdemarsson Rvfk Jón Guðmundsson Vesturl. B-riðill Jón Hauksson Suðurl. Steingrimur Jónsson Rvik GisU Torfason Rnes Stefán Guðjóhnsen Rvík Ingim. Árnason Norðurl. Jón Hjaltason Rvik C-riðill Albert Þorsteinsson Rnos Jón Ásbjörnsson Rv ík Guðmundur T. Gislason Rvik Sigurður Þorsteinsson Rvík Þorsteinn Ólafsson Austurl. Björn Eysteinsson Rnes D-riðili Þórður Björgvinsson Vesturl. Ester Jakobsdóttir Rvik Guðmundur Pálsson Rres Sigurjón Tryggvason Rvík VUhjálmur Pálsson Suðurl. Guðmundur Hermannsson R ik 10 réttir gáfu 163 þúsund Kr. 163.000 fyrir 10 rétta 1 29; leikviku Getrauna komu fram 4 seðlar með 10 réttum, var einn frá Vik i Mýrdal og annar frá Seltjarnarnesi, en tveir nafrilausir. Með 9 rétta voru 42 raðir og vinningur á hverja röð kr. 6.600.- Vegna úrslitaleiks deildabikarkeppn- innar var einn leikurínn fluttur fram tíl föstudagskvölds, leikur Charlton — Notts County, en Crystal Palace lék gegn Bríghton eins og ekkert værí tíl truflunar, þótt i suðurhluta Lundúna væri. ForustaReal Madrid aðeins eitt stig Baráttan i 1. deild á Spáni harðnaði verulega um helgina en þá tapaði Real Madrid er haft hefur lengst af forustu. Real Madríd tapaði fyrir Valencia 2-0 — og á meðan sigruðu helstu keppinautar Real Madríd, Barcelona Salamanca 3-1 i Barcelona. Forusta Real Madrid er nú aðeins eitt stíg — eftir 26 umferðir. Bikarhafar Real Betís er féUu i Sovét á miövikudag f Evrópukeppni bikarhafa sigraði Sevilla 3-2 en liðið sem Real Betís sigraði — Atletíc Biibao tapaði hins vegar 1-0 gegn Racing Hercules, neðsta liðinu f 1. deild. Staðan á Spáni er nú: Real Madrid 26 16 3 7 56-33 35 Barcelona 26 13 8 5 37-18 34 Sportíng 26 12 7 7 40-32 31 Valencia 26 12 6 8 38-23 30 Atletíc Bilbao 26 11 7 8 40-28 29

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.