Dagblaðið - 30.06.1978, Page 22
26
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1978.
1
GAMLA BÍO
I
Svarti
lögreglustjórinn
FREDWILUAMSON as
BOSS NIGOER
Kyikmyitdir
AUSTURBÆJARBÍÓ: Blazing Saddles. aðalhlut
vcrk: Gcne Wildcr. kI. 5.7 og 9.
GAMLA BÍÓ: Svarti lögreglustjórinn. Sýnd kl. 5, 7
og 9 . Bönnuö innan 16 ára.
IIAFNARBÍÓ: Lifið cr leikur kl. 3. 5. 7. 9 og 11.
!'• mnuð.innan lóara.
HAFNARFJARÐARBÍÓ: Málaðu vagninn þinn.
Aðalhlutverk: Lee Marvin og Clint Eastwood. Sýnd
kl.9.
'NÝJA BlÓ:Casanova. Aðalhlutverk: Donald Suther-
land. Leikstjóri: Federico Fellini. Sýnd kl. 5 og 9.
BÆJARBÍÓ: Útlaginn Jose Wales. Aðalhlutverk
Clint Eastwood. Sýnd kl. 9.
LAUGARÁSBÍÓ: Reykur og Bófinn (Smokey and
the Bandit). Aðalhlutverk: Burt Reynolds. Sýnd kl. 5.
7 og 9.
Keðjusagarmorðin í Texas, sýnd kl. II.
NÝJA BÍÓ: Þegar þolinmæðina þrýtur, aðalhlutverk:
BoSvenson, Robert Dlup, kl. 5, 7 og 9. Bönnuð innan
10 ára.
REGNBOGINN: A: Litli risinn. Aðalhlutverk.
Dustin Hoffman. Sýnd kl. 3, 5.30, 8. og 10.50. B:
Jory. Sýnd kl. 3,05, 5.05,7.05,9.05 og 11.05. C: Billy.
Jack i eldlínunni. Sýnd kl. 3,10, 5,10, 7,10 9,10 og
11.10. D: Spánska flugan Sýnd kl. 3,15, 5,15, 7,15,
9,15 og 11.15.
Spennandi ný bandarisk kvikmynd frá
villta vestrinu.
íslen/.kur texti.
Sýnd kl. 5,7og9.
Bönnuð innan lóára.
S.IÖRNUBÍÓ: Ótti i borg (Fear over the city) aöal-
nlutverk: Jean Paul Belmondo, Charles Denner og
Rosy Varte, kl. 5,7 og 9. Bönnuð innan 16 ára.
TÓNABÍÓ: Lifið og látið aðra deyja (Live and Let
Die). Aðalhlutverk Roger Moore. Sýnd kl. 5, 7.15 og
9.30.
Laust starf
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa hér með laust
til umsóknar starf endurskoðanda hjá stofn-
uninni.
Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra
starfsmanna. Umsóknarfrestur er til 14. júlí
nk.
Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður
fjármáladeildar.
Raf magnsveitur ríkisins
Laugavagi 116, lOSReykjavfk
Keflavíkurkaupstaður
óskar að ráða starfskraft til vinnu á skrifstofu
bæjarins. Starfið er fólgið í vinnulaunaút-
reikningum og tölvuskráningu. Umsækjendur
þurfa að gangast undir hæfnispróf.
Umsóknir sendist undirrituðum fyrir 11. júlí
nk.
Bæjarritarinn í Keflavík.
Stimpilgjaldatöf lur o.f I.
(sbr. lög nr. 36/1978 sem taka gildi 1. júli 1978)
Hjá Bókabúð Lárusar Blöndal er til sölu heftið
„Stimpilgjöld, aukatekjur ríkissjóðs o.fl.”. í heftinu eru
töflur og sérprentuð lög og reglugerðir um stimpilgjöld,
aukatekjur ríkissjóðs o.fl. Verð heftisins er 1.200 kr.,
með söluskatti.
Á sama stað eru einnig til sölu eftirtalin rit: Tollskráin
1978, 8.200 kr., The Customs Tariff of lceland 1978,
8.200 kr. og Starfsmannaskrá ríkisins 1. janúar 1978,
2.000 kr. Söluskattur er innifalinn í tilgreindu verði.
Fjármálaráðuneytið
29. júni 1978.
Tilboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar í tjón-
ástandi.
VW rúgbrauð árg. '73, Fíat 127 árg. '74, Fíat 125P
árg. '78, Trabant 601 árg. '78, Hornet árg. '70, Lada
Topasárg. '77 og Mazda 929 árg. '75.
Bifreiðarnar verða til sýnis að Melabraut 26,
Hafnarfirði laugardagainn 1. júlí nk. kl. 13—
17.
Tilboðum óskast skilað til aðalskrifstofu fyrir
kl. 17.00 mánudaginn 3. júlí nk.
Brunabótafélag íslands
c<
Útvarp
Sjónvarp
D
S jónvarp í kvöld kl. 20.35: Skrípaleikur
Sjónvarpskvikmynd eftir Gísla i.
Sjónvarpið ætlar að frumsýna
sjónvarpskvikmynd eftir Gisla J.
Ástþórsson í kvöld. Nefnist það
Skripaleikur og sagði Gisli okkur að
það væri allt tekið upp fyrir norðan og
að langmestu leyti á Siglufirði.
Kvað Gisli söguna eiga að gerast i
kringum 1940. Segir hún frá ungum
útkjálkamanni, sem vill hífa sig um
eina rim eða svo í þjóðfélagsstiganum.
Hann heldur því til kaupstaðarins til
þess að freista gæfunnar og m.a. til að
ná tali af bankastjóranum þar í þeirri
von að fá hjá honum lán. Fyrir lánið
ætlar hann síðan að kaupa vörubif-
reið. Hann kynnist mörgum í
kaupstaðnum og meðal þeirra er Borg-
ar, fyrrum verksmiðjustjóri, þjónustu-
stúlkan Bína og önnur stúlka.
Sagði Gísli að leikrit þetta væri
blanda gamanleiks og ádeilu.
Aðalsögupersónan I kvikmynd Gísla
bregður sér til kaupstaðarins til þess
nt.a. að taka lán og kaupa vörubifreið.
Með aðalhlutverkin fara Sigurður
Sigurjónsson, Gísli Halldórsson,
Katrín Dröfn Árnadóttir, Kristján
Skarphéðinsson, Guðmundur Pálsson,
Elisabet Þórisdóttir, Rúrik Haraldsson
og Haukur Þorsteinsson. Leikmynd
gerði Jón Þórisson og kvikmyndatöku
önnuðust Haraldur Friðriksson og
Sigurliði Guðmundsson. Hljóðupp-
töku önnuðust Sigfús Guðmundsson
og Jón Arason, en hljóðsetningu
annaðist Sigfús Guðmundsson.
Búninga gerði Árný Guðmundsdóttir
og um förðun sá Ragna Fossberg.
Leikritið er í litum og tæplega
einnarklukkustundarlangt. -RK.
Utvarp í kvöld kL 22.50:
Ungir listamenn á kvöldvakt
„Á kvöldvaktinni i kvöld mun ég
ræða við Ása í Bæ um nýju plötuna
hans og mun hann segja ýmislegt
skemmtilegt í sambandi við lögin sín,
þess má lika geta að Ási verður virkur
þátttakandi i Vestmannaeyjum um helg-
ina á menningardögum sjómanna og
fiskvinnslufólks.” Þetta sagði Ásta R.
Jóhannesdóttir er við spurðum hana um
þáttinn. Síðan hélt hún áfram og sagðist
fá aðsent efni bæði frá Isafirði og Borg-
arnesi og það væru ungir strákar sem
spiluðu og syngju inn á kassettur í tóm-
stundum sínum og við fengjum að heyra
í þeim flytja eigin lög.
„Nú, ég fæ söngvara úr Reykjavik í
heimsókn og mun hann syngja nokkur
lög eftir sjálfan sig. Halldór Gunnarsson
sem sér um popphornið mun lita inn.
Honum er ýmislegt til lista lagt, og mun
hann flytja frumsamið Ijóð sem heitir
Seiðurinn. Aðsíðustu kemur til min ung
stúlka, Guðný Guðmundsdóttir konsert-
Ásta R. Jóhannesdöttir.
meistari, en hún spilar undir á nýjustu Kvöldvaktin verður að þessu sinni kl.
plötu Megasar, Nú er ég klæddur og 22.50 ogerhannklukkutimalangur.
kominn á ról.” ELA.
Blaðburðarbörn
óskast strax:
Garðabœr,
Búðir.
Upplýsingar á afgreiðslunni,
sími 27022.
BIAÐIÐ
Útvarpíkvöld
kl. 20.30:
Ungir Ijóða-
höfundarog
poppmúsik
Á dagskrá útvarpsins i kvöld er
4. þáttur andvökunnar í umsjá Ól-
afs Jónssonar.
Ólafur sagði okkur að þátturinn
væri í framhaldi af siðustu þáttum
og kæmu 4 ungir Ijóðahöfundar og
læsu úr bókum sinum sem allar
eiga það sameiginlegt að vera fjöl-
ritaðar útgáfur. Þessir höfundar
eru Birgir Svan Símonarson, Pétur
Lárusson, Jón Laxdal og Einar
Ólafsson. Inn á milli er svo spiluð
islenzk poppmúsík, m.a. Spilverk
þjóðanna, Melchior o.fl. Þátturinn
byrjar kl. 20.30 og er þriggja kort-
era langur. £LA.