Dagblaðið - 17.05.1978, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. MAÍ 1978.
13
Unnið úr 15 þúsund
tonnum af fiski á ári
en lítið kemur á land
Garðskagavitinn var mönnum mjög hug-
lcikinn þegar efnt var til samkeppni um
skjaldarmerki Gcrðahrepps. Gamli og
nýi vitinn komu fram á nær öllum tillög-
unum. DB-myndir Hörður.
Gerðahreppur eða Garðurinn eins og
hann heitir í munni flestra er nokkuð
sérstakur bær. Þvi þrátt fyrir að lang-
flestir af hinum 812 ibúum lifi á og í
kringum fisk og vinni úr 15 þús.
tonnum á ári kemur lítil afli þar á land.
Gerðamenn fá fiskinn frá Keflavík eða
Sandgerði.
t Garðinum eru 16 fiskiðjuver, þar af
5 frystihús og ein niðursuðuverksmiðja.
Auk þess eru svo tvö járnsmíðaverk-
staeði og trésmíðaverkstæði. Annar
léttur iðnaður er þar einnig.
Um 60 manns vinna á Keflavíkurflug-
velli, þar af 39 hjá hernum en 20—30
hjá islenzkum aðilum. Þessi fjöldi er
nokkuð óstöðugur því fólkið kemur og
fer.
Sjálfstæðismenn og aðrir frjálslyndir
kjósendur hafa verið í meirihluta i 5
manna hreppsnefnd í Garðinum undan-
farin 3 kjörtímabil. Áður var þar óhlut-
bundin kosning. Þykir Frjálslyndum
kjósendum sem verið hafa með 1 mann
nóg komið og vitna í málsháttinn: Allt
er þá þrennt er. En hinir bæta rólegir
við: Fullreynt i fjórða.
DS
HVAfl
VILJA
ÞEIR?
1
~
FRAMBOÐ '78
Garður
Ólafur Sigurösson (l-lista):
Meiri sparnað í rekstri
„Mér er efst í huga að meiri sparnað
þarf i rekstri byggðarlagsins,” sagði
Ólafur Sigurðsson smiður sem er i efsta
sæti I-listans.
„Bæta þarf aðstöðuna fyrir smábáta-
eigendur hérna við höfnina. Einnig þarf
að bæta vegasamgöngur við nágranna-
byggðarlögin. Þá vantar iþróttahús og
sundlaug sem er hálfbyggð en þarf að
Ijúka snarlega.
Stækka þarf barnaskólann því hér
fjölgar ungu fólki ört. Hitaveitunni
þarf að ljúka í sumar og ég legg áherzlu
á að það verði gert á sem allra skemmst-i
um tíma,” sagði Ólafur.
DS
0
Ólafur við hús sem hann vinnur að
byggingu á. Ólafur hefur verið eini
maður I-listans á möti 4 mönnum H-list-
ans.
, C **■ -
!]^
l 'ík
■' ' ' %i*'
Finnbogi Björnsson (H-lista):
Aðalverkefni varanleg
gatnagerð
„Okkar aðalverkefni verður varanleg
gatnagerð sem fylgir í kjölfar hitaveitu-
framkvæmda sem fyrirhugaðar eru nú í
sumar,” sagði Finnbogi Björnsson
<1 .
Finnbogi á skrifstofu hreppsins. Á
bak við hann má sjá nokkrar af þeim
fjöldamörgu tillögum sem borizt hafa um
skjaldarmerki Gerðahrepps. Garðskaga-
vitarnir tveir .skipa þar alls staðar
mikinn sess. DB-myndir Hörður.
verzlunarstjóri sem er i fyrsta sæti H-
listans, lista sjálfstæðismanna og ann-
arra frjálslyndra.
„Ég legg mikla áherzlu á skipulagsmál
og að lokið verði gerð aðalskipulags sem
allra fyrst.
Á dagskrá er einnig gerð sundlaugar
og í framhaldi af því nýtt íþróttahús.
Okkar flokkur mun einnig vinna að
stækkun og endurbótum hafnarinnar og
þeirra mannvirkja sem við hana eru.
Áfram verður haldið við að snyrta og
fegra byggðarlagið og bæta aðstöðu fyrir
aldraða svo eitthvað sé nefnt," sagði
Finnbogi. DS
Hver heldur þú að
úrslit sveitarstjórnar-
kosninganna verði?
Krístján Guðmannsson húsasmiður. Þvi
er erfitt að spá. Ég hef ekkert vit á þess-
um málum. Á því er aftur engin launung
hvarégstend.
Pálmi Einarsson húsasmíðanemi: Ég
, pæli ekkert i þessu, maður. Ég veit ekki
ennþá hvað ég kýs sjálfur, ég er ekki
búinn aðákveða það.
Friðrík Valgarðsson verkamaðun Ég
spái því að l-listinn vinni á. Hann ætti
að koma inn einum 3 mönnum. Menn
hér eru búnir að fá nóg af katastrófu og
vilja breyta til. Ég kýs I-listann, á því er
engin launung.
Ingibjörg Sölmundardöttir, selur bensín:
Ég er ekkert í pólitík. Ég kýs jú, en það
er leyndarmál hvað ég kýs.
Úrslitífjórum
síðustu
kosningum
Sjáffstœðism. og
aðrir f ijðlslyndir
Frjálsl. kjós.
Framfarasinnar
Tveir listarí kjöri
H-listi
Sjálfstæðisflokks
og annarra
frjálslyndra:
Finnbogi Bjömsson
Siguröur Ingvarsson
Ingimundur Þ. Guönason
ólafur Björgvinsson
Sigrún Oddsdóttir
Karl Njálsson
Júlíus Guömundsson
Unnar Már Magnússon
Þorvaldur Halldórsson
Krístjana H. Kjartansdóttir
1974 1970
227-4 204-3
96-1 107-2
51-0
l-listi
Frjálslyndra
kjósenda:
1966 1962
204-3 óhkitbundin
112—2 kosningin
ólafurSigurðsson
Viggó Bcnediktsson
Jens SævarGuöbergsson
Magnús Guðmundsson
Valdimar Halldórsson
Guðfinna Jónsdóttir
Svavar Óskarsson
Guömundur Sigurösson
Ármann Eydal
Kristin Jóhannesdóttir.
Magnús Eyjölfsson beitingamaðun Það
veit ég ekki. Ég hef engan áhuga á þess-
um málum. Ég kýs samt alltaf en segi
ekki hvað.
Karl Sveinsson, vinnur i fiski: Það veit ég
ekki. Ég hef mjög lítinn áhuga á þessum
málum. Ég veit ekki einu sinni hvort ég
kýs.