Dagblaðið - 17.07.1978, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ 1978.
9
Kampa-
víns-
bað
— ístaðsjávar-
drífunnar
Þáttakendur í Sjóralli ’78 eru
orðnir því vanir að sjávarlöðrið
leiki um þá. í gærkvöldi kynnt-
ust þeir annarri tegund af löðri,
kampavínslöðri. Einn vina
þeirra félaga opnaði slíka flösku
á hafnarbakkanum og dembdi
yfir höfuðið á Birni Árnasyni.
„Er ekki betra að setja þetta of-
an í sig,” stakk Runólfur upp á,
og það var gert. — DB-mynd
Guðjón Pálsson.
Til hamingju
Hafsteinn
Dagblaðsmenn voru að vonum stoltir sonur hans Hafsteini Sveinsyni fyrir
yfir hversu vel Sjórall þeirra og Snar- hans vaskieguframgöngu I keppninni —
faramanna hefur gengið fyrir sig. Hér
þakkar Sveinn R. Eyjóifsson og ungur DB-mynd Guðjón.
Sigurínn í augsýn
Á myndinni sjáum við Baldur Með sigurvon héldu þeir frá Akureyri, honum heim til Borgamess og bíður
Jóhannsson, annan brœðranna á Má, en þá skeði óhappið á Húnaflóa, bátur hann nú viðgerðar. — DB-mynd
bát 04 i SjórallkeppninnL Baldur og þeirra brotnaði og varúrleik. Komuþeir Hörður.
Hermann voru einstaklega óheppnir.
VESTMANNAEYJAR
GUNNIGUNN HÉR
Vestmannaeyingar eru eins
og aðrir hrifnir af afreki Gunn-
ars og Björns á Signýju. Og þeir
eiga líka sinn skerf af þvi hvern-
ig þeir sneru töpuðu tafli upp í
sigur, þvi sigur var það fyrir þá
að komast hringinn. Eftir stöð-
ug óhöpp komst Signý hringinn.
Og hér er Gunnar í
Reykjavikurhöfn, þrekaður, en
ræðir við Eyjamenn í talstöð og
þakkar þeim enn einu sinni þá
ómetanlegu aðstoð, sem þeir
veittu í upphafi keppninnar.
Gunnari og Bjrni hefur ekki ver-
ið boðið á næstu þjóðhátíð Eyja-
manna, okkur er sagt að þeir
hafi „verið boðaðir”. Það þýöir
að þeir verða sóttir, mæti þeir
ekki!
BIAOIB
SNARFAR!
Glæsilegt mótíslenzkra hestamanna:
15-20 ÞÚS. MANNS MÆTTUST í SKÓGARHÓLUM
Glæsilegasta og bezt heppnaða mót,
sem islenzkir hestamenn hafa haldið fyrr
og siðar, var haldið á Skógarhólum á
Þingvöllum um helgina. Landsmótinu,
sem hófst á miðvikudaginn með dómum
á stóðhestum, lauk með þvi, að milli
fimmtán og tuttugu þúsund manns
fylgdust af spenningi með er fljótustu
hestar landsins þreyttu með sér kapp í
stökki, skeiði og brokki.
Aldrei hefur sézt önnur eins kynbóta-
sýning og á þessu móti. Ber sú sýning
þess merki að sú stefna að hefja mark-
vissa reiðhestarækt á íslandi er farin að
skila árangri. Sérstaklega var áberandi
hversu margir góðir einstaklingar fylgdu
afkvæmasýndu hrossunum og hversu
hæfileikar þeirra voru jafnir og miklir.
Sörli Sveins Guðmundssonar hlaut núna
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi, enda
fylgdu honum slíkir einstaklingar, að
þeir urðu efstir í stóðhestakeppni eins-
taklinga. Skal þar fyrst frægan telja,
Náttfara frá Ytra-Dalsgerði, en hann
hlaut einkunnina 9,08 fyrir hæfileika, og
hefur sú einkunn ekki sézt áður fyrir
stóðhest. Meðaleinkunn Náttfara varð
8,54.
Þá hlaut Fjöður frá Tungufelli einnig
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi.
Það var von að Þórkatli Bjarnasyni
hrossaræktunarráðunaut rikisins, dveld-
ist við þessa miklu sýningu, enda nutu
áhorfendur óspart fegurðar hrossanna
og hversu vel þau komu fyrir i sýningu.
Það vekur athygli hve vel islenzkir
reiðmenn og knapar sýna orðið hesta.
Bæði er sambandið á milli manna og
hesta mjög gott, og hestarnir ekki leiddir
til sýningar nema þeir séu í góðri þjálf-
un. Einnig er til fyrirmyndar hve snyrti-
legir knapar eru og yfirleitt vel til fara.
Er þetta áreiðanlega ekki sízt félagi
tamningamanna að þakka, en þeir hafa
haft forgöngu um kennslu í reið-
mennsku og stílfestu i framkomu á hest-
baki.
Þessir tamningamenn. sem yfirleitt
eru frekar af yngri kynslóðinni, hafa
einnig haft séraðstöðu til þjálfunar hesta
og yfirleitt skipt með sér verðlaunum i
gæðingakeppnum.
Það kom þvi sérstaklega á óvart, þeg
ar ein kempa af gamla skólanum, Sig-
finnur Pálsson á Stórulág í Hornafirði.
sigraði i gæðingakeppninni A-flokki og
það ekki með neina smáræðiseinkunn,
8,94. Afsannar það svo ekki verður um
villzt að klíkuskapur sé í íslenzkri hesta-
mennsku. Allir geta unnið, hvort sem
þeir hafa lært að ríða uppá „þýzkan
máta’’ eður ei.
í klárhestakeppninni kom sigur Hlyns
frá AkureVri mjög á óvart en Hlynur er
undan Sörlá sem áður var minpzt á. Eig-
andi Hlyns er Reynir Björgvinsson en
knapi var Eyjólfur ísleifsson.
í kappreiðunum var Fannar yfir-
burðasigurvegari í skeiðinu og rann það
á 23 sek. sléttum. Eigandi Fannars er
Hörður G. Albertsson en Aðalsteinn
Aðalsteinsson sat hann. Ölver frá Akur-
eyri varðannaren Vafi þriðji.
Kóngur Jóhannesar Jóhannessonar
sigraði i 250 m stökki en knapinn var
hinn góðkunni Einar Karelsson í borgar-
nesi. Stormur varð annar, en Snegla
þriðja.
Nös Jóns Ólafssonar á Urriðavatni
sigraði í 350 m stökki á 24,5 sek. en
knapinn var Stefán Sturla Sigurjónsson.
Önnur varGjálp frá Höskuldsstöðum en
Blesa frá Hvítárholti hreppti þriðja
sætið.
Gustur Björns Baldurssonar sigraði i
800 m stökki á 63.2 sek. en knapinn var
Valdimar Guðmundsson. Annar var
Mósi frá Vindási en Frúar-Jarpur
hreppti þriðja sætið.
Funi Marteins Valdimarssonar frá
Búðardal sigraði I brokki á nýju íslands-
meti 3,02,5 min. Knapi var eigandi.
Annar var Léttir úr Ámessýslu en Blesi
frá Miðey þriðji.
1 heild mótaðist landsmótið af þvi
ágæta veðri, sem var alla dagana og vel
heppnaðri framkvæmd í alla staði.
Framkvæmdastjóri var Pétur Hjálms-
son en formaður framkvæmdanefndar
Bergur Magnússon.
G.T.K.