Dagblaðið - 06.06.1978, Blaðsíða 5
A|M92_ReW**''*
■5SS--"5- - *
SJT óskaO :grsíminn
8. síða. — Þriðjudagur 6. júní 1978.
Eittaf
stefnu-
Myndin er af frambjóðendum Stjórnmálaflokksins I Reykjaneskjördæmi við alþingiskosningarnar 25. júni. Fremri röð:
sitjandi, talið frá .vinstri: Sigfús Eiríksson, múrari, Hafnarfirði, 8. sæti, Sigriður Hanna Jóhannesdóttir, læknaritari, Kópa-
vogi, 9. sæti. Eirikur Rósberg rafmagnstæknifræðingur, Kópavooi, 1. sæti. Vilborg Gunnarsdóttir, húsmóðir, Hlégarði
Mosfellssveits, 3. sæti Anna Kristjánsdóttir, húsmóðir, 6 sæti. Standandi, talið frá vinstri: Davíð Ólafsson bilasali, Hafnar-
firði, 4 sæti. Sigurður Þorkelsson, iðnrekandi, Kópavogi, 10. sæti. Einar Dagbjartsson, skipstjóri, Grindavík, 5. sæti. Sveinn
Sigurjónsson verkamaður, Keflavik, 2. sæti, Ásgeir Heiðar, sölumaður, Seltjarnarnesi, 7. sæti.
Breytingá skattalögunum öldruðumí vil
— rætt viö Eirík Rósberg, rafmagnstæknifræöing, sem skiparl. sætiá
lista S tjórnmálaflokksins í Reykjaneskjördæmi
1. Fyrir hverju ertu að berjast?
Ég berst fyrir því að hér komi sterk
stjórn, sem þorir að horfast i augu við
aðsteðjandi vandamál, með það fyrir
augum að leysa þau, veltir þeim ekki á
undan sér eða leiðir þau hjá sér eins og
svo algengt er.
2. Hvað ætlarðu að gera á þingi?
Á þingi vil ég beita mér meðal
annars fyrir eftirfarandi:.
a) Að lagt verði aðstöðugjald á her-
stöðvar NATO hér á landi og að
tollvernd og önnur fríðindi þeim til
handa verði afnumin.
b) Að stjórnarskránni verði breytt
þannig að iöggjafar- og framkvæmda-
vald verði aðskilið.
c) Að iðnaður hér á landi verði efldur
stórlega.
d) Að stuðla að því að eldra fólkið I
þjóðfélaginu geti lifað við ákveðið
öryggi þegar eftirlaunaaldrinum er
náð, en það er hægt meðal annars með
því að breyta skattalögunum þannig,
að þegar fólk hefur náð 67 ára aldri,
þá hætti það að greiöa öll opinber
gjöld ncma ef til vill eignaskatt. Einnig
er hægt að láta bankana koma til móts
við þetta fólk með því að leyfa því að
leggja ákveðna upphæð á mánuði
hverjum inn á verðtryggða bankabók
eftir að ofangreindum aldri er náð.
3. Af hverju Stjórnmálaflokkinn?
Vegna þess að Stjórnmála-
flokkurinn er flokkur með nýjum og
ferskum blæ og er ekki bundinn I báða
skó af pólitískum hagsmunaklíkum.
Einnig vegna þess að stefnuskrá
flokksins er mér mjög að skapi.
4. Hvað hefurðu gert áður?
Ég hef gert ýmislegt um ævina.
Verið sendill og blaðasali á unga aldri,
unnið verkamannavinnu hhjá Reykja-
víkurborg, unnið við afgreiðslu hjá
Sláturfélagi Suðurlands, lært rafvirkj-
un og að siðustu lært rafmagnstækni-
færði I Danmörku.
málunum
Stjórnmálaflokkurinn gerir sér Ijóst,
að verðbólga getur að vissu marki
verið gagnleg. Hún getur flýtt fyrir
framkvæmdum og örvað menn til
dáða.
En sé verðbólgan komin á það stig,
sem hún er nú hér á landi, er hún bæði
hrollvekjandi og skaðleg. í stað þess að
.örva til dáða ýtir hún undir hvers
konar spákaupmennsku og spillingu.
Miklar umræður hafa átt sér stað
um þetta vandamál og sýnist sitt
hverjum.
Stjórnmálaflokkurinn telur ekki-
mögulegt að ráða bót á þessu mikla
verðbólgumeini nema með niður-.
færslu I einhverri mynd. Gengisfelling
og styrkjakerfisleiðin eru skaðlegar
eins og deyfilyfjalækningar, sem bein-
línis lama þjóðfélagið enn meira og ýta
undir áframhaldandi verðbólgu og
spillingu.
Stjórnmálaflokkurinn leggur hér
með fram ofangreind málefni sem
baráttumál sín I komandi al-
þingiskosningum. En auk þeirra mun
flokkurinn taka ákveðna afstöðu til
annarra málaflokka, svo sem sjávarút-
vegsmála, landbúnaðarmála, iðnaðar-
mála, viðskiptamála, húsnæðismála,
menntamála, heilbrigðismála, elli- og
örorkumála, félags- og umhverfismála.
Með því að efla velferð atvinnuveg-
anna og bæta opinbera stjórnsýslu
stefnum við hiklaust að takmarki
okkar: Sterkri stjórn.
i
Stuðningsmenn og veilunnarar!
Mikil þörf er nú á fjárframlögum í
kosningasjóð. Kosningaráð
Athugið!
i
Þriðjudagskvöldfundur-
inn fellur niður í kvöld
vegna flokkakynningar í
sjónvarpinu. Fimmtu-
dagsfundurinn verður á
sama tíma og venjulega
kl. 20.30 að Laugavegi 84,
2. hæð.
Landbúnaðarmáf
Það er viðurkennd staðreynd að hverri þjóð, smárri sem
stórri, sé nauðsynlegt að búa og byggja á landbúnaði að
meira eða minna leyti. AUt fer það þó að sjálfsögðu eftir
legu hvers lands. Og jafnvel þótt við íslendingar búum í
harðbýlu landi, svo norðanvert í Atlantshafi sem raun ber
vitni, er iandbúnaður okkur nauðsynlegur að vissu marki,
enda þótt augljóst sé að framleiðslukostnaður landbún-
aðarafurða hér á landi sé mun hærri en meðal margra ann-
arra nærliggjandi þjóða, sem við hagstæðari aðstæður búa.
Það er fyrst þegar kemur að útflutningi ýmissa þátta land-
búnaðarins sem hann ekki er réttlætanlegur, svo sem sann-
ast best, þegar litið er á andvirði sumra vöruflokka og hve
langt fyrir neðan framleiðslukostnað það er.
Eðlilegt má teljast, að dregið verði úr framleiðslu þeirrar
tegundar búskapar, sem offramleiðsla er á innanlands, en
lögð þess i stað aukin áhersla á þá þætti, sem best duga til
útflutnings og gera stórátak í aukinni fiskirækt, sem virðist
eiga mikla framtíð fyrir sér.
,.*v
Eirikur Rósberg tæknifræðingur,
fyrsti maður á lista í Reykjaneskjör-
dæmi. Vilborg Gunnarsdóttir hús-
móðir, f 3. sæti Reykjaneskjördæmi.
Sigurður G. Steinþórsson gullsmiður,
2. á lista i Reykjavik. Steinunn Ólafs-
jdóttir uppeldisfræöingur, i 3. sæti í
Reykjavík. Ólafur E. Einarsson for-
stjóri, fyrsti maður í Reykjavík.
STERK STJðRN
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 1978.
AUGLÝSING■
Sljörnn>
^TTform.
)
MALA
FLOKKURINN
Jáj knappt varnú sumum skammtað...
— á þeim degi urðuþeirHeródes ogPílatus vinir
í útsendingu sjónvarps í kvöld koma fram fimm frambjóð-
endur Stjórnmálaflokksins og kynna stefnumálin
Eftirfarandi kafli var klipptur úr ræðu síðasta ræðumanns
vegna naums tíma.
„Við teljum að íslendingar eigi einir að sitja að fiskveiðum um-
hverfis landið enda mun hvers konar fiskiðnaður verða ein megin-
stoð atvinnulífs okkar um langa framtíð.”
Já, knappt var nú sumum skammt-
að. Sannleikurinn er sá, að gömlu
flokkamir gína yfir sjónvarpinu á
hrottalegasta hátt og skammta sjálfum
sér tíma að vild en útiloka aðra að
mestu leyti, þvert ofan I lög um rikis-
útvarp og sjónvarp, þar sem skýrt er
tekið fram, að ekki skuli mismuna
flokkum eða stefnum í aðgangi að fjöl-
miðlunum.
Þannig sitja þeir einir að útsendingu
framboðsfundar I sjónvarpssal og
hringborðsumrœðum.
Þetta er vist upphafið að jámtjalds-
lýðrœði hér á landi, enda varði fulhrúi
Alþýðubandalagsins þessar ákvarðanir
gömlu flokkanna á fundi, sem haldinn
var um þessar ráðstafanir með fulltrú-
um allra frambjóðcnda af miklu kappL
Allir fúlltrúar hinna gömlu flokk-
anna sátu sem fastast og þögðu, sýni-
lega famir að venja sig við að hlýða
fyrirmtelum sovétlýðrœðis á lslandL
Það er athyglisvert og lœrdómsrikt
fyrir kjósendur að þessir menn, sem
ekki hafa getað orðið sammála um
neitt sl. 4 ár, heldur karpað, þrefað og
rifist, stundum eins og illa uppalinn
götulýður, um hvers konar málefhL
stundum mjög alvarleg, og' skaðað á
þann hátt þjóð okkar stórkostlega,
skuli nú á síðustu dögum kjörtímabils-
ins sameinast og standa sem einn
maður um ákvarðanir, sem þverbrjóta
lagaákvœðL semþeirsjálfir hafa sett.
A þeim degi urðu þeir Heródes og
Pllatus vinir.
Þau kynna stefnu-
málStjórnmála-
flokksinsísjón-
varpinuíkvöld