Dagblaðið - 17.07.1978, Side 19

Dagblaðið - 17.07.1978, Side 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. JÚLl 1978. 19 d Iþróttir Iþróttir íþróttir Iþróttir Slakt er Fram sigraði Þrótt — í 1. deild íslandsmótsins, 1-0 íLaugardal Fram sigraði Þrött i 1. deild tsiands- mötsins i knattspyrnu á Laugardalsvell- inum á laugardaginn, 1—0. Fram er því með 13 stig eftir ellefu leiki. Hefur unnið níu, gert eitt jafntefli og tapað einum leik, er því i þríðja sæti, næst á eftir Skagamönnum, sem hafa 19 stig. Þrótt- arar hafa 9 stig eftir jafnmarga leiki og Fram, hafa þeir unnið tvo leiki, gert fimm jafntefli og tapað 4 leikjum. Leikur þessi var afar lélegur frá byrj- un til enda. Eina mark leiksins var skor- að á 7. minútu fyrri hálfleiks er Fram fékk aukaspyrnu á vallarhelmingi Þrótt- ar. Ásgeir Eliasson tók spyrnuna og gaf fyrir mark Þróttar, þar var Pétur Orms- lev sem skallaði knöttin aftur fyrir sig. Lenti knötturinn fyrir framan fæturna á Sigurbergi Sigsteinssyni sem skoraði eina mark leiksins, 1—0 fyrir Fram. Einnig mætti þjálfari Þróttar, Þorsteinn Friðjónsson, temja skap sitt betur. 1 liði Þróttar var Jóhann Hreiðarsson mjög góður í vörninni, var bókstaflega alls staðar þar sem á varnarmanni þurfti að halda. Einnig reyndi Ágúst Hauksson að skapa sóknir en það tókst ekki sem skyldi, þar sem enginn var til þess að hjálpa honum. 1 liði Fram bar mest á þeim Ásgeiri Eliassyni og Pétri Ormslev í sóknarleiknum, Kristinn Atlason var ágætur í vöminni. Dómari leiksins var Sævar Sigurðsson og dæmdi hann leikinn sæmilega. h. jóns. Atgangur við mark Þróttar en þarna tókst að bægja hættunm frá. Fram sigraði með eina markinu I leiknum og hefur þvi unn- ið báða leikina við Þrótt I sumar. — DB-mynd Hörður Vilhjálmsson. Ekkert markvert skeði í þessum háif- leik sem hægt er að tala um. Knötturinn gekk andstæðinga á milli þar til flautað var til hálfleiks. Halldór Árnason varð að yfirgefa völlinn í hálfleik þar sem hann skallaði einn leikmann Fram og fékk gat á höf- uðið. Varð hann að fara á Slysavarðstof- una og láta gera að sárum sínum. Framarar byrjuðu með knöttinn i seinni hálfleik en misstu hann fljótlega til mótherja sinna. Gekk þetta svona all- an hálfleikinn eins og i þeim fyrri. Ef skotið var að marki var það svo illa gert að knötturinn fór marga metra yfir markið. Þróttarar ættu að hvíla leikmenn eins og Pál Ólafsson, sem fer í fýlu ef ekki gengur eins og hann vill hafa það. Golfklúbburinn Höfn í Homafirði Á Höfn í Homafirði var mjög gott veður alla keppnisdagana en þrátt fyrir það var fremur léleg þátttaka. Keppt var í 5 flokkum og einnig var 18 holu pútt- keppni. Karlaflokkur 1. GunnlaugurÞ. Höskuldss. 314högg 2. Ámi Stefánsson 333 högg 3. Jón JóL Sigurösson 363 högg Kvennaflokkur 1. Rósa Þorsteinsdóttir 384 högg 2. Ólafia Þórðardóttir 431 högg 3. Linda Tryggvadóttir 461 högg öldungaflokkur (18 holur) 1. Bjöm Gislason 92 högg 2. J ón J íil. Sigurösson 93 högg 3. Tryggvi Sigjónsson 93 högg Unglingaflokkur 1. Halldór Tryggvason 375 högg 2. Bjöm Ragnarsson 389 högg Drengir: 1. Hermann Erlingsson 297 högg 2. Magnús Pálsson 324 högg 3. Bragi Karlsson 368 högg Púttkeppni (18 holur) 1. MagnúsPálsson 42högg 2. Ámi Stefánsson 42 högg 3. Sigurður Ástvaldsson 44 högg Athyglisverður er árangur Hermanns í drengjaflokki og er þama mikið efni á ferðinni. Golfklúbbur Húsavfkur Á Húsavík var keppt í þremur flokk- um, í karlaflokki voru leiknar 72 holur en 36 i hinum tveim. Karlaflokkur 1. JónasG. Jónsson 332högg 2. Axel Reynisson 339 högg 3. Ingimar Hjálmarsson 344 högg Kvennaflokkur (36 holur) 1. Sigríöur B. Ólafedóttir Drengjaflokkur (36 holur) 1. Krístján Hjálmarsson 169högg 2. Skúli Skúlason 175högg 3. Gunnar Austfjörö 224 högg Sigurvegarinn i karlaflokki er 68 ára gamall og gerði sér lítið fyrir og setti vallarmet, lék 9 holur á 36 höggum. Parið á 9 holum er 33 högg. HBK .... ' þeir þafa þekkingu, reynsiu og þjáifun . Eltthvað á þessa lelð er rabb þelrra um gólflögn frá Gólf hf.: „Svo eru það gólfln, maöur," seglr eigandfnn. „Þau þurfa að hafa töluvert burðar og efnaþol." „Já, hérna eru þeir elnmitt með elna tegund sem hentar okkur full- komlega. Burðarþol 500- 800 kg á fersentimetra og efna- og slitþol eftir því. - (Elgartdinn grípur tram f og seglr:) „Trúlr arkltektlno þessu?" 1. „Nel, en þetta er staðreynd," segir arkitektinn. „Þelr hafa lagt gólf- lagnlr á gömul og slitin gólf, vðru- afgreiðslur, snyrtlherbergl, blf- reiðaverkstæðl o. s. frv. Þelr hafa þekkingu, reynslu og þjálfun og NÓTA BENE þetta er ódýrara en tlísalögn. „Nú,“ segir elgandlnn, „það er best maður hrlngl í þá.“ Svo tautar hann: „Þelr ættu bara að fara að leggja á göturnar með þessu...“ GOLFHF KÁRSNESBRAUT 32, KÓPAVOGI Símar: 40460 og 76220

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.