Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 6

Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 6
6 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978. Leiguíbúðir á Hjónagörðum Féiagsstofnun stúdenta auglýsir lausar til leigu fyrir stúdenta við nám í Háskóla íslands og annað námsfólk 2ja herbergja íbúðir í Hjóna- görðum við Suðurgötu. íbúðirnar eru lausar frá 1. júlí, 1. ágúst og 1. september. Leiga á mánuði er nú kr. 21.500, en mun hækka 1. sept. Kostnaður vegna hita, raf- magns og ræstingar er ekki innifalinn. Leiga og áætlaður kostnaður vegna hita, rafmagns og ræstingar greiðist fyrirfram einn mánuð í senn. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Félagsstofnunar stúdenta, sem jafnframt veitir frekari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 4. júní nk. Félagsstofnun stúdenta, Stúdentaheimilinu v/Hringbraut, sími 16482. I Siglufjarðarkaupstaður 'V / Siglufjarðarkirkja Auglýst er laust starf kirkjuorganista og tón- listarkennara við tónlistarskóla Siglufjarðar. Upplýsingar gefa Elías Þorvaldsson í síma 71319 og Vigfús Þór Árnason í síma 71263. L ^murDrauosroran BJORNINN Njáhfgötu 49 - Slmi 15105 AUGLÝSING um f ramboðsf rest í Reykjavík Framboðslistum við alþingiskosningarnar, sem fram eiga að fara 25. júní 1978, skal skilað til oddvita yfirkjörstjórnar, Páls Líndal, Berg- staðastræti 81, eigi síðar en miðvikudaginn 24. maí nk. Á framboðslista skal skilgreina um- boðsmenn lista, sem hlut á að máli. í yfirkjörstjórn Reykjavíkur Páll Líndal Sigurður Baldursson, Jón A. Ólafsson, Guðjón Styrkársson, Hjörtur Torfason. Nýir umboðsmenn Dagbiaðsins Vopnafjörður Ragnhildur Antoníusdóttir Lónabraut 29, simi 97-3223. Búðardalur Anna Flosadóttir, Sunnubraut, sími 95-2159. V0LV04951 árg. '65 tílsölu. Verð kr. 5 millj. Uppl. í síma 75877. Vilja meira eftiriit með starfsemi fjöl- þjóðafyrirtækja — sem sökuð eru um kynþáttamisrétti Nefnd á vegum Sameinuðu þjóð- anna hóf i gær störf að könnun á fjöl- þjóðafyrirtækjastarfsemi í þróunar- löndunum og starfsemi þeirra i Suður- Afriku sérstaklega. í störfum nefndar- innar taka þátt fulltrúar fjörutíu og átta þjóða og er gert ráð fyrir að fundir verði næsta hálfan mánuð. Mun meðal annars verða rætt um hug- myndir sem fram komu hjá Sam- einuðu þjóðunum um að ríkisstjórn- um gefist meiri kostur en nú er á að hafa eftirlit með rekstri fjölþjóðafyrir- tækja og fá auknar upplýsingar um fjármál þeirra, eignir og hagsmuni. Könnunin mun einnig ná til fullyrð- inga um að mög þessara fyrirtækja reki harða kynþáttaaðgreiningar- stefnu i útibúum sinum í Suður- Afriku. Vilja sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna ekki fallast á fullyrðingar stjórnenda fjölþjóðafyrirtækja, sem hagsmuna hafa að gæta i Suður- Afríku, um að þau geri sitt til að draga úr kynþáttamisrétti. Segja sérfræðing- amir að þvert á móti sé þar haldið uppi sams konar aðskilnaði kynþátta meðal starfsmanna og hjá suður- afriskum atvinnurekendum. Zaire-stnðið: Uppreisnarmenn drepa hvíta — Bandaríkinætla að senda flugvél eftir erlendu fólki í Kolwezi Zairestjórn staðfesti í gær að fjórir Evrópumenn hefðu verið drepnir i námabænum Kolwezi í Shabahéraði i Suður-Zaire, sem áður nefndist Katanga. Þar eru miklar koparnámur. Hinir látnu eru sagðir hafa verið þrír Belgiumenn og einn ítali. þar af ein kona. Segir í tilkynningu stjórnarinn- ar að mennirnir hafi verið drepnir af uppreisnarmönnum^sem nú hafa Kol- weziborg á valdi sinu og i það minnsta verulegan hluta Shabahéraðs. Allir störfuðu Evrópumennirnir fyrir námafyrirtæki. Konan er sögð hafa verið skotin ásamt manni sinum. þegar hún reyndi að koma i veg fyrir að maður hennar færi inn í borgina frá heimili sinu með uppreisnarmönnun- um til að gera við bilaðar vatnspipur. Talið er að um það bil eitt hundrað hvitum mönnum sé haldið sem gislum hjá innrásarherliðinu. Eru það aðal lega menn af bandarisku. belgisku, frönsku og brezku þjóðerni. Bandarikjastjórn mun vera tilbúin að senda flugvélar eftir gíslunum en þegar síðast fréttist hafði ekki verið tekin ákvörðun um hvenær lagt yrði af stað. Talsmenn Zairestjórnar ásaka gísla Belgiustjórn fyrir að bera ábyrgð á dauða Evrópumannanna og einnig innrásinni. — Þessir innrásarmenn kalla sig sósialista en þeir búa samt sem áður i glæsibyggingum i Brussel á kostnað Belgiumanna. Þessir þorparar sem nú hafa drepið Belgíumenn án nokkurrar miskunnar i Kolwezi. Eftir frelsun Belgíska Kongo árið 1960, en nafni þess var breytt i Zaire. var gerð tilraun til að skilja Shaba- hérað frá ríkinu. Hét það þá Kalanga og var aðskilnaðartilrauninni stjórnað af Tsjombe hershöfðingja. Mjög sterkur orðrómur' var þá um að aðskilnaðartilraunirnar hefðu verið á vegum belgiskra kopamámufyrir- tækja sem mikilla hagsmuna höfðu að gæta i Katanga. Hætta a kransæða- stiflu af steiktum hamborgara Steiktur hamborgari er meiri krans- æðastifluvaldur en hamborgari sem hit- aður er í örbylgjuofni eða grillaður að sögn vísindamanns við Washingtonhá- skóla i Bandarikjunum. sem rannsakað hefur málið. Við steikinguna segir hannað hættasé á að háskaleg efnabreyting verði í hrá- efninu. sem valdið geti kransæðastíflu. Þvi meira sem hamborgarinn sé steiktur, þvi meiri sé hættan. Visindamaðurinn segir að ef hitað sé i örbylgjuofni eða steikt yfir glóð sé ekki hætta á hinni skaðlegu efnabreytingu i hamborgaran- um. Erlendar fréttir REUTER Vinkona Snowdons Snowdon lávarður, fyrrum eiginmaður Margrétar Bretaprinses.su, er farinn að sjást opinberlega með vinkonu sinni, leikhússtarfsmanninum Lucy Lindsay-Hogg, sem er þrjátíu og þriggja ára gtimul og fráskilin siðan 1971. Því er spáð að samband þeirra muni enda með giftingu og sé hún ástæðan fyrir ákvörðun um fullan skilnað þeirra Margrétar og Snowdons. Sérfræðingar í hjónabands- málum æðri stéttanna í Bretlandi segja að Lucy og Snowdon hafi þekkzt i nærri tvö ár.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.