Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 28

Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 28
Lögreglumenn kanna mál við Garöskagavita: DAUÐUR HESTURIFJOSIOG BRUGG Á KÚTUM OG TUNNU en vitavörður hlaupinn frá þýðingarmiklum tækjum í vitanum Dauöur hestur i fjósi, sem álitið er að hafi hengzt í bandi fyrir að minnsta kosti 2—3 dögum, 1—200 lítrar af illa lyktandi vökva, sem tal- inn er vcra einhvers konar brugg, og tik úti á hlaði, sem var að ærast yfir þvi að komast ekki inn í hús á staðn- um þar sem hvolpar hennar.höfðust við. Þannig var aðkoman er lögreglu-' menn komu að Garðskagavita á mánudag til að huga að vitaverði og kanna kærur sem borizt höfðu. Lögregluskýrslan um heimsóknina á mannlausan staðinn er nú i fórum rannsóknarlögreglunnar i Keflavík til frekari rannsóknar. Vitavörður i Garðskagavita er ein- búi sem þar hefur gætt staðar um skeið. Vitavarðarstarfið felur í sér um- sjón með vitanum og miðunarstöðv- um sem þar eru fyrir báta á fjölfarinni siglingaleið. Er starfið talið svo þýðingarmikið að reglur kveða svo á um að hann megi ekki af staðnum fara nema tilkynna það Vitamálastjórn sem þá gæti sett mann í staðinn til að vakta tækiogstaðinn. Rannsóknarlögreglan á Suðurriesj- um tjáði DB að það væri vítavert kæruleysi af vitaverði að yfirgefa stað- inn, en þar hefur hann ekki verið, að þvi að talið er. I nokkra daga. Hesturinn sem fanrist dauður i fjósi staðarins, sem einbúinn hefur notað fyrir hesthús, en hann á 8—10 hesta. er talinn hafa hengzt i bandi i fjósinu. Gizkað var á að það óhapp hafi skeð fyrir 2—3 dögum en ekki vitað hvort það varð áður en vitavörður fór að heimaneða eftir. Er lögreglumenn sáu af hverju tikin sem úti fyrir var vildi svo ólm komast inn í bæ, brutu þeir sér leið inn i husið til að kanna hvort eitthvað hefði e.t.v. orðið að vitaverði. Húsið reyndist mannlaust. Þar inni fannst svo einhvers konar „brugg" á tveimur 30 litra plastkútum og slatti i trétunnu. Lyktaði mjöður- inn sterklega. Verður nú rannsakað hvaði honum felst. Siðdegis i gær var vitað að vitavörður væri aftur kominn heim og voru lögreglumenn þá á leið i heim- sókn til hans. - ASt. V Járnblendið upp úr táradalnum? „Mjög jákvæð þróun” segirJónSigurösson „Þetta er fyrsta visbendingin um að stálmarkaðurinn sé að jafna sig," sagði Jón Sigurðsson, forstjóri Járnblendiverk- smiðjunnar á Grundartanga í morgun. en á aðalfundi Íslenzka árnblendi félagsins h/f sem haldinn var fyrir skömmu i Oslo. kom fram. aö eftirspurn eftir kisiljárni hefur farið hraðvaxandi aðundanförnu. Markaðshorfur á framleiðslu verk- smiðjunnar hafa verið slæmar. allt frá því að framkvæmdir hófust við hana og orðið mörgum tilefni til þess að halda okkur vera að leggja út i eina vitleysuna enn. „Það er mikilvægt atriði að magn- aukningin er mikil en enn sem komið er er verðið óbreytt,” sagði Jón ennfremur. „Mörgum gömlum verksmiðjum hefur verið lokað að undanförnu og aðrar afkasta aðeins eðlilegu magni. Þessi þróun hefur kannski ekki bein áhrif á okkur i bráð en vissulega er þetta mjög jákvætt fyrir verksmiðjuna og framtið hennar.” HP Skákmótið í Las Palmas: Tukmakov enn efstur Friðrik sækir stöðugt á — Tukmakov á Larsen og Sax eftir Friðrik vann Dominguez í 13. um- ferðinni á skákmótinu i Las Palmas í gær. Hann hefur því hlotið 9 vinn- inga. Tukmakov er efstur enn með 9 1/2 vinning. Friðrik er i öðru sæti. Röð efstu manna er sem hér segir: Tukmakov 9 1/2. Friðrik 9, Stean 8 1/2 og biðskák, Sax 8 1/2, Miles, Larsen og Mariotti 8 vinninga. Vesterinen 7 F2. í gær vann Vesterinen Padron, Corral vann Medina. Jafntefli gerðu: Sax og Mariotti, Larsen og Pan- cehnko. Tukmakov og Sanz. Friðrik teflir næst við Sanz og loks við Larsen í siðustu umferð mótsins. Friðrik gerði jafntefli við Vesterinen i 12. umferðeinsogséstá töflunni. Mis- sagt var í blaðinu í gær að hann hefði unnið þá skák. - BS m A/afn \L t. Jt V. c 4. 7 9. 9. /o. //. ra /3, /V UL /4, I. /r)#A/orr/ \ 0 'k i t O \ T, 7 ý V*. O T P/)aic.h/£//ko ö 'k 0 o 1 1 1 o / i 0 % 7’ct/c/rt/f/co l/ i E2 'h 1 1 I m Yt J Ýi. 1 'k í * FAÍGAí/c 'h i 'ltj 1 1 T % Ý4, / % 1 0 i. P/90/l0fif O o o o 0 fe 0 T o 'U 0 O L. onsoÍAJ/? o o ð o ó o 0 o Á o A o l csorr) 1 0 'U o ( L 1 0 o 'h 'L Á f OEl coKnn/. o 0 ‘Ix. 'lii Vv L 'h 1 7t % Á 'U <1 Tt 1 ‘/t / A. 1 Vt I 0 'A 1 0 10 OO/rt/juoue-i o o o ■o 0 0 E 1 0 0 0 'k 'íl 1!. Ó/9A/2 o 0 Ýz I l 'Á. E o o A o o n. Ýz Y* 0 1 1 A A T l V, Vt. O ± it. S/9)< % T \ T A !L l L 1 Yl i Yz o 1 A006ÍCt/£2 0 o T ‘4 'k % \ 7t Vt [l ■ 0 /5. /.m/i£6 1 'h 1 l t. yi. 'Á 0 T. / 1 m - MJ vk srs/tA/ E lil 0 A 1 L I- 0 o iTSl ÞINGMENN LÍKA Á SUMARDEKKJUM Allir eru að forðast hina löngu arma Ólafsson, eitt stóra spurningarmerki mundaði tjakkinn af herjans kúnst og hið fyrsta að skipta yfir í sómasamleg- laganna — ogaðsjálfsögðu þingmcnn þingkosninganna i næsta mánuði. skipti yfir á sumarhjólbarðana. Enn an útbúnað. ekki siður en aörir. Magnús Torfi varð á vegi ljósmyndarans en hann eru einhverjir á negldu og ættu þeir - DB-mvnd Ragnar. frfálst, úháð daghlað MIÐVIKUDAGIJR 17. MAÍ 1978. Skemmtuníþágu þeirra sem hafa ordið útundaní„kerfinu” Heimskfræg- urstjórnandi með Listahátið'i léttum dúr er núna orðin árlegur viðburður sem mikið þykir til koma. Að hátíðinni standa Starfs- mannafélag Sinfóniuhljómsveitarinnar og Félag islenzkra leikara sem fjöldi annarra leggur lið. Er ágóðinn af hátið- inni notaður til að styrkja þá sem fyrir slysum hafa orðið eöa ættingja þeirra. Eru þeir helzt styrktir sem hafa orðið út undan í kerfinu. hafa ekki notið bóta tryggingakerfisins af einhverjum orsök- um. Hafa 13 styrkir þegar verið veittir úr sjóðnum. Hin árlega Listahátið i Jéttum dúr verður að þessu sinni haldin á föstudags- kvöldið klukkan 11 (23) i Háskólabíói. Skemmtikraftarnir verða ekkert slor. Má nefna heimskfrægan hljómsvcitarstjóra, Gisla Halldórsson og Guðmund Pálsson sem flytja gamanþátt, Grænjaxlana, Kjartan Ragnarsson, íslenzka dans- flokkinn og Kjurgej Alexandra sem syngur fyrir utan að stjórna dansinum. Herdísi Þorvaldsdóttur. Guðrúnu Stephensen, Jón Gunnarsson og fleiri. Leiklistarfélag og kór Menntaskólans við Hamrahlið koma i heimsókn og Guðný Guðmundsdóttir leikur einleik á fiðlú. Allir ættu því að geta fundið eitt- hvað við sitt hæfi og ekki spillir að mál- efnið er gott. Óþarft er að taka fram, að allir þessir góðu skemmtikraftar leggja fram vinnu sina án endurgjalds. - ds Af hverju vill unga fólkið ekkibaka? Bakarar frá öllum Norðurlöndunum nema Færeyjum sátu seint á april heil- mikið þing hér í Reykjavík. samnorrænt þing eins og þau gerast bezt. Fyrir utan þingstörfin höfðu bakararnir þó tima til að skoða sig svolítið um og kynnast landi og þjóð. Á þinginu var meðal annars fjallað um mikilvægi þess að kynna mönnum hollustu brauða og það hvérsu ódýr fæða þau eru miðað við annað. Einnig var rætt um þann vanda sem að stéttinni steðjar því ungt fólk hyggur lítt á bakstur i framtiðinni. Kom bökurunum saman um að lág laun og óhentugur vinnutimi réðu mestu um þessa þróun. DS

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.