Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978. HVAfl VILJA PtlR? dæmduraf verkunum — á næstunniþarf einkum að snúa sér að skipulags- og umhverfismálum „Verkefnin eru raunar óþrjótandi og hvert á sinn máta þýðingarmikil,” sagði Sigrún Þormóðsdóttir húsmóðir, en hún skipar þriöja sætið á lista Alþýðubanda- lagsins. „Þau mál sem einkum þarf að sinna á næstunni eru skipulags- og um- hverfismál. Mikilvægt er að vinna áfram að bygg- ingu fjórðungssjúkrahússins og nú er unnið að útboðum í gerð fjölbrautaskól- ans. Þá er og unnið að byggingu 18 ibúða fjölbýlishúss. Einna erfiðasta hefur gengið að glima við húsnæðisskortinn, þvi þótt mikið sé byggt losnar lítið húsnæði. Ráðgert er þó að hefjast handa við byggingu leigu- ibúða á vegum sveitarfélagsins. Gatnagerð hér er mikið mál og i sumar verður lagt varanlegt slitlag á Urðarteig, Hlíðargötu, Þiljuvelli og Naustahvamm. Gert er ráð fyrir að á næstu árum verið komið varanlegt slit- lag á allar aðalumferðargötur. Við gatnagerðina er mikil vinna við gerð nýrra lagna 'og jarðvegsskipti. Unnið er samkvæmt 10 ára áætlun um gatnagerð. Atvinnumálin eru í góðu lagi og mikii atvinna. Sildarvinnslan er burðarásinn í atvinnulífinu. Æskilegt er þó að bjóða upp á fjölbreyttari atvinnu og starfað hefur hjá okkur iðnaðarnefnd, sem gert hefur úttekt á atvinnumálunum og kannar hvað helzt sé til ráða í þeim efn- um.” „Ég vona,” sagði Sigrún, „að við höfum staðið okkur það vel, að við verðum dæmd af verkunum og tekið tillit til þeirra. Verði það gert, ber ég ekki kvíöboga fyrir úrslitunum.” -JH Hörður Stefánsson: „Ég tel vlst að Alþýðubandalagið tapi manni." „Það er ekki meiningin að gefa kosningaloforð,” sagði Hörður Stefáns- son flugvallarvörður í Neskaupstað, en hann er efsti maður á lista Sjálfstæðis- flokksins. „Hér er frekar ágreiningur um aðferðir en aö hvaða málum er unniö. Að mínu mati er brýnast að ganga frá gatnakerfi, holræsum og vatns- veitu. Ástandið i vatnsmálum bæjarins er alvarlegt, sérstaklega í elzta hluta bæjarins, en þar er vatnslaust þegar verst er. Hér er gott ástand i atvinnumálum og öllu betra en víða annars staðar. Ég geri varla ráð fyrir að stórbreyting yrði á, þótt skipt yrði um meirihluta í bæjarstjórn,” sagði Hörður. „Það eru sömu málin, sem vinna þarf að. Verk- efnin blasa alls staðar við, en nokkuð hefur borið á því að hlaupið hafi verið frá hálfkláruðum verkefnum og beðið með þau, þar til kostnaður hefur aukizt að mun Hafnireru ókláraðar og í bænum eru opin skolpræsi. Það er því ýmislegt, sem þarf að kippa í lag. Ég tel víst að Alþýðubandalagið tapi einum manni, en varla tapa þeir meiri- hlutanum, en maður hefur þó alltaf leyft til þess að vona." JH Húsnæðisvandræðin verst viðureignar — Varla náttúrulögmál að Alþýðubandalagið geti eitt stjórnað bæjarmálum Neskaupstaðar „Það er margt, sem gera þarf,” sagði Haukur Ólafsson verzlunarmaður, en hann skipar efsta sætið á lista Fram- sóknarflokksins við bæjarstjórnar- kosningarnar i Neskaupstað. „Þaö sem brennur mest á okkur eru húsnæðisvandræðin. Við höfum átt tvær góðar rikisstjórnir, sem hafa stuðlaö aö þvi að fólkið vill fara út á landsbyggðina. Við verðum því að geta tekið á móti þessu þessu fólki. Standa þarf betur að verkum í gatna- gerð en gert hefur verið. Vatnsveitumál eru orðin brýn, þar er margt ógert. Vatnsból vantar tilfinnanlega og það er orðin knýjandi nauðsyn að afla vatns. Verulega hefur þokazt í rétta átt i hafnarmálunum, en átak þarf þó að gera i þeim efnum. Hér eru stórframkvæmdir, sem allir standa einhuga að, svo sem sjúkrahúsið og fjölbrautaskólinn, sem eru i bygg- ingu. Þar eigum við allt undir velvilja ríkisvaldsins, sem ræður ferðinni að mestu leyti. Ég vona að það sé ekkert náttúrulög- mál, að Alþýðubandalagið geti eitt stjórnað hér. Ég á þá von að þeir missi einn mann, því ég tel það heppilegra fyrirbyggðarlagið.” JH Haukur Ólafsson: „Vatnsból vantar tilfinnanlega.” Úrslit í fjórum síðustu kosningum 1974 1970 1966 1962 Framsóknarflokkur 159-1 156-2 123-1 176-2 Sjðlfstæðisflokkur 168-2 199-2 148-2 112-1 Alþýðubandalag 511-6 390-5 391-5 364-5 Jaf naðarmenn og óhóðir 81-0 Flokkur ungra kjósenda Alþýðuflokkur 6-0 77-0 77-1 71-1 Þrír listarí kjöri B-listi 13. Friðrik Vilhjálmssonforstjóri 14. Sveinn Þórarínsson húsgagnameistari Fram- sóknarflokkurinn: 1. Haukur ólafsson verzlunarmaöur 2. Gisli Sighvatsson skólastjóri 3. Friðjón Skúlason húsasmiöur 4. Anna Bjömsdóttir húsmóðir 5. Ari Daníel Ámason húsasmiður 6. BenediktGuttormsson skrifstofumaður 7. Guömundur Sveinsson bílstjóri 8. Jón ölversson skipstjóri 9. Þóra Jónsdóttir hjúkmnarfræðingur 10. Guðgeir Guöjónsson húsasmiður 11. Freystcinn Þórarinsson vélstjóri 12. Bjöm Steindórsson hárskeri 15. Bjami H. Bjamason netagerðarmaöur 16. Agnar Ármannsson vélstjóri 17. Sigríður Guöröðardóttir verslunarmaður 18. Jón S. Einarsson húsasmiður D-listi Sjálfstæðisflokkur 1. Hörður Stefánsson flugvallarvörður 2. Gylfi Gunnarsson framkvæmdastjóri 3. Reynir Zoöga gjaldkeri 4. Hjörvar ó. Jensson bankamaöur 5. Elínborg Eyþórsdóttir skrifstofumaður 6. Sigurjón Valdimarsson skipstjóri 7. Stefán Pálmason rafvirki 8. Dagmar Þorbergsdóttir húsmóðir 9. Brynjar Júlíusson afgreiðslumaöur 10. Magnús Bjarki Þórlindsson vélstjóri 11. Stella Steinþórsdóttir verkamaður 12. Rúnar Jón Ámason skrifstofumaður 13. Ágúst Th. Bjömsson vélstjóri 14. Glsli Garðarsson skipstjóri 15. Jóhanna Ásmundsdóttir húsmóðir 16. Einar Þorvaldsson húsasmiður 17. Hrólfur Hraundal verkstjóri 18. Sigfús Sigvarðsson bifreiðarstjóri G-listi Alþýðubandalagið: 1. Kristinn V. Jóhannsson skólastjóri 2. Jóhann K. Sigurðsson útgerðarstjóri 3. Sigrún Þormóðsdóttir húsmóðir 4. Logi Kristjánsson bæjarstjóri 5. Þórður Þórðarson skrifstofumaður 6. Sigfinnur Karlsson, form. Verkl. fél. Norðf., 7. Auður Kristinsdóttir sérkennari 8. Guðmundur Bjamason skrifstofumaður 9. Kristinn Ivarsson húsasmiður 10. Guðjón B. Magnússon, form. Málm- og skipasm. fél. Norðf., 11. Guðriður Jóhannsdóttir húsmóðir 12. Helgi Jóhannsson sjómaður 13. Kristin Lundberg talsmimavörður 14. Magni Kristjánsson skipstjóri 15. Kristín Guttormsdóttir læknir 16. Þórhallur Jónasson efnaverkfræðingur 17. Guðjón Marteinsson verkstjóri 18. Bjami Þórðarson gjaldkeri Höfuðvígi sósíalista um áratugaskeið — Bæjarfulltrúar Alþýðubandalagsins nú sex af níu Gamli sósialistaflokkurinn og síðan Alþýöubandalagið hafa haft meirhluta i bæjarstjórn í Neskaupstað allt frá árinu 1946. Neskaupstaður er því andstæður póll við Reykjavík, þar sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur haft hreinan meiri- hluta áratugum saman. Það er enda jafnan svo, að hvað mestur spenningur fylgir kosningum á þessum tveimur stöðum, þar sem spurningin er hvort flokkunum tekst að halda meirihlutan- um eða hinum að rjúfa áratuga stjórn. Alþýðubandalagið hefur nú sex fulltrúa af niu og hefur einu sinni áður haft svo marga eða árið 1950. Meirihl. flokksins hékk þó á bláþræði árið 1970 þegar erfitt efnahagsástand bitnaði á ráðandi meiri- hluta, þ.e. Alþýðubandalaginu eins og það bitnaði á rikisstjórn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks i landsmálum. Sumir ganga svo langt að segja, að allar deilur um bæjarmálefni í Neskaup- staö eigi sér stað innan Alþýðubanda- lagsins og i málgagni þess, Austurlandi en séu ekki deilur á milli flokka. Neskaupstaður er stærsta bæjarfélag- ið á Austfjörðum, íbúar um 1700. Þar er fjórðungssjúkrahús, iðnskóli Austur- lands, tónlistarskóli og senn hefst bygg- ing fjölbrautaskóla. Sildarvinnslan er buröarás í atvinnulifi bæjarins. Hús- næðisvandræði hafa staðið vexti bæjar- ins fyrir þrifum að undanförnu. 1 kjöri til bæjarstjórnar eru nú þrír listar, listi Alþýðubandalags, Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Hér á eftir fara viðtöl við efstu menn á lista Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og við annan og þriðja mann á lista Al- þýðubandalags, en Kristinn V. Jó- hannsson, efsti maður á lista Alþýðu- bandalagsins, var ekki í kaupstaðnum, er Dagblaðið heimsótti Neskaupstað. Jóhann K. Sigurósson: „Allir sem vilja geta haft börn sin á dagheimilum i Neskaupstað.” „Við teljum okkur hafa tryggt at- vinnumálin með þriðja togaranum og þeim smærri bátum, sem hér eru,” sagði Jóhann K. Sigurðsson útgerðarstjóri, en hann skipar annað sætið á lista Alþýðu- Hugsanlegt að koma upp vatnshreinsunarstöð — Vatnsboranir hafa ekki gefið nógu góða raun bandalagsins við bæjarstjórnarkosning- arnar. „Gatnagerðin er hér einnig stórmál, líkt og víða annars staðar og fólki þykir ekki nóg að gert, enda má deila um það hvert veita eigi fjármagninu. Tekjuaf- gangur til ráðstöfunar er aðeins 37 milljónir af 280 milljónum, þannig að augljóst er að ekki verða allar óskir upp- fylltar. Hér eru fjölbrautaskóli og sjúkrahús í byggingu og fyrir nokkru hefur verið markað framhald þeirra framkvæmda. Á næstu árum þarf einnig að stækka iþróttahúsið hér. Vatnsmál bæjarins eru sífellt á dagskrá. Ástandið lagaðist mikið er steyptur var tankur i fjallinu í fyrra. Borað hefur verið inni i sveit, en það gaf ekki nógu góðan árangur. Halda þarf áfram með leiðsluna innan úr sveit, en það er dýr framkvæmd. Þá er einnig vel hugsanlegt að koma upp hreinsunarstöð; þetta er framtiðarverkefni, sem þarf að kanna vel. Hér í Neskaupstað er stórt barna- heimili, þar sem eru 110 börn, þannig að þeir sem vilja geta haft börn sin þar. Það þýðir að þeir sem vilja vinna utan heim- ilis, geta það. Þá verður skólalif hér stöð- ugt fjölbreyttara, en slíkt kostar auð- vitað fé.” „Það er mest um vert,” sagði Jóhann, „að fólk geti búið hér blómlegu búi, þannig að hægt sé að tryggja framtíð barnanna með öruggri atvinnu. Við höfum stuölaö að þvi að svo geti orðið.” - JH Sjúkrahúsió í Neskaupstað. Sigrún Þormóðsdóttir: „Verkefnin cru óþrjótandi og hvert á sinn hátt þýðingarmikil.” Meirihlut- inn bezt Neskaupstaður Hlaupið frá hálf- kláruðum verkum — elzti hluti bæ jarins vatnslausþegar verster

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.