Dagblaðið - 30.06.1978, Page 6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JÚNt 1978.
Mikið bensínstrið hefur staðið i Danmörku að undanförnu. Hafa margir bensín-
sölumenn mátt hafa sig alla við að breyta auglýsingaskiltum sínum I samræmi við
verðbreytingar.
Portúgak Hafnarverkfall í Lissabon
Hafnarverkamenn I Lissabon
fóru 1 verkfall I gær til stuðnings
kröfum sinum um endurnýjun
kjarasamninga sinna. Um það bil
átta þúsund hafnarverkamenn
taka þátt I verkfallinu en helzta
ástæða þess er að sögn þeirra sú að
atvinnurekendur hafi haft I hyggju
að lengja vinnutima þeirra án
nokkurra meiri launa.
Fyrir nokkrum dögum hófu
verkamenn við Lissabonhöfn
kjarabaráttuna með sérstökum
bönnum við auka- og helgidaga-
vinnu.
Sími Bílaleigunnar h/f er 75400. Viðgeröir á Saab
bifreiðum á sama stað.
Smifljuvegi 36, Kóp. simi 75400.
VERZUfl MR SEM ÚRVAUÐ ER MESTOfi KJÖRIN BEZT
Einfalt og ódýrt
undir hljómtækin
ogplöturnar
Verð aðeins kr. 28.500,
hvhar, og kr. 45.300, dökk
eik.
Húsgagnadeild
HRINGBRAUT121 -SÍMI28-601
Stokkhólmur
og Osló ekki
lengur dýrastar
Evrópuborga
Svissnesku borgirnar Genf og
Ztirich teljast nú þær borgir Evrópu
þar sem framfærslukostnaður er
mestur. Hafa þær farið upp fyrir
Stokkhólm og Oslo siðan í fyrra. Tokio
heldur aftur á móti fyrsta sætinu á
heimslistanum eins og um nokkur
undanfarin ár. Að sögn fyrirtækisins,
sem sér um þessar athuganir á
kostnaði I einstökum borgum var það
hækkun svissneska frankans sem olli
því að svissnesku borgirnar teljast nú
dýrustu borgir í Evropu.
Alls eru það fimmtíu og niu borgir,
víðs vegar um heiminn, er teknar eru
til athugunar. Er miðað við fram-
færslukostnað i New York og sam-
kvæmt þvi er 56.6% dýrara að fram-
fleyta sér i Tok io. Ódýrustu borgimar
i heiminum eru taldar vera Buenos
Aires í Argentinu en þar er kostnaður
talinn nema rétt um 50% af kostn
aði í New York. Síðan má nefna
Montevideo i Uruguy, 62,9% og
Bangkok, 63,1%. Ödýrustu borgir i
Evrópu teljast samkvæmt athugun-
inni Lissabon 68,5% af New York
kostnaði og Barcelona 79,8%.
í könnuninni kemur fram að verð-
bólgan virðist koma mun harðar niður
á ýmsum ódýrari borgunum og er þvi
verðmunur orðinn mun minni en oft
hefur verið áður í sambærilegri
athugun. Þrátt fyrir mun lægra verð á
ýmsum matvörum í ýmsum löndum, í
Asiu til dæmis, hækka ýmsir tollar
stjórnvalda á munaðarvörur verðlag
þar meiraená Vesturlöndum.
Moskva er í fyrsta skipti á þessum
lista og þar er talið 17,8% ódýrara að
framfleyta sér en i New York. Þá er
tekið tillit til heimildar útlendinga til
að verzla í sérstökum gjaldeyris-
verzlunum, sem selja úrvalsvörur sem
almennir Sovétborgarar fá ekki að
velja sér.
Kaupmannahöfn var talin með
115,6%, Oslo 121,3, Stokkhólmur
121,9%, Helsinki 107,5%, London
92,4%, París 110,8%, Zurich 139,9%
ogGenf 139,1%.
Veður eru válvnd I Libanon og búizt við að harðir bardagar brjótist þar út á hverri stundu. Á myndinni sést norskur gæzlu-
liði en Noregur sendi þangað sveit hermanna til að taka þátt i eftirliti á vegum Sameinuðu þjóðanna.
Kona var fráskilin -
hjónabandið ógilt
Réttur í Chicago féllst i gær á kröfu
manns eins sem kvæntur hafði verið
sömu konunni í þrettán ár um að hjóna-
bandið teldist ógilt. Maðurinn byggði
kröfu sína á að konan hefði sagt honum
ósatt i byrjun. Sagðist hún vera i ekkju-
standi en við réttarhöldin mætti fyrrver-
andi eiginmaður hennar og vildi engan-
veginn viðurkenna sig látinn.
Seinni eiginmaðurinn er kaþólskrar
trúar en samkvæmt skoðunum strang-
trúaðra eru hjónaskilnaðir nær algjör-
lega útilokaðir. Á grundvelli þessa féllst
rétturinn á að maðurinn hefði verið
blekktur i hjónaband og með því ómeð-
vitað brotið gegn reglum trúar sinnar.
FLUGFÉLÖG RÆÐA
FARGJALDAUNDIRBOÐ
Alþjóðasamtök flugfélaga hefja ráð-
stefnu i dag i Montreal í Kanada. Helzta
málið á dagskrá eru hugsanlegar að-
gerðir ýegna sifellt aukinnar samkeppni
félaga utan samtakanna, sem bjóða
lægri fargjöld á alþjóðaleiðum. Al-
þjóðasamtökin — IATA — hafa komið
sér upp mjög flóknu kerfi flugfargjalda
um allan heim, sem auðvelda almenn-
ingi flug, en þykir jafnframt af sumum
halda verðlagi óeðlilega mikið uppi.
Mikill þrýstingur er á stjórn ÍATA að
leyfa einhverjar tilslakanir til einstrakra
félaga innan samtakanna.
Þekktast þeirra flugfélaga, sem bjóða
uppá lægri fargjöld en IATAfélögerfé-
lag Freddy Laker hins brezka sem hefur
að takmarki að reka flugferðir eins og
nokkurs konar áætlunarbifreið þar sem
fólk stígur inn í og greiðir við brottför.
Hefur hann að sögn náð góðum árangri
■á leiðinni yftr Atlantshafið.
Erlendar
fréttir
Kína:
Dósa-og
pakkamatar
skalneytt
tilstuðnings
framförum
Kinverjar eiga ckki að eyða dýr-
mætum tinia sinum i að framreiða
dýra og margbrotna rétti. Sarnfé-
lagið á að sjá þeini fyrir handhæg-
um niðursoðnunt mat eða pakka-
súpum. Svo eru leiðarahöfundar
Dagblaðs alþýðunnar þar í landi
sagðir hafa sagt i dálkum sinum
nýlega.
Þykir sunium skjóta nokkuð
skökku við ef erlendir eiga aðeins
að njóta hinnar heimsfrægu mat-
gerðarlistar Kínvcrja, sem dásöm
uð hefur verið um aldir.
Verkafólk, visindamcnn og hin-
ir faglærðu eiga ekki að ómaka sig
frá störfum til að standa i heimilis-
verkuni, segir blaðið. Almennar
upplýsingar og fræðsla urn hvernig
haga eigi matargerð og neyz.lu i
framtíðinni séu aðeins eðlilegur
hluti i framþróun ríkisins.
REUTER