Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978. Dalvík Óttar Proppé kennari (G-lista): Óttar Proppé kennari: „Höfum farið halloka i viðskiptum við rikisvaldið.” Bæjar- stjórnar- menn þrýsti á ríkis- valdið... „Við Alþýðubandalagsmenn stefnum að því að ljúka þeim byggingarfram- kvæmdum, sem nú er unnið að á vegum bæjarins hér á Dalvík," sagði Óttar Proppé efsti maður á lista Alþýðubandalagsins á Dalvík. „Þá sérstaklega ráðhúsinu, svoað hægt verði að losa það fjármagn, sem þar liggur cngum til gagns.” Óttar nefndi sérstaklega nauðsyn þess, að barnaheimilinu yrði komið í viðunandi húsnæði svo að það nýttist ekki eingöngu svonefndum forgangs- hópumeins ognú væri. „Þá er mikil nauðsyn þess. að æsku- lýðsniál bæjarins komist í betra horf," sagði Óttar ennfremur. „Bæjarsjóður á að styðja og styrkja hina frjálsu félags- starfsemi í bænum, meira en nú er gert og hafa frumkvæði í þeim efnum.” Aukin fjölbreytni atvinnulífs sagði Óttar að væri stórmál fyrir bæinn „og þá sérstaklega það að skapa þeim sem ekki geta unnið erfiðisvinnu einhver atvinnu- tækifæri." „Þá er það mín skoðun, að bæjar- stjórnarmenn eigi að þrýsta eins mikið og þcir geta á ríkisvaldið um að það standi við sínar skuldbindingar," sagði Óttar. „Hinar óhagstæðu breytingar sem orðið hafa á tekjuskiptingu ríkis og sveitarfélaga í tíð núverandi ríkis- stjórnar hafa bitnað nógu harkalega á Dalvíkingum. Þetta ætti að vera auðveldur leikur, þar sem tveir þingmenn kjördæmisins eru i fjárveitingarnefnd,” sagði Óttar ennfremur. HP Eins og að eiga þriár konur Þar sem miðbæjarframkvæmdir hafa heldur setið á hakanaum hjá flestum bæjarfélögum vekur það athygli manna, hversu Dalvíkingar hafa verið stór- tækirí þeim málum. Á fjórum árum hafa þeir hafið bygg- ingu á þrem stórmannvirkjum í hjarta þessa snotra bæjar, elliheimili, heilsu- gæzlustöð og ráðhúsi. Og öll eru mann- virkin af fínni sortinni. Elliheimilið var reist í samvinnu við hreppsfélögin i nágrenninu og heilsu- gæzlustöðin í samvinnu við ríkið, og er elliheimilið það eina, sem verið er að taka I notkun að hluta. Það flær enginn feitan gölt í samskiptum við rikið og því stendur heilsugæzlustöðin tilbúin undir tréverk og ekki vitað hvenær hafizt verður handa um að ljúka henni. Hins vegar hefur Dalvíkurbær fjár- magnað byggingu ráðhússins og standa nú yfir samningar við ýmis fyrirtæki og félög auk sýslumannsembættisins um sölu á hluta húsnæðisins. Er það mjög brýnt, því að Dalvíkurbær liggur með rúmar 100 milljónir í fyrirtækinu. Það hefur samt aldrei þótt vitlaust að leggja peningana í steypu hér á landi og varð ekki vart neinnar hræðslu um það, að þessir peningar skiluðu sér ekki. Fréttamaður Dagblaðsins vill hins vegar taka undir það, að kannski hafi Dalvikingar færzt of mikið i fang með þessum framkvæmdum og lýsir hér með þeirri skoðun sinni, að þetta hljóti að vera eins og að eiga þrjár konur. Menn eru að smákukla þetta á þrem stöðum, en gera engum fullnægjandi skil. Atvinnuástand virðist vera gott á Dalvik. Menn vinna eins og viðast hvar annars staðar, þar sem fiskur er undir- staða alls, myrkranna á milli og undan- farið hefur verið unnið til kl. sjö á hverju kvöldi, alla laugardaga, frídaga og helgidaga. Atvinnulífið er hins vegar fábreytt. Á Dalvik er rekin saumastofa og prjóna- stofa, auk trésmíðaverkstæðis og bíla- verkstæðis og verzlun er að mestu í höndum kaupfélagsins og nokkurra einstaklinga. Framsóknarmenn hlutu fjóra menn kjörna af sjö í bæjarstjórn við síðustu kosningar. Hafa þeir því verið í hreinum meirihluta og verk þeirra verða lögð undir dóm kjósenda á Dalvik í kosningunum þann 28. Samtökin bjóða ekki fram nú, en í kjöri eru fjórir listar, Alþýðuflokkurinn, A Iþýðubandalagið Framsóknarflokkur- inn og Sjálfstæðisflokkurinn. HP Ingólfur Jónsson trésmiðun „Vió höfuni unnið að of mörgu i einu.” Ingólfur Jónsson trésmiður (A-lista): Höfum verið með of f takinu... „Það sem einkennir hvað helzt bæjar- lífið hér á Dalvík er, að við höfum kannski verið með of margar fram- kvæmdir i gangi í einu,” sagði Ingólfur Jónsson, efsti maður á lista Alþýðu- flokksins í viðtali við Dagblaðið. „Hér hefur verið unnið við elliheimili, heilsu- gæzlustöð og stjórnunarmiðstöð, eða ráðhús, samtimis og enn ekki tekizt að Ijúka að fullu við neitt þeirra.” Ingólfur nefndi sérstaklega, að hann teldi höfnina og framkvæmdir við hana hafa verið_ látnar sitja á hakanum vegna þessa og sagði það mjög brýnt, að ráðizt yrði I hafnarbætur á næsta kjör- tímabili. „Atvinnuástand hefur þó verið mjög gott hér á Dalvík,” sagði Ingólfur enn- fremur. „Hér eru tveir skuttogarar og margt einn rækjutogari og þessi tæki hafa aflað nægilegs hráefnis fyrir fiskvinnsluna hér. Hins vegar er því ekki að neita, að atvinnuvegir hér eru einhæfir og er brýn nauðsyn á að koma á fót hér smá- iðnaði.” Varðandi kosningamar sjálfar sagði Ingólfur menn ekki blanda of mikilli „pólitik” I bæjarmálin en kvaðst vona að fólk veitti málefnum Alþýðuflokksins stuðningi kosningunum. HP. Trausti Þorsteinsson skólastjóri (D-lista): Skipulagíþrótta- og æskulýðsmála í miklum ólestri... „Æskulýðs- og skólamál standa mér eðlilega hvað næst,” sagði Trausti Þor- steinsson, efsti maður á lista Sjálfstæðis- flokksins á Dalvík í spjalli við DB. „Þar er mér það mikið hjartans mál, að hafin verði bygging nýs skólahúss, enda er þetta sem við höfum orðið of lítið og gamalt.” Trausti vakti athygli á, að æskulýðs- starf hefði verið verulega afskipt í bænum og minnti á að tilraun til þess að skapa unglingunum aðstöðu t bænum í svonefndu Böggveri, húsi er unglingarnir innréttuðu sjálfir, hefði á margan hátt brugðizt vonum manna. „Hér er nauðsynlegt að koma á fót skipulögðu æskulýðsstarfi, enda hafa unglingarnir i fá hús að venda er vinnu og skóla sleppir,” sagði Trausti enn- fremur. „Vil ég þar benda á nauðsyn þess að ráða sérstakan æskulýðsfulltrúa, en hér er engin klúbbastarfsemi fyrir unglingana. Þá er mér ofarlega i huga að reynt verði að koma á fót námsflokkum og fullorðinsfræðslu hér á Dalvík,” sagði Trausti Þorsteinsson skólastjóri: „Höf- um alls ekki sinnt æskulýðsmálum sem skyldi.” Trausti „Sú starfsemi gæti verið i beinu framhaldi af endurskipulögðum íþrótta og æskulýðsmálum, eins og gerist á öðrum bæjum.” HP Helgi Jónsson rafvirkja- meistari (B-lista): „Við hefðum auðvitað getað komið fleiru í verk ef meiri peningar hefðu verið fyrir hendi,” sagði Helgi Jónsson, efsti maður á lista Framsóknarflokksins á Dalvík. „Mörgu hefur þó verið hrint i framkvæmd á kjörtimabilinu og verður unnið áfram við þaðaf fullum krafti. ♦ Af öðrum málum vil ég nefna að bor- anir fyrir hitaveituna tókust mjög vel, en við vorum orðnir vatnslitlir,” sagði Helgi. Þá hefur verið lokið við byggingu heimavistar fyrir skólana, en ég vil nefna i því sambandi, að bygging skóla-, húss er mjög knýjandi verkefni sem framundaner. Þá er það orðin raunin, að kaldavatns- skortur háir rekstri fiskvinnslunnar á mesta álagstímabilinu,” sagði Helgi. „Það er því mjög brýnt að bæta úr þvi.” Helgi sagði að um 100 milljónir króna lægju í ráðhúsinu, en að samningar um kaup hinna ýmsu fyrirtækja og félaga á hluta húsnæðisins stæðu nú yfir. „Á næsta kjörtimabili munum við framsóknarmenn beita okkur fyrir þvi að atvinnuvegir óháðir útgerð verði auknir,” sagði Helgi. „Er það mikið nauðsynjamál, því það þola ekki allir álagið I fiskvinnslunni. Þá held ég að ég megi segja, að hafnarmálin verði númer eitt á verkefnaskránni á næsta kjörtíma- bili.” - HP Hafnar- fram- kvæmdir númer eitt.. Helgi Jónsson rafvirkjameistarí: „Við munum vinna mikið að hafnarfram- kvæmdum á næsta kjörtimabili.” Úrslitífjórum síðustu kosningum Óháðir kjósendur Sjálfstœðisflokkur Alþýðubandalag Framsóknarfl. og Samtök frjálslyndra og vinstri manna Alþýðuf L, Alþýðu- bandalag og Fél. vinstri manna Framsóknarfl. Alþýðufl. og Óháðir Framsókn og Óháðir Óháðir vinstri menn Alþýðuflokkur 1974 72-1 1970 1966 1962 124-1 63-1 156-2 104-1 117-2 312-4 148-2 > 192-3 75-1 184-3 133-2 105-2 93-2 73-1 Fjórir listar i kjori A-listi Alþýðuflokks: Ingólfur Jónsson Hjördis Jónsdóttir Hrönn Kristjánsdóttir Ragnar Jónsson BrynjarFriðleifsson Hildur Jóhannsdóttir Arngrimur Jónsson B-listi Framsóknarflokks: Helgi Jónsson Kristján Ólafsson Kristinn Guðlaugsson KristinGestsdóttir Hilmar Daníelsson GuðríðurÓlafsdóttir Kristinn Jónsson Hafsteinn Pálsson Valgerður Guðmundsdóttir OttóGunnarsson Hörður Kristgeirsson Ámi óskarsson Kristján L. Jónsson Jón Sigurðsson D-listi Sjálfstæðisflokks: Trausti Þorsteinsson JúliusSnorrason Júlíus Kristjánsson Helgi Þorsteinsson LínaGunnarsdóttir Guðbjörg Antonsdóttir Óskar Jbnsson Halla Jónasdóttir VigfúsJóhannesson Björgvin Gunnlaugsson Þorsteinn Aðalsteinsson Jóhann Hauksson Bjöm Eliasson Sigfús Þorleifsson G-listi Alþýðubandalags: óttarr Proppé Rafn Arnbjömsson Ottó Jakobsson EirikurÁgústsson Sólveig Brynja Grétarsdóttir Valdimar Snorrason Arna Antonsdóttir Friðgeir Jóhannsson Guðmunda Óskarsdóttir Hjörleifur Jóhannsson Stefán Björnsson Gunnar Jónsson Ámi Lárusson Daniel Á. Danielsson I

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.