Dagblaðið - 30.06.1978, Side 9
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1978.
9
SÍSgræðir—
kaupfélögin
tapa
Hagnaður varð hjá SÍS en tap hjá
kaupfélögum Sambandsins á síðasta ári.
SÍS-menn kenna miklum
kauphækkunum um mikla hækkun
rekstrarkostnaðar. Kostnaðurinn jókst
um 49,3 af hundraði en brúttótekjur um
38,8 prósent. Samt varð tekjuafgangur
upp á 103,6 milljónir. Afgangurinn árið
áður varð 376,9 milljónir.
Þá er búið að draga frá afskriftir upp á
um 429 milljónir, 852 milljónir í vexti,
og 334,5 milljónir í opinber gjöld.
önnur var útkoman þegar afkoma
kaupfélaganna er tekin saman. 25 félög
skiluðu samtals 94,2 milljónum í hagnað
en 16 félög töpuðu samtals 287,9
milljónum. Halli umfram hagnað varð
þvi 193,7 milljónir hjá kaupfélögunum í
heild.
Árið áður hafði hagnaðurinn verið
ofan á.
SÍS velti i fyrra 43,4 milljarði sem var
hátt í 50% aukning frá árinu áður.
Aðalfundur Sambandsins hófst i gær
að Bifröst. Eysteinn Jónsson, sem setið
hefur í stjórn Sambandsins í þrjá ára-
tugi, lýsti yfir að hann gæfi ekki kost á
sér til endurkosningar, hvorki sem
stjórnarformaður eða yfirleitt í
stjómina. -HH.
Döguní
hliðinu
Já — alveg satt. Dawn Clcmente er í
varnarliði Íslands. Margir mundu
meira að segja velja hana orða og um-
hugsunarlaust ’fallegasta bandaríska at-
vinnuhermanninn á íslandi. Nokkrir
frjálsir og óháðir blaðamenn hafa ákveð-
ið að lýsa yfir fullum stuðningi við þessa
óvæntu en ánægjulegu stefnu sem varn-
armál lands vors hafa tekið. — Hún
heitir Dawn varnarkonan okkar. Það
þýðir DÖGUN á íslenzku. Hvort það er
dógun í varnarmálum veit enginn nú
fimm dögum eftir nýafstaðnar þrumu-
kosningar. Aftur á móti er hún DÖGUN
tvímælalaust til fegurðarauka þar sem
hún situr i forljótu varðhliði „al-
þjóða”fiugvallarins suður á Miðnes-
heiði. DB-mynd emm.
M
NÝR TOGARIAFLAR LITLU
MEIR EN VÖXTUM NEMUR
— þar sem útgerðin er byggð upp á lánum með „nýju” vöxtunum
„Það er hrikaleg mismunun sem á
sér stað í íslenzkum sjávarútvegi í dag
og engar ráðstafanir hafa verið gerðar
til að jafna þar aðstöðu manna,” sagði
Auðun Auðunsson skipstjóri er DB
hitti hann að máli á dögunum.
„Grundvallast þetta fyrst og fremst
á mismunandi vaxtagreiðslum hjá út-
gerðarfélögum á hinum ýmsu stöðum
á landinu,” hélt Auðun áfram.
Auðun nefndi sem dæmi að á ein-
um stað á Austfjörðum væri nýlegt
frystihús með 10 tonna afköstum á
sólarhring og einnig nýlegur togari.
Vaxtagreiðslur þar næmu um 215
milljónum á ári. Á sama tíma væru
vaxtagreiðslur eins og Útgerðarfélags
Akureyringa vart miklu hærri, þó þar
væru fimm aflaskip og frystihús með
sex-sjöfalda vinnslugetu. Stafaði þetta
af því að Akureyringar hefðu verið
fyrri til uppbyggingarinnar og fengið
hagstæðari lán úr sjóðum sjávarút-
vegsins, sem nú væru tómir. Safnaðist
þeim ekki aftur jafnvirði þess fjár sem
þeir lánuðu og kæmi það niður á ýms-
um stöðum á landsbyggðinni sem
seinni hefðu orðið til að leita aðstoðar
sjóðanna til uppbyggingar sinnar.
Hliðstæð dæmi nefndi Auðun frá
Vestfjörðum þar sem nýleg skip væru
seld og ný fengin, einungis til þess að
viðhalda toppafskriftum.
Auðun kvað þessi mál þeim mun al-
varlegri vegna þess að nú væru ýmis
skip flotans orðin svo illa farin að hag-
kvæmara væri að láta þau hverfa.
Sum þeirra hefðu verið keypt til lands-
ins notuð og aldrei verið gerð fyrir is-
lenzkar aðstæður. Þar að auki myndu
hin nýrri skip aldrei endast eins lengi
og áður þekktist. Allt aðrar kröfur og
lægri hefðu verið gerðar varðandi
byggingu þeirra en áður fyrr þekktist,
þegar krafizt var ítrustu krafna Lloyds
og stundum meira. Nýrri skipin væru
mörg hver byggð samkvæmt lægsta
leyfðum kröfuflokki.
Af þessu kæmi að þvi að „nýi flot-
inn” þyrfti endurnýjunar við eftir 10
ár í stað 20 sem algengt var áður.
Myndu þvi margir lenda i slæmum
vítahriirg vaxta og kostnaðar þar sem
sjóðirnir, sem ættu að standa undir
uppbyggingunni, væru tómir af því að
þeir hefðu aldrei fengið til baka raun-
virði þeirra skipa sem þeir lánuðu til.
Auðun sagði að það þætti góð út-
koma hjá togara ef hann veiddi fyrir
milljón krónur á dag. Þegar vaxta-
kostnaður útgerðar væri kominn á
þriðja hundrað milljónir blasti sú stað-
reynd við að togarinn aflaði ekki langt
umfram vexti eina. Væri hér um al-
varlegar staðreyndir að ræða sem allir
er ættu sitt undir sjávarútvegi yrðu að
gefa gaum.
—ASt.
Laxeldisstöðiní
Kollafirði:
Tveirþeir
fyrstu
komu
18. júnf
Laxinn leitar nú æskustööva sinnu
ám um allt land og '."tua lögmál gildir i
Laxeldisstöðinni i Kollafirði. Þangað
komu fyrstu laxarnir úr sjó á þessu
sumri 18. júni sl. „heim i gamla dalinn”.
„Aðalgöngurnar i Laxeldisstöðina í
Kollafirði hafa venjulega komið i
júlimánuði,” sagði Þór Guðjónsson
veiðimálastjóri DB, en einnig gengur
laxinn nokkuðí ágúst.
I fyrra komu 1574 laxar i laxeldis-
stöðina í Kollafirði og aðeins í sex beztu
veiðiám landsins varð meiri laxagengd
en um rennu Laxeldisstöðvarinnar i
Kollafirði árið 1977.
-ASí.
Verkamannabústaðir urðu of dýrir:
Verða piparsveinahöll í staðinn
Bygging ein, sem heita má að sé að
verða tilbúin á Eskifirði, vekur athygli
margra aðkomumanna. Er þetta eins
konar pallahús sem þykir falla vel inn i
landslagið. Byggingin var upphaflega á
vegum byggingasamvinnufélags verka-
manna á staðnum ætluð fyrirláglauna
fólk. Hitt er svo annað mál að byggingin
varð svo dýr að aðeins hátekjumenn
gátu eignast íbúðirnar, en hjón með
börn í heilsuspillandi húsnæði gátu ekki
keypt.
Nú er svo komið að íbúarnir verða 8
talsins, aílt einhleypir strákar sem
virðast hafa næga peninga handa á milli.
Almennt gengur blokkin undir nafninu
piparsveinahöllin.
JBP
BÍLAR OG MENN
Ljósmyndarinn var að dunda við
vél sina úti i ritstjórnarglugga, þegar
þetta myndefni rak á fjörur hans,
Einar Ágústsson alþingismann og
ráðherra ásamt Þórarni Þórarinssyni,
nýhættum þingmanni og ritstjóra
Tímans. Þetta var sólardag einn er leið
að kosningum og allt lék í lyndi. Siðan
tapaði flokkur þeirra Einars og
Þórarins 5 þingmönnum á einu bretti
— og Dagblaðinu var kennt um
hversu til tókst! Bíll Einars, hreinasta
djásn að sögn áhugamanna um bíla, er
eign Sölunefndar varnarliðseigna. Sú
stofnun er sögð útvega ráðherrum bila
til afnota þegar á þarf halda. Margir
hafa gagnrýnt bilamál ráðherranna.
Hvað skyldi ný ríkisstjórn taka til
bragðs i þeim málum?
DB-myndir Hörður.