Dagblaðið - 06.06.1978, Page 9

Dagblaðið - 06.06.1978, Page 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ1978. 9 Gottárhjá Sam- vinnutryggingum Samvinnutryggingar höfðu 79,7 milljón króna hagnað á siðasta ári, eftir að um 20milljóna tap á endur- tryggingum hafði verið dregið frá. Iðgjöldin jukust um 32 af hundraði en tjónagreiðslur um 27,7 af hundraði. Samvinnutryggingar lækkuðu i fyrra iðgjöld i heimilis- og hús- eigendatryggingum. Trygginga- félagið hefur frá stofnun fyrir rúmlega 30 árum endurgreitt tekjuafgang til þeirra sem tryggt hafa hjá félaginu, samtals fyrir um 1,2 milljarða, ef reiknað er á verð- gildi í nóvember síðastliðnum. Líftryggingafélagið Andvaka skilaði 15,8 milljóna rekstraraf- gangi. Tjónahlutfall þess var mjög hagstætt á síðasta ári. Rekstrarafgangur Endurtrygg- ingafélags Samvinnutrygginga nam 4.7 milljónum. lðgjöldin jukust þó aðeins um 0,7 prósent enda hefur félagið síðustu ár sagt upp mörgum samningum, sérstak- lega i sjó- og flugvélatryggingum. vegna óhagstæðrar afkomu i þeim greinum. Iðgjöldin námu alls hjá þessum þremur félögum um þremur milljörðum og jukust á árinu um 24,5 af hundraði. Tjónin jukust allsum 19,8 af hundraði. Félögin héldu aðalfundi að Bifröst 1. júni. I stjórn þeirra voru endurkjörnir Erlendur Einarsson forstjóri. formaður, Ingólfur Ólafs- son kaupfélagsstjóri, Kópavogi og Ragnar Guðleifsson kennari Keflavík. Aðrir i stjórn eru Karvel ögmundsson framkvæmdastjóri Ytri-Njarðvík og Valur Arnþórsson kaupfélagsstjóri Akur eyri. Fulltrúi starfsmanna i stjórn er Þórir E. Gunnarsson fulltrúi Reykjavik. HH Fyrsta jafnréttismálið: Hæstiréttur staðfesti dóm undirréttar Hæstiréttur hefur kveðið upp fyrsta dóm í jafnréttismáli hérlendis, í málinu „Ragnhildur Smith gegn forsetum Alþingis og fjármálaráðherra”. Snerist málið um það í fljótu bragði að kven- ritarar Alþingis hefðu mun lægri laun er karlmenn sem ynnu þó sömu störf. í héraðsdómi féll dómur á þann veg að þetta væri ekki sannað. Var málinu áfrýjaðtil Hæstaréttar. Segir í greinargerð Hæstaréttar: „Áfrýjandi hefur hvorki sannað að henni hafi verið greidd lægri laun en hún átti tilkall til, né að henni hafi verið mismunað vegna kynferðis, svo sem hún heldur fram, er henni voru ekki greidd sömu laun og fulltrúa, sem einnig starfaði hjá Alþingi. Þegar af þessum ástæðum ber að staðfesta hinn áfrýjaða dóm. Málskostnaður fyrir Hæstarétti fellur niður. Samkvæmt 35. gr. laga nr. 38/1954 fara forsetar Alþingis með aðild varðandi réttindi og skyldur starfs- manna þingsins. Var þvi eigi ástæða til að beina málsókn þessari að stefnda. fjármálaráðherra. Það er athugavert að svonefnd aðilja- skýrsla áfrýjanda, sem lögð var fram i héraði, hefur að geyma málflutning af hennar hendi. í skjölum málsins, greinargerð lög- manns áfrýjanda fyrir Hæstarétti og i málflutningi hans hér fyrir dómi eru sett fram óhæfileg ummæli um nafn- greindan mann vegna skýrslna hans i málinu. Ber að vita lögmanninn, Gunnlaug Þórðarson hæstaréttarlög- mann, harðlega fyrir ummælin." Dómsorð Hæstaréttar er að endingu þetta: „Hinn áfrýjaði dómur á að vera Gunnlaugur Þórðarson dr. ákúrur frá réttinum. — DB- óraskaður. Málskostnaður rétti l'ellur niður." ' . juris — lékk mvnd Bj.Bj. fvrir Hæsia HP. Aliminkureða villi- minkurá Reykjanes- braut? Edmund Bellertsen varð fyrir óvenjulegri reynslu á dögunum þegar hann var að aka bifreið sinni frá Kefla- vík til Reykjavikur. Er hann nálgaðist Álverið i Straumsvik skauzt minkur í veg fyrir bifreiðina. Varð það bani skepnunnar. sem sýnilega hafði ekki tamið sér að lifa eftir spakmælinu „Margan hefur flasið fellt.” Þegar Edmund sýndi okkur Dag- blaðsmönnum minkinn vakti feldur hans mesta athygli. Sú spurning vaknaði hvort þarna væri aliminkur á ferð eða villiminkur. Svarið verðum við að láta sérfróðum mönnum eftir. Allar upplýsingar eru vel þegnar. GM Þannig leit hann út minkurinn — ali- eða villtur, það er spurningin? — DB- mynd HP. Tap hjá Hagtryggingu Tap af rekstri Hagtryggingar hf. varð 4,8 milljónir á síðasta ári, eftir að tekið hefur verið tillit til afskrifta og skatta, sem greiddir eru áður en niðurstaða rekstrar er reiknuð út. Iðgjaldatekjur jukust um 23 af hundraði en dugði ekki til. 1 skýrslu formanns, dr. Ragnars Ingi- marssonar, segir að hækkun iðgjalda hafiekki nægt til að mæta hækkunum á rekstrar- og tjónakostnaði sem fylgdi i kjölfar kjarasamninga á siðasta ári. Verðbólgan hefði slæm áhrif á bótasjóði vátryggingarfélaga einkum bifreiða- trygginga. Valdimar J. Magnússon fram- kvæmdastjóri félagsins taldi að stefnu- breyting hefði nú orðið hjá stjórn- völdum og meiri skilnings gætti á nauðsyn þess að iðgjöld ættu að nægja til að mæta tilkostnaði og skuld- bindingum félaganna. Á aðalfundi félagsins kom einnig fram að breytingin i hægri umferð fyrir 10 árum hefði leitt til bættrar umferðar- menningar um skeið en síðan aftur breytzt til hins verra. Slysatíðni hefði að undanförnu aukizt vegna minni tillits- semi ökumanna. Hluthafar Hagtryggingar eru 969 og hlutafé 30 milljónir. Brunabótamat fasteigna félagsins er 164 milljónir. I aðalstjórn voru kjörnir dr. Ragnar Ingimarsson formaður, Arinbjörn Kol- beinsson varaformaður, Sveinn Torfi Sveinsson ritari, Jón Hákon Magnús- son og Þorvaldur Tryggvason. Auk þess var Haukur Pétursson verkfræðingur kjörinn sérstakur fulltrúi neytenda sam- kvæmt tilnefningu Félags íslenzkra bifreiðaeigenda. HH FundurLÍÚ: Móti loðnuverksmiðju á Skagaströnd Loðnuverksmiðja sú sem fyrirhugað er að Síldarverksmiðjur rikisins reisi á Skagaströnd mætir mótspyrnu útgerðar- manna. Á fundi Landssambands isl. úl- gerðarmanna á dögunum var lýst yfii „fullri andstöðu gegn fyrirætlan stjórnar SR” að reisa verksmiðju þessa. Segja útgerðarmenn að mikil óvissa riki um styrk loðnustofnsins og þvi sé ástæðulaust að hefja byggingu nýrrar loðnuverksmiðju sem áætlað sé að kosti 1500 milljónir króna. Stjórn LÍÚ fagnaði við sama tækifæri átaki þvi sem gert hefur verið lil að auka geymslurými og nýtingu hráefnis og telur að enn megi gera betur i þeim efnum. Þá sé þörf á að auka löndunar hraða og þá þörf á að verksmiðjurnar komi uppeigin dælubúnaði. JBP Sýnir70 myndirfrá Eyjumogvfðarað Árni Finnbogason frá Vestmanna- hann heldur á listaverkum sinum. Sagði eyjurn opnar sýningu á 70 teikni- hann i stuttu viðtali við DB að rnikið af myndum sinum að Hallveigarstööum i teikningunum á þessari sýningu væri frá dag. Verður sýning Árna siðan opin dag Vestmannaeyjum. enda væru eyjarnar hvern frá klukkan 2 til 10 fram til 12. honum hugleiknar. En einnigeru þarna júni. rnyndir viðarað. Þessi sýning Árna er hin fimmta sem - ASt. Fjölskylduparodís sumarsins KANARlEYJAR Vetur, sumar, vor og haust, dagflug á laugardögum - fimmtudögum. Sólskins- paradís allan ársins hring. Nú fá íslendingar í fyrsta sinn tækifæri til sumarleyfis- dvalar á Kanaríeyjum. Þúsundir þekkja af eigin reynslu þessar paradísareyjar í vetrarsól. Aldrei of kalt og aldrei of heitt, þar er sjórinn, sólskinið og skemmtanalífið eins og fólk vill hafa það, í365dagaáári. Góðarbaðstrendur, fjölbreyttskemmtana- líf. Kanaríeyjar eru fríhöfn með tollfrjálsa verslun. Hægt er að velja um dvöl á vinsælustu og bestu hótelum og íbúðum á Gran Canaria og Tenerife svo sem: Koka, Corona Blanca, Corona Roja o.fl. Sunnu skrifstofa með þjálfuðu íslensku starfsfólki nú opin allan ársins hring. NÝTT. Vegna hagkvæmra samninga getum við í sumar boðið fjölskyldum, ókeypis ferð með dvöl í íbúð, fyrir öll börn innan 12 ára. Einnig Sunnuflug til: MALLORCA dagflug á sunnudögum COSTA DEL SOL dagflug á föstudögum COSTA BRAVA dagflug á sunnudögum ÍTALÍA dagflug á þriðjudögum PORTÚGAL dagflug á fimmtudögum GRIKKLAND dagflug á þriðjudögum

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.