Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978.
3
"x' ■ '' 'v- .
Þarfasti þjónninn á íslandi er ekki lengur á fjórum fótum. Hann er orðinn aö silfurgljáandi fugli sem svffur um loftin blá. DB-mynd Ragnar Th. Sig.
Flugferðum fækkað á Neskaupstað:
„Veitum betri þjónustu með
því að fjölga flugferðum til
Egilsstaða”, segir blaða-
fulltrúi Flugíeiða
Friðrik Gígja, Neskaupstað:
Litlu Moskvu9.5.1978.
Er ihaldið svona hrætt við okkur
Norðfirðinga? Þeir halda kannski að
við myndum hafa of mikil áhrif á van-
máttarkjósendaþrek krakkanna í
Reykjavik sem þola ekki oftar sleikju-
brjóstsykurinn og vilja ekki vera vel-
megunarþrælar lengur.
Halda þeir að of margir þeirra
myndu flýja hingað austur til okkar i
sæluna?
Spurning okkarer:
Hvers vegna er búið að fækka flug-
ferðum úr þremur í eina á viku frá
Reykjavik til Neskaupstaðar?
Kosningabrella? Áróður? Eða vill
einhver slást?
avar Sveins Sæmundssonar hjá Flug-
leiðum:
Beinum flugferðum frá Reykjavik
var fækkað vegna þess að Flugleiðir
álíta að það sé hægt að veita fólki í
Neskaupstað betri þjónustu með þvi
að fjölga ferðum til Egilsstaða og
stuðla að auknum landsamgöngum og
síðast en ekki sizt að auknu flugi milli
Egilsstaða og Neskaupstaðar.
Flugleiðir eru þátttakendur i Flug-
félagi Austurlands sem á eina flugvél.
Félagið er að fá aðra vél í vor. Í Ijós
hefur komið að erfitt er að halda uppi
reglulegu áætlunarflugi milli Reykja-
vikur og Neskaupstaðar. Flugleiðum
er það einnig Ijóst að bæjarstjórn Nes-
kaupstaðar þykir þetta afturför að
fækka ferðunum og hefur skrifað
félaginu bréf með allmörgum fyrir-
spurnum. Er unnið að þvi aö afla tölu-
legra gagna til að svara bréfinu. Flug-
leiðir hafa ennfremur boðið bæjar-
stjóranum upp á viðræður um hvernig
samgöngumálunum verði bezt komið I
framtíðinni.
Með tilkomu Oddskarðsganganna
og stórbættum fiugvélakosti Flug-
félags Austurlands álíta Flugleiða-
menn að hægt verði að veita mun betri
þjónustu í framtiðinni með þvi að
fljúga til Egilsstaða i stað Neskaup-
staðar, en fimmtán ferðir eru á viku til
Egilsstaða.
í fyrsta sinn reglubundið leiguflug beint til
Portúgal. Við höfum valið glæsilegt hótel og íbúðir
í eftirsóttustu baöstrandarbæjum Estoril og
Casacais í aðeins 30 km fjarlægð frá höfuð-
borginni Lissabon. Frægir gististaðir kóngafólks, -
og nú Sunnufarþega, - á viðráðanlegu verði.
Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir og
íslenskir fararstjórar Sunnu á staðnum.
Farið verður 29. apríl, 20. maí, 8. og 29. júni, 20.
júlí, 10. og 31. ágúst, 21. sept., 13. okt.
Pantið tímanlega.
Einnig ferðir til:
GRIKKLAND dagflug á þriðjudögum
MALLORKA dagflug á sunnudögum
COSTA DEL SOL dagflug á föstudögum
COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum
ÍTALÍA dagflug á þriðjudögum
KANARÍEYJAR dagflug á fimmtudögum
SUNNA
BANKASTRÆTI 10. SÍMAR 16400 - 12070 - 25060 - 29322
Hvað finnst þér um
ákvörðun listahá-
tíðamefndar að fá
Smokie á Listahátíð?
Sóley Magnúsdóttir verkakona: Það er
svo sem allt í lagi að fá Smokie ef þeir fá
enga aðra skárri.
Sigrún Harðardóttir: Mér finnst það
alveg frábært. Ég býst nú samt ekki við
því aðégfari.
Baldur Sigurðsson, 15 ára: Lélegt! Ég
‘vildi fá annaðhvort Santana eða
Genesis, einnig væri David Bowie vel
þeginn. Mér finnst ekki hægt að kalla
tónlistina sem Smokie flytur list.
Snorri B. Jónsson, 14 ára: Ég vil ekki fá
Smokie á Listahátíð. Mér finnst þeir
hundlélegir og alveg út i hött að fá þá
hingað. Ég vildi gjaman fá Santana eða
David Bowie.
Guðleifur Kristjánsson, vinnur I
Skifunnú Mér lizt ekkertá það að fá
Smokie á Listahátið. Eg vildi fá Santana
hingað. þeir eru góðir.
Oddur Guðmundsson sjómaður Þetta er
ágætt fyrir vissan aldurshóp en síðan
þyrfti að koma hingað önnur hljómsveit
með þróaðri músik svo allir fengju
eitthvað við sitt hæfi.