Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978. Aðhlynning manna og blóma aðalatvinnuvegurinn Hveragerði er einstakt í sinni röð meðal íslenzkra kauptúna hvað atvinnu- vegi snertir því meirihluti vinnandi fólks starfar að hjúkrunarstörfum við Elli- heimilið og Náttúrulækningaheimilið annarsvegar og hinsvegar að hlóma- og ávaxtarækt. Hvergerðingar eru nú tæplega 1200, en þar dvelja þó að staðaldri 300 til 500 manns til viðbótará heilsubótarstofnun- um. En nú líta Hvergerðingar einkum til iðnaðaruppbyggingar varðandi ný at- vinnutækifæri enda býður jarðvarminn þar uppá fjölbreytt tækifæri. Á síðari árum hefur fjölbreytni í at- vinnulífi staðarins vaxið og má m.a. nefna að þrátt fyrir staðsetningu langt frá sjó er þar rekin saltfiskþurrkunar- stöð. G.S. Hverahiti i stjórnmálum Hvergerðinga Það rýkur úr fleiru en heita vatninu í Hveragerði þvi undanfarið hafa farið fram heitar umræður . og snarpar deilur staðið um framboð allra flókka til sveitarstjómarkosninga. Sjálfstæðisflokkurinn efndi til opins prófkjörs, þar sem Hafsteinn Kristins- son varð efstur, þá Helgi Þorsteinsson, Ólafur Óskarsson og Ævar Axelsson. Skv. reglunum hlutu þeir bindandi kjör. Tvenns konar seðlar voru notaðir, fyrir flokksbundna og óflokksbundna. Skv. úrslitum flokksbundnu seðlanna eingöngu var Sigrún Sigfúsdóttir í öðru sæti og vildu allnokkrir að svo yrði látið vera. Aðrir undu því ekki og varð þá sú málamiðlun að Stefán Magnússon var settur í annað sætið, en hann tók ekki þátt i prófkjörinu. Hinir færðust svo niður um eitt sæti. Alþýðubandalagið hélt lokað prófkjör og sigraði Auður Guðbrands- dóttir þar. Ekki virðist hafa ríkt veru- legur ágreiningur um hana i röðum alþýðubandalagsfólks, en hins vegar vildu margir G-listamenn bjóða fram i sameiningu með Framsóknarflokki og Alþýðuflokki, en Sjálfstæðisflokkur á nú 3 af fimm í sveitarstjórn. Er óljóst hverjum þessi ágreiningur kemurtil góða. Alþýðuflokkur og Framsóknar- flokkur stilltu upp lista í sameiningu með framsóknarmanninn Þórð Snæ- björnsson í 1. sæti og a Iþýðuflokks- manninn Erlu Guðmundsdóttur i 2. sæti. Ekki eru allir framsóknarmenn sáttir með þau málalok þar sem þeir vildu fremur Kristján Wium i I. sætið. Staðan í Hveragerði fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar er þvi mjög óljós og bíða menn að vonum spenntir kosninganæturinnar. - G.S. Þóröur Snæbjörnsson og Erla Guðmundsdóttir (H-lista): Iðnaðaruppbygging til nýtingar hitaorkunnar Það er stefna jafnaðar- og samvinnu manna að megináherzlu beri að leggja á aukinn atvinnurekstur á staðnum, og þá fyrst og fremst léttan iðnað, sem gæti nýtt þá miklu orku sem staðurinn býður upp á í formi jarðhita, að sögn Þórðar Snæbjörnssonar garðyrkjubónda og Erlu Guðmundsdóttur skrifstofu manns, efstu manna á H-lisu. Þá lögðu þau áherzlu á að sveitar- félagið nýtti betur þann gifurlega ferða- mannastraum, sem unt Hveragerði fer, enda væru stórauknar tekjur hrepps- félagsins alger forsenda þess að hægt væri að sinna hinum fjölmörgu verk- efnum sem brýnt væri að leysa. Nefndu þau m.a. byggingu heilsugæzlustöðvar, grunnskólahúss, nauðsyn á byggingu leikskóla og dag- Hreppurinn þarf að öðlast aukna hlut- deild I tekjum af ferðamönnum. — DB- mynd R.Th. heimilis auk gæzlu- og leikvalla, aðstöðu til félagsstarfsemi að ógleymdri varanlegri gatnagerð, en götur í Hvera- gerði eru slæmar. Varðandi tekjumöguleika hreppsins af ferðamönnum nefndu þau t.d. að komið yrði upp ferðaþjónustumiðstöð i samvinnu við oliufélögin, en slikt myndi um leið leysa vanda Hvergerðinga hvað varðar möguleika á að þvo bila sína, svo eitthvað sé nefnt af beinum hags- munum heimamanna af sliku. Að lokum sögðu þau óhjákvæmilegt að gera nú þegar ráðstafanir til hreins- unar á frárennsli frá kauptúninu með tilliti til þeirrar mengunar sem það veldur í Varmá við núverandi aðstæður. G.S. Hafsteinn Kristinsson framkvæmdastjóri (D-lista): Tekjur hreppsins 30% minni en í sjávarþorpunum Hveragerði er ungt bæjarfélag þar sem enriþá er margt i frummótun. Hér byggist afkoman ekki á islenzkum frum- atvinnuvegum, meginstoðir atvinnulífs- ins hér hafa verið gróðurhúsarækt og þjónusta við heilsuhæli og elliheimili. Við höfum aldrei fengið nein sildarævin- týri hingað eða þviumlíkt. Þróun mála hér hefur verið jöfn og stigandi á undan- förnum árum. Það segir ef til vill sína sögu. að ef tekjur hreppsfélagsins eru bornar saman við tekjur tilsvarandi sjávarþorps þá kemur i ljós að við höfum hér úr að spila ca 30% minna fjármagni á vegum hreppsinsen þau. Án fjármagns er litið hægt að gera, það hlýtur því að verða stórt verkefni hjá komandi hreppsnefnd aðauka tekjur I lafstcinn: Verið er að fjalla um skipu- lagningu iðnaðarhverfis, sent gæti orðið allt að 50 þúsund fermetrar að stærð. DB-mynd Hörður. hreppssjóðs. Við sjáum hér um þessar mundir merki um mjög aukið framtak í atvinnumálum með byggingu iðnaðar- húsa við Austurmörk og um þessar mundir er verið að fjalla um í hrepps- nefnd nýtt skipulag iðnaðarhverfis með- fram Suðurlandsvegi, sem getur orðið allt að 50.000 m' að stærð. Ég tel fjárhagsstöðu hreppsins góða um þessar mundir. Seinasta hreppsnefnd Hveragerði er bær skálda og lista manna og hefur mjög margt upp á að bjóða frá náttúrunnar hendi, sem hvergi nærri hefur verið nýtt sem skyldi hrepps- félaginu til framdráttar, sagði Auður Guðbrandsdóttir. I. maður á G-lista. Ég vil tvímælalaust byggja Hvera- 'gerði upp sem heilsurækiar-, ferða- manna- og garðyrkjubæ. En til þess að það megi takast verður sveitarstjórn á hverjum tima að vera vakandi og það glaðvakandi fyrir þeim fjáröflunar- leiðum sem komið geta hreppsfélaginu til góða. Vil ég þar benda á að hingað koma 98% allra ferðamanna til lands ins. Þarna hirða einstaklingar gróðann um leið og hreppsnefnd syngur sinn sultarsöng um tóman kassa. En þrátt fyrir þetta eru heilbrigðis- og umhverfismál okkar í algiöru lágmarki. í gegnum þorpið rennur Varmá, ein mengaðasta á landsins. hefur lagt á það áherzlu að ofbjóða ekki greiðsluþoli hreppssjóðs með óraunhæf- um bjartsýnisframkvæmdum. Margvíslegar verklegar framkvæmdir bíða úrlausnar, sem ég ætla ekki að tiunda sérstaklega hér, nema benda á, að allsherjar fegrun þorpsins er stórmál sem verður að hlúa að á næstu árum. Hvernig til tekst með framgang hinna ýmsu framfaramála fer eftir þvi Það hlýtur að vera siðferðisleg skylda hvers sveitarfélags að byggja ibúðar- húsnæði á félagslegum grundvelli og koma þannig til móts við unga fólkið, sem vill setjast að. Þá verður að gera hér stórátak í atvinnumálum, bæði fyrir unga og gamia. Ég bind vonir við að öll æskulýðs-ug félagsstarfsemi batni með tilkomu iþróttahússins. En eitt er ég sannfærð um að á meðan þau vinnubrögð í gatnagerð og hita- veitumálum eru viðhöfð sem nú eru. getur engin hreppsnefnd þrifizt hér til góðra verka með öll þau Ijótu orð og bölbænir á herðum sér, sem hrökkva af munni vegfarenda. En með góðu hugarfari, vilja og samvinnu stjórnenda og fólksins getum við gert Hveragerði að þeim bæ sem þvi berað vera. Að endingu vil ég segja þetta: Það er kominn tími til að karlmenn viðurkenni hvernig ný hreppsnefnd heldur á mál- um. Listi sjálfstæðismanna er hér skip- aður dugandi framfaramönnum sem allir hafa sýnt það að þeir eru líklegir til þess að geta komið góðum málum áleiðis. Þess vegna tel ég það eðlileg úr- slit kosninganna í vor að Sjálfstæðis- flokkurinn fái hér 3 menn kjörna og beri þar með meginábyrgð á málum hér næstuárin. i reynd að konur eru lika menn sem hugsa og geta ekkert síður en þeir setið í sveitar- og bæjarstjórnum ogá Alþingi. G.S. Auður á listrænu heimili sínu: Engln hreppsnefnd getur þrifizt til göðra verka með bölbænir á bakinu. DB-mynd: R.Th. Auður Guðbrandsdóttir (G-lista): Hverageröi á að vera heilsuræktar-,feröamanna-og blómabær Hver heldur þú að úrslit sveitarstjðmar- kosninganna verði? Guðmundur Einarsson garðyrkjumaðun Ég spái að framsóknarmenn og alþýðu- flokksmenn, eða H-listinn, fái 2 menn, ■sjálfstæðismenn tvoogkommareinn. Sigurflnnur Einarsson verkamaðun Ætli Alþýðuflokkur og Framsókn fái ekki tvo, sjálfstæðismenn tvo og svo Alþýðu- bandalagiðeinn. Þórður Ingólfsson verkamaðun Sjálf- stæðismenn tapa meirihlutanum og fá aðeins tvo, Framsókn og Alþýðuflokkur tvo og Alþýðubandalagið einn. Urslitífjónim síðustu kosningum 1974 1970 1966 1962 Sjálfstæðisfl. 247-3 164-3 155-3 131-2 Óháflir 77-0 0 99-1 172-3 Samvinnumenn 174-2 102-1 86-1 0 Alþýflufl. 0 37-0 0 0 Alþýflubandal. 0 76-1 0 0 Þnr listar íkjöri D-listi sjálfstæðismanna: 1. Hafstcinn Kristinsson framkvæmda.stjóri, 2. Stcfán Magnússon framkvæmdastjóri. 3. Helgi Þorsteinsson múrarameistari, 4. ólafur Óskarsson trésmiöur. 5. Ævar Axelsson járnsmíðameistari. G-listi Alþýðubandalags: 1. Auöur Guðbrandsdóttir húsmóöir, 2. Halldór Höskuldsson trésmiður. 3. Agnes Hansen kennari, 4. Valdimar Ingvarsson húsasmiöur. • ~5rÁmi Hdgasorrhúsgagnasmiðijrr- --* H-listi jafnaðar- og samvinnumanna: 1. Þórður Snæbjörnsson garðyrkjubóndi. 2. Erla Guömundsdóttir skrifstofumaður. 3. Kjartan Kjartansson trésmiður. 4. Sigurður Jakobsson tæknifræðingur. - 5.Guðmtmdur EmaTssomgarðyrkjubóndi. • Ragna Hermannsdóttir: Ég spái að vinstri menn vinni á og myndi nýjan meirihluta, H-listi og G-listi saman. Sjálfstæðismenn fái tvo, en annars finnst mér tvísýnt unt úrslit.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.