Dagblaðið - 06.06.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978.
3
JónMúli ogPétur!
HALDIÐ VEÐURÞJONUSTUNNIAFRAM!
Látið ekki „mas” veðurfræðinga hafa áhrif á ykkur!
Árrisull skrifar:
í síðasta sunnudágsblaði Þjóðvilj-
ans sá ég viðtal við Jón Múla Árnason
útvarpsþul. Þar kom frani að hann og
Pétur Pétursson þulur hafa neyðzt til
að hætta aðgreina fólki frá veðri. hita-
stigi, vindhraða, færð o.fl. í morgunút-
varpinu vegna þrýstings frá Veður-
stofunni. Eftir því sem Jón Múli segir
þá kvartaði Markús Einarsson veður-
frasðingur við útvarpsráð undan
„masi” morgunþula um veðrið. Þá
sagði Hlynur Sigtryggsson veðurstofu-
stjóri við Pétur Pétursson að þetta
„mas” væri þarflaust með öllu, leiðin-
legt ogvillandi.
Vegna þessarar framkomu veður-
fræðinganna vil ég að það komi skýrt
fram að ég hef ætíð verið þakklátur
Jóni Múla og Pétri fyrir þessar
„veðurfréttir” þeirra. Ég met þessa
þjónustu mun meir i Ijósi þess að hér
er ekki um skylduverk þulanna að
ræða, heldur sérstakt „einstaklings-
framtak", sern við árrisulir vorum
farnir að taka sem sjálfsagðan hlut
undanfarin ár.
Ég vil skora á þá Jón Múla og Pétur
að halda veðurþjónustu sinni áfram og
láta ekki „mas” sérfræðinga hafa áhrif
ásig.
Jón Múli og Pétur.Sérfræðingar Veðurstofunnar eru ekki sáttir við þá þjónustu
sem morgunþulir veita almenningi. En skvldu veðurfræðingarnir hafa einhver
frambærileg rök fyrir máli sínu?
Hringiðísíma
27022
milli kl. 13 og 15 eða skrifið
Raddir
lesenda
ertu med?
Marga hefur lengi langað til að geta spilað svolítið á gítar á góðri stund sér og
öðrum til ánægju en einhvern veginn ekki komið því í verk að læra. Ef þú ert
meðal þeirra, þá er tækifæri þitt runnið upp. Ný kennslustækni hefur litið
dagsins Ijós á íslandi. Þú getur látið drauminn rætast og verið farinn að spila
svolítið, meira að segja eftir nótum, eftir skamman tíma - bara með
bráðskemmtilegu heimanámi. Svarið er námskeiðið Leikur að læra á gítar, frá
Gítarskóla Ólafs Gauks - 2 kassettur og vönduð, litprentuð 52 síðna bók. Þú
lest kafla í bókinni, athugar skýringarmyndir, en þegar kemur að þessu merki:
hlusta LSj}
setur þú kassettutækið af stað, og færð leiðbeiningar kennara og yfir 20 lög,
sem hver einasti íslendingur þekkir, til að leika með. Aðferð, sem getur ekki
brugðizt. Allt kennsluefnið er sérunnið fyrir íslenzka nemendur. Þekktir
hljómlistarmenn leika með þér lögin á kassettunum, og þér tekst fljótlega að
leika með. Textar eru prentaðir við hvert lag í bókinni.
Á 2 KASSETTUM OG BÓK
Einnig tekið við
pöntunum í síma
85752
•GITARNAMSKEIÐ
•GÍTAR OG
• KASSETTUTÆKI
ALLT FYRIR KR.
59.500
gítarinn
Vantar þig gitar?Höfum nokkra Lorenzo
gitara með nylonstrengjum. Frábær
reynsla hér á landi. Kynningarverö á
GÍTARNÁMSKEIÐI og Lorenzo gitar
samt. kr, 37.000,-
Nýja GÍTARNÁMSKEIÐINU fylgja
tvær langar kassettur með leiðbein-
ingum kennara, yfir 20 lögum sem
aliir þekkja til að leika með og alls
kyns léttum æfingum til að auðvelda
námið samhliða bókinni.
Bókin, sem fylgir GÍTARNÁM-^
SKEIÐINU er 52 síður, öll litprentuð ▼
á vandaðan pappír, með einföldum
skýringum og fjölda mynda. Bókin
og kassetturnar eru í sérhönnuðum
plastumbúðum. Glæsileg og vönduð
gjöf, ef svo ber undir.
PONTUNARSEÐILL
kassettutækið
I Gjörið svo vel að senda mér undirrit.: (merkið við það, sem við á)
Q ( póstkröfu ÉD Greiðsla fylgir pöntun
I □ GlTARNÁMSKEIÐ, 2 kassettur og bók ................... kr. 15.000.-
I □ GfTARNÁMSKEIÐ og Lorenzo gítar ................. samt. kr. 37.000,-
I □ GÍTARNÁMSKEIÐ og Philips kassettutæki .......... samt. kr. 39.500,-
| □ GlTARNÁMSKEIÐ, Lorenzo gítar og Philips kassettutæki .... samt. kr. 59.500,-
I Athugið, aö sendingarkostnaður bætist við. Öll verð eru kynningarverð og gilda
| aðeíns út júnímánuð, 1978.
Vantar þig kassettutæki? Getum útvegað, |
meðan bigðir endast, eitt nýjasta tækið I NAFN .....................................................
frá Philips á sérlega hagstæðu kynningar- '
verði, sé tækið keypt ásamt GlTARNAM- | HF,MA
SKEIÐINU. Bæði fyrir rathlöðu og straum. i
Innbyggður næmur hljóðnemi. Hrað- '
spólun. Stærð: 12 X 19 X 4,2 cm. Verð á I ..........................................................
GÍTARNÁMSKEIÐI og Philips kassettu-
tæki samt. kr. 39.500.- I utanáskrift: Gítarskóli Ólafs Gauks, pósthólf 806, 121 Reykjavík
Spurning
dagsins
Finnast þér
góðar pylsur?
Sverrir Ólafsson, 8 ára. Já, en mér
finnst þær ekki ofsalega góðar. Ég hef
ekki talið hvað ég borða þær oft. Mér
finnst þær beztar með öllu nema hráum
lauk.
Sævar Gunnar Ólafsson, 10 ára: Já. mér
finnst þær góðar ef þær eru með öllu. Ég
borða oft pylsur en ég veit ekki hvað oft.
því ég hef ekki talið það. Ég get borðað
svona fimm þegar ég er heima.
Valur Júlfusson, 10 ára. Já, mér finnst
þær alveg ofsalega góðar með öllu. Ég
borða fjórar pylsur í einu.
Björn Baldursson, 9 ára. Já, ég borða
stundum pylsur með lauk og tómatsósu.
Ég get borðað þrjár og stundum meira ef
égermikið svangur.
Sigursteinn Baldursson, 6 ára. Jahá, þær
eru svo svakalega góðar með lauk og
tómatsósu. Ég get boröað sex pylsur i
einu. Finnst þér það mikið eða hvað?
Sko, mér finnst pylsurnar betri ef þær
eru litaðar.
Öll verð eru kynningarverð og gilda út júní.
Hilmar Skúlason, 12 ára. Já, ja, þæreru
ágætar. Hvað ég vil hafa á? Það er
remolaði. steiktur laukur og tómatsósa
Ég veit ekki hvað ég get borðað margar í
einu, það fer eftir því hvað ég er
svangur.