Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAl 1978.
7
Neyðarkall frá Alþjóða Rauða krossinum:
Hjálpið eitt hundrað og fimm-
b'uþúsund flóttamönnum í
Bangladesh
Alþjóða Rauði krossinn hefur sent
út hjálparbeiðni til allra meðlima
sinna um að þeir aðstoðu stjórn
Bangladesh eftir megni vegna gifur-
legs straums flóttamanna þangað frá
nágrannaríkinu Burma siðustu vik-
urnar.
Segir Rauði krossinn að meira en
150.000 flóttamenn hirist þar nú í
bráðabirgðabúðum þar sem tæpast sé
nokkurt húsaskjól nema járnplötur og
plastdúkar. Þúsundir munu bætast við
tölu flóttama'nnanna dag hvern.
Mikil hætta er talin á farsóttum
vegna erfiðleika á að halda uppi sótt-
vörnum og lágmarkshreinlæti.
Stormar og ofsarigningar hafa einnig
valdið miklum erfiðleikum i flótta-
mannabúðunum. Rauði krossinn i
Bangladesh. sem er mjög fátækt ríki.
hefur yfirstjórn flóttamannabúðanna
með höndum. Skortir hann matvæli.
lyf og sjúkragögn. fatnað og efni i tjöld
eða annað skjól. að sögn fulltrúa
alþjóða Rauða krossins.
í áskorun Rauða krossins er ekkert
sagt um ástæður fyrir þessum mikla
straumi flóttafólks frá Burma til
Bangladesh. Heimildir i höfuðborg-
Bangladesh, Dacca, segja að flótta-
mennirnir séu flestir múhameðstrúar-
menn sem segist hafa verið hraktir frá
Burma og þá jafnvel með hervaldi.
Yfirvöld i Burma munu aftur á móti
segja að hér sé um ólöglega innflyij
endur að ræða sem hafi flúið aftur úr
landi til að forðast athuganir inn
flytjendaeftirlits Burmastjórnar.
Baskar sprengja franskan
banka og ræðismannsstofu
BÍLAPARTASALAN
Höfum úrval notaóra varahluta íýmsar
tegundir bifreiöa, tildæmis:
Ford Fairlane Fiat 128
Mini Peugeot 204
M. Benz 220 Saab 96 „
Einnig höfum við úrval af kerruefni,
til dæmis undir vélsleða.
Sendum um allt land.
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 - Sími 11397
Llisabet Rav, cinkaritarinn scm
kom bandariska þingmanninum
Wavnc Haycs á kaldan klaka
vcgna uppljóstrana um að hclzta
hlutvcrk hcnnar í starfi hjá honunt
væri siður cn svo aö vclrita. kann
ckki cnnþá að vclrita cn hún cr
frclsuð að cigin sögn. Auk þcss
segist hún vcra ástfangin upp fyrir
haus og í óðaönn að koma sér á
framfæri í lciklistinni.
Kvenkyns
skriðdreka-
Baskar i vígahug köstuðu í gærkvöldi
bensínsprengjum að franskri ræðis-
mannsskrifstofu og útibúi fransks
banka í borginni San Sebastian á
Norður-Spáni. Atburður þessi varð að
lokinni minningarguðsþjónustu um tvo
skæruliða sem studdu aðskilnaðarhreyf-
ingu Baska sem skotnir voru til bana af
spænskum öryggisvörðum i siðustu
viku. Sérstök óeirðalögregla kastaði
reyksprengjum að hópnum sem
aðförina gerði að ræðismannsskrifstof-
unni og bankaútibúinu. Einnig var
skotið gúmmikúlum til að tvistra mann-
fjöldanum.
Ekki hafa fengizt neinar öruggar
skýringar á hvers vegna Baskarnir völdu
sér frönsk skotmörk en getgátur eru á
lofti um að ástæðan sé sú að frönsk yfir-
stjórar
Hópur israelskra táningastúlkna út-
skrifaðist sem skriðdrekastjórar og að-
stoðarmenn i gær. Þrátt fyrir að þær
hafi staðið sig með sóma er ákveðið að
þær taki ekki þált í bardögum. Tals-
maður israelska hersins sagði að stúlk
urnar. sem allar cru átján ára, mundu
gegna störfum þjálfara og kennara her-
manna af hinu sterkara kyni. Hann
sagði að ástæðan fyrir þvi að stúlkurnar
hefðu hlotið þjálfun við stjórn skrið
dreka þó svo að ákveðið væri að þær
tækju ekki þátt i bardögum væri sú, að
þá gætu þær leyst karlmenn af við þjálf-
unarstörf er þeirra væri brýn þörf við
beinan styrjaldarrekstur.
Margrct prinscssa yngri systir Elisabctar Brctadrottningar var ckki upphtsdjörf,
þcgar hún gckk út úr sjúkrahúsinu scm hún hefur dvalizt á að undanförnu. Þaðan
fór hún um siðustu hclgi. Nýlcga var tilkynnt að hún og eiginmaður hcnnar
Snovvdon lávarður ætluðu að skilja að lögum.
völd afhentu aðskilnaðarsinnaðan
skæruliða í hendur spænskum yfir-
völdum i síðasta mánuði. Hafði hann
flúið yfir landamærin til Frakklands á
stolnum leigubil eftir að hafa gert
sprengjuárás i San Sebastian.
Í gær fann lögreglumaður sprengju.
sem gerð var af tiu kílógrömmum af
sprengiefni og þrjátíu kilógrömmum af
járnboltum og slikum hlutum. á járn-
brautarbrú á aðalleiðinni milli Madrid
og frönsku landamæranna.
Heim afsjúkrahúsi
Félagsstarf
eldri borgara
DAGSFERÐIR
SUMARIÐ1978.
Eins og undanfarin sumur efnir Félags-
málastofnun Reykjavíkurborgar nú til tólf
dagsferða fyrir eldri Reykvíkinga.
Farnar verða eftirtaldar ferðir:
1. ferð: Fimmtudaginn 15. júní.
Skoðaðar verða sýningar á listahátíð: Erro-sýningin,
sýning Kristjáns Davíðssonar, finnska sýningin og
höggmyndasýningin. Síðan verður drukkið kaffi í
Hljómskálagarðinum, ef veður leyfir. Verð kr. 650.00.
2. ferð: Fimmtudaginn 22. júní.
Farið verður um Þrengsli til Krísuvíkur og Grinda-
víkur. Verðkr. 1.400.00.
3. ferð Þriðjudaginn 27. júni.
Skoðuð verður Hitaveita Reykjavíkur, Mosfellssveit,
Vinnuheimilið að Reykjalundi og Laxeldisstöðin í
Kollafirði. Verð kr. 700.00.
4. ferð: Fimmtudaginn 29. júní.
Farið verður til Þingvalla og að Laugarvatrii. Verð kr.
1.400.00.
5. ferð: Þriðjudaginn 4. júlí.
Farin verður skoðunarferð í kirkjur í Reykjavík. Dóm-
kirkja, Landakot, Neskirkja, Fríkirkja og Hallgríms-
kirkja. Tónleikar og söngur. Verð kr. 650.00.
6. ferð: Fimmtudaginn 6. júK.
Farið verður upp í Skorradal um Dragháls og heim um
Stafholtstungur. Verð kr. 2.300.00.
7. ferð: Þriðjudaginn 11. júK.
Farið verður i Heiðmörk, sædýrasafnið og kaffi drukkið
í Hellisgerði, Hafnarfirði, ef veður leyfir. Verð kr.
700.00.
8. ferð: Fimmtudaginn 13. júK.
Farið verður að Búrfelli og skoðaður þjóðveldisbærinn.
Verð kr. 2.300.00.
9. ferð: Þriðjudaginn 18. júK.
Farið verður í Hveragerði, skoðaður verður Garðyrkju-
skóli ríkisins og dvalarheimilið Ás/Ásbyrgi. Verð kr.
800.00.
10. ferð: Fimmtudaginn 20. júK.
Farið verður að Munaðarnesi í Borgarfirði. Skoðuð
verða orlofshús. Verð kr. 2.300.00.
11. ferð: Þriðjudaginn 25. júK.
Farin verður skoðunarferð um Garðabæ, um Álftanes,
komið við á Bessastöðum og ekið um Arnarnes. Verð
kr. 650.00.
12. ferð: Fimmtudaginn 27. júK.
Farin verður Reykjavikurferð. Skoðað verður Al-
þingishúsið, ekið um Árbæ og Breiðholt, skoðaður
fundarstaður borgarstjórnar og þar verða kaffiveitingar.
Verðkr. 650.00.
Nánari upplýsingar gefnar að Norðurbrún l, alla virká
daga klukkan 9.00—-l 2.00. Sími 86960.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.