Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 17.07.1978, Qupperneq 8

Dagblaðið - 17.07.1978, Qupperneq 8
.81 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1978. Hafr6t og Signý þeysa inn 1 höfnina i gærkvöldi rétt fyrir klukkan 10. Heiðursiylking báta frá Snarfara kemur svo i kjölfarið inn um hafnarkjaftinn i Reykjavtk. Baráttunni við höfuðskepnurnar er þar með lokið. — DB-mynd Jóhannes Reykdal. Þúsundir fögnuðu sjóröllurunum — Forskot DB bátsins og rúmlegá 30 mílna hraði dugði lítið gegn keppnisbátunum Ekki þótti annað hæfa en Dagblaðið sendi bát á móti Signýju og Hafróti er komið var siðasta spölinn i sjórallinu. Talið var að bátamir kæmu til Reykja- vikur um kl. 21 og þvi var haldið til móts við þá um kl. 20. Til fararinnar var feng- inn Shetland bátur Sigurðar Gíslasonar, Salvör, og auk Sigurðar skipstjóra voru um borð Jón Magnússon háseti og blaðamaöur og ljósmyndari DB. Stímið var tekið út að sjöbaujunni, þvi talið var vist að þeir félagar kæmu inn á milli innsiglingabaujanna. Við baujuna var stoppað og látið reka og menn horfðu fráneygir út á hafið til þess að missa ekki af siglingarköppunum. Þokan gerði mönnum þó gramt i geði, en þó birti heldur er á kvöldið leið. Það fór þó að fara um okkur bátsverja er á tíunda tím- ann leið og ekkert bólaði á rallköppun- um. Loks sást hilla undir þá félaga við Gróttu og kom þá I ljós að þeir höfðu farið nokkuð af leið I þokunni. Sigurður kapteinn gaf Salvöru nú i botn, því meiningin var að vera heldur á undan röllurunum til þess að ná betri myndum. Og við náðum svoUtlu forskoti og sigld- um á yfir 30 mUna ferð. En ekki dugði það. í Salvöru blessaðri eru hestöflin 75, en um 200 I bátum raUara. Það dró þvi fljótt saman með oss og raUarar fóru fram úr áður en til hafnar kom. Það kom þó ekki að sök, þvi þeir tóku aukahring fyrir áhorfendur fyrir utan hafnarmynn- ið. Það var tilkomumikil sjón er bátamir renndu inn á höfnina, þar sem þúsundir áhorfenda biðu sæfaranna og fögnuðu þeim að lokinni dirfskuför. SjóraUið hefur greinilega vakið mikla athygU um aUt land og hvar sem bátamir komu var þeim vel fagnað og allir boðnir og búnir að veita aðstoð. Það er gott veganesti fyrir næsta sjóraU DB og Snarfara. jjj Mikið starf Félags Farstöðvaeigenda: Bátarnir stöðugt vaktaðir Reynir Einarsson og Sævar Sveinsson höfðu litinn tima til þess að ræða við blaðamann, enda nóg að gera ,,í loftinu”. — DB- mynd Hörður. Félag farstöðvaeigenda hefur reynzt betra en enginn í SjóraUi DB og Snar- fara. FR menn hafa fylgzt með bátunum aUa leiðina og tvo siðustu dagana hefur verið stöðug vakt I aðalstöðvum FR I Reykjavik, að Síðumúla 22. Þar hafa menn vitað staðsetningu aUra bátanna og þangað hafa margir leitað eftir upp- lýsingum. DB leit inn til FR-manna í Siðumúlan- um um kvöldmatarleyti I gær. Þá var mikið að gera, enda bátamir tveir, Haf- rót og Signý, sem voru á leiö frá Ólafs- vík, famir að nálgast lokatakmark.. Á vaktinni voru þau Reynir Einarsson 1971, Sævar Sveinsson 1551, Valtýr Einarsson 1928 og Maria Maack 1881. Rétt er að taka það fram að tölumar, sem fylgja hverjum manni eru FR kaU- merki þeirra. Þau sögðust hafa verið stöðugt við tækin frá þvi á laugardagsmorgun. Þau fjögur hafa skipzt á allan tímann og hlustað á rás 5og 6, þ.e. þær rásir, sem bátamir náðust á. Til frekara öryggis var Jóhann Ágústsson 269 einnig á vakt I Kópavoginum. „FóUc úti á landi var boðið og búið að hjálpa okkur,” sögðu FR-menn. „Menn báru á mUli og jafnvel símstöðin á Skagaströnd var opnuð aftur í fyrra- kvöld. En það er ljóst að þennan þátt má vinna mun betur er aftur verður haldið sUkt raU. Með betri undirbúningi er hægt að koma upp neti farstöðva hring- inn I kringum landið, þannig að aldrei verði sambandslaust við bátana. Þannig er einnig hægt að koma stöðugt upplýs- ingum til stjórnstöðvar.” Þess má geta að lokum, að FR-menn fóru ekki af vaktinni fyrr en eftir mið- nætti, er ljóst var að bátamir sem voru á leið frá Isafirði til Ólafsvíkur voru komnir fyrir hina illræmdu Látraröst. —JH. IMMBIABW SfílAfíFARI SIG- UR- LAUN- IN í Sjóralli Dagblaðsins og Snar- fara er keppt um bikarinn á myndinni, fagur gripur með einkar vel gerðri áletrun letur- grafara hjá Magnúsi Baldvins- syni. Allir fá keppendur Casio- tölvuúr að gjöf frá Dagblaðinu, en þau eru á myndinni ásamt bikarnum. Verðlaun verða af- hent og úrslit tilkynnt í sýninga- höllinni á Bíldshöfða í kvöld. Þar stendur til að almenningur geti skoðað bátana og jafnvel rabbað við sjóhetjurnar.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.