Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978.
Eskifjörður
E.tv. skyn-
samlegra að
kjósa um
menn en
flokka
— fyrir fram ákveðnar
framkvæmdirsetja
óskalistanum skorður
Ra)>nar Halldór Hall: „Menn eru ekki
mjiiK pólitiskir á Eskifirói.”
„Menn eru ekki mjög pólitiskir hér og
þaö jaðrar við að fremur ætti að kjósa
um menn en flokka á svona litlum
stöðum,” sagði Ragnar Halldór Hall
sýslufulltrúi, efsti maður á lista Sjálf
stæðisflokksins.
Helztu verkefnin sem unnið er að og
framundan eru eru bygging grunnskóla
og varanleg gatnagerð. Töluvert átak
hefur verið gert í gatnagerðinni i sumar.
Þá er verið að byggja verkamannabú
staði og fyrirhugað er að byggt veröi
fjölbýlishús innst í bænum, þar sem
verða leiguíbúðir á vegum sveitarfélags-
ins. Þetta er það fjárfrekasta og þær
framkvæmdir, sem ákveðnar hafa verið
og setja óskalistanum skorður.
Brýnt er að haldið verði áfram að
skapa öldruðum aðstöðu. Keypt hefur
verið hús undir elliheimili, en mun
stærra átak þarf aðgera í þessum efnum.
Fara þarf nánar ofan i rekstur stofn-
ana, sem bæjarfélagið stendur að,
þannig að það fjármagn sem veitt er til
þeirra nýtist i skynsamlegu hlutfalli við
þá þjónustu, sem þær veita. - JH
Urslitífjórum
síðustu
kosningum
LANDRÝMI
INS LÍTIÐ
KAUPSTAÐAR-
— Frekari landakaup nauðsyn
áframhaldandi uppbyggingu
Að loknum kosningum 1974 mynd-
uðu Sjálfstæðisflokkur, Framsóknar-
flokkur og Alþýðuflokkur meirihluta á
Eskifirði, en Alþýðubandalagið var eitt í
minnihluta. Átök urðu síðan I bæjar-
stjóminni á síðasta ári um elliheimilis-
mál, þar sem Sjálfstæðisflokkur og Al-
þýðubandalag vildu kaupa gamalt hús
undir heimili fyrir aldraða, en hinir
flokkamir byggja nýtt. Ágreiningurinn
varð til þess að upp úr meirihlutasam-
starfinu slitnaði og Sjálfstæðisflokkur
og Alþýðubandalag tóku höndum sam-
an um nýjan meirihluta. Ennfremur var
ráðinn nýr bæjarstjóri, þar sem hinn
fyrri sagði afsér.
Þrátt fyrir þetta mun samstarfið í
bæjarstjórn hafa verið gott og pólitískur
ágreiningur litill og sjaldan komið upp.
Eins og í fleiri sveitarfélögum er ágrein-
ingurinn ekki um málefni heldur að-
ferðir.
íbúar á Eskifirði eru nú rétt um eitt
þúsund. Þar er atvinnulíf einhæft, eins
og í mörgum sjávarplássum, allt byggist
á fiski. Landrými kaupstaðarins er lítið
og þær byggingarlóðir sem nú eru nýttar
eru erfiðar. Það er því aðkallandi að
kaupstaðurinn fái land undir frekari
byggingar fyrir fjarðarbotninum, þar
sem byggingarland er mun auðveldara,
en það land er I einkaeign.
í kjöri til bæjarstjómar nú eru fjórir
flokkar, Alþýðuflokkur, Alþýðubanda
lag, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðis-
flokkur. Viðtöl við efstu menn hvers
lista fara hér á eftir.
Þróunaráætlun nauðsyn-
leg fyrir plássið
— Raunverulega ekki margt sem hægterað
bítast um í bæjarmálunum
Aóalsteinn Valdimarsson: „Menn vit?
hvaó gera þarf á ekki stxrri staó en
F.skifiröi.”
„Það er takmarkað sem hægt er að
gera, þrátt fyrir það að viljinn sé mikill,”
sagði Aðalsteinn Valdimarsson skip-
stjóri, en hann er efstur á lista Fram-
sóknarflokksins. „Fjármagnið er tak-
markað og fjöldi verkefna bíður.
Það sem liggur mest á að gera er
þróunaráætlun fyrir plássið til þess að
auka fjölbreytni í atvinnulífinu. Þá má
nefna hafnar- og skólamál, sem eru ekki
i góðu lagi. Skólinn er orðinn gamáll, en
nú er verið að byggja nýtt skólahús. Það
er þó orðið á eftir áætlun, þar sem fjár-
magn hefur skort. Reynt verður þó að
flýta framkvæmdinni.
Húsnæðisvandræði eru og reyna þarf
að koma upp húsnæði fyrir fólk sem
hingað vill flytja. Liklegt er að nokkuð
rætist úr á næstunni með byggingu
leiguibúða.
í bæjarmálunum er ekki mikið sem
raunverulega er hægt að bítast um.
Menn vita hvað þarf að gera á ekki
stærri stað en Eskifirði. Vinna þarf að
áframhaldandi varanlegri gatnagerð,
leggja nýtt slitlag á Strandgötuna og þær
götur sem tilbúnar eru. Verið er að laga
til íþróttavöllinn.
Ég á ekki von á miklum fylgissveiflum
hér. Fylgi flokkanna hefur verið svipað
lengi,” sagði Aðalsteinn Valdimarsson.
• JH
Einkaaðili ráðandi í atvinnulíf i Eskifjarðar
— æskilegra að byggja á félagslegu framtaki
„Það er erfitt að taka einstök mál út
úr og telja þau einkamál einhvers
ákveðins flokks,” sagði Hrafnkell Jóns-
son formaður verkalýðsfélagsins á Eski-
firði, en hann skipar efsta sæti lista Al-
þýðubandalagsins. „Það er samstaða um
öll helztu mál, en möguleikum sveitar-
félagsins eru þröng mörk sett hvað
varðar ráðstöfunarfé.
Framkvæmdir við grunnskólann taka
mest allt framkvæmdafé næstu ára og
mikilvægt er að sú framkvæmd skili sér
sem fyrst. Þá er gatnagerðin brennandi
mál, en matsatriði hvort leggja beri
áherzlu á steyptar götur eða olíumalar-
bornar. Þá er sorpeyðing í slæmu ásig-
komulagi og brýnt að úr verði bætt sem
fyrst.
Alþýðubandalagið mun vinna að
öllum félagslegum framkvæmdum eftir
því sem tök eru á. Vel þarf að vanda til
æskulýðsmála og verið er að vinna að
úrbótum fyrir frekari íþróttastarfsemi.
Húsnæðisskortur er á Eskifirði og litið
um nothæft byggíngarland. Þaðer brýnt
að afla nothæfra byggingarlóða. Þá er
sinnig mikil nauðsyn á þvi, að sem fyrst
verði hafizt handa við byggingu leigu-
ibúða.
Atvinnuuppbyggingin er einhæf og
brýnt að bæjarstjórn hafi forgang I sköp-
un fjölbreyttara atvinnulifs. Hér á Eski-
firði er einkaaðili ráðandi í atvinnulíf-
inu, en æskilegra er að byggt sé á félags-
legu framtaki.
En við gerum okkur grein fyrir því,”
Hrafnkell Jónsson: „Verkefnin eru ekki
einkamál einhvers ákveóins fiokks.”
sagði Hrafnkell, „að ekki verður ráðizt í
allt sem kallar að á næsta kjörtímabili,
en mikilvægt er að nýta fjármagnið
skipulega." -JH
Ríkisvaldið þrengir stöðugt að tekjumögu-
leikum sveitarfélaganna
— ogá þvfþarf að veiða breyting
Vöggur Jónsson: „Auka þarf Ijölbreytni
atvinnulifsins.”
„Brýnast er að ljúka byggingu fyrir
grunnskólann, sem hófst fyrir þremur
árum,” sagði Vöggur Jónss., skrifstofu
stjóri í hraðfrystihúsinu, efsti maður á
lista Alþýðuflokksins við bæjarstjórnar-
kosningarnar á Eskifirði. „Þá þarf að
vinna að varanlegri gatnagerð á skipu-
legan hátt, en hún hefur orðið verulega
útundan hjá okkur. Þá hefst væntanlega
bygging leiguíbúða á vegum sveitar-
félagsins i sumar.
Vinna þarf betur að íþróttasvæðinu í
bænum og skapa unglingunum þannig
bætta aðstöðu' til tómstundaiðkana.
Hafnaraðstaða fyrir minni báta er
nánast engin, þeir bátar hafa orðið út-
undan á undanförnum árum.
Atvinnuástand á Eskifirði er gott, en
stefna þarf að þvi að auka fjölbreytnina.
Atvinnulífið er einhæft, allt snýst um
fisk. Bæjarfélagið tekur ekki þátt i at-
vinnurekstri nema með óbeinum hætti.
En þótt verkefnin séu mörg, þá er ráð-
stöfunarfé sveitarfélaga takmarkað, því
meirihlutinn fer í fasta liði. Ríkisvaldið
er alltaf að þrengja að tekjumöguleikum
sveitarfélaganna. Þar þyrfti að verða
breyting á til þess að tryggja traustari
rekstrargrundvöll þeirra.”
- JH
1974 1970 1966 1962
Alþýðuflokkur 68-1 76—7 78-1 31-0
Framsöknarflokkur 127-2 110-2 125-3 104-2
Sjálfstœðisflokkur 148-2 122-2 117-2 110-2
Alþýðubandalag Óháðir kjósendur 121-2 117-2 23-0 78-1 92-2
Fjórir
listar
íkjöri
A-listi B-listi
D-listi
Alþýðuflokks
1. Vöggur Jónsson
2. Jóna Halldórsdóttir
3.Stefánóskarsson
4. Rúnar Halldórsson
5. Hallgrimur Arason
6. Einar Eyjólfsson
7. Bjarni Kristjánsson, yngri
8. Bjarni Heiðar Johansen
9. Atli V. Jóhannesson
10. Erna Helgadóttir
1 l.Steinn Jónsson
12. Magnús Bjamason
13. Hallgrimur Hallgrimsson
14. Helgi Hálfdánarson
Framsóknarflokks
1. Aöalsteinn Valdimarsson
2. Július Ingvarsson
3. Alrún Kristmannsdóttir.
4. Skúli Magnússon
5.Sigmar Hjelm
6. Emil Thorarensen
7. Magnús Pétursson
8. Guðjón Hjaltason
9. Hákon Sófusson
10. Jón Baldursson
11. Davið Valgeirsson
12. Sigtryggur Hreggviðsson
13. GeirHólm
14. Kristmann Jónsson
Sjálfstæðisflokks
1. Ragnar Hallór Hall
2. Ámi Halldórsson
3. Ingvar Þ. Gunnarsson
4. Dagmar Óskarsdóttir
5. Herdis Hermóðsdóttir
6. Sigriður Kristinsdóttir
7. Karl Simonarson
8. Málmfreð J. Ámason
9. Ævar Auðbjömsson
10. Ingólfur F. Hallgrimsson
11. Sigurgeir Helgason
12. Egill Karlsson
13. Guðmundur B. Stefánsson
14. Hrefna Björgvinsdóttir
G-listi
Alþýðubandalags
1. Hrafnkell A. Jónsson
2. Guðnióskarsson
3. Guðjón Bjömsson
4. Hafsteinn Guðvarðsson
5. Sigurður Ingvarsson
6. Hjalti Sigurðsson
7. Jórunn Bjarnadóttir
8. Hildur Metusalemsdóttir
9. Þorbjörg Eiriksdóttir
10. Elis Andrésson
11. Helgi Bjömsson
12. Jón Guðmundsson
13. Sveinn Bjami Sveinsson
14. Jón Kr. Guðjónsson
#
Hverju spáir þú um
úrslit bæjarstjórnar-
kosninganna
á Eskifirði?
Reynir Hólm (rillukarl: Guð hjálpi þér,
ég hef ekki séð listana. Allt of mikið af
eldra fólkinu dettur út. Þetta er hefð-
bundið hér og breytingar verða að
mínumdómi litlar.
Spurning
dagsins
Erna Guðjónsdóttir húsmóðir: bg held
að þetta verði eins og það var og breytist
sáralitið.
Jónatan Helgason, vinnur í bræðslunni:
Þetta verður svipað og verið hefur.
Sömu hlutföll, sömu flokkar, engar
breytingar.
Sigmar Hjelm byggingameistari: Ég
held að fulltrúatalan verði algjörlega
óbreytt. Það verður engin sveifla i
kosningunum.
Þorsteinn Gunnarsson verkamaðun Ég
vil ekki tjá mig um það. Ég er aðfluttur
til Eskifjarðar og þekki lítið til stjórn-
mála hér.
Guðný Hailgrimsdóttir, forstöðukona
dagheimilisins: Hef ekki hugmynd um
það. Ég spekúlera ekkert i þessu, enda er
ég ópólitísk. Ég vonast til að almenni-
legir menn komist i bæjarstjórn. Góð
breyting væri að einhverjir aðrir yrðu I
meirihluta en sjálfstæðismenn.