Dagblaðið - 30.06.1978, Qupperneq 23
27
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. JÚNl 1978.
i
Utvarp
Sjónvarp
9
Sjónvarpí kvöld kl. 21.55: Mannhvarf
HVAÐ VARD
UM
BRÓÐURINN?
1 kvöld verður sýnd í sjónvarpinu
brezk bíómynd frá árinu 1950 og
nefnist hón Mannhvarf (So Long at
the Fair).
Á myndin að gerast árið 1889. Tvö
systkini koma til Parísar eftir ferðalag
um Evrópu og ætla þau að bregða sér
á heimssýninguna sem þar stendur
yfir. Þau koma á hótel nokkurt og
leigja sitt herbergið hvort yfir nóttina.
Kvöldið sem þau koma til hótelsins
borða þau saman og ákveða síðan að
hittast morguninn eftir. En næsta
morgun er bróðirinn horfinn, og
þegar stúlkan fer að spyrjast fyrir um
hann, kannast enginn á hótelinu við
að hann hafi komið þangað. Starfs-
fólkið heldur því meira að segja fram.
að herbergisnúmer það sem maðurinn
hafi haft, sé ekki til á hótelinu. Stúlkan
leitar þvi á náðir brezka ræðis-
mannsins, því þau systkini voru brezk,
og lögreglunnar, en allir halda því
fram að stúlkan sé bara rugluð og
þreytt og hafi komið ein. Hún stendur
nú uppi ráðalaus og peningalaus, þvi
bróðirinn var fjárhaldsmaður hennar.
Hótelstarfsfólkið lánar henni þvi pen-
inga til þess að komast heim til sin, og
þar sem hún stendur á brautarstöðinni
á leið heim til sin kemur nokkuð fyrir,
sem verður til þess að stúlkan fer að
athuga gang mála sjálf.
Með aðalhlutverkin fara tveir mjög
vel þekktir leikarar, Jean Simmons og
Dirk Bogarde. Þýðandi myndarinnar
er Dóra Hafsteinsdóttir. -RK.
Dirk Bogarde og Jean Simmons fara með aðalhlutverkin i bíómyndinni í kvöld.
Sjónvarp
Föstudagur
30. júní
20.00 Fréttír ogveður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Skripaleikur (L). Sjónvarpskvikmynd eftir
Gisla J. Ástþórsson. Frumsýning. Leikstjóri
Baldvin Halldórsson. Tónlist Jón Sigurðsson. í
aöalhlutverkum: Rósi-Sigurður Sigurjónsson.
Borgar-Gisli Halldórsson, Stúlka-Katrin
Dröfn Ámadóttir, Veitingamaður-Kristján
Skarphéðinsson, Bankastjóri Guðmundur
Pálsson, Bina Elisabet Þórisdóttir.
Bisnesmaður-Rúrik Haraldssson. Stýrimaöur-
Haukur Þorsteinsson. Sagan gerist árið 1939
og fjallar um ungan mann sem heldur i
kaupstað að fá lán til að kaupa vörubifreið. í
kaupstaðnum kynnist hann ýmsu fólki m.a.
Borgari, fyrrum verksmiðjustjóra. sem lifir á
kerfinu. þjónustustúlkunni Binu og annarri
ungri stúlku. Leikmynd Jón Þórisson. Kvik
myndataka Haraldur Friðriksson og Sigurliði
Guðmundsson. Hljóðupptaka Sigfús
Guðmundsson og Jón Arason. Hljóðsetning
Sigfús Guðmundsson. Búningar Ámý
Guðmundsdóttir. Förðun Ragna Fossberg.
2IJ5 Frá Listahátið 1978. Sópransöngkonan
Birgit Nilsson syngur með Sinfóniuhljómsveit
íslands. Sljórnandi Gabriel Chmura. Stjóm
upptöku Tage Ammendrup.
21.55 Mannhvarf. (So Long at the Fair). Bresk
biómynd frá árinu 1950. Aðalhlutverk Jean
Simmons og Dirk Bogarde. Sagan gerist á
. heimssýningunni i Paris 1889. Ungur maður
hverfur af hóteli sinu. Systir hans verður
skelfingu lostin þegar starfslið hótelsins þrætir
fyrir að hann hafi komið þangað með henni
Þýðandi Dóra Hafsteinsdóttir.
23.15 Dagskrárlok.
Föstudagur
30. júní
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Viö
vinnuna: Tónleikar.
14.45 Lesin dagskrá næstu viku.
15.00 Middegissagan: „Angelína” eftir Vicki
Baum. Málmfriður Sigurðardóttir les þýðingu
sina(14).
15.30 Miðdegistónleikan John de Lancie og Sin
fóníuhljómsveit Lundúna leika „Blómaklukk-
una", tónverk fyrir óbó og hljómsveit eftir
Jean Francaix. Hljómsveit Tóhlistarháskólans
i Paris leikur
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregn-
ir).Popp.
1720 Hvað er að tama? Guðrún Guðlaugsdóttir
stjómar þætti fyrir böm um náttúruna og um-
hverfið; — V: Veiðar.
17.40 Baraalög.
17.50 Náttúruminjar í Reykjavik. Endurtekinn
þáttur Gunnars Kvaran frá siðasta þriðjudegi.
18.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. FréttaaukL Tilkynningar.
19.35 Assýríuríkið og endalok þess. Jón R.
Hjálmarsson fly tur erindi.
20.00 Gítarkonsert 1 A-dúr op. 30 eftir Mauro
Guiliani. Siegfried Behrend og 1 Musici leika.
20.30 Andvaka. Fjórði þáttur um nýjan skáld-
skap og útgáfuhætti. Umsjónarmaður. ólafur
Jónsson.
21.15 „Hafið”, sinfónia nr. 2 í C-dúr eftir Anton
Rubinstein. Sinfóniuhljómsveitin i Westfalen
leikur; Richard Kappstjórnar.
22.05 Kvöldsagan: „Dauði maðurinn” eftir Hans
Sherfig. óttar Einarsson lýkur lestri sögunn
ar í þýðingu sinni (9).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Kvöldvaktin. Ásta R. Jóhannesdóttir
stjómar blönduðum dagskrárþætti.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Fetar bú í fótspor
Fileasar Fogg?
Einhver áskrifandi Dagblaðsins gerir
það áreiðanlega.
Og ekki einn. Því sigurlaun í áskrif-
endaleiknum okkar eru ferð fyrir tvo
umhverfis jörðina á 30 dögum.
Því ekki þú?
Þá bíða þín framandi stórborgir og
furðulönd. London, Róm, Karachi,
Bangkok, Manila, Hong Kong, Tokyo,
Honolulu, San Fransisco og New York.
Ferðaskrifstofan Sunna sér um
ferðina og þið gistið á mörgum
frægustu lúxushótelum heims, t.d.
Royal Cliff hótelinu í Bangkok.
Sértu áskrifandi nú þegar, þá ertu
þar með þátttakandi í áskrifenda-
leiknum.
Gerist þú áskrifandi nú fyrir
mánaðamótin verða tveir seðlar með
þínu nafni í pottinum þegar dregið
verður þann 20. ágúst.
Tveir seðlar.
Og símanúmer Dagblaðsins
verður þú að muna:
27022
Um það verður spurt þegar þú
vitjar vinningsins.
En fyrst er að gerast áskrifandi.
Hringdu strax. Síminn er 27022.
IíMíBIABW
Áskrifendasími 27022