Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 17

Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978. 17 Fáskrúðs- fjörður Dvalarheimili fyriraldraða — óæskilegtað aldradir þurfi að flytjastá brottað loknum starfsdegi Sigurður Þorgeirsson: „Framkva'mdir við skólann og höfnina mikilvægastar." „Framkvæmd, sem er á lokastigi og verður að Ijúka, er skólabyggingin og stefnt er að því að hefja kennslu í nýja skólanum i haust,” sagði Sigurður Þorgeirsson afgreiðslumaður, en hann er þriðji maður á lista Sjálfstæðisflokksins. „Byrjaðar eru mjög þarfar fram- kvæmdir við höfnina. Að mínu mati er þó byrjað of smátt, en eflaust er hægt að auka við þegar frekara fjármagn fæst. Bryggjurnar sem fyrir eru eru bráð- ónýtar. Áfram verður að halda við lagningu varanlegs slitlags. Þar á eftir þyrfti að koma á fót dvalarheimili fyrir aldraða, en töluvert er hér af eldra fólki, sem vill síður fara úr plássinu að loknum starfs- degi. Margt er á óskalista, en ekki þýðir að setja fram tóma loftkastala. Húsnæðis- skortur hefur þó verið töluverður og er ég mjög hlynntur byggingu leiguibúða.” JH Húsnæðisskortur kemur í veg fyrir fólksfjölgun Atvinna mikil ogafkoma góð Pólitískt ástand í Búðahreppi er mjög i jafnvægi og átök lítil. Raunar er Búða- hreppur betur þekktur sem Fáskrúðs- fjörður, sem er hið daglega nafn staðar- ins. Þrír flokkar bjóða fram, Fram- sóknarflokkur, Alþýðubandalag og Sjálfstæðisflokkur, en kratar virðast ekki eiga upp á pallborðið, þvi þessir sömu flokkar buðu fram í siðustu kosningum. Eins og við má búast byggist allt at- hafnalif á fiski og fiskvinnslu. Gerðir eru út tveir togarar og nokkrir smærri bátar. Tvö frystihús eru á staðnum. Atvinna hefur verið feikimikil og afkoma fólks góð. í Búðahreppi voru 750 íbúar við síð- ustu sveitarstjórnarkosningar og fjölgun hefur ekki orðið mikil síðan, mest vegna húsnæðisskorts. Endursöluverð íbúða er ekki hátt og því veigra menn sér við að byggja, sem ekki ætla að setjast að til frambúðar. Eitthvað kann þó að leysast úr húsnæðisvandanum ef hafizt verður handa að byggja leiguíbúðir á vegum sveitarfélagsins. Töluverðar framkvæmdir eru fyrir- hugaðar í gatnagerð en einhverra hluta vegna eyðilagðist sú oliumöl, sem lögð var á síðasta ári og þvi þarf að endur- vinna þærgötur nú. Hér á eftir verður rætt við frambjóð- endur á þeim þremur listum sem i boði eru. -JH Betri samvinnu Albert Kemp: „Fjárhagur sveitar- félagsins betri en áður.” á milli frystihúsanna — höfnin lífæð sem þarf að byggja upp „Við verðum að halda því starfi áfram, sem hafið er,” sagði Albert Kemp vélvirki, efsti maður á lista Sjálfstæðis- flokksins. „Lifæð okkar er höfnin. Hún er góð frá náttúrunnar hendi, en tré- bryggjurnar eru orðnar úreltar. Byrjað erá nýrri hafnargerð. Barnaskólabyggingin hefur staðið yfir allt of lengi, en væntanlega verður kennsla hafin i haust í skólanum ogskól- innfullbúinnárið 1980. Unnið hefur verið að varanlegri gatnagerð, en hún mislukkaðist að veru- legu leyti i fyrra. en olíumölin hafði verið geymd i eitt ár. Betri samvinna mætti vera á milli frystihúsanna tveggja, en fiskur er jafn- vel fluttur i burtu úr byggðarlaginu i stað þess að flytja hann á milli húsa. í sumar verður boðin út bygging nýrrar heilsugæzlustöðvar og tilbúið er útboð vegna leiguibúða. Fjárhagur sveitarfélagsins er betri en áður var og i hreppsstjórn hefur verið góð samvinna. Menn skiptast ekki eftir flokkslinum þegar farið er að vinna sam- an.” - JH Hafnargerðin brýnust — rafmagnsskorturá Austfjörðum kemurí veg fyrir fjöibreyttara atvinnuh'f „Hér er brýnast að halda áfram hafnargerðinni,” sagði Baldur Björnsson bankastarfsmaður, en hann er efstur á lista Alþýðubandalagsins í Búðahreppi. „Byrjað er á henni og því þarf að halda áfram. Betri aðstöðu þarf fyrir togarana, en þar kemur annað inn í dæmið, en það er afstaða Hafnamálastofnunarinnar. Þessi smærri pláss lifa í nánu sambandi við sjóinn og byggja algerlega á fiskveið- um. Barnaskólabyggingin hefur gengið seint, en reynt verður að koma hluta af húsnæðinu i gagnið fyrir næsta vetur. Fjármagnið setur okkur þröngar skorður á svona litlum stað. Gatnagerð þarf að vinna að áfram og koma slitlagi á götur. Reynt verður að gera sem mest og bæta þannig aðstöðu fólks og umhverfi og stuðla þannig að frekari fólksfjölgun. Við eigum þó við húsnæðisskort að striða og þvi er áherzla lögð á byggingu leiguibúða á vegum sveitarfélagsins. Þeir öldruðu eru illa settir, því ekki-er vinnuaðstaða fyrir þá sem vilja vinna en geta ekki sinnt erfiðum likamlegum störfum. Æskilegt væri að koma á létt- um iðnaði, en þar kemur til annað vandamál. Það er rafmagnsskortur okkar Austfirðinga. Austfirðir hafa orðið útundan, t.d. hefur enn ekki verið tekin ákvörðun um virkjun Bessastaða- ár. Þetta háir léttum iðnaði hér og raunar er það svo að bræðslurnar rétt sligast áfram á loðnuvertiðinni vegna Baldur Björnsson: „Nauðsynlegt aó fá héih.ugæzlustöð hingað." rafmagnsskorts. Hér þyrftum við áð fá heilsugæzlu- stöð til þess að hægt sé að sinna nauð- synlegri læknisþjónustu. Læknirinmhér er nú í gömlu húsnæði sem þjónar ekltN þvi hlutverki sem nauðsynlegt er.” - JH Slæmtástand Sigriður Jónsdóttir: „Hér byggist allt á sjósókninni.” ílöggæzlumálum hafnarmál ber hæst „Skólamál og hafnarmál ber hæst hér á Fáskrúðsfirði," sagði Sigriður Jóns- dóttir verkamaður, en hún skipar annað sætið á lista Framsóknarflokksins vegna sveitarstjórnakosninganna. „Hér byggist allt á sjósókninni og því mikið undir því komið að höfnin sé í lagi. Hér eru tveir togarar og nýtt frystihús, auk þess gamla. Vinna hefur verið mjög mikil hér, eiginlega of mikil. í fyrra var lögð oliumöl sem ónýttist og þær götur þarf að lagfæra. 1 sumar verður komið á barnagæzlu í gamla skólahúsinu, en full þörf er á dag- vistunarheimili hér, þarsem margir vilja nota sér slíka þjónustu. Hér á að risa heilsugæzlustöð, en bygging hennar er auðvitað að miklu leyti undir rikisvald- inu komin. Hér fást ekki læknar tií starfa, nema að hafa góða aðstöðu. Slæmt ástand hefur verið i löggæzlu- málum hér í bænum, drykkjuskapur og óregla. Það er sagt unglingavandamál, en það er hinum fullorðnu að kenna. Þessu þarf að koma i lag. Hér er aðeins einn lögregluþjónn sem alls ekki getur annað öllum verkefnunum. auk þess sem hann þarf fri eins og aðrir menn, en þáerenginnannar.” JH Úrslitífjórum síðustu kosningum 1974 Framsóknarflokkur 126—2 Sjálfstæðisflokkur 87—2 Alþýðubandalag 137—3 Listi verkal. og sjómf 6L Óháðir kjósendur Frjálslyndir Óháð alþýðufólk 1970 1966 1962 101-2 150-5 77-2 56-1 104-2 35-1 41-1 80-3 74-3 32-1 Þrír listar i kjori B-listi 1. Egill Guðlaugsson framkvstj.. 2. Sigriður Jónsdóttir vcrkam.. 3. Gunnar Jónasson útgerðarstj.. 4. KjartanSigurgcirsson rafv., ' 5. Gisli Jónatansson kaupfstj., 6. Eirikur Ólafsson vdstj.. 7. BaldurGuðlaugsson húsasrn.. 8. Óskar Gunnarsson bifrstj. 9. óskar Sigurðsson vclstj.. 10. Anna B. Stcfánsd. vcrzlm.. 11. MagnúsGuðmundsson verkam.. 12. Friörik Stefánsson skipstj. 13. Jóhanncs Sigurðsson sjóm.. I4. ArnfriðurGuðjónsd. húsfrú. Til sýslunefndar. 1. GuölaugurSigurösson húsasm. 2. AmfriðurGuöjónsdóttir húsfrú. D-listi 1. Albert Kemp vélvirki. 2. Stefán Jónsson iönnemi. 3. Sigurður Þorgeirsson afgrm.. 4. Jóhann Antoniusson framkvstj.. 5. Guölaugur Einarsson skipasm.. 6. Oddný Jónsdóltir húsfrú. 7. Agnar Jónsson vélvirki. 8. Ægir Kristinsson bifrstj., 9. Bergur Hallgrimsson framkvstj.. 10. Dóra Gunnarsdóttir húsfrú. 11. Erlendur Jóhanncsson stýrim.. 12. Heiðar Jóhannsson sjóm.. !3.GuðmundurG. Vcstmannskipstj. I4. Einar Sigurðsson skipasm. Til sýslunefndar. 1. Már Hallgrímsson útibússtj. 2. Ólafur Bergþórsson kennari. G-listi 1. Baldur Bjðrnsson bankastarísm.. 2. Þorsteinn l’ia.Mi i' u h a.-.m . 3. Ingólfur Arnarson. form Verkalvðs ogsjómarinafcl. Faskmðsfj.. 4. Sigurður Aniþorsson verkstj.. 5. Björgvin Baldursson verkstj.. 6. MagnúsStcfánsson kennari. 7. Jónina Ámadóttir húsmóðir. 8. Jónas Benediktsson kennari. 9 Þórunn Ólutsdóltir húsmoóir. II). Oskar Þórormsson fiskmatsm.. 11. (iuðrur. 11 Bjorgvinsd husmóðir. I2.1’álmiSiclansson vetkamaður. I V Hjiírdis Agústsdottir húsmoðir. 14 K ristjan (larðarsson vorubilrstj. lil sislunefndar. I MagnusStefánsson kennari. 2. Bjðrgvir. Baldursson \erkstj Hverju spáir þú um úrslit kosninganna? Guörún Guðmundsdóttir húsmöðir: Eg spái hreinl engu um úrslitin en ég vona að Alþýöubandalagið tapi ekki fylgi. Guðmundur Magnússon verkamaðun Ég held að úrslitin verði svipuö og í siðustu kosningum. ég hef ekki trú á breytingum. Gunnþör Guðjónsson verkamaður: Eg hugsa að þetta verði svipað og verið hefur. Alþýðubandalagið fær þrjá menn, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn tvo hvor. Annars gæti þetta orðið tvísýnt og ég vona að Alþýðubandalagið fái fjóra menn eða hreinan meirihluta. Oddný Bjarnadöttir húsmoðir: Eg er nýflutt i bæinn og hef ekki hugmynd um það hvernig málin standa hér. Égget þvi engu spáð um úrslitin. Guðný Þorvaldsdóttir húsinoðir: Eg þori ekki að spá, en ég kýs Sjálfstæðisllokk- inn og vona að þeir fái þriöja manninn inn núna. Jóhann Jónsson öryrki: Eg vona að Alþýðubandalagið nái hreinum mciri- hluta. þ.c. fái fjóra menn. Sjállur kýs ég auðvitað Alþýðubandalagið.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.