Dagblaðið - 17.07.1978, Page 23

Dagblaðið - 17.07.1978, Page 23
23 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 17. JÚLÍ '1978. d Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir e Óvænt úrslit settu svip — á Meistaramót íslands í f rjálsum. Metþátttaka og hörð keppni í mörgum greinum en fjarvera margra f remstu íþróttamanna komu illa niður á árangri Keppendur UÍA voru i sviðsljósinu á Meistaramóti íslands sem fram fór um helgina og raunar lýkur i kvöld, i fimmt- arþraut og 3000 metra hindrunarhlaupL Meistaramótið staðfesti grósku i frjáls- um íþróttum á Austurlandi undir leið- sógn Stefáns Hallgrimssonar, þess kunna tugþrautarkappa. Stefán Hallgrimsson var sjálfur í sviðsljósinu en sérstaka athygli vakti Stefán Friðleifsson. Hann sigraði i há- stökki, stökk 1.98 — þaö í sjálfu sér er ef til vill ekki svo merkilegt, en fyrir fáum mánuðum stökk Stefán um 1.60 — svo framfarir hans hafa verið mjög örar. Sannarlega efni þar. Annar í hástökkinu varð Elías Sveinsson en hann stökk sömu haeð, 1.98 — og i þriðja sæti varð Karl West Fredriksen, 1.95. Það sem ef til vill setti mestan svip á mótið var fjarvera margra kunnra kappa. Afrek voru því ef til vili ekki mik- il en viða jöfn og hörð keppni. Metþátt- taka var á Meistaramóti íslands, rétt um 140 keppendur. Bergþóra Benónýsdóttir úr Þingeyjar- sýslu var mjög í sviðsljósinu. Hún sigr- aði i þremur greinum auk þess sem hún var i sigursveit HSÞ í 4x100 metra boð- hlaupi. Bergþóra eignaðist barn í vetur og hefur nú aldrei verið betri. Hún sigr- aði í 100 metra hlaupi á 12.2. Þá sigraði hún i langstökki, 5.03 og í 100 metra grindahlaupi á 15.4. Sigursveit HSÞ i 4x100 metra boðhlaupi, hljóp á 51.0. Hreinn Halldórsson sigraði i kúlu- Stefán Hallgrimsson. Undir hans stjórn hafa Austfirðingar komið á óvart. — DB-mynd Hörður. Bergþóra Benónýsdóttir kemur fyrst i mark í 100 metra grindahlaupi. — DB- mynd Hörður. varpi en honum tókst þó ekki að rjúfa 20 metra múrinn á laugardag. Hann varp- aði 19.89. Þar varð Óskar Jakobsson í öðru sæti. varpaði 18.03. Þriðji varð svo Guðni Halldórsson, KR, varpaði 17.12. Óskar varð að gera sér annað sætið að góðu í kúluvarpinu en hann sigraði engu aðsiðurí þremurgreinum. I kringlukasti kastaði hann 55.88 — langt frá sinu bezta i sumar og virtist Óskar ekki ná sér á strik. I spjótinu kastaði hann 73.66, tæpan metra frá lslandsmeti sínu. Loks sigraði Óskar Jakobsson i sleggjukasti, 49.36. Erlendur Valdimarsson gat ekki keppt vegna meiðsla svo Óskar naut ekki keppni hans. Annars urðu úrslit á Meistaramótinu: 400 metra grindahlaup: Stefán Hallgrimsson UlA 53.3 Þráinn Hafsteinsson Ármanni 57.1 Kristján Þráinsson HSÞ 57.6 1 hástökki kvenna setti Þórdís Gisla- dóttir nýtt meistaramótsmet, stökk 1.71. Þar varð önnur Maria Guðnadóttir, HSH, 1.68. Sigurvegari í spjótkasti kvenna varð Maria Guðnadóttir, kast- aði 36.76. 200 metra hiaup: 1. Sigurður Sigurðsson, Ármanni 22.1 2. Jón Sverrisson, UBK 23.5 3 Jakob Sigurólason, HSÞ 22.4 200 metra hiaup kvenna: 1. Sigriður Kjartansdóttir, KA 25.9 Úr 800 metra hlaupinu, að baki Stefáns Hallgrimssonar er Steindór Tryggvason ÚÍA en hann fór framúr Stefáni á síðustu metrunum. — DB-mynd Hörður Vilhjálmsson. w Wm -9 Bfc. %&•****« ' i *Stefán Friðleifsson stekkur yfir 1.98 en hann hefur tekið gífurlegum framförum á örskömmum tíma. DB-mvnd Hörður. 2. Sigrún Sveinsdóttir, Ármanni 26.1 3. Hólmfríður Erlingsdóttir, UMSB26.2 Sigriður Kjartansdóttir setti nýtt stúlknamet í 200 metra hlaupinu i milli- riölum en þá hljóp hún á 25.6. Og hún lét ekki þar við sitja heldur setti einnig stúlknamet í 400 metra hlaupi kvenna en þar hljóp hún á 58.1. Þar varð önnur hin efnilega Rut Ólafsdóttir úr FH á 58.5, sem er telpnamet. Sigfús Jónsson sigraði í 5000 metra hlaupinu á 15:09.8. í kúluvarpi kvenna sigraði Dýrfinna Torfadóttir úr KA. 9.64. Sigurvegari í langstökki karla varð Sigurður Hjörleifs- son, HSH, stökk 6.37. Steindór Tryggva- son ÚÍA sigraði i 800 metra hlaupi eftir hörkubaráttu við þjálfara sinn, Stefán Hallgrimsson. Báðir fengu þeir timann 1:57.7 en Steindór varsjónarmun á und- an. Guðrún Sveinsdóttir UÍA, sigraði í 800 metra hlaupi kvenna á 2:20.3. Berg- þóra Benónýsdóttir sigraði i 100 metra hlaupi. á 12.2, aðeins 1/10 úr sekúndu lakari tími en meistaramótsmet Ingunn- ar Einarsdóttur. Þar varð önnur Kristín Jónsdóttir úr Kópavogi á 12.6. Guð- mundur Jóhannesson, HSH sigraði i stangarstökki, 4.10. „Gamli maðurinn” Valbjörn Þorláksson varð þriðji en ekki varð Sigurður Sigurðsson hinn öruggi sigurvegari i 100 metra hlaupi á 10.7. ÞarvarðannarMagnúsJónassoná 11.2 og þriðji Guðlaugur Þorsteinsson, lR á 11.2. Guðrún Árnadóttir, FH sigraði í 1500 metra hlaupi kvenna, á 4:53.8. 1 1500 metra hlaupi karla varð hins vegar ÍR- ingurinn Hafsteinn Óskarsson fyrstur á 4:04.8. í kringlukasti kvenna sigraði Kristjana Þorsteinsdóttir Viði, 35.16. Bergþóra Benónýsdóttir sigraði í lang- stökkinu en þar kom 12 ára gömul stúlka, Bryndís Hólm, ÍR, verulega á óvart. í sinu síðasta stökki stökk hún 4.96 og varð önnur. Stefán Hallgrimsson sigraði i 400 metra hlaupi á 49.5. Þar varð annar Borgfirðingurinn Aðalsteinn Bernharðsson á 50.1. í 110 metra grindahlaupi sigraði Elías Sveinsson á 15.5 en annar varð Stefán Hallgrimsson -á 15.7. í 4x100 metra boðhlaupi hljóp sveit Ármanns á 43.4. í 4x100 metra boð- hlaupi kvenna sigraði sveit HSÞ á 51.0. Sveit Ármanns sigraði i 4x100 metra boðhlaupi karla á 3:29.0 en þar varð sveit UlA önnur. 1 4x400 metra boð- hlaupi kvenna varðsveit UÍA hlutskörp- ust. fyrr en eftir hörkubaráttu við Karl West Fredriksen. Báðir stukku 4.10 en Karl notaði færri tilraunir. Helgi Hauksson úr Breiðablik sigraði i þrístökki, 13.78. Rétt eins og i 200 metra hlaupinu Sigurður Sigurðsson, sigraði I 100 og 200 metra hlaupunum af öryggi. — DB- mynd Hörður. Geríó sjálf minniháttar viögeróir SPECTRA viðgerðarvörur lækka viöhaldskostnaóinn Vandamál i kælikerfinu Hvort sem það er leki, stífla, eða ryðmyndun, SPECTRA hefur ráð við þvi. ErfiÓ gangsetning Ryó f yfirbyggingunni Bílalökk SPECTRA startgasið er örugg lausn við slikum vanda. SPECTRA viðgerðarsett- ið er góð lausn. Hentar einnig til viðgerða á ýmsum hlutum úr tré, plasti, steini o.fll Gat á púströrskerfinu SPECTRA lökk í hentug- SPECTRA viðgerðar- um spraybrúsum. Fjöldi borðinn eða kíttið þéttir lita. og glerharðnar í sprung- um og götum. Kynnið ykkur úrvalið af SPECTRA viðgerðarvörunum. Fást á bensínstöðvunum og víða annars staðar.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.