Dagblaðið - 06.06.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNl 1978.
Erlendar
fréttir
OLAFUR
GEIRSSON
Bess Truman á
sjúkrahús
Bess Truman fyrrum eiginkona
Harry Truman Bandaríkjaforseta
er enn á lífi, 93 ára gömul. Hún
var lögð inn á sjúkrahús í Kansas
City fyrir síðustu helgi vegna smá-
vægilegra veikinda en mun að
öðru leyti hafa það ágætt.
OUUSKORTUR ARH)
1985 AÐ ÓBREYTIU
— þá munu OPEC ríkin ekki geta f ullnægt ef tirspurn á Vesturlöndum
Olíuframleiðsluríkin sem eru i
OPEC samtökunum munu ekki geta
fullnægt olíuþörfum Vesturlanda á
næsta áratug, segir í ályktun þings
samtaka sem berjast fyrir bættri
nýtingu orkulinda, — International
Energy Agency. Telja þau að árið
1985 verði eftirspurnin eftir olíu
komin fram úr framboði OPEC ríkj-
anna en í OPEC eru öll helztu olíuút-
flutningsrikin utan kommúnistarikj-
anna. Muni þá skorta frá fjórum til
tólf milljónum tunna af olíu á degi
hverjum.
Vegna þess hve Bandaríkjamenn
hafa tekið lítið tillit til þarfarinnar í
olíuspamaði hafa samtökin, sem
þykja nokkuð áreiðanleg i áætlunum
sínum.hækkað þær tölur, sem líklegt
að Vesturlönd verði að flytja inn af
olíu árið 1985. Eru það nú taldar
verða 29.2 milljónir tunna en var áður
áætlað 25,5 milljónir tunna. Þó telja
samtökin að lækka mætti þennan inn-
flutningef orkuspamaður yrði aukinn
mjög. Er þá aðallega átt við Banda-
ríkjamenn og bent á að ekki megi
neinn tima missa i þessum efnum.
Bent er á i ályktuninni að óbreytt
stefna Bandaríkjamanna í orkumálum
og olíunotkun geti haft mjög afdrifa-
ríkar afleiðingar fyrir efnahag
heimsins og núverandi fjármálakerfi.
REUTER
Þeir
mættu
henni
a
fjórdu
ftæð
Kalrforníubúar Eignaðist van-
greiða atkvæði heilan son -
um lækkun vill bætur
skatta vegna geislunar
Kalifomíubúar munu ganga til Bandarískur landgönguliði, sem
almennrar atkvæðagreiðslu á telur að sonur hans hafi fæðzt van-
morgun um tillögu sem gerir ráð skapaður af völdum geisla, sem
fyrir mikilli lækkun fasteigna- beint hafi verið að bandaríska
skatta í ríkinu. Búizt er við að til- sendiráðinu í Moskvu er hann
lagan hljóti mikinn meirihluta. Af- starfaði þarárið 1972 vill fá bætur
leiðingamar kynnu að verða sam- frá stjórnvöldum.
dráttur i opinberri þjónustu og Telur landgönguliðinn, að
fækkun opinberra starfsmanna. Bandaríkjastjórn hafi haft veður af
Fasteignaskattar hafa hækkað ¦ geislasendingum Sovétmanna allt
mjög i Kaliforníu á undanförnum frá því snemma á sjöunda áratugn-
árum vegna mikillar hækkunar á um og hefði því átt að vera búið að
fasteignaverði þar. Ef tillagan um vara starfsfólkið við. Hefði það þá
skattalækkun verður samþykkt getað gert viðeigandi ráðstafanir
verða einnig sett takmörk um hve vegna hættunnar af skemmdum á .
þeir mega hækka á milli ára. Búizt genum líkamans, til dæmis forðazt
er við að samþykkt tillögunnar geti að geta börn.
haft áhrif annars staðar í Banda-
ríkjunum.
Mannskæð bif-
Fimm piltar hjólakeppni
lostnir eldingu Þrir þátttakendur í kappákstn bifhjóla með hliðarkörfur, sem fram fer um þessar mundir á eynni
Fimm piltar á táningaaldri létust Man létust í gær af slysförum.
í gær er eldingu laust niður í hey- Keppnin, sem fram fer í fjalllendi
sátu, sem þeir leituðu skjóls i á þykir mjög hættuleg og hingað til
meðan á þrumuveðri stóð. Varð hafa á annað hundrað manns
þetta i miðhluta Júgóslaviu. látizt af völdum hennar.
Þeim brá ónotalega við verkamönnunum tveim er þeir sáu stúlkuna svrfa f ram hjá þar sem
þeir voru við vinnu á húsi einu í New York í sfðustu viku. Diana Terdit, tuttugu og fjögurra
ára gamall loftfimleikamaður, hafði tekið að sér að hanga á tönnunum utan á húsinu til að
auglýsa leikrit, sem byrja á að sýna. Þegar verkinu var að Ijúka og verið var að láta
stúlkuna niður missti hún handfestu og féll tíu metra niður á gangstéttina. Þykir hún háfa
sloppið vel, með brotna fœtur og skaddaðan hrygg.