Dagblaðið - 06.06.1978, Side 8
8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIDJUDAGUR 6. JÚNl 1978.
^ncrjvxaP!
Ly f tara'
dekk
LYFTARADEKK, afgreidd
samdægurs, allar stæröir
>1USTURBAKKI HF
Skelfan 3A. Símar 38944*30107
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
KLEPPSSPÍTALI
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast á deild
I nú þegar. Einnig óskast HJÚKRUNAR-
FRÆÐINGAR á fleiri deildir spítalans.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma
38160.
STARFSMAÐUR óskast nú þegar á barna-
heimili spítalans til lengri tíma (ekki sumaraf-
leysing).
Upplýsingar veitir forstöðukona barnaheimil-
isinsísíma 38160 (95).
Reykjavík, 4. júní 1978.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPÍTALANNA
Eiríksgötu 5. Sími 29000.
Óska eftir að taka á leigu 50—60 ferm versl-
unarhúsnæði á góðum stað í bænum sem
hentað gæti fyrir söluturn eða kvöldsölu.
Uppl. hjá auglþjónustu DB í síma 27022.
H—646
Fyrirtæki til sölu
Af sérstökum ástæðum er iðnfyrirtæki til sölu sem
framleiðir til útflutnings úr ísienzkri ull. Fyrirtækið er
eitt á sínu sviði og eru því möguleikar miklir. Pantanir
fyrir hendi. Sérstakt tækifæri fyrir sveitarfélög eða sam-
hent hjón. Farið verður með allt sem trúnaðarmál.
Tilboð merkt „Fyrirtæki” sendist DB.
KONUR KONUR KONUR KONUR KONUR KONUR
KONURNAR LÍKA TEKNAR
TIL VIÐ KJÖTSKURÐINN
— Fyrstu þrjár luku prófi
Kvenfólkið haslar sér völl á stöðugt
fleiri sviðum. Nú um helgina luku
þrjár fyrstu stúlkurnar prófum í kjöt-
iðnaði og stóðust það allar með prýði.
Stúlkurnar þrjár sem heita Guðleif
Ragnarsdóttir úr Kópavogi, Ásta
Einarsdóttir og Sigqrjóna Þórhalls-
dóttir, báðar úr Reykjavík, eru fyrstu
konurnar sem Ijúka slíku prófi hér á
landi, en Félag kjötiðnaðarmanna er
31 árs.
Próf í kjötiðnaði felst bæði í bók-
legum fræðum og verklegum. Er ljós-
myndara bar að garði í vinnslu-
stöðvum SS og Búrfells við Lindargötu
á sunnudag voru stúlkurnar að Ijúka
síðasta hlutanum sem er kjötskúrður.
Þá verða þær að hluta sundur svín,
kálf, og skera niður allt eftir sérstökum
reglum eftir því í hvaða rétti kjötið á
að fara. Áður höfðu þær lagað bæði
pylsur < og fars. Svo verða þær að
kunna að brýna hnífa, þvo vélar og
ýmislegt fleira.
Nú er 70—80 starfandi kjötiðnaðar-
menn á landinu og verður stéttinni
sannarlega fengur að þremur konum í
fagið. A.St.
Hérna eru fyrstu kjötskuröar-
meistararnir meðal kvenna viö
prófboröin. Frá vinstri Guðleif
Ragnarsdóttir sem nam hjá SS
og Sigurjóna Þórhallsdóttir og
Ásta Einarsdóttir sem námu
hjá Búrfelli. DB-mynd Hörður.
um helgina
KNÁR HÁSETI f HÓLMINUM
Það voru fimleg handtök sem hún
Sjöfn Kolbeins, háseti j Stykkishólmi,
sýndi þegar hún var að gera klárt fyrir
næsta róður. Hún stóð þarna á bryggj-
unni í Hólminum og var að skrúbba í
hópi annarra sjómanna, ungra pilta
sem greinilega höfðu ekkert á móti
þessari viðbót i stéttina.
Sjöfn sagðist nú ekki vera mjög
reyndur sjómaður, Hún hefði aðeins
farið nokkra túra í afleysingum en
henni líkar starfið vel og æfingin
kemur smátt og smátt. Það munar lika
miklu hvað strákarnir vinna betur
þegar Sjöfn er nálægt, þannig að það
bætir hag útgerðarinnar. • JH
«C
DB-mynd. JH
NU FINNST MER EG
LOKS VERA AÐ VINNA
— sagði Kolbrún Erna
Pétursdóttir sem vinnur
ábifvélaverkstæði
„Nú finnst mér ég loks vera að
vinna,” sagði Kolbrún Erna Péturs-
dóttir, 17 ára gömul, en hún er ein af
frumherjum kvenna sem nú halda út i
hinar hefðbundnu atvinnugreinar
karla. Hún vinnurá bifreiðaverkstæði
GP i Kópavogi. „Ja, ég er svona
nokkurs konar altmuligt man hér á
verkstæðinu," sagði Kolbrún.
„Hávaðinn, skarkalinn og óhrein-
indi fara alls ekki í taugarnar á mér.
Margar stelpur fara ekki út í svona
vinnu vegna óhreinindanna og erfiðis-
ins en ég kann skinandi vel við mig.
Þeir striða mér svolítið — ekkert
voðalega — hérá verkstæðinu. Hvað
maður gerir? Ja, ég veit ekki. Maður
veit aldrei hvað maður gerir, hvort
maður fer út í bifvélavirkjun eða eitt-
hvað annað,” sagði Kolbrún. Eitt var
ljóst — þeir voru ánægðir á verk-
stæðinu að þafa Kolbrúnu. „Það er
allt annað að hafa unga og fallega
stúlku hér. Sér í lagi á morgnana,"
sögðu þeir.
H.Halls.
Kulbrún Erna við vinnu sina á verkstæðinu. DB-mynd Ari Krístínsson.