Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978.
DAfiRI ADID MIDVIKLJDAriI IR 17 MAI 1Q78
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
RITSTJORN:
HALLUR
SIMONARSON
Fermingar
agu
Ingunnar
Maturogvin
íKaupmanna
Frægtfolk
með ..phobiur
AlvinLee
a dimmission
Átta breytingar
hjáSkotum
Skozki landsliðseinvaldurinn Aily MacLeod gerði
hvorki meira né minna en átta breytingar, þegar hann
valdi skozka landsliðið i knattspyrnu, sem leikur gegn
Wales i kvöld, frá jafnteflisleiknum við Norður-íra
Aðeins þrir leikmenn, Archie Gemmill, Nottm. Forest,
sem verður fyrirliði, Gordon McQueen, Man.Utd. og
Derek Johnstonc, Rangers, halda stöðum sinum auk
þeirra tveggja, sem komu inn sem varamenn, Kenny
Dalglish, Liverpool, og Kenny Burns, Forest.
Skozka liðið verður þannig skjpað. Jim Blyth,
Coventry, Stuart Kennedy, Aberdeen, Kenny Burns,
Gordon McQueen, Willie Donachie, Man.City,
Archie Gemmill, Graeme Souness, Liverpool, Asa
Hartford, Man.City, Willie Johnston, WBA, Kenny
Dalglish, og Dcrek Johnstone. í liðinu eru þvi níu leik-
mcnn, sem leika í enskum liðum — eða fleiri en
nokkru sinni áður
Jafntefli íran
ogFCBrugge
íran, sem leikur á HM í Argcntinu, og belgíska
meistaraliðið FC Brugge gerðu jafntefli 1 — 1 á alþjóð-
legu knattspyrnumóti, sem hófst i París I gær. Lið
íran lék prýðilega I leiknum og ætti að geta staðið sig
þokkalega á HM. Það náði forustu með marki
Gassamphour á 23.min. en 12 mín. síðar jafnaði
Verhecken fyrir Brugge. Belgíska liðið lék án nokk-
urra sinna þekktustu manna cins og Jensen, mark-
varðar .Lambert, Courant og Pastijns.
Sl. fimmtudag lék íran við Frakkland I Toulousc og
tapaði aðeins 1 —0.
Enskir mörðu
Norður-íra
Ensku landsliðsmennirnir I knattspyrnu voru ekki á
skotskónun.aWemhUv-leikvanginum i gær, þegarþeir
léku við Norður-íra I brezku meistarakeppninni.
Tókst aðeins að sigra með 1-0 þrátt fyrir mikla yfir-
burði í leik og góð tækifæri. Eina mark leiksins
skoraði Liverpool-bakvörðurínn Phil Neal á lokamín-
útunni í fyrri hálfleik. Dave Watson, langbezti leik-
maður Englands í leiknum, skallaði þá knöttinn fyrir
fætur Neal eftir aukaspyrnu, sem skoraði af stuttu
færi. Það voru þvi varnarmenn Englands, sem unnu að
markinu.
Mikii pressa var á mark írlands en við vitateiginn
mættu enskir „vegg af grænum peysum" og komust
litið áleiðis. Þá fengu þeir tækifæri — Tony Wood-
cock, tvivcgis, en hann átti heldur rólegan leik í sínum
t'yrsta landsleik, Brian Greenhoff en Jim Platt varði
glæsilcga. Einnig frá Ray Wilkins og Dave Watson,
tvivegis. Hann átti snilldarleik i marki og einnig voru
miðverðir írlands sterkir — þcir Jim Nicoll og Cris
Nicholl. Ray Clemence átti rólegan dag í marki Eng-
lands. Þurfti aðeins einu sinni að taka á honutu stóra
sínum, þcgar hann varði snilldarlega frá Trevor
Anderson.
Staðan I keppninni er nú þannig:
England 2 2 0 0 4—1 4
Skotland I 0 I 0 1 —M
N-írland 2 0 111-2 1
Wales 10 0 1 1—3 0
Áhorfendur á Wembley I gær voru 50 þúsund.
Sumamámskeið í fimleikum
hjá Gerplu:
„Ótrúleguráhugi”
— segirformaðurinn
„Við ákváðum að gera þessa tilraun með sumar-
námskeið í flmleikum, þegar Ijóst var að iþróttahúsin i
Kópavogi verða opin I sumar,” sagöi Agnes Agnars-
dóttir, formaður flmleikadeildar Gerplu I Kópavogi.
Agncs sagði að I gær, þegar fyrri dagur innritunar-
innar fór fram, hefðu sumir flokkarnir gjörsamlega
fyllzt og nú væri svo komið að skortur væri á þjálfur-
um hjá félaginu.
„Verkefnin framundan eru mörg og stór hjá
félaginu,” sagði Agens, „og raunar var full þörf á að
lialda áfram æfingum. Hinu fögnum við mjög að svo
ifiargir nýliöar hafa bætzt I hópinn vegna sumarnám-
skciðsins og eins þeim mikla áhuga sem unga
fólkið hefur fyrir flmlcikum — hann er hreint
ótrúlegur.”
taí 1978
Verð kt. 530
,v * *
m
Rúnar Sverrisson, markvörður Þróttar, kemur ekki vid neinum vörnum ettir snilldarskalla Peturs Péturssonar, sem þvi miöur sest ekki a myndinm. DB-mynd Bjarnleitur.
SIGUR í ÖLLUM LEIKJUNUM
— í landskeppni Færeyja og íslands í badminton í Færeyjum
„Flestir leikirnir i landskeppninni
voru skemmtilegir — og leikur Sigurður
Kolbeinssonar við Hans Jacob Stenberg
var mjög tvísýnn. Sigurði tókst að sigra i
oddaleik og íslenzku piltarnir sigruðu I
öllum leikjum sínum,” sagði Rafn
Viggósson, formaður Badmintonsam-
bands íslands en hann var fararstjóri
fslenzka landsliðsins, sem lék i Færeyj-
{ um á föstudag. Eftir landskeppnina var
keppt 1 einliða- og tvíliðaleik á laugardag
og þar voru einnig islenzkir sigrar.
Einstakir leikir í landskeppninni fóru
' þannig, að Jóhann Kjartansson sigraði
Kára Nielsen með 15-3 og 15-3. Sigfús
Ægir sigraði Pétur Hansen 15-6 og 15-5
en i þriðja einliðaleiknum í landskeppn-
inni var keppni mjög hörð. Sigurður
Kolbeinsson sigraði Hans Jacob Sten-
berg 17-14, 6-15 og 15-9 og í fyrstu lot-
unni stóð 14-7 fyrir Færeyinginn.
Sigurður vann þá 17-14 eða náði tíu
síðustu punktunum í lotunni.
í tvíliðaleik sigruðu Haraldur Korne-
líusson og Steinar Petersen þá Kára
Nielsen og Pétur Hansen með 15-3 og
15-5, og Sigfús Ægir og Sigurður Kol-
beinsson sigruðu Hans Jacob og Poul
Michelsen 15-10 og 15-2. Úrslit í lands-
keppninni þvi: ísland 5 — Færeyjar 0.
Tíu íslendingar kepptu i einliða- og
tvíliðaleik, auk landsliðsmannanna þeir
Rafn Viggósson, Jóhann Möller og
Óskar Guðmundsson en tveir þeir siðast-
töldu voru í Færeyjum í boði Badmin-
tonklúbbsins Færeyjar-ísland. Þeir eru
þar félagar og auk þess Rafn, Haraldur
og Steinar. í tvíliðaleik sigruðu Haraldur
og Steinar þá Sigurð og Sigfús Ægi með
15-11, 11-15 og 15-3.1 einliðaleik sigraði
Sigfús Ægir Jóhann Kjartansson i úrslit
um 21-14 en aðeins var leikin ein lota
vegna tímaskorts. í undanúrslitum vann
Sigfús Ægir Kára Nielsen 21-18 og
Jóhann vann Jan Boye Larsen 21-14.
1 i'
Meistarar ÍA glötuðu stigi
íþróttir
Hinir ungu leikmenn Þróttar fögnuðu
mjög — íslandsmeistarar Akraness voru
heldur daprir — þegar Guðmundur Har-
aldsson flautaði leikslok þremur min.
eftir venjulegan leiktima á efri Laugar-
daisvellinum i gær. Þróttur hafði óvænt
náð stigi af íslandsmeisturunum og
Sverrir Brynjólfsson skoraði jöfnunar-
mark Þróttar 15 sek. fyrir leikslokin.
Leikurinn fór fram yfir timamörkin þar
sem talsvert var um tafir vegna mciðsla
leikmanna I síðari hálfleiknum.
Ungu strákarnir i Þrótti höfðu ástæðu
til að fagna. Það var óvænt að þeim
skyldi takast að ná stigi eftir að Akur-
nesingar höfðu náð tveggja marka for-
skoti i fyrri hálfleik. En þeir gáfust aldrei
upp — börðust af krafti, og léku oft
netta knattspyrnu þó á stundum tækist
þeim illa að fóta sig á rennblautum, hál-
um vellinum. Áberandi bezti maður liðs-
ins var miðvörðurinn Jóhann Hreiðars-
son og flestar sóknarlotur Akurnesinga
brotnuðu á honum.
En Akurnesingar geta nagað sig í
handarbökin að missa stig i þessum
leik. Það fór aldrei á milli mála að t
þeir voru sterkari áðilinn i leiknum
— og þó áttu nokkrir leikmenn liðsins j
mjög slakan leik. Sáust varla ogl
það kann ekki góðri lukku að stýra. Karl
Þórðarson átti snilldarleik í fyrri hálfleik
og var þá hættulegur. Bæði mörk
Akurnesinga áttu upptök sín hjá honum
— og Pétur Pétursson var framan af
mikill ógnvaldur vörn Þróttar. Snilldar-
taktar á köflum — en í heild var Árni
Sveinsson bezti maður liðsins. Jón á
Stað Alfreðsson og Jón Gunnlaugsson
sterkir að venju — og Jón á Stað óhepp-
inn að gulltryggja ekki sigur íslands-
meistaranna i leiknum. Komst einn frir
að marki Þróttar en spyrnti yfir eftir að
í A hafði skorað tvívegis í leiknum — og
Jón átti sök á fyrra marki Þróttar.
Það var talsvert um góð færi í leikn-
um og jafnvel fleiri féllu í hlut Þrótti.
Hins vegar var ljótt að sjá hvernig
Þróttur fór með þrjár aukaspyrnur —
alveg við vitateig ÍA i s.h. — áður en
jöfnunarmarkið var skorað rétt í lokin.
Þá fékk Þróttur enn eina aukaspyrnu á
hættulegum stað. Hún var vel tekin.
Knettinum spyrnt aðstönginni fjær. Þar
skallaði Halldór Arason að markinu og
Sverrir Brynjólfsson fylgdi fast eftir. Ýtti
knettinum með brjóstkassanum yfir
marklínuna — en sennilega hefði knött-
urinn farið í markið án þessara sjálf-
sögðu aðgerða Sverris. Sverrir er fyrirliði
Þróttar — sá eini, sem eftir er af eldri
leikmönnum liðsins. Lék prýðilega og
lék Guðjón Þórðarson, bakvörð ÍA,
grátt í leiknum. Í heild kom Þróttarliðið
á óvart með leiknum sinum og þó
vantaði aðalskorara liðsins, Pál Ólafs-
son, sem er i leikbanni.
Jón Gunnlaugsson skoraði fyrsta
mark leiksins á 9. mín. eftir hornspyrnu
Karls. Skallaði knöttinn i mark Þróttar
algjörlega frir inn á markteig. Pétur
Pétursson kom ÍA í 2-0 á 30. mín. Kast-
aði sér snilldarlega fram og skallaði
knöttinn í markhornið fjær — eftir að
Karl hafði leikið i gegn og gefið á hann.
Á 53. mín. urðu Jóni Alfreðssyni á mis-
tök. Missti knöttinn og Þorgeir Þorgeirs-
son komst í færi. Laus skot hans neðst í
markhornið tókst Jóni Þorbjörnssyni —
fyrrum Þróttara — ekki að verja og það
var ekki nógu gott hjá honum..
Guðmundur Haraldsson dæmdi
prýðilega. Bezti maður á vellinum og
hann bókaði tvo leikmenn, Árna Sveins-
son, í A, og Gubmund Gíslason, Þrótti.
Rúnar Georgsson, miðherji ÍBK, nær knettinum af varnarmanni FH — og sendi síðan knöttinn framhjá Þorvaldi Þórðar-
syni, markverði, í mark FH. DB-mynd emm.
FH-INGUM TÓKST MEÐ HARÐFYLGIAÐ
VINNA UPP TVEGGJA MARKA MUN ÍBK
— og hefðu jafnvel verðskuldað sigur í fyrsta leik 1. deildar íKeflavík
UhndsmótiA 1. defld, Keflavíkurvöflur, iBK — FH,
2312:11
Að hálftlma loknum virtist allt benda 1
þá átt að Keflvikingar ætluðu að hrífsa
til sín bæði stigin I viðureign sinni við
FH á grasvellinum þar syðra, þegar liðin
léku sinn fyrsta leik I íslandsmóti I-
deildar. Staðan var tvö mörk gegn engu,
en FH-ingum tókst með harðfyigi að
jafha áður en leiktíminn var á enda.
Kannski hefði sigur verið réttlátur,
miðað við gang leiksins, gegn hálf væng-
brotnu liði ÍBK, þar sem tveir af
skæðustu sóknarmönnum þeirra voru
ADMIRAL OG HENSON
íþróttapeysur, buxur og
sokkar
★
Útvegum félögum og
liðum íþróttabúninga.
★ Sjáum um að setja í
auglýsingar og númera
búninga frá okkur
Sportvöruverzlun Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg 44. — Simi 11783.
fjarri, þeir Ólaflir Júllusson og Steinar
Jóhannsson.
Keflvíkingar léku undan sunnan
strekkingsvindi i f.h., sem var þeim
heldur i hag. Eftir fremur þófkennda
byrjun beggja liða tókst heimamönnum
að ná broddi i sóknina. Þegar rúmur
stundarfjórðungur var liðinn sótti ÍBK
fram hægra megin. Sóknin virtist ætla
að renna út í sandinn, þegar Rúnar
Georgsson, miðherji, náði knettinum
með harðfylgi og renndi til Þóris Sigfús-
sonar sem átti i höggi við tvo varnar-
menn og markvörð FH-inga. Eigi að
síður tókst honum að spyrna knettinum
i markið, l:0.
En Rúnar hafði ekki sagt sitt siðasta
orð. Nokkrum minútum síðar tókst
honum að „stela” knettinum af FH-
vörninni og senda hann til Þórðar Karls-
sonar sem spyrnti skáskoti fram hjá Þor-
valdi Þórðarsyni sem var fremur óörugg-
ur i markinu. Knötturinn small neðst á
marksúlunni og hrökk þaðan eftirtnark-
línunni og inn fyrir hana að lokum, 2:0.
Hinir stæðilegu FH-ingar létu mót-
lætið ekki buga sig. Smám saman tókst
þeim að ná undirtökunum og voru.
þegar á leið, mun sterkari aðilinn í leikn-
um. Mest fyrir atbeina Janusar Guð-
laugssonar, hins þindarlausa, sem var
tvímælalaust bezti maður vallarins.
Hann gerði það ekki endasleppt í fyrri
hálfleik. Eftir að þvaga hafði myndazt
fyrir framan mark ÍBK tókst honum að
minnka muninn með hörkuskoti sem
hafnaði í bláhorninu, óverjandi fyrir
Þorstein Bjamason, markvörð ÍBK.
Með vindinn í bakið voru FH-ingar
öllu ágengari í seinni hálfleik og þeir
virtust staðráðnir í að jafna metin og ef
til vill meira. Reyndar höfðu þeir
sloppið með skrekkinn i fyrri hálfleik,
þegar einn sóknarmanna íBK átti skalla
i þverslá. En skalli frá Loga Ólafssyni
FH-ingi var hnitmiðaðri. Knötturinn
hafnaði i netmöskvum ÍBK-marksins,
2:2. Aðdragandinn var sá að Janus ein-
lék fram vinstra megin, en heimamönn-
um sem stóð ógn af honum, þótti ráðleg-
ast að spyrna knettinum i horn. Viðar
Halldórsson tók spyrnuna og sendi
knöttinn fyrir markið þar sem Logi
stökk hærraen allir aðrir og jafnaði fyrir
FH. Þrátt fyrir öllu meiri sókn FH tókst
þeim ekki að knýja fram sigur svo að
stigunum var bróðurlega deilt.
I Nokkur harka færðist i leikinn þegar
iá leið og fékk einn leikmanna FH að sjá
Igula spjaldið.
Keflvíkingarnir orkuðu ekki sannfær-
andi í leiknum. — Náðu illa saman
nema rétt fyrst en börðust (jó eins og
getan leyfði — en betur má ef duga skal í
hinni hörðu baráttu I. deildar. Einar
; Ásbjörn var einna drýgstur. Sivinnandi í
vörn og sókn en Gísli Torfason var með
daufara móti. Hilmar Hjálmarsson er
greinilega að ná sér á strik og Óskar
Færseth er óðum að ná valdi á bak-
i varðarstöðunni.
Janus Guðlaugsson var bæði heili og
hjarta FH-liðsins, ef svo má að orði
komast — með ótrúlega yfirferð og
næmt auga fyrir spili. Viðar Halldórsson
átti einnig góðan leik — kannski full
grimmur á stundum en annars er enginn
veikur hlekkur í FH-liðinu þótl nokkrir
leikmenn virki nokkuð þungir — ennþá.
Dómari var Hreiðar Jónsson og gekk
honym vel framan af. Var kannski full
tónglaður undir lokin — en öllu skárra
er þó að nota flautuna en sleppa þvi
þegar leikur fer að harðna.
S. Ann/emm